Morgunblaðið - 22.12.2011, Side 41

Morgunblaðið - 22.12.2011, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011 Einn snjallasti greina- og pistlahöf- undur þjóðarinnar hefur nú hleypt skáldfáki sínum á skeið með fjórtán smásögum. Þessar sögur virðast flestar eiga það sameiginlegt að geysast langt frá veruleikanum sem höfundurinn hefur fjallað um í grein- um sínum. Benedikt Jóhannesson gefur ímyndunaraflinu lausan taum- inn og fer um víðan völl í bókinni. Ein smásagan er reyndar skáldað samtal leikarans Brads Pitts við Jennifer nokkra Aniston og annað við Angelinu Jolie. Þetta mæta og fallega fólk hljómar ekki gáfulega í samtölunum, ekki frekar en stór- bokkalegi stjórnmálamaðurinn sem slettir ærlega úr klaufunum og spil- ar rassinn úr buxunum í borginni sem aldrei sefur. Í öðrum sögum eru skil raunveruleika og ímyndunar óljós. Í einni þeirra nær Davíð blaða- maður draumaviðtalinu við Drottin almáttugan, aðalsmann vikunnar. Í annarri segir af úlfinum í skóginum sem „ætlaði að kveikja mikið bál í Fagrarjóðri, eld sem myndi nema við himin og dýrin hefðu aldrei séð annað eins“. Eftir bálið mikla var ekki hátt á úlfinum risið þótt ekki vantaði afsakanirnar: „Dýrin fengu það sem þau vildu. Nefndu mér eitt dýr sem ekki hlóð bálköstinn fyrir mig. Teldu upp eitt einasta dýr sem sagði að þetta væri óráð.̈ Ef til vill er þessi saga ekki ýkja langt frá veruleikanum þegar öllu er á botninn hvolft. Sögurnar eru mis- vel heppnaðar, engar alveg mis- heppnaðar. Stundum vantar rúsínu í pylsuendann, stundum kjöt á beinin. Aðrar leyna á sér og besta sagan, „Hvers vegna ég?“, er býsna góð, byggist á skemmtilegri hugmynd sem er vel útfærð. Höfundur bókarinnar Kattar- glottið og fleiri sögur er þekktur fyr- ir vönduð greinaskrif en bókin ber þess merki að hún er frumraun hans á skáldavellinum. Haldi hann áfram á þeim velli er líklegt að hann ráði betur við fákinn sinn og honum fleygi fram í skáldskapnum. Frumraun Benedikt Jóhannesson gefur ímyndunaraflinu lausan tauminn. Ímyndunaraflið fær lausan taum Kattarglottið og fleiri sögur bbbnn Eftir Benedikt Jóhannesson. Heimur gefur út. 153 bls. BOGI ÞÓR ARASON BÆKUR Það er einstaklega ánægjulegt þegar fólk gerir eitthvað sjálft í því sem því finnst að betur megi fara. Þær Marta Hlín Magnúsdóttir og Birgitta Elín Hassell gerðu það einmitt þegar þær komust að því að allt of lítið væri til af bókmenntum fyrir unglinga. Þær tóku málin í sínar hendur, stofnuðu bókaútgáfuna Bókabeituna og skrif- uðu hvor sína unglingbókina. Yfirlýst markmið Bóka- beitunnar er að efla bóklestur barna og unglinga með útgáfu á gæðaefni fyrir þann hóp. Þessar framtakssömu ungu konur eru nýútskrifaðar í náms- og kennslufræðum með íslensku og íslensku- kennslu sem sérgrein. Bókin hennar Mörtu heitir Óttu- lundur en bók Birgittu Rústirnar. Sögusviðið er það sama í báðum bókunum; Rökkurhæðir, sem er úthverfi Sunnuvíkur, og innan á bókarkápunum er þetta svæði teiknað upp. Við fyrstu sýn er þetta eins og hvert annað úthverfi, en við nánari skoðun kemur í ljós að þar gerist ýmislegt ævintýralegt, skrýtið, óhugnanlegt og jafnvel hræðilegt. Uppi á hæðinni standa Rústirnar, yfirgefin og rústuð fjölbýlishúsalengja, og þangað má alls enginn fara og ekki ljóst hvað hefur gerst, en eitthvað er það dularfullt. Þetta er tilvalin umgjörð fyrir krassandi sög- ur og þegar fantasía, draugar, hryllingur og ævintýri eru soðin saman við frásögnina verður útkoman vænt- anlega nógu kræsileg fyrir unglinga. Í bók Birgittu seg- ir frá Önnu Þóru sem er 14 ára félagslega virk stelpa. Hún hefur reyndar svo mikið að gera að hana langar til að fá meiri tíma til að sinna því sem er skemmtilegt, svo hún fellur fyrir gylliboði dularfullrar stelpu sem býðst til að gera ýmislegt fyrir hana, sérstaklega að sinna skólanum, gegn því einu að Anna Þóra geti upp á hvað hún heiti. Hér er á ferð skemmtileg nútímaútfærsla á sögunni um Gilitrutt sem allir þekkja og gengur alveg ágætlega upp. Gott er að hafa í huga við lesturinn að þetta er í raun fantasía og hún er skrifuð fyrir unglinga. Ef marka má vinsældir vampírubókmennta og fant- asíumynda eru unglingar jú orðnir vel sjóaðir í öðrum heimum, þar sem önnur lögmál ríkja en í raunheimum og allt getur gerst. Þetta er skemmtileg saga ef stelpu sem er að kljást við það sem margir krakkar kannast við; að hafa ekki tíma til að sinna skólanum og reyna að stytta sér leið. Þetta er spennandi saga og þó nokkuð hræðileg. Væntanlega tekur unga fólkið slíkri bók fagn- andi. Bók Mörtu er ekki síðri, Óttulundur, þar sem seg- ir af Vigdísi, 15 ára föðurlausri stelpu sem býr hjá ömmu sinni, því móðir hennar er í útlandinu. Eitthvað virðist vera óhreint á sveimi í húsi ömmu og ýmislegt fer að ásækja Vigdísi, sumt miður huggulegt. Þetta er í raun draugasaga með ýmsum pælingum um samskipti innan fjölskyldna og leyndarmál sem alltaf ná að brjót- ast upp á yfirborðið. Báðar eru sögurnar þokkalega hrollvekjandi, lipurlega skrifaðar og hin ágætasta skemmtun. Þær stöllur eiga hrós skilið fyrir framtakið og það er tilhlökkunarefni að fá fleiri sögur frá Rökk- urhæðum. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Hugsjónakonur Marta Hlín Magnúsdóttir og Birgitta Elín Hassell skrifuðu hvor sína unglingabókina. Hrollvekjur og draugagangur Óttulundur og Rústirnar bbbm Óttulundur: Marta Hlín Magnúsdóttir. Rústirnar: Birgitta Elín Hassell. Bókabeitan 2011. KRISTÍN HEIÐA KRISTINSDÓTTIR BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.