Morgunblaðið - 22.12.2011, Page 8

Morgunblaðið - 22.12.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011 Minnismerki eru sums staðaraðdráttarafl, enda stundum í senn stikkorð og kennileiti um merk augnablik sögunnar.    Minnismerki um suma þekkt-ustu forseta Bandaríkjanna í höfuðborginni, ásamt Hvíta hús- inu og Þinghús- inu rammar miðju borg- arinnar fallega inn.    Franko á Spáni gerði ósmekk-legt minnismerki um sigur sinn í borgarastyrjöldinni og þrælkaði óvinum sínum út við gerð þess.    Frægasta kirkja Lundúna þykirfremur minnismerki um arki- tektinn en þá sem stóðu fyrir bygg- ingunni.    Litla ljúfa hafmeyjan í Kaup-mannahöfn og Sívaliturninn gegnt Garði minna einkum á sjálfa sig og lýsa upp tilveruna og fer gleðigjafinn ekki eftir stærð.    Pýramídar voru byggðir semrisavaxnar lokrekkjur látinna, mannlegum hálfguðum til lotn- ingar, en eru nú til vitnis um undur veraldar.    Í París fékkst leyfi til að reisajárnbentan babelsturn með skil- yrði um að rífa hann í heimssýning- arlok.    Og á Íslandi er opinber spjallarisvo uppbelgdur af sjálfum sér að hann heldur að Perlan á Öskju- hlíð sé minnismerki um sig.    Það er ekki öll vitleysan eins ogþað gerir hana svo notalega. Perlan Merki um ekkert STAKSTEINAR Oddur C.S. Thor- arensen, fyrrverandi apótekari, andaðist á Landspítalanum 20. desember sl., 86 ára að aldri. Oddur fæddist í Reykjavík 26. apríl 1925 og var sonur hjónanna Stefáns Thorarensen apótek- ara og Ragnheiðar Hafstein Thorarensen. Oddur lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1945, fyrrihlutaprófi í lyfjafræði frá Háskóla Íslands 1948 og cand. pharm.-prófi frá Kaupmannarhafn- arháskóla 1954. Frá unga aldri og með námi starfaði hann í Laugavegs Apóteki hjá föður sínum, sem stofn- aði apótekið árið 1919. Eftir heim- komuna úr náminu í Kaupmanna- höfn starfaði hann sem lyfjafræðingur í apótekinu til ársins 1957 er hann varð framkvæmda- stjóri Efnagerðar Reykjavíkur. Árið 1969 tók hann við rekstri Laugavegs Apóteks og rak það til ársins 1997. Oddur rak einnig heildverslunina Torenco á árunum 1981-1997. Oddur gegndi fjöl- mörgum trún- aðarstörfum um ævina fyrir sín fagfélög og var bæði ritari og for- maður í Lyfjafræð- ingafélagi Íslands, Apótekarafélagi Reykjavíkur og Apótekarafélagi Ís- lands. Hann átti einnig sæti í sókn- arnefnd Garðabæjar á árunum 1972- 1984 og tók þátt í starfi Sjálfstæð- isfélagsins í Garðabæ og var formaður þess árið 1987. Eftirlifandi eiginkona hans er Unnur Long Thorarensen. Börn Odds eru Stefán og Baldvin Haf- steinn frá fyrra hjónabandi og Ragnheiður Katrín, Elín og Unnur Alma. Andlát Oddur C.S. Thorarensen Veður víða um heim 21.12., kl. 18.00 Reykjavík 5 rigning Bolungarvík 0 snjókoma Akureyri -1 snjókoma Kirkjubæjarkl. 3 alskýjað Vestmannaeyjar 7 rigning Nuuk -10 léttskýjað Þórshöfn 6 skúrir Ósló -8 skýjað Kaupmannahöfn 2 skýjað Stokkhólmur 0 skýjað Helsinki 1 snjóél Lúxemborg 2 súld Brussel 6 þoka Dublin 11 skýjað Glasgow 12 súld London 12 skýjað París 11 skýjað Amsterdam 7 skýjað Hamborg 2 léttskýjað Berlín 2 skýjað Vín 3 skúrir Moskva -2 snjókoma Algarve 17 heiðskírt Madríd 17 heiðskírt Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 16 léttskýjað Róm 7 heiðskírt Aþena 12 skýjað Winnipeg -3 alskýjað Montreal -5 snjókoma New York 11 alskýjað Chicago 5 alskýjað Orlando 22 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:23 15:31 ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:53 SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:34 DJÚPIVOGUR 11:02 14:51 Laugavegi 53 • s. 552 3737 Opið 22. des. 10-22, 23. des. 10-23 og 24. des. 10-12 Mikið úrval af fallegum gjöfum í jólapakkann Sængurgjafir í úrvali jj Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið fimmtudag 22. desember kl. 10–22, þorláksmessu kl. 10–23, aðfangadag kl. 10–12 Síðasta uppboð ársins lýkur 22. desember Vef uppboð nr. 19 Einstök gjafabréf sem eru jafnframt ekta listaverk Einstakt Gjafabréf Gallerí Fold 25.000 kr. Handhafa þessa bréfs er heimil úttek t hjá Gallerí Fold að upphæð 25.000 kr. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Stjórnendur Ice- landair eru byrjaðir að kaupa los- unarheimildir, en frá og með 1. janúar 2012 mun flug- starfsemi innan EES-svæðisins falla undir við- skiptakerfi ESB með los- unarheimildir. Þar sem Icelandair er vaxandi fyrirtæki þarf það að kaupa sér viðbótarlosunarheimildir. Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, segir kostnaðinn hlaupa á hundruðum milljóna. Nú sé hægt að kaupa losunarheimildir á markaði líkt og eldsneyti og hækki verðið og lækki eins og hver önnur vara. Sé fyrirtækið þegar farið að nýta sér þennan markað. Icelandair kaupir losunarheimildir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.