Morgunblaðið - 22.12.2011, Side 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011
Kvikmyndin This Must Be the
Place, eða Staðurinn og stundin í ís-
lenskri þýðingu, verður frumsýnd í
Bíó Paradís á annan í jólum.
Um myndina segir á vef kvik-
myndahússins: „Faðir Cheyenne,
vellríks en lífsleiðs fyrrverandi
rokkara, deyr án þess að þeir feðg-
ar nái að hreinsa upp sín mál.
Cheyenne ákveður að hafa uppi á
kvalara föður síns, nasistaböðli sem
felur sig í Ameríku. Cheyenne
leggst í ferðalög um landið þvert og
endilangt til að hafa uppi á Storm-
sveitarforingjanum en fólkið sem
hann hittir á leiðinni hefur djúp-
stæð áhrif á hann, svo mjög að þeg-
ar hann loksins hefur uppi á nasist-
anum verður hann að gera upp við
sig hvort hann vilji hefnd eða ein-
hvers konar endurlausn með öðrum
hætti.“
Leikstjóri myndarinnar er Ítal-
inn Paolo Sorrentino og með aðal-
hlutverk fara Sean Penn, Frances
McDormand og Judd Hirsch.
Lífsleiður Sean Penn í hlutverki Cheyenne í This Must Be the Place.
Staðurinn og stundin
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Hljómsveitin/söngsveitin Brother
Grass hefur nú verið starfandi í
rúmt ár en hún vakti fyrst athygli
er hún fór með sigur af hólmi í jóla-
lagakeppni Rásar 2 fyrir ári. Það
eru þau Hildur Halldórsdóttir,
Sandra Dögg Þorsteinsdóttir,
Soffía Björg Óðinsdóttir, Ösp Eld-
járn og Örn Eldjárn sem skipa
sveitina og á efnisskránni eru ýms-
ar hliðar amerískrar alþýðu-
tónlistar. Á fésbókarsetri lýsa með-
limir henni sem hálfgerðu
„jug“-bandi sem spili bræðing af
blágresistónlist, blús, þjóðlaga-
tónlist, sálmum eða gospel og gam-
aldags fjallatónlist sem rekja má til
Appallasíu.
Hildur segir að tildrög sveit-
arinnar liggi í því að þær stöllur,
sem voru á þeim tíma í söngnámi,
hafi langað til að reyna sig við ann-
an söngstíl. Verandi miklir aðdá-
endur myndarinnar áhrifaríku O
Brother Where Art Thou?, sem
hratt af stað mikilli bylgju amer-
ískrar þjóðlagatónlistar víða um
lönd á sínum tíma, lá beint við að
reyna sig við þann stíl.
„Svo gátum við ekki hætt og fór-
um að kynna okkur þessa tónlist í
þaula og alla hennar anga.“
Brother Grass hefur verið iðin
við hljómleikahald sem skýrir það
kannski að platan var tekin upp á
einum degi í Stúdíó Sýrlandi í sum-
ar. Hrært var í tuttugu lög, hvorki
meira né minna, en sextán þeirra
prýða plötuna.
„Þetta var stórskemmtilegur
dagur,“ segir Hildur.
„Við pössuðum okkur á því að
koma vel æfðar svo að dagurinn
myndi nýtast sem best. Kristinn
Sigurpáll Sturluson sá um upp-
tökur ásamt nemendum í hljóð-
tækninámi þar.“
Brother Grass er mikil tónleika-
sveit og Hildur segir hana hafa
þróast skemmtilega á sviði.
„Aðallega þannig að við erum
óhræddari við að taka upp hljóð-
færi sjálf og spila, hvort sem það er
þvottabretti, balar eða annað
ásláttardæmi. Æ, það er alltaf þetta
stelpudæmi að þora ekki og halda
sig til hlés. Þannig vorum við allt-
ént en nú látum við vaða eins og
enginn væri morgundagurinn. Við
gerum mistök, fullt af þeim, og í
þeim lærum við og skemmtum okk-
ur!“
Ein grasekkjan er nú úti við nám
og Hildur er að fara að fjölga
mannkyninu brátt en næsta sumar
verður allt sett í gang.
„Það er mikill hugur í bandinu og
við höfum mjög gaman af þessu.“
Óður til hennar Ameríku
Hljómsveitin
Brother Grass gefur
út samnefnda plötu
Fimmund Brother Grass í öllu sínu veldi. Myndin var tekin í sumar, en þá
brá sveitin undir sig betri fætinum og spilaði tónleika víðsvegar um landið.
Eva Hoeke, ritstjóri hollenska
tízkublaðsins Jackie, hefur sagt
upp störfum vegna niðrandi um-
mæla um söngkonuna Rihönnu. Var
hún kölluð „n---- bitch“ í blaðinu
sem gæti úlagst sem negratík. Rih-
anna brást ókvæða við, smellti sér á
tístið og lét Hoeke heyra það. Hún
sakaði ritstjórann um rasisma í
sæmilega hófstilltum tón en endaði
skrifin með sprengju og sagðist
vera með tvö orð handa Hoeke. Þau
væru „F*** YOU!!!“ Hoeke varðist,
baðst afsökunar og sagði þetta hafa
átt að vera grín en sagði svo upp
störfum í gær.
Ritstjóri segir
af sér vegna
Rihönnu
Hörð Rihanna líður ekki rugl.
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞAR SEM LÖGIN TAKA
ENDA HEFST RÉTTLÆTIÐ
HÖRKU
SPENNUMYND
ÍSLENSKT
TAL
-THE HOLLYWOOD
REPORTER
HHHH
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO Sýnd kl. 7 - 10
MISSION IMPOSSIBLE 4 Sýnd kl. 7 - 10
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 Sýnd kl. 4 - 6
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN 3D Sýnd kl. 4
BLITZ Sýnd kl. 10:30
RUM DIARY Sýnd kl. 8
ARTÚRBJARGARJÓLUNUM 3D Sýnd kl. 4
TOM CRUISE, SIMON PEGG,
PAULA PATTON OG JEREMY RENNER
Í BESTU HASARMYND ÁRSINS!
ÍSLENSKT
TAL
ÍSLENSKT
TAL
88/100
-CHICAGO SUN TIMESH.S.S. - MBL
HHH
HHH
AK. DV
- MAGNÚS MICHELSEN,
BÍÓFILMAN.IS
HHHH
- RAGNAR JÓNASSON,
KVIKMYNDIR.COM
HHHH
- TÓMAS VALGEIRSSON,
KVIKMYNDIR.COM
HHH
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 4.45 - 8 - 9 16
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO LÚXUS KL. 4.45 - 8 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.40 - 5.50 - 8 L
MI – GHOST PROTOCOL KL. 6 - 8 - 10.50 16
STÍGVÉLAÐIKÖTTURINN 3D KL. 3.40 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 3.40 - 5.50 L
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 10.10 7
JÓLAMYNDIN 2011
H.S.S., MBL.H.V.A., FBL.
TOM CRUISE, SIMON PEGG, PAULA PATTON OG
JEREMY RENNER Í BESTU HASARMYND ÁRSINS!
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 5.10 - 8 - 10.50 16
ELÍAS KL. 6 12
MONEYBALL KL. 8 - 10.20 L
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 6 - 8 - 10 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 6 - 8 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 5.50 L
JACK AND JILL KL. 10 L
ÆVINTÝRI TINNA KL. 5.40 - 8 - 10.20 7
LITLU JÓLIN Í LAUGARÁSBÍÓI
á morgun, Þorláksmessu
á allar myndir
allan daginn.
ll i
ll i .
Jólin byrja í Laugarásbíói
600 kr
Jólasveinninn verður á staðnum og gefur öllum nammipoka frá
Nóa Síríus og svala eða kók frá Vífilfelli á 2, 4 og 6 sýningum.*
*Nammipoki og drykkur fylgir öllum keyptum miðum á meðan húsrúm leyfir.
Tryggðu þér miða á eða í miðasölu Laugarásbíós.