Morgunblaðið - 22.12.2011, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 22.12.2011, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011 VERSLANIR Í MIÐBORGINNI VERÐA OPNAR TIL 22 Í KVÖLD MEIRA Á MIÐBORGIN.IS og Á FACEBOOK.COM/MIDBORGIN MUNIÐ JÓLALEIK MIÐBORGARINNAR Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Tveir vörubílstjórar sem keyra mikið um Öxnadalsheiði, Öxnadal og að Ak- ureyri kvarta undan miklum mun á snjómokstri og hálkuvörnum eftir því hvort ekið er austan eða vestan við Akureyri. Vegagerðin segir að vegar- kaflarnir séu í sama þjónustuflokki og að verktakar beggja vegna Akureyrar uppfylli allar kröfur. „Hálkuvörnum frá Akureyri, upp Bakkaselsbrekku og vestur yfir Öxna- dalsheiði er mjög ábótavant,“ segir Hinrik Máni Jóhannesson, bílstjóri frá Svalbarðseyri. Í liðinni viku hafi hringvegurinn frá Akureyri austur að vegamótum Hringvegarins og Norð- austurvegar (sem liggur m.a. að Húsavík) verið nánast auður. Á sama tíma hafi verið 5 sentimetra þykkur klakabunki á veginum um Öxnadal og upp á Öxnadalsheiði. Þá sé nánast aldrei settur sandur í tvær minni brekkur í Öxnadal, þ.e. við Engimýri og Bægisá. Hinrik Máni stundar svokallaðan mótiakstur, þ.e. hann ekur flutninga- bíl sínum frá Akureyri til móts við bíl að sunnan og svo er skipt á miðri leið. Hann leggur yfirleitt af stað frá Ak- ureyri um átta á kvöldin og ekur til baka um og eftir miðnætti. Hinrik Máni kveðst margoft hafa kvartað við Vegagerðina undan snjómokstri og hálkuvörnum á þessari leið en með litlum eða engum árangri. Þegar hann hringi á kvöldin sé honum bent á að þjónustu ljúki klukkan 22 og ef færðin sé slæm verði hann bara að setja keðj- ur á bílinn. „Ég hef strandað tvisvar í vetur, það sem af er, í miðri Bakka- selsbrekku og þurft að járna [setja á keðjur],“ segir hann Þá komi það fyrir að ef það snjói eft- ir að Bakkaselsbrekkan hefur verið sandborin sé hún rudd en ekki sand- borin á nýjan leik, a.m.k. ekki nægi- lega vel. Nóg til af sandi á Íslandi Gunnlaugur Sveinbjörnsson, bíl- stjóri á Húsavík, tekur í sama streng og Hinrik Máni, þ.e. að mun betur sé staðið að verki austan við Akureyri en vestan við. „Það er stórmunur á því, eins og svart og hvítt.“ Gunnlaugur hefur ekið á milli Húsavíkur og Reykjavíkur frá 1986, alls um 1.850 ferðir (ein ferð er fram og til baka) og kílómetrarnir rúmlega tvær milljónir. „Þegar ég byrjaði þá vorum við að glíma við snjó. Það voru skaflar upp á rúðu og ófært dögum saman,“ segir hann. „Núna er þetta ekki þannig. Nú erum við bara að glíma við ísingu og hálku.“ Vegagerðin verði að taka sig á, bæði vegna flutningabíla og fólkbíla. Gunnlaugur bendir á að útgerð flutningabíla skili miklum tekjum í ríkissjóð. Hann þurfi að kaupa olíu fyrir 70-80.000 krónur á dag. Ríkið ætti að geta veitt þjónustu á móti. „Og það er til nóg af sandi á Íslandi,“ segir hann. Járnað í miðri brekkunni  Vörubílstjórar segja mikinn mun á mokstri og hálkuvörnum eftir því hvort ekið er austan Akureyrar eða vestan  Strandaði tvisvar í miðri Bakkaselsbrekku Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akstur „Hálkuvörnum frá Akureyri, upp Bakkaselsbrekku og vestur yfir Öxnadalsheiði er mjög ábótavant,“ segir Hinrik Máni Jóhannesson bílstjóri. Mokstur og hálkuvörn Öxnadalsheiði Akureyri Víkurskarð Va ðl ah ei ði Ljósavatn (Grenivík) (Dalvík) (Húsavík/Mývatn) Eyjafjörður Grunnkort: Loftmyndir ehf. Mokuð leið og hálkuvarin í hálku og flughálku Mokuð leið og hálkuvarin í flughálku Bakkaselsbrekka Vinnureglur Vegagerðarinnar Pálmi Þorsteinsson, þjón- ustustjóri Vegagerðarinnar á Akureyri, segir að vegirnir aust- ur og vestur frá Akureyri eigi að vera ruddir og hálkuvarðir með sama hætti. Vegagerðin fylgist með verktökunum sem sjá um þessa vegarkafla og báðir standi þeir sig með ágætum. „Hann hefur reyndar fengið á sig það orð að vera mjög dug- legur, mokarinn yfir Vík- urskarðið,“ segir Pálmi. „En ég veit ekki hvað er hægt að segja um það, hann á ekkert að vera að gera meira en reglurnar segja.