Morgunblaðið - 22.12.2011, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011
Skrifstofur ríkisskattstjóra verða lokaðar
eftir hádegi föstudaginn
23. desember (Þorláksmessu)
Venjulegur opnunartími er milli jóla og nýárs
Skrifað var undir samning um kaup
Skógræktarfélags Íslands, Banda-
lags íslenskra skáta og Skáta-
sambands Reykjavíkur á jörðinni
Úlfljótsvatni austast í Grafningi í
gær. Jörðina keypti Reykjavík-
urbær árið 1929 en hún fluttist yfir
til Orkuveitu Reykjavíkur við stofn-
un hennar enda einnig jarðhiti þar.
Skátar hafa haft meirihluta jarð-
arinnar á leigu og rekið þar skáta-
miðstöð í um 70 ár en að auki hefur
þar verið stunduð skógrækt.
Kaupverð er 200 milljónir króna
en undanskilin sölunni eru jarðhit-
inn, tæplega 60 hektara spilda
nyrst á jörðinni og réttindi sem
tengd eru orlofshúsum. Kaupendur
munu taka við rekstri og umsjón
Bernsku- og Skólaskóga sem rækt-
aðir hafa verið um árabil í sam-
starfi OR og skógræktarfélaga.
Með tilkomu eignarhalds á Úlfljóts-
vatni er stefnt að aukinni skógrækt
og fjölbreyttum möguleikum til úti-
vistar fyrir almenning, að því er
segir í tilkynningu frá OR.
Úlfljótsvatn
fyrir skáta
og skóg
Kaupverðið 200
milljónir króna
Landsmót Skátamiðstöð hefur ver-
ið rekin á Úlfljótsvatni í um 70 ár.
Meðalútsvarshlutfall sveitarfélaga
verður 14,44% á nýju ári, 0,03 pró-
sentustigum hærra en á síðasta ári,
sem stafar fyrst og fremst af hækk-
un útsvars í Reykjavík. Reykjavík
var með 14,4% útsvar í fyrra, en
hækkaði það í 14,48% þann 1. júlí sl.
Eitt sveitarfélag, Grímsnes- og
Grafningshreppur, hækkar útsvars-
prósentu á næsta ári, en Hvalfjarð-
arsveit lækkar hins vegar útsvar.
Nú leggja 67 af 75 sveitarfélögum
á hámarksútsvar, sem er 14,48%.
Hvalfjarðarsveit lækkar útsvar úr
14,23% í 13,64%. Grímsnes- og
Grafningshreppur hækkar hins veg-
ar útsvar úr 13,94% í 14,48%, að því
er fram kemur í samantekt fjármála-
ráðuneytisins.
Ásahreppur og Skorradalshrepp-
ur leggja á lægsta útsvarið, 12,44%. Í
Fljótsdalshreppi er útsvarið 13,20%,
Í Hvalfjarðarsveit er það 13,64%, í
Garðabæ er útsvarið 13,66% og í
Kjósarhreppi 13,73%. Í Tjörnes-
hreppi er útsvarið 14,05%.
Meðalútsvarið er 14,44%
67 af 75 sveitarfélögum með hámarks-
útsvar 12,44% í tveimur hreppum
Heilbrigð-
isstofnun Suður-
lands (HSu) hef-
ur hætt við að
loka heilsugæslu-
stöðinni á Hellu.
Ástæðan er sú að
velferðarráðu-
neytið hefur gert
breytingar á fjár-
veitingu til stofn-
unarinnar, um-
fram það sem kemur fram í
nýsamþykktum fjárlögum.
Samkvæmt fjárlögunum þurfti
Heilbrigðisstofnun Suðurlands að
minnka útgjöld um 5,5% á næsta ári
eða um 120 milljónir.
Í tilkynningu frá HSu kemur fram
að fjárveitingar hafi verið leiðréttar
og því þurfi ekki að loka stöðinni.
Samt sem áður þurfi að draga veru-
lega úr útgjöldum og því þurfi að
endurskipuleggja starfsemina.
Heilsugæsl-
unni á Hellu
ekki lokað
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands
Staðgreiðsluhlutfall tekjuskatts
og útsvars á næsta ári verður í
þremur þrepum; 37,34%,
40,24% og 46,24%. Viðmið-
unarmörk þrepa verða þannig
að af mánaðartekjum yfir
230.000 kr. er greitt í öðru
þrepi og af tekjum yfir 704.367
kr. er greitt í þriðja þrepi.
Þrjú þrep
SKATTUR OG ÚTSVAR
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is