Morgunblaðið - 22.12.2011, Síða 26

Morgunblaðið - 22.12.2011, Síða 26
Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011 Munið að slökkva á kertunum Æskilegt er að setja reglur um kerti og kerta- skreytingar á vinnu- stöðum og að þær séu öllum starfsmönnum vel kynntar. Aldrei má skilja eftir logandi kerti eða kerta- skreytingu í mannlausu herbergi s.s. í fundar- herbergi eða á kaffistofu vinnustaðar. Slökkvilið höfuborgasvæðisins Ég á góðar bernsku- minningar um prest sem ferðaðist á reiðhjóli og seildist í vasa sinn eftir sælgætismola handa okkur. Hann ræddi við okkur um Guð og var frekar óhress ef við mættum ekki í sunnudagaskóla kirkjunnar. Oftast mættum við á sunnu- dagsmorgnum, fengum Jesúmyndir og tókum þátt í helgi- haldinu. Engan hef ég hitt sem beðið hefur skaða af því, þvert á móti eru þetta ljúfustu bernskuminningarnar af mörgum ansi góðum. Í Reykjavíkurborg komst afar sér- stætt fólk til valda og nú er svo kom- ið, að stjórnendur höfuðborgarinnar telja presta vera hættulega börnum, þ.e.a.s. ef þeir koma til barnanna á skólatíma. Það ríkja erfiðir tímar hjá mörgum um þessar mundir. Fjöldi fólks er án atvinnu, með óyfirstíganlegar skuldir o.s.frv., slíkt ástand veldur reiði, ótta og mikilli streitu og börnin skynja þetta allt hjá foreldrum sínum. Þess vegna er mikil þörf á því, að prestar komi í skólana og biðji með börnunum, tali við þau og sýni þeim vináttu og hlýhug. En meðlimir Vantrúar og Sið- menntar segja að það eigi ekki að skrökva að börnum, þau vilja meina að Guð sé ekki til, en slíkt er vitanlega algjör della. Haft er eftir Stephen Hawkins, sem þykir einn fremsti vísindamaður á sviði eðlisfræði, margir bera hann saman við Ein- stein, að það sé vonlaust að afsanna tilvist Guðs. Gott og vel, einn fremsti raunvís- indamaður heims, sem í mörg ár hefur sökkt sér ofan í sköpun heimsins, treystir sér ekki til að afsanna tilvist skap- arans, en á sama tíma er hópur fólks á Íslandi sem telur sig geta það. Nú getur fólk spurt sig að því, hvort beri að taka mark á fremsta raunvísindamanni veraldar eða litlum hópi fólks á Íslandi, sem ekki hefur rannsakað eðlisfræði eða raunvísindi jafnítarlega og Stephen Hawkins. Einstein gat heldur aldrei afsannað tilvist Guðs, hann taldi það ómögulegt og var hann þó enginn aukvisi í raun- vísindum eins og flestir vita. Þrátt fyrir margra alda rannsókn- arvinnu hefur mannkyni ekki enn tekist að sanna til fulls, né afsanna, tilvist skaparans og á meðan svo er verður hver að spyrja sinn innri mann ráða í því efni, en ekki koma með fullyrðingar út í bláinn. Nú er það svo, með þá í Siðmennt og Vantrú, að þeir virðast trúaðri á sinn boðskap en flestir trúmenn eru. Sjálfur er ég mjög trúaður á tilvist Guðs, fer reglulega með bænir mér til sáluhjálpar og fletti í hinni helgu bók. En komið hafa stundir hjá mér, þar sem ég efast um tilvist Guðs, sömu sögu held ég að flestir trúmenn hafi að segja. En hvort Guð er til eða ekki til skiptir ekki höfuðmáli, heldur er það boðskapur kristinnar trúar og sú sáluhjálp sem hún veitir, það skiptir miklu máli. Í hinum kristna heimi ríkir meiri friðsæld en í öðrum löndum ásamt ríkara umburðarlyndi, minni fátækt o.s.frv. Þar sem ekki er til neitt land sem byggist á trúleysi, hvernig dettur þá þessum ofsatrúuðu trúleysingjum í hug að skynsamlegt sé að gera slíka tilraun á Íslandi á sama tíma og allt er í upplausn? Nú sem aldrei fyrr þarf þjóðin á kirkjunni að halda og sérstaklega börnin. Það er röng stefna foreldra að vilja ekki að börnin kynnist fegurð trúarinnar og nái að tileinka sér kær- leiksboðskap þann sem hún hefur fram að færa. Þjóðin þráir og þarf kærleik, börn- in eru dýrmætustu Íslendingarnir og okkur ber að bera hag þeirra fyrir brjósti. Það hefur ekkert barn beðið skaða af því að fá að kynnast fræðslu kirkjunnar þjóna. Góður prestur fær stað í hjarta barnsins og hann dvelur þar alla ævi; jafnvel þótt barnið kjósi á fullorðinsárum að afneita trú, þá hverfur kærleikurinn aldrei. Á erfiðustu tímum heimsins hefur fólk fundið skjól í trúnni, trúin hefur gefið von og trú um betri tíð, ef ekki núna þá í næsta lífi. Það er líka dýr- mætt að finna tilgang með lífinu þeg- ar allt virðist tilgangslaust. Það er borgarstjórn til ævarandi skammar að láta vafasöm sjónarmið sem engum tilgangi þjóna, öðrum en þeim að halda fámennum hópi trú- lausra í sigurvímu, ráða för og svipta börnin hjálpræði kirkjunnar. Eru prestar hættulegir börnum? Eftir Jón Ragnar