“ Verktakinn sem sjái um mokstur austur á Öxnadals- heiði fari eftir öllum reglum. Þá bendir Pálmi á að Víkurskarðið sé skammt frá byggð og auð- velt að renna þangað upp eftir en um 50 km séu frá Akureyri að Öxnadalsheiði. Til hálkuvarna er notaður saltblandaður sandur sem Vegagerðin leggur til. Vega- gerðin fylgist með því hversu mikið er sandborið. Ef verktaki tekur út óeðlilega mikið af sandi eru gerðar athugasemdir við það. Standa sig báðir vel VERKTAKAR Í MOKSTRI Eimskip-Flytjandi gerir verulegar athugasemdir við hálkuvarnir á leið- inni milli Reykjavíkur og Austur- lands (um Suðurland). „Við erum búnir að vera að ítreka það að hann er að verða ófær þessi vegur og hann er búinn að vera nánast ófær í þrjár vikur og við höfum verið að senda, bæði öryggisdeildin okkar og ég sjálfur, ítrekaðar beiðnir á Vega- gerðina um að reyna að bregðast við þessu,“ segir Már Þorvarðarson, starfsmaður bílarekstrardeildar Eimskips-Flytjanda. Fátt hafi verið um svör hjá Vegagerðinni. Már segir að Vegagerðin hafi salt- að hringveginn á milli Reykjavíkur og Austurlands en það sé einfaldlega ekki nóg. „Það sem þarf að gera þarna, þegar að vegurinn er orðinn svona ofboðslegur jökull, er að það þarf að fara þarna með veghefil eða vörubíl með virkilega góðri und- irtönn sem nær að rífa upp klakann,“ segir Már og bætir við að um leið og búið sé að rífa upp svona klaka með undirtönn sé hann mun fljótari að hverfa en ella. „Þetta er bara alveg skelfilegt ástand þarna,“ segir Már og bætir við að farinn sé að myndast margra sentimetra þykkur klaki of- an á veginum og því hafi bílar á veg- um fyrirtækisins þurft að keyra á bilinu 350-400 kílómetra af Reykja- vík-Austurland leiðinni á keðjum. Hættulegt og veldur töfum Að sögn Más er ekki spurning hvort það verði stórslys á þessum vegi heldur einungis hvenær það verði. Már bendir jafnframt á að ástandið á veginum valdi miklum töfum. „Bílarnir eru um 5-6 tímum lengur í ferðum en þær ættu að vera að öllu jöfnu, þetta er 10-11 tíma ferð þegar allt er í góðu lagi en þeir eru upp í 15, 16, 17 tíma eins og ástandið er núna, segir Már aðspurður hversu miklar tafir sé um að ræða. Að sögn Más er kostnaður við tafirnar mikill en einnig sé dýrt að kaupa keðjur undir bílana. skulih@mbl.is Skelfilegt á leiðinni austur  Allt að sex tíma tafir hjá bílstjórum Morgunblaðið/Kristján Kristján Jónsson kjon@mbl.is Björn Ólafsson, forstöðumaður hjá Vegagerðinni, segist hafa fulla samúð með vöru- bílstjórum sem kvarti undan færðinni. En síð- ustu árin hafi fjármagn til snjó- moksturs og hál- kuvarna minnk- að allt að 40%. Í reynd sé útilokað að tryggja góða færð á öllum veg- um. Menn verði að forgangsraða og ljóst að mest sé reynt að sinna ann- ars vegar hættulegustu veg- arköflum og hins vegar þeim þar sem umferð sé mest. Veturinn sé búinn að vera erfiður, ekki endilega vegna snjómagns heldur hálkunnar sem myndast í umhleypingunum. „Landið er bara eitt gler,“ segir Björn. „Við erum með fastar reglur, hálkuverjum ákveðna staði, þetta eru mismun- andi þjónustuflokkar eftir umferð. Því minni sem umferðin er þeim mun meira er dregið úr umfanginu eins og eðlilegt er. Á heimasíðunni okkar eru sýndar allar þessar regl- ur, hvar er hálkuvarið og hvar mok- að, hvenær menn byrja og enda, hvernig mönnum er ætlað að vinna eftir þessum reglum.“ Sjálfstæðir verktakar sinna þess- um verkefnum en undir sameig- inlegri stjórn á þrem svæðum, að sögn Björns. Á Ísafirði er ein vakt- stöðin sem samræmir starfið fyrir norðvesturhluta landsins, önnur á Reyðarfirði sem sér um norðaust- ursvæðið og sú þriðja, í Hafn- arfirði, annast Suðvesturland. Not- aðir eru bílar sem búnir eru tönn að framan en einnig undirtönn. Hún er notuð til að rífa upp klaka en einnig er dreift yfir hann saltblöndnum sandi. Samræmdar reglur notaðar  Forstöðumaður hjá Vegagerðinni segir að framlög til moksturs og hálkuvarna hafi verið skorin harkalega niður Morgunblaðið/Júlíus Snjómokstur Framlög skorin niður. Björn Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.