Morgunblaðið - 22.12.2011, Síða 10

Morgunblaðið - 22.12.2011, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011 Kimmidoll á Íslandi Ármúla 38 | Sími 588 5011 Momoka „Gorgeous“ með swarovski kristöllum Gleðilega hátíð María Ólafsdóttir maria@mbl.is Í ljóðabók sinni, „Í klóm dalalæð- unnar“, býður rithöfundurinn Sindri Freysson lesendum í ferðalag á heimaslóðir föðurgarðs síns norður í Aðaldal. Hlaut Sindri Bókmennta- verðlaun Tómasar Guðmundssonar 2011 fyrir bókina. Órofa hluti af lífinu „Þarna er ég að skrifa um minn föðurgarð og jörðina sem hann sprettur úr, Haga í Aðaldal. Þetta er bók bæði fyrir hjartað og sálina. Ég held að væntumþykjan sem ég finn til svæðisins og fólksins skíni í gegn og fólk greini alveg að þetta er ást- aróður til þessa umhverfis og þess- arar fjölskyldu,“ segir Sindri. Ljóðin eru byggð á minningum Sindra um Aðaldalinn og um leið upplifun hans í nútímanum þar sem jörðin er órofa hluti af lífi hans í dag. En þangað fer hann bæði til að skrifa í góðu næði svo og að njóta einstakrar náttúru og vel þeginnar kyrrðar. „Ég er að vona að bókin særi fram þá ljúfu – kannski angurværu stemningu – sem maður finnur þarna. Vellíðun og væntumþykju bæði í garð þess- arar sögu og náttúrunnar,“ segir Sindri sem heimsótti Haga á hverju sumri með foreldrum sínum og syst- ur. Var mikil upplifun fyrir borg- ardreng úr Breiðholti að koma þar inn í annan veruleika með miklu frelsi og rými, útsýni og náttúru. Vörður upp úr dalalæðunni Sindi segir ljóðaformið hafa hentað efninu vel þar sem að ævi- sögur séu í eðli sínu skáldaðar, enda man fólk í brotum og glefsum og býr til tengingarnar og samhengi í því skyni að ná fram heildstæðri sögu. „Ég er þess meðvitandi að minn- ingar líkjast frekar einhvers konar vörðum sem standa upp úr dalalæð- unni. Því hafði ég hverfandi áhuga á að búa til bók með fölsku samhengi og vildi frekar virða þessa ann- marka minnisins og finna form sem hentar því. Ég held að ljóð og örsög- ur séu mjög vel til þess fallin að end- urspegla þetta hverfula, brigðula og brotakennda eðli minnisins. Með því að nota ljóðformið til að skrifa um minningar og stað og hugarástand fær lesandinn – og höfundurinn sjálfur líka – tóm og tækifæri til þess að skapa í eyðurnar,“ segir Sindri. Byggingarefnið komið í hús Elstu ljóðin eru frá um áratug aftur í tímann. Sindri líkir skrif- unum við að eignast nagla, poka af sementi og nokkrar spýtur og átta sig allt í einu á því að fyrsta bygg- ingarefnið sé komið í hús áður en teikningin af húsinu liggur fyrir. „Þegar ég gerði mér grein fyrir því að ég væri kominn með upphaf að einhverju þá fór ég að vinna efnið meðvitað og meira þematískt. Þarna eru alls konar sögur bæði sem pabbi sagði mér frá því hann er lítill og frá Ástaróður til dalsins Í klóm dalalæðunnar er persónulegasta bók Sindra Freyssonar til þessa. Þar yrkir hann um föðurgarð sinn og jörðina sem hann sprettur úr, Haga í Aðaldal. Ljósmynd/Úr safni Sindra Höfundur Sindri hefur tekið töluvert af myndum í Aðaldalnum. Á netinu er hægt að fá alls konar hugmyndir með því að vafra þar um að skoða hinar ólíkustu síður. Svo er einnig um jólin og allt sem þeim við- kemur. Ein af þessum ótalmörgu síð- um heitir Better Homes and Garden og þar er sérstakur flokkur fyrir jólin. Þarna má fá gnægð hugmynda að jólaskreytingum, jólainnpökkun, jóla- eftirréttum hvaðanæva úr heiminum, uppskriftir ekki aðeins matar heldur líka að jólakonfekti, heimatilbúnar jólagjafir, jólakransa, hvernig á að búa til alls konar jólaskraut, meira að segja sérstaklega auðvelt skraut fyrir börn að búa til. Vefsíðan www.bhg.com Alls konar jóla, jóla, jóla, jóla Jú, jú, dagurinn eftir jól, 27. desem- ber, getur verið dálítið niðurdrepandi. Enda blessuð jólin yfirstaðin og heilt ár í að þau komi aftur þótt þeim ljúki auðvitað ekki formlega fyrr en á þrettándannum. Sértu farinn að ör- vænta af afþreyingarleysi er þó engu að kvíða því nú er komið að 13. tón- leikunum í tónleikaröðinni Kaffi, kök- ur og rokk & ról í Edrúhöllinni. Hinn 27. desember næstkomandi munu þeir Mugison og Jónas Sig. stíga þar á pall og rokka þakið af höllinni. Miðaverð er sem áður 500 krónur og kökur og kaffi í hléi. Endilega … … hressið ykkur við eftir jólin Morgunblaðið/Golli Stuð Jónas Sig hressir mannskapinn. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Barnabókaútgáfan Unga ástin mín hefur verið áber- andi í barna- bókaútgáfu á síð- ustu árum og stöðugt sótt í sig veðrið. Fyrir- tækið er hug- arfóstur ungrar konu sem býr í Lundúnum og þótt það hafi að- eins starfað í fimm ár hefur það gefið út á níunda tug bóka. Sara Hlín Hálfdanardóttir er framkvæmdastjóri og upphafs- maður Ungu ástarinnar minnar, stofnaði fyrirtækið 2006 með eig- inmanni sínum, Davíð Guðjónssyni, sem starfar hjá Handpoint í Lund- únum. Hún segist þá hafa verið ytra með son sinn á öðru ári og hafi pant- að bækur til að lesa fyrir hann hjá Amazon í Bretlandi. „Þá rakst ég á harðspjaldabækur sem ég varð mjög hrifin af og í framhaldi af því Barna- bóka- fjöld Sara Hlín Hálfdanardóttir Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.