SunnudagsMogginn - 05.02.2012, Page 28

SunnudagsMogginn - 05.02.2012, Page 28
28 29. janúar 2012 gerst í Apple. Við vinnum í þessum anda og þríf- umst ekki nema við getum starfað frjálsir í hon- um.“ Mistök leiðtogans Þú hefur áhuga á leiