Morgunblaðið - 22.12.2011, Page 42

Morgunblaðið - 22.12.2011, Page 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011 Tónlistarmennirnir StefánHilmarsson og EyjólfurKristjánsson hafa gefið útplötuna Fleiri notalegar ábreiður, sem er önnur ábreiðu- platan sem þeir senda frá sér í sam- einingu sem Stebbi & Eyfi. Sú fyrri kom út árið 2006 og bar heitið Nokkrar notalegar ábreiður. Félagarnir segja að nú hafi verið kominn tími til að fylgja fyrri plötunni eftir með annarri af sama meiði. Tökulög, eða ábreiður, frá áttunda áratugnum eru sem fyrr í aðalhlutverki. Um 12 lög er að ræða og eru 10 þeirra eftir er- lenda tónlistarmenn en þau hafa öll fengið íslenska texta. Tvö lög koma úr smiðju íslenskra músíkanta. Þetta eru lögin „Leiddu mig í græna laut“ eftir Einar Vil- berg og „Helga“ eftir Magnús Kjart- ansson. Stefán gerði texta við bæði lögin, en þess má geta að „Helga“ var upphaflega sungið á ensku. Það er óhætt að segja að skífan standi undir nafni sem notaleg. Plötuumslagið er gott dæmi um þá þægilegu stemningu sem er að finna á gripnum, þar sjást þeir Stefán og Eyjólfur gæða sér á salati með rauð- vínsglös við hönd. Ekkert stress á ferðinni. Einfaldlega notalegheit. Hæfileikar Stefáns og Eyjólfs fá að njóta sín á plötunni, hvort sem um er að ræða dúnmjúkar ballöður á borð við „Sofðu síðan vært“ eða þeg- ar sett er í stuðgírinn í laginu „Sælu- straumur“, en í því síðarnefnda syngur Stefán dúett með Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur. Og eins og við var að búast er allur söngur og hljóðfæraleikur til fyrirmyndar. Þetta á hins vegar til að verða full- sykrað hjá þeim félögum. Fullmikið appelsín í jólablönduna, svo maður grípi til viðeigandi líkinga svona rétt áður en hátíð ljóss og friðar gengur í garð. Sum lög fljóta einfaldlega framhjá manni án þess að maður veiti þeim mikla eftirtekt. Fara inn um annað og út um hitt. Ábreiðurnar munu þó án efa veita aðdáendum Stebba og Eyfa hlýju á þessum dimmasta og kaldasta tíma ársins, þegar landsmenn þrá fátt heitar en konfekt og kósíheit. Sykurhúðað „seventís“ Geisladiskur Stebbi & Eyfi – Fleiri notalegar ábreiður bbbnn JÓN PÉTUR JÓNSSON TÓNLIST Morgunblaðið/Eggert Hlýja Ábreiður Stebba og Eyfa munu eflaust hlýja aðdáendum þeirra enda notalegar. Hér sjást þeir skemmta gestum Menningarnætur í fyrra. Kapalstöðin HBO mun ekki framleiða fleiri þáttaraðir af Hung og Bored To Death. Þess í stað mun stöðin framleiða sex nýjar þátta- raðir, þeirra á meðal þáttaröð grínistans Rickys Gervais, Life’s Too Short. Hins veg- ar verða fleiri þættir framleiddir í röðinni Enlightened en tvær þáttaraðir hafa verið framleiddar nú þegar. Þáttaröð Gervais, Life’s Too Short, hóf göngu sína á BBC í ár en nú hefur HBO keypt framleiðsluréttinn. Gervais hefur nú samið við bresku sjón- varpsstöðina Channel 4 um gerð nýrrar þáttaraðar, Derek. Búið Úr þáttunum Bored to Death. Hung og Bored to Death lokið Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Gegnum glervegginn bbbbm Ragnheiður Gestsdóttir. Veröld 2011. 270 síður. Líklega hafa sjaldan komið út eins margar metnaðarfullar og frumlegar barnabækur á einu bretti og nú. Bók Ragnheiðar Gests- dóttur, Gegnum glervegginn, er eitt þessara verka og líklega er ekki á neinn hallað þegar fullyrt er að bókin sé með því allra besta sem hefur verið skrifað fyrir börn í langan tíma. Bróðir minn Ljónshjarta Astridar Lindgren kemur fyrst upp í hugann, sem er líkt og bók Ragnheiðar hárbeitt þjóðfélagsádeila sveipuð ævintýrahjúp, bókaflokkurinn um Ljónið, nornina og skápinn, Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ eða jafnvel Sagan endalausa eftir Michael Ende. En hér segir frá prinsessunni Áróru. Hún er 13 ára og hefur alið allan sinn aldur alein og innilokuð í glerhjúpi, þar sem allt er til alls, all- ir dagar eru eins, þar sem hún stundar nám og íþrótt- ir með því að horfa á stór- an skjá, sem einnig ber henni daglegar kveðjur frá foreldrum sínum. Hún um- gengst engar lifandi verur, nema dýrin sem eru með henni í hjúpnum, hún veit ekki hvað er að vera gam- all eða ungur, sorgmæddur eða glaður og þekkir hvorki kulda né hungur. Þegar dreng- urinn Rökkvi kemur inn í glerhjúpinn breytist allt og þá fer í gang æsispennandi atburðarás og Áróra fer að leita að foreldrum sínum. Hún gerir ráð fyrir að þau vilji heimta hana heim og hana fýsir einnig að vita hvers vegna hún hef- ur dvalið alein og innilokuð allan þennan tíma. Sagan á að gerast einhvern tímann í fram- tíðinni í ónefndu landi, sem gæti svo sem alveg verið Ísland. Búið er að ganga allverulega á orkulindir og að njóta þeirra eru forréttindi hinna ríku, þeirra fáu sem búa í Borginni. Fólkið í Borginni lifir í miklum vellystingum og ver tíma sínum í fegurðarsamkeppnir gælu- dýra og kökuskreytingarkeppnir á meðan allt hitt fólkið, sem er miklu fjölmennari hópur, dregur fram lífið við ömurlegar aðstæður og stritar til þess að Borgarbúar geti lifað áfram í munaði. Þetta tekst Ragnheiði að skrifa um á skemmtilegan hátt og það er nú ekki sjálfgefið þar sem þarna er verið að velta upp alvar- legum spurningum um misskiptingu og rang- læti í heiminum. Til dæmis þegar segir frá góðu konunni sem tekur að sér fátæku börnin, en lætur þjónustufólkið sjá um þau. Og hvern- ig íbúarnir í Borginni loka augunum fyrir neyðinni fyrir utan borgarmúrana. Ragnheiður er leikinn höfundur og notar ýmis stílbrögð óspart til að skerpa á and- stæðum á milli íbúanna í Borginni og hinna. Til dæmis heitir fólkið utan borgarmúranna nöfn- um eins og Aska, Glóð og Stormur, en þau sem búa í borginni heita miklu hljómfegurri nöfn- um eins og Dagur og Mjöll. Áróra fær að lokum svör við því hvers vegna foreldrar hennar létu hana dúsa aleina í gler- hjúpi árum saman og það hugnast henni lítt Þetta er margslungin saga þar sem tekið er á mörgum mikilvægum málum; ábyrgð, vináttu, misskiptingu, réttlæti og ást. En hér er fyrst og fremst afskaplega skemmtileg saga á ferð. Carpe Diem bbbmn Eyrún Ýr Tryggvadóttir og Kristjana María Kristjánsdóttir. Salka. 2011. 127 síður. Titillinn þýðir „Gríptu daginn“, sem er aldeilis holl og góð áminning, ekki síst fyrir unglinga sem eiga það til að einbeita sér að því að vera þrúgaðir af lífsleiða. Hér er fjallað um það sem skiptir margan unglinginn miklu máli; að eiga vini, að vera hluti af hóp, ástina, hópþrýsting og samskipti við fjölskylduna. Aðalpersónan og sú sem sagan hverfist um er unglingsstúlkan Birna, sem byrjar í nýjum skóla í 10. bekk. Henni gengur illa að komast inn í hópinn og hún fær lítinn stuðning heiman frá, þar sem mamma hennar á við ýmsan vanda að stríða. Hún þráir öruggi og hlýju, eins og flestir aðrir, en virðist vera búin að afskrifa að það fái hún heima hjá sér. „En það var í eina skiptið sem mamma hennar hafði veitt henni slíka öryggis- tilfinningu. Og það var svo langt síðan, nú var komið að því að Birna tæki málin í eigin hend- ur og fyndi sína eigin leið að örygginu að ný.“ (86) Svo er það fyrirmyndarpilturinn Hall- grímur, sem kemur úr samheldinni fjölskyldu og stundar íþróttir af miklum móð, en þau Birna laðast hvort að öðru og verða kær- ustupar. Hallgrímur býr við nokkuð aðrar að- stæður en Birna, hans helsta vandamál er hóp- þrýstingur félaganna og að foreldrar hans hafa í hyggju að flytja búferlum til Noregs. Hér er margt vel gert. Persónusköpun er trúverðug og þær Eyrún Ýr og Kristjana María þekkja unglinga greinilega nokkuð vel. Ekki kæmi á óvart ef önnur þeirra eða báðar hafi fengist við kennslu á unglingastigi. Það þarf nefnilega nokkra innsýn til að geta skrifað fyrir þennan aldurshóp svo vel sé, þannig að það sé trúverðugt, og þetta tekst þeim vel. Það er líka ánægjulegt að höfundar skuli ekki falla í þá gryfju að búa til einhverjar stereótýpur, eins og því miður er svo algengt í bókmenntum og kvikmyndum sem sérstaklega eru ætlaðar þessum aldurshópi. Þrátt fyrir alvarlegan und- irtón er sagan létt og skemmtileg, atburðarás er hröð og hér er ekkert verið að teygja lop- ann. Málfar er gott, aðeins kryddað unglinga- máli, en það er í besta lagi. Þetta er jú bók um unglinga fyrir unglinga. Unglingabækur Nýútkomnar íslenskar unglingabækur Titill útgerðarsögu Borgfirðinga, Víst þeir sóttu sjóinn, vísar til þess vel varðveitta leyndarmáls að Borgnesingar stunduðu umtals- verða útgerð fyrr á árum, ekki að- eins flóabáta til Reykjavíkur, held- ur alvörufiskiskip. Við lestur bókarinnar kemur í ljós að heil- mikil saga er af þessu sviði at- vinnulífsins, eins og öðrum, þótt Borgarnes verði seint talin meðal útgerðarplássa. Nokkuð hefur verið skrifað um útgerð fiskiskipa og flóabáta Borg- nesinga og Borgfirðinga í ævi- minningum og söguritum á und- anförnum árum. Áhugamenn um útgerðarsögu Borgfirðinga hafa unnið að því að halda sögunni á lofti. Þeir hafa látið smíða líkön af fimm helstu Borgarnesskipunum og fært bænum að gjöf og í fram- haldinu var ákveðið að rita útgerð- arsöguna. Þeir eru ekki hættir því áhugi er á því að gera upp hús sem útgerðarfélagið Grímur lét byggja við Borgarneshöfn og koma þar upp safni til kynningar á útgerðar- og samgöngusögu Borgfirðinga. Fyrst eru það flóaferðirnar. Borgarneshöfn lék lykilhlutverk í samgöngum á milli Norður- og Suðurlands þegar samgöngur á landi voru slæmar. Áætlunarferðir þangað miðuðust við ferðir flóabát- anna sem sigldu stundum hlaðnari en góðu hófi gegndi til Reykjavík- ur. Bátarnir voru þekktir og mikið notaðir; Suðurlandið, Laxfoss, Eld- borg og síðast Akraborgin en auk þess kom fjöldi smærri báta við sögu um skemmri tíma. Borgfirðingar stunduðu einnig útgerð fiskiskipa og kemur lestur þeirrar sögu meira á óvart en saga flóabátanna. Einstaklingar og hreppurinn lögðu fé í útgerð- arfélög í viðleitni til að skapa at- vinnu á krepputímum. Keypt voru nokkur fiskiskip. Þótt útgerðin gengi oft brösuglega átti hún sinn blómatíma; hún var með skip á síldveiðum og siglingum með ísfisk á styrjaldarárunum. Það vekur til dæmis undrun að eitt sumarið voru þrjú skip úr Borgarnesi á síldveiðum og Eldborgin varð afla- hæsta síldveiðiskipið tvær vertíðir í röð. Ungir menn í áhöfninni fengu góðar tekjur og þótt ekki tækist að skapa mikla vinnu við fiskverkun í Borgarnesi gátu verkamenn sem lagt höfðu fé í útgerðina notað arð og söluandvirði hlutanna til að koma sér þaki yfir höfuðið. Höfundurinn dregur söguna saman úr áður útgefnum bókum og bætir við samtímaheimildum úr dagblöðum og viðtölum við fólk sem var á Borgarnesskipunum. Viðtölin eru birt aftan við meg- insöguna svo og greinar úr blöð- unum. Sagan er með léttu yf- irbragði og hefur höfundurinn og áhugamannahópurinn unnið gott verk. Útgerðarsaga Ara Sigvaldason hefur unnið gott verk. Borgfirðingar sóttu sjóinn Víst þeir sóttu sjóinn – Útgerðarsaga Borgfirðinga bbbbn Eftir Ara Sigvaldason. Grímshús gefur út. 187 bls. HELGI BJARNASON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.