Morgunblaðið - 22.12.2011, Síða 48
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 356. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Andlát: Gísli V. Einarsson
2. Hermann Fannar kvaddur með …
3. Út að borða með vínflösku að …
4. Misstu næstum fyrirtækin
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Gunnar Nelson mun keppa í blönd-
uðum bardagaíþróttum (MMA) í Cage
Contender keppninni í Dublin á Ír-
landi 25. febrúar nk. Andstæðingur
hans verður tilkynntur síðar en bar-
dagi Gunnars verður aðalbardagi
kvöldsins.
Morgunblaðið/Eggert
Tekur þátt í Cage
Contender keppni
Rósalind Gísla-
dóttir mezzósópr-
an varð í fyrsta
sæti í alþjóðlegu
söngvarakeppn-
inni Barry Alex-
ander Inter-
national Vocal
Competition.
Verðlaunin felast í
því að fá að syngja á tónleikum í
Carnegie Hall í New York, 29. janúar
næstkomandi. Verðlaun eru veitt í
fjórum ólíkum flokkum í keppninni.
Hlaut 1. sæti í alþjóð-
legri söngvarakeppni
Tónlistarkonan Hafdís Huld flytur
titillag jólamyndar breska ríkis-
útvarpsins, BBC, í ár en hún nefnist
The Borrowers og er byggð á sam-
nefndu ævintýri Mary Norton. Lagið er
endurgerð Hafdísar á jólalaginu „Have
Yourself a Merry Little
Christmas“. Með aðal-
hlutverk í myndinni
fara Stephen Fry
og Christopher
Eccleston en leik-
stjóri er Tom Har-
per. Myndin verður
sýnd á jóladag.
Hafdís syngur titillag
jólamyndar BBC
Á föstudag V og SV 8-15 m/s og él, en léttir til A-lands. Vaxandi S-
átt með slyddu eða snjókomu. Frost 0 til 5 stig.
Á laugardag SV 15-20 m/s og slydda eða rigning. Vægt frost.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg N-læg átt, víða 5-10 en hvasst NA-til
fram undir hádegi. Vaxandi NV síðdegis með úrkomu S-til, en úr-
komulítið N-til fram á kvöld.
VEÐUR
Heiðar Helguson skoraði
fyrra mark QPR og lagði það
seinna upp þegar lið hans
tapaði fyrir Sunderland í
ensku úrvalsdeildinni í gær.
Gestirnir skoruðu sig-
urmarkið undir leikslok.
Manchester City heldur for-
ystu í deildinni eftir leiki
gærkvöldsins en liðið lagði
Stoke, 3:0. Manchest-
er Utd
vann
Mark Heiðars
dugði ekki til
Brasilíumaðurinn Neymar er aðeins
nítján ára en þegar talinn í hópi
bestu fótboltamanna heims.
Stærstu liðin í Evrópu slást um pilt-
inn sem er samningsbundinn San-
tos til ársins 2014. Sumir telja að
hann sé þegar
orðinn betri en
Lionel Messi,
aðrir að hann
verði það innan
fárra ára. » 4
Nítján ára og kominn í
hóp þeirra bestu
Eggert Gunnþór Jónsson er sautjándi
Íslendingurinn sem spilar í efstu
deild í enska fótboltanum en hann er
búinn að semja við Úlfana til hálfs
fjórða árs. „Frá því ég var lítill strákur
var þetta aðaldeildin og mikill draum-
ur að spila í henni. Nú fæ ég loksins
tækifærið og þá er málið að nýta það
og festa mig í sessi,“ segir Eggert við
Morgunblaðið. »2-3
Sautjándi Íslending-
urinn í deildinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta er mikil bók,“ segir Valsarinn
Þorgrímur Þráinsson um bók sína
Áfram, hærra!, hundrað ára afmæl-
isbók Knattspyrnufélagsins Vals í
Reykjavík. Bókin fór í dreifingu í
gær og þetta er engin venjuleg bók,
720 blaðsíður í stóru broti, rúmlega
4 kg að þyngd.
Knattspyrnufélagið Valur var
stofnað 11. maí 1911. Af miklu er að
taka á 100 árum og svo fór að bókin
varð tvöfalt stærri en til stóð en er
samt aðeins brot minninga og
mynda.
Hlíðarendi sem annað heimili
Þorgrímur sökkti sér í söguna og
skrifaði bæði texta og valdi myndir.
„Það sem kom mér á óvart, og þó
ekki, er hvað stóran sess Valur átti í
huga eldri Valsmanna,“ segir hann
og nefnir menn eins og Frímann
Helgason, Sigurð Ólafsson, Lolla í
Val eða Ellert D. Sölvason, og Al-
bert Guðmundsson. Hann segir
þessa menn og fleiri hafa gert ótrú-
lega mikið fyrir félagið og nánast átt
heima á Hlíðarenda. „Mér finnst líka
merkilegt hvað menn hafa varðveitt
anda séra Friðriks vel á þessum 100
árum og hvað menn voru óskaplega
fórnfúsir fyrir félagið,“ segir Þor-
grímur. „Ég vona að íþróttaiðk-
endur geti dregið lærdóm af þessari
bók hvað það varðar.“
Með helstu mark-
miðin í huga segir Þor-
grímur mikilvægt að
bestu þjálfararnir þjálfi
yngri flokkana. „Mestu
máli skiptir að ala upp
heilbrigða og trausta
Valsmenn, sem standa
sig ekki aðeins vel inni
á vellinum heldur
fyrst og síðast sem
manneskjur,“ segir
hann. „Auðvitað verð-
ur alltaf titlatog á milli félaga og
ákveðin keppni en eins og kemur
fram í bókinni vilja flestir sjá Val
sem fjölskyldumiðstöð.“
Samheldni í 100 ár
Þrátt fyrir mótbyr, eins og geng-
ur, hafa Valsmenn staðið þétt sam-
an. Þorgrímur áréttar mikilvægi
þessarar samheldni. „Það sem ein-
kennir öll sigurlið hjá Val í gegnum
tíðina er að þau eru skipuð heima-
mönnum, kjarni þeirra er uppalinn
að Hlíðarenda. Það er ákveðinn lær-
dómur.“
Þorgrímur áréttar að sagan gerist
á hverjum degi og tekur undir með
heiðursmönnum í Val, þegar fram-
tíðina ber á góma: „Valur er ekkert
annað en ég, þú og allir hinir.“
Valur: Ég, þú og allir hinir
Bók Þorgríms
um vegferð Vals í
100 ár komin út
Morgunblaðið/Golli
Tímamót Þorgrímur Þráinsson, höfundur afmælisbókarinnar, á milli heiðursfélaganna Jóns Gunnars Zoëga og Pét-
urs Sveinbjarnarsonar, sem fengu fyrstu bækurnar í hófi sem haldið var í tilefni útgáfunnar að Hlíðarenda í gær.
Valsmenn fögnuðu 100. titli fé-
lagsins í haust og fór vel
á því á afmælisárinu, en
þó að markmiðið í keppni
sé almennt sigur svífur
boðskapur séra Friðriks
Friðrikssonar yfir vötn-
unum með uppbyggingu
einstaklinganna í huga:
„Látið aldrei kappið bera
fegurðina ofurliði! [...]
Kærið ykkur ekki um að
vinna með röngu eða ódrengilegu
bragði […] Sá sem temur sjálfan
sig og reynist trúr í hinum minnstu
atriðum leiksins, undirbýr sig með
því til þess að geta lifað í trú-
mennsku og prettaleysi í skyldu-
störfum lífsins.“
Þorgrímur Þráinsson segir það
koma berlega í ljós í viðtölum við
leikmenn og þjálfara að umhyggj-
an fyrir börnunum og ungling-
unum skipti mestu máli.
Umhyggja fyrir börnum
ANDI SÉRA FRIÐRIKS FRIÐRIKSSONAR Í HÁVEGUM HAFÐUR