Morgunblaðið - 22.12.2011, Síða 32

Morgunblaðið - 22.12.2011, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011 ✝ Jón Benedikts-son fæddist í Keflavík 28. sept- ember 1941. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja 15. desem- ber 2011. Foreldrar hans voru hjónin Mar- grét Agnes Helga- dóttir, f. 28. júní 1914, d. 17. nóv- ember 1994, og Benedikt Jóns- son, f. 17. september 1919, d. 6. febrúar 2009. Systir Jóns, sam- mæðra, er Svanhildur Sig- urgeirsdóttir, f. 26. janúar 1937, og kjörsystir, Margrét Þóra Bene diktsdóttir, f. 27. janúar 1959. Jón kvæntist Kristjönu Kjeld 28. apríl 1962. Kristjana fæddist í Innri Njarðvík, 17. júlí 1944, d. 15. september 1984. Foreldrar hennar voru hjónin Jens Sófus Kjeld, f. 13. október 1908, d. 2. október 1980, og Jóna Guðrún Finnbogadóttir Kjeld, f. 28. september 1911, d. 14. nóv- ember 1994. Börn Jóns og Kristjönu eru 1) Benedikt, f. 13. júlí 1962. Eiginkona hans er Inga Rebekka Árnadóttir, f. 6. júlí 1964. Börn þeirra eru Jón Árni, f. 26. maí 1989, unnusta september 1973. Börn þeirra eru Þórunn Magnea, f. 9. nóv- ember 2005, og Eðvald Ágúst, f. 19. október 2009. Dóttir Ragn- heiðar Maríu er Bjarnhildur Helga Hlynsdóttir, f. 2. desem- ber 1991, sambýlismaður Magn- ús Ingi Finnbogason, f. 8. mars 1985. Dóttir þeirra er Jóhanna Dís, f. 30. september 2011. Jón ólst upp hjá foreldrum sínum í Keflavík, fyrst á Tún- götu 10 og síðar á Tjarnargötu 29 og tók gagnfræðapróf frá Héraðsskólanum á Laugarvatni. Hann lærði vélstjórn og byrjaði snemma að vinna við sjó- mennsku og útgerð. Jón hóf störf sem útgerðarstjóri hjá Hraðfrystihúsi Keflavíkur sautján ára að aldri, þá yngsti útgerðarstjóri landsins, og starfaði við það stærstan hluta starfsferils síns eða í rúm tutt- ugu ár. Hann vann einnig við smíðar til margra ára, m.a. hjá Varnarliðinu á Keflavík- urflugvelli, Olíufélaginu í Helguvík og Húsagerðinni, auk þess að vera rekstrarstjóri Salt- sölunnar í Keflavík til nokkurra ára. Síðustu árin rak hann fisk- verkun í Grindavík ásamt föður sínum. Fótbolti var honum allt- af hugleikinn og lék hann með UMFK á yngri árum. Útför Jóns fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 22. des- ember 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Hildur Björk Páls- dóttir, f. 14. desem- ber 1990, Bjarni, f. 18. ágúst 1991 og Kristjana Hanna, f. 16. ágúst 1994. 2) Jóna Guðrún, f. 3. desember 1963. Eiginmaður hennar er Magnús Valur Pálsson, f. 28. mars 1962. Börn þeirra eru Una María, f. 28. nóvember 1998, Jón Páll, f. 4. nóvember 2000, og Benedikt Jens, f. 28. desember 2004. 3) Margrét Agnes, f. 1. nóvember 1967. Eiginmaður hennar er Óli Þór Barðdal, f. 24. mars 1964. Dætur þeirra eru Kristjana Björk, f. 4. júlí 1995 og Bríet, f. 8. mars 1999. Jón kvæntist Bjarnhildi Lár- usdóttur 23. febrúar 1990. Bjarnhildur fæddist 2. nóv- ember 1946. Hún er dóttir hjónanna Guðrúnar Árnadótt- ur, f. 5. október 1922, og Lár- usar Eiðssonar, f. 29. ágúst 1918, d. 16. desember 1986. Dætur Bjarnhildar eru 1) Magn- ea Guðmundsdóttir, f. 19. apríl 1969, og 2) Ragnheiður María Guðmundsdóttir, f. 16. mars 1971. Eiginmaður hennar er Ragnar Ágúst Eðvaldsson, f. 22. Jonna tengdaföður mínum kynntist ég fyrir rúmum 25 árum á Heiðarbrún 5 þegar við Jóna Guðrún vorum að hefja okkar samband. Reyndar vissi ég vel af honum áður, því við Benedikt son- ur hans vorum bekkjarbræður og kom ég stundum á Heiðarbrúnina á yngri árum. Jonni kom mér fyrir sjónir sem stór og stæðilegur, að- sópsmikill maður sem virtist liggja mikið á. Það gustaði kröft- uglega af honum. Stundum svo mikið að rólegheitamanni eins og mér stóð ekki á sama. Ég kynntist Jonna á erfiðum tímamótum í hans lífi, en hann hafði þá nýlega misst fyrri konu sína Kristjönu Kjeld af völdum hvítblæðis. Hann sigldi því nokkurn ólgusjó á þess- um tíma. Reyndar var sjaldnast nein lognmolla í kringum tengda- föður minn. Þar sem hann var til staðar var drifið í hlutunum og þeir keyrðir í gegn af festu og dugnaði. Þó var ekki verið að þjösnast áfram því vandvirknin var alltaf í fyrirrúmi. Jonni var sérlega verklaginn, vandvirkur og duglegur. Hann gerði miklar kröf- ur til sjálfs sín í því sem hann tók sér fyrir hendur. Hjálpsemi hans og greiðvikni var líka við brugðið. Fékk ég oft að reyna það, hvort sem um var að ræða aðstoð við smíðavinnu, bílakaupshugleiðing- ar eða viðgerðir og margt fleira. Hann var traustur og alltaf hægt að leita til hans þegar á reyndi. Þegar við Jóna Guðrún bjuggum í Hollandi lenti ég eitt sinn í um- ferðaróhappi og þurfti að leita réttar míns hér heima vegna þess. Jonni fór umsvifalaust og óum- beðinn í að greiða úr þeim málum fyrir mig. Mikið birti til í lífi Jonna þegar hann giftist Hildi, eftirlifandi eig- inkonu sinni. Þau áttu farsæla samleið í 22 ár, fyrst á Lágmóa 8 og síðar Ægisvöllum 2. Jonni og Hildur voru dugleg að ferðast, jafnt innan lands sem utan. Bú- staðurinn í Svignaskarði og húsið á Spáni voru í sérstöku uppáhaldi hjá þeim. Einnig óku þau mikið um Þýskaland og Holland, en þar áttu þau góða vini. Heimili þeirra var fallegt og gott að sækja þau heim. Þau hjónin gerðu vel við gesti, en Jonni var ekki bara gest- risinn heldur líka sérlega barn- góður og hafði yndi af að hafa börn í kringum sig. Mín börn sakna hans sárt, en geyma með sér minningar um góðan afa. Það var langt frá því að við Jonni værum sammála um alla hluti, en við virtum skoðanir hvor annars þótt ólíkir værum. Hann var ekki fullkominn frekar en aðr- ir menn, en maður vissi alltaf hvar maður hafði hann hvað sem á gekk. Ég þakka góða samfylgd og bið guð að blessa minningu Jóns Benediktssonar. Magnús Valur Pálsson. Látinn er mágur minn, Jón Benediktsson, eftir langt og erfitt veikindastríð. Jón var giftur syst- ur minni, Kristjönu, en þau áttu sér heimili í Keflavík þegar hún lést 1984 frá þrem börnum þeirra, sem voru að komast af unglings- árum. Jón giftist aftur Bjarnhildi Lárusdóttur sem lifir nú mann sinn eftir hlýja og farsæla sam- búð. Jón eða Jonni eins og hann var oftast kallaður var um tuttugu ára skeið útgerðarstjóri hjá Hrað- frystihúsi Keflavíkur en síðari ár- in fékkst hann við ýmis störf, eink- um smíðar. Um Jonna má með sanni segja að hann hafi verið hag- leiksmaður og dugnaðarforkur. En eins og títt er um dugandi menn var hann ekki skaplaus og hafði skoðanir á hinum ýmsustu málum, sem snertu land og þjóð og ekki síst suðurnesjamenn. Eitt málanna laut að því hvernig það gat gerst að útgerð og fiskvinnsla hefur nær alveg lagst af í Keflavík á fáum árum. Nú sést naumast trilla í Keflavíkurhöfn, þar sem áður stór fiskiskip og nýir há- tæknitogarar fylltu höfnina. Ekki gæfuleg þróun fyrir Suðurnesin að mati Jonna. Einhverntíma fyrir löngu hafði Jonni orðið sér úti um trillu og fór- um við þá í nokkra skaktúra út á Stakksfjörðinn. Þrátt fyrir tregan afla og snert af sjóveiki hjá und- irrituðum höfðum við af þessu góða skemmtun. Segja má um Jonna að hann haft kynni af smærri ekki síður en stærri teg- undum sjósóknar. Jonni var af kynslóð þeirra manna sem gerðu eða urðu að gera hlutina að miklu leyti sjálfir ef þeir þurftu að byggja eða gera við í híbýlum sínum. Kom það sér vel hversu laginn og mikill verk- maður hann var. Hann byggði ein- býlishús sitt mikið til sjálfur með hjálp góðra manna og innréttaði og gekk frá íbúð þeirra Bjarnhild- ar (Hildar) með glæsibrag. Þá var hann greiðvikinn og hjálpsamur og nutu þess margir vinir og kunningjar hans þegar þeir lentu í erfiðleikum með breytingar eða frágang á húsnæði. Jón átti miklu barnaláni að fagna. Hann á þrjú glæsileg, vel menntuð börn og átta myndarleg barnabörn. Það sama er að segja um fósturdætur hans, börn Hildar frá fyrra hjónabandi og litlu dótt- urdóttir Hildar. Í þessum argvítugu og mis- kunnarlausu veikindum Jonna hefur reynt á nánustu aðstand- endur hans og ekki síst konu hans, Hildi, sem studdi hann til hinztu stundar. Við hjónin vottum þessu góða fólki og öðrum nánum ættingjum Jonna hluttekningu okkar. Matthías Kjeld. Jón Benediktsson ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR M. WAAGE, Hvammabraut 2, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við Monigue VanOstin sjúkraþjálfara, starfsfólki líknardeildar Landspítalans Kópavogi, starfsfólki á deild 11E Landspítalanum Hringbraut og Karítas heimahlynningu. Anna Bergmann Guðbjörnsdóttir, Sigríður G. Waage, Þór Stefánsson, Magnús G. Waage, Fríða Jóhannsdóttir, Eyrún Hulda G. Waage, Alexander, Tinna, Oliver og Nökkvi, Annika og Freyr, Katrín Þöll. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ÞORGERÐAR MAGNÚSDÓTTUR húsmóður, Mýrarvegi 113, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Skógarhlíðar, dvalarheimilinu Hlíð Akureyri, fyrir einstaka umönnun og hlýju. Ingólfur Sigurðsson, Elínborg Ingólfsdóttir, Magnús Þórðarson, Magnús Ingólfsson, Sólveig Erlendsdóttir, Ragnhildur Ingólfsdóttir, Samúel Jóhannsson, Þórdís Ingólfsdóttir, Sölvi Ingólfsson, Guðrún Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegt þakklæti sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og umhyggju við andlát og útför okkar hjartkæra HALLDÓRS HAFSTEINSSONAR. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól. Lilja Hannibalsdóttir, Sæunn og Gunnar, Björn Hafsteinn og Kristbjörg, Sverrir Daníel og Elinóra, Guðmundur Smári og Ingveldur, Stefanía Auðbjörg, Lilja Jóna og Skúli Frans, barnabörn og barnabarnabarn, Lilja Halldórsdóttir frá Mel, systkini og makar. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlý- hug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SONJU SCHMIDT, Sléttuvegi 11, Reykjavík, sem andaðist laugardaginn 10. desember. Gylfi H. S. Gunnarsson, Geir H. Gunnarsson, Hólmfríður Gunnarsdóttir, Guðmundur B. Sigurgeirsson, Sigríður S. Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR HAFSTEIN HALLDÓRSSONAR húsasmiðs, Kirkjuvegi 1, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Hrefna Sigurðardóttir, Rúnar Benediktsson, Svava Sigurðardóttir, Ævar Ingi Guðbergsson, Erna Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KARÓLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Austurbyggð 17, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðju- daginn 27. desember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Guðmundur Heiðar Frímannsson, Elísabet Hjörleifsdóttir, Gunnlaugur Frímannsson, Guðlaug H. Ísaksdóttir, Sigríður Frímannsdóttir, Katrín Frímannsdóttir, Haraldur Bjarnason, Karl Frímannsson, Bryndís Þórhallsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN ANDRÉS ÓSKARSSON vélstjóri, Barðastöðum 7, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 16. desember, verður jarð- sunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 28. desember kl. 13.00. Davíð Björnsson, Ólöf Lilja Sigurðardóttir, Óskar Björnsson, Halla Katrín S. Arnardóttir, Sigurður Jón Björnsson, Sigrún Jónsdóttir og barnabörn. Þegar ég var barn vissi ég hver þú varst, því þú varst hjúkk- an í sveitinni. Það var samt ekki fyrr en upp úr 1984 sem ég kynntist þér þegar við vorum að vinna í sama húsi, þú hjúkka og ég með leikskóla. Þá bauðstu mér oft heim og fórum við þá í pottinn, sem þú varst með í garðinum þín- um. Í pottinum áttum við margar góðar stundir saman og yfirleitt var klukkan komin langt framyfir miðnætti þegar við fórum upp úr. Eftir eina pottferðina um miðj- an vetur keyrðir þú mig heim, þú fórst í náttkjólinn og úlpu, ég spurði þig á leiðinni: „Ertu bara í náttkjólnum og úlpunni?“ „Já,“ sagðir þú, „er það ekki nóg?“ „Jú, jú, en ég var bara að hugsa hvað þú ætlaðir að gera ef það spryngi hjá þér.“ Þú varst greinilega ekki Guðjóna Jósefína Jónsdóttir ✝ Guðjóna Jós-efína Jóns- dóttir fæddist á Sólheimum í Grindavík 22. febr- úar 1926. Hún lést á Dvalarheimili aldraðra í Borg- arnesi hinn 1. des- ember 2011. Útför Guðjónu fór fram frá Reyk- holtskirkju 10. des- ember 2011. farin að hugsa út í það, þú horfðir á mig og svo hlógum við að þessu. Oft minntist þú á þessa ferð því þú varst mikill húmoristi og kunnir að gera grín að þér. Lífið fór ekki mjúkum höndum um þig, en samt stóðstu uppi eins og klettur, sama á hverju gekk. Aldrei máttirðu neitt aumt sjá og aldrei varstu róleg nema allir væru frískir og heilir heilsu í kringum þig. Ég vil kveðja þig elsku Gauja mín með þessum ljóðlínum, því mér finnst þær lýsa þér vel: Vertu alltaf hress í huga hvað sem kann að mæta þér. Lát ei sorg né böl þig buga. Baggi margra þungur er. Treystu því, að þér á herðar þyngri byrði’ ei varpað er en þú hefir afl að bera. Orka blundar næg í þér. (Erla) Elsku Jonni, Snorri, Hrafn- hildur, Villa, Dísa, barnabörn og barnabarnabörn, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Guðbjörg frá Hömrum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.