Ríkharðsson » Það hefur ekkert barn beðið skaða af því að fá að kynnast fræðslu kirkjunnar þjóna. Jón Ragnar Ríkarðsson Höfundur er sjómaður. Íslensk yfirvöld ríða ekki við ein- teyming. Ef einn ráðherra segir eitthvað op- inberlega eru aðrir slíkir búnir að segja álit sitt á fáfræði og þröngsýni viðkomandi fyrir næsta fréttatíma, og forystusauðir ríkisstjórnarflokk- anna geta ekki tekið ákvörðun með eða móti neinum þeirra. Ef ég mundi sækja um lóð ein- hvers staðar og fengi afsvar, liti ég svo á að þá væri það útrætt. Ég ætti ekki von á að að nefndir og ráð, sem hefðu með úthlutun að gera, (hvað þá heil ríkisstjórn) myndu koma saman til að finna annan stað fyrir mig, til að hafa mig góðan. Þegar Ögmundur innanríkisráðherra neitaði Nubo um land, vegna þess að íslensk lög leyfðu ekki kaup hans á því landi, sem hann óskaði eftir, rauk Nubo upp á nef sér og sagðist búinn að fá nóg af Íslend- ingum og ætla að snúa sér til Svía og Finna með sína peninga. Daginn eftir voru kínverska pressan og yfirvöld þar búin að slengja rasista kortinu á borðið og segja „Við Kínverjar meg- um ekkert fjár- festa á Vest- urlöndum.“ (Íslendingar eru þá ekki einir um að neita kínversk- um auðmönnum um það sem þeir girnast.) Þá kom næsti ráðherra hlaup- andi og kallar Ögmund nöfnum og segist tilbúin(n) að gera allt til að missa ekki af öllum þessum pen- ingum. Katrín, iðnaðarráðherra, not- aði mjög klaufalegt mál og villandi þar sem hún ætlaði að taka Nubo upp á sína arma og leiða hann í allan sannleikann um hvernig hann á að snúa sér „löglega“ í sínum gjörðum. Hlutur, sem ég hélt að hefði mátt vera verk umboðsmanns Nubo í upp- hafi. Katrín vill fá hann í ferða- mannabransann, sem Nubo er víst ekki alveg ókunnur, því Kínverjar eru nýbúnir að nefna hann sem aðal- mann þeirra í Tíbet, þar sem þeir ætla að fara að auka ferðamanna- strauminn með sínum hætti. Um leið og Kínverjar ætla að fara að grafa eftir gulli og öðrum gersemum í því undirokaða landi er ekki verra að hafa ferðamenn til að dreifa hug- anum frá því. Íslensk yfirvöld eru nýlega búin að viðurkenna sjálfstætt ríki Palestínu, sjálfsagt af mannúðarástæðum, en Tíbet er ef til vill of langt í burtu til að það sjáist hvað er að gerast þar. Það mætti sameina drauma iðn- aðarráðherra Íslands og fulltrúa Kínverja og koma á beinu flugi milli Grímsstaða og Tíbet. Ég á ekki von á að Nubo ætli að hossast í jeppa í hvert sinn, sem hann fer til að berja verkefnið á „Fjöllum“ augum, en það hefur ekki komið fram hvað flugbrautin þar á að vera löng. Ekki væri verra að hún næði lengd sem dygði sem varavöllur fyrir ís- lenskt millilandaflug. Áhafnir yrðu ánægðar með að geta „farið 18“ á meðan beðið er eftir veðri í Keflavík. BJÖRN FINNBJÖRNSSON, starfsmaður Cargolux í tæp 40 ár. Nubo í ferðamannabransanum Frá Birni Finnbjörnssyni Björn Finnbjörnsson „Oft er það gott sem gamlir kveða“ segir gamall málsháttur sem sann- aðist vel er 86 ára gamall maður hringdi inn í Útvarp Sögu á mánu- daginn var. Sá mundi nú aldeilis tím- ana tvenna og var löngu hættur að styðja „vinstri“-viðmiðin sem honum höfðu þó hugnast á yngri árum. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf reynst best, þótt hann sé ekki full- kominn“ var ályktun hans, eftir ára- tuga langa lífsreynslu. Jafnvel þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi ævinlega þurft að taka tillit til sjónarmiða samstarfsflokka og aldrei almenni- lega getað komið sinni hreinustu stefnu í framkvæmd. „Hrepparígur“, ættingja- og vina- tengsl, afbrýðisemi og minnimátt- arkennd sumra hafa jafnan haft sitt að segja til að viðhalda lítilmannlegu þjóðfélagi. Sá gamli hamraði á því að ekkert bankahrun hefði orðið á Íslandi, heldur bankarán. Er hægt að orða hlutina betur? Blekkingavafningarnir sem undn- ir voru upp í Bandaríkjunum í kjöl- far „vinstri“-úrræða Clintons, þá- verandi forseta, breyttust í „eitur“ á alþjóðamörkuðum og viðbrögð fjár- festa, andvaraleysi eftirlitsstofnana, útsjónarsamar lygar bankamanna, auk sérkennilega heimskulegra við- bragða ráðamanna, fyrst vestanhafs og síðan austan, leiddu til þessa ástands sem gæti endað með upp- töku alþjóðlegs gjaldmiðils; amero – sem ugglaust verður þó nefndur öðru nafni þegar upp verður staðið. Þá verður Ísland vonandi utan Evrópusambandsins. PÁLL PÁLMAR DANÍELSSON leigubílstjóri. Bankahrunið var í raun bankarán Frá Páli Pálmari Daníelssyni Umræðan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.