Morgunblaðið - 22.12.2011, Síða 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
Krossgáta
Lárétt | 1 hlutdeild, 4 lóð, 7
ól, 8 halinn, 9 illgjörn, 11
gylla, 13 hæðum, 14 Jesú, 15
fá á sig þunnan ís, 17 skaði,
20 sár, 22 myndun, 23 gref-
ur, 24 eldstæði, 25 skepn-
urnar.
Lóðrétt | 1 árás, 2 súrefnið,
3 vot, 4 listi, 5 skikkju, 6 nið-
urfelling, 10 yfirbygging á
skipi, 12 keyra, 13 stefna, 15
hafa stjórn á, 16 saddi, 18
kantur, 19 líffærin, 20 sæla,
21 föndur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kvenfólks, 8 vítur, 9 öldur, 10 Týr, 11 neita, 13 feikn,
15 bauks, 18 skóla, 21 tóm, 22 Eldey, 23 efast, 24 fangelsið.
Lóðrétt: 2 vetni, 3 narta, 4 óþörf, 5 koddi, 6 svín, 7 grun, 12 tak,
14 eik, 15 brek, 16 undra, 17 stygg, 18 smell, 19 óvani, 20 autt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
22. desember 1897
Ný stundaklukka var sett upp
í turni Dómkirkjunnar í
Reykjavík. Klukkan, sem enn
telur stundirnar fyrir borg-
arbúa, var gjöf frá Thomsen
kaupmanni, þeim sama sem
flutti fyrsta bílinn til landsins
árið 1904.
22. desember 1919
Dómar voru kveðnir upp í
Landsyfirrétti í síðasta sinn.
Rétturinn var fyrst settur 10.
ágúst 1801. Hæstiréttur Ís-
lands tók síðan til starfa
tveimur mánuðum síðar.
22. desember 1966
Vélbáturinn Svanur fórst í
slæmu veðri við Vestfirði og
með honum sex manns. Sama
dag strandaði breski togarinn
Boston Wellvale við Ísafjarð-
ardjúp en áhöfninni var bjarg-
að.
22. desember 1987
Ný lögreglusamþykkt fyrir
Reykjavík var staðfest. Hún
kom í stað samþykktar sem
gilt hafði í meira en hálfa öld.
22. desember 1999
Tunglið var nær jörðu en ver-
ið hafði í 69 ár. Morgunblaðið
sagði að það hefði virst stærra
og bjartara en venjulega.
Næst gerist þetta árið 2052.
22. desember 2000
Halldór Laxness rithöfundur
var valinn maður aldarinnar,
samkvæmt aldamótakönnun
Gallup sem kynnt var í Kast-
ljósinu í Sjónvarpinu. Í sömu
könnun var Vigdís Finn-
bogadóttir valin kona ald-
arinnar og Davíð Oddsson
stjórnmálamaður aldarinnar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Það er nú þannig þegar maður á afmæli svona
rétt fyrir jólin að þá er nú oft mjög annasamt á
þessum tíma og lítill tími stundum til að fagna
akkúrat á þessum degi, en ég hugsa að það verði
bara rólegheit og tekið á móti nánustu vinum og
ættingjum í kaffi,“ segir Helga Helgadóttir, náms-
og starfsráðgjafi, aðspurð hvað hún ætli að gera á
stórafmælisdaginn sinn en hún fagnar 35 ára af-
mæli sínu í dag. Að sögn Helgu hefur það aldrei
verið vesen að eiga afmæli svona stuttu fyrir jól.
„Þegar ég var yngri þá pössuðu mamma og pabbi
rosalega vel upp á að halda alltaf upp á daginn
minn eins og afmælisdaga systra minna og hafa þetta bara eins þó svo
að það væru að koma jól, venjulegt afmælið aðskilið frá jólunum,“
segir Helga. Helga bendir einnig á að það hafi sína kosti að eiga af-
mæli svona nálægt jólum, þannig geti hún beðið fólk um að blanda
saman jóla- og afmælisgjöfum og fengið þá stærri gjafir í staðinn en
svo segist. Helga jafnframt njóta þess að vera ávallt í fríi á afmæl-
isdaginn. „Ég er rosamikið jólabarn og ég held að það tengist soldið
því að maður eigi afmæli á þessum tíma,“ segir Helga og bætir við að
hún hlakki til afmælisins enda trúi hún því vart að hún sé orðin 35 ára.
Helga Helgadóttir er 35 ára í dag
Rosamikið jólabarn
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hver er sinnar gæfu smiður og það á
við um þig eins og alla aðra. Peningar skipta
þig minna máli núna, og þú eyðir þeim jafnvel
í hluti sem þér þóttu ekki merkilegir áður.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þið hafið ráð undir rifi hverju og getið
komið ýmsu í verk ef þið leggið ykkur fram
um að leita samstarfsaðila. Fólk er fastheldið
á sitt þessa dagana.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hömlurnar sem þú setur á sjálfa þig
eru að verða leiðigjarnar. Mundu að sá er vin-
ur sem til vamms segir.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það eru gerðar miklar kröfur til þín
svo að þér finnst nóg um. Málið er að skilja
hafrana frá sauðunum. Tækifæri í leiklist-
argeiranum kunna að vera framundan.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og
annarra og setur sjálfum þér oft ströng skil-
yrði. Vertu á varðbergi gagnvart þeim sem
hugsa um hvernig þú getir gagnast þeim.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert óþarflega hnýsinn um hagi ann-
arra og ættir að hætta því hið fyrsta. Það er
til lítils að þvæla um hlutina fram og aftur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vitrir vinir og jafnvel ókunnugt fólk hvet-
ur þig til þess að skemmta þér. Taktu mik-
ilvægi hamingjunnar með í reikninginn.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Sumir eiga fullt af fallegum hlut-
um til að hafa í kringum sig, en finna samt til
lítillar hamingju. Að setja saman sögur og
ljóð er góð dægrastytting.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Gerðu það sem í þínu valdi stend-
ur til að láta þér líða sem best. Vanræktu ekki
þinn innri mann, heldur gefðu þér tíma til að
sinna andlegum þörfum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Mikilvægt er að þú getir safnað
orku næstu fjórar vikurnar; andlega, lík-
amlega og tilfinningalega. Kvöldinu er best
varið heima við
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Vatnsberinn er sumpart gefandi
og sumpart krefjandi um þessar mundir. Ork-
an hverfur þegar þú ert áhugalaus.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Já, það er gaman að láta hæla sér fyr-
ir hæfileikana án þess að biðja um það. Hvað
sem gerist verður það spennandi.
Stjörnuspá
Sudoku
Frumstig
6 4 3
1 6 5
4 2 5 7
3 1 6
5 9 4
2 1
1
7
3 2 9
5 7 8
4 1 9
4 9
3 1
1 4 9
8 2 5
4 3
9 2 8 5
3 7 9
2 6
7
3 4
4
4 6 2 3
1 9 8 7
8 2 7
3 8 1
4 9 1
5 9 4 6 7 2 8 3 1
2 8 6 5 1 3 7 4 9
3 1 7 4 8 9 5 6 2
1 6 3 9 4 5 2 8 7
8 7 9 2 3 1 6 5 4
4 2 5 8 6 7 1 9 3
7 5 1 3 9 8 4 2 6
9 4 8 7 2 6 3 1 5
6 3 2 1 5 4 9 7 8
4 9 3 1 5 6 7 2 8
5 8 6 9 2 7 1 3 4
2 1 7 4 3 8 6 5 9
3 4 2 5 6 9 8 7 1
8 6 9 2 7 1 3 4 5
7 5 1 8 4 3 9 6 2
9 7 5 3 8 4 2 1 6
6 2 8 7 1 5 4 9 3
1 3 4 6 9 2 5 8 7
5 4 2 9 6 7 1 8 3
1 6 7 5 8 3 4 9 2
3 8 9 4 2 1 7 6 5
6 7 3 8 9 5 2 4 1
8 5 4 1 3 2 6 7 9
2 9 1 7 4 6 3 5 8
7 2 6 3 5 9 8 1 4
9 3 8 6 1 4 5 2 7
4 1 5 2 7 8 9 3 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 22. desember,
356. dagur ársins 2011
Víkverji hefur verið að brjótast ígegnum doðrantinn Upp-
sprettuna eftir Ayn Rand, sem flúði
frá Rússlandi byltingarinnar og
settist að í Bandaríkjunum, þar sem
hún eignaðist dygga áhangendur.
Sýn Rand á lífið hefur heillað
marga og enn í dag kemur nafn
hennar fyrir í pólitískri umræðu í
Bandaríkjunum, einkum í hópi
þeirra, sem kenna sig við hina svo-
kölluðu teboðshreyfingu.
Uppsprettan er öðrum þræði ást-
arsaga, en um leið er hún vett-
vangur vangaveltna höfundar um
hlutverk mannsins og hjarðhegðun
almúgans, sem sífellt lætur teyma
sig á asnaeyrum.
x x x
Rand er hinn óbifandi maðurhugleikinn, maðurinn, sem
lætur ekkert hvika sér frá sínum
grundvallarsjónarmiðum, þótt það
geti leitt til þess að hann þurfi að
búa við sult og seyru. Aðalsöguhetj-
an er arkitektinn Howard Roark,
sem er hreinni og tærari en aðrir
menn, hefur fundið hinn sanna tón
og lætur ekki afvegaleiða sig. Frek-
ar lætur hann reka sig úr skóla, en
að fórna heilindum sínum. Frekar
hafnar hann verkefni, en að hleypa
smekkleysunni að. Uppsprettan er
óður til afburðamannsins, sem hef-
ur sig yfir dægursveiflur og notar
hvorki brögð né brellur til að kom-
ast áfram í lífinu. Bókin er ekki
leiðinleg aflestrar, en verður fyrir
vikið dálítið yfirgengileg. Steininn
tekur úr nokkuð snemma í bókinni
þegar aðalsöguhetjan nauðgar kon-
unni, sem hann fellur fyrir og látið
er eins og sjálfsagt sé. Víkverji hef-
ur lesið um fólk, sem á þeim stað
lagði bókina frá sér og las ekki
lengra.
x x x
Ýmsar athyglisverðar persónurkoma fram í bókinni, en at-
hyglisverðastur er þó hinn slóttugi
Ellsworth Toohey, sem hefur það
eina markmið að grafa undan hinu
hástemmda og dásama lágkúruna.
Eins og oft vill verða um varmenni í
skáldsögum fær hann meiri vídd, en
hinir vammlausari. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sá stóri. V-Enginn.
Norður
♠ÁKD
♥D10652
♦G7
♣K83
Vestur Austur
♠652 ♠109873
♥K984 ♥–
♦ÁK86 ♦942
♣D10 ♣G6542
Suður
♠G4
♥ÁG73
♦D1053
♣Á97
Suður spilar 4♥.
Dallas-Ásarnir voru eins og hvert
annað fyrirtæki, sem Ira Corn (1921-
82) setti gagngert á stofn í þeim til-
gangi að stöðva sigurgöngu Ítala á
HM. Corn var lýst sem „stórum manni
með stórar hugmyndir“. Hann kenndi
sagnfræði sem ungur maður, gerðist
svo athafnaskáld og forstjóri stórfyr-
irtækis, en byrjaði ekki að spila brids
fyrr en um fertugt. Tók þá til óspilltra
málanna í þeim efnum, sem öðrum.
Corn var hér í vörninni með spil
austurs, en makker hans var ungur og
efnilegur „ás“ – Bob Hamman að nafni.
Hamman opnaði á 1♦, norður doblaði,
suður sagði 2♥ og norður 4♥. Útspilið
var ♦K og Corn kallaði með níunni,
eins og hann ætti tvíspil. Hamman tók
þá á ♦Á og spilaði enn tígli, sagnhafi
stakk frá með tíunni og … Hamman
fékk tvo slagi á tromp.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
22. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.02 3,8 10.23 0,8 16.23 3,6 22.38 0,7 11.23 15.31
Ísafjörður 6.06 2,0 12.30 0,4 18.17 1,9 12.10 14.53
Siglufjörður 1.52 0,2 8.10 1,2 14.22 0,1 20.49 1,1 11.55 14.34
Djúpivogur 1.05 1,9 7.26 0,4 13.24 1,7 19.30 0,3 11.02 14.51
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d3 Rc6 4. g3 g6 5.
Bg2 Bg7 6. 0-0 Rge7 7. Rbd2 0-0 8. c3
a6 9. a4 Hb8 10. He1 d6 11. Rf1 b5 12.
axb5 axb5 13. Bg5 h6 14. Be3 b4 15.
Dd2 Kh7 16. d4 bxc3 17. bxc3 cxd4 18.
cxd4 d5 19. e5 Bd7 20. Dc3 Hc8 21. Dd3
Rf5 22. Hec1 He8 23. g4 Rxe3 24. Dxe3
f6 25. Rg3 fxe5 26. dxe5 Hf8 27. Hab1
Ra5 28. Rd2 Hxc1+ 29. Hxc1 Db8 30.
f4 Hc8 31. Hb1 Dc7 32. Re2 Rc4 33.
Rxc4 Dxc4 34. Hc1 Da4 35. Hxc8 Bxc8
36. Dc5 Ba6 37. Rd4 Dd1+ 38. Kf2
Dxg4 39. Dc1
Staðan kom upp á Vetrarmóti öðl-
inga í húsakynnum Taflfélags Reykja-
víkur. Sigurvegari mótsins, Benedikt
Jónasson (2.237), hafði svart gegn
Birni Frey Björnssyni (2.164). 39. …
Bxe5! 40. Rxe6 Dxe6 41. fxe5 Dxe5 42.
Dc6 Df4+ 43. Bf3 Dxh2+ 44. Ke3
Dg1+ og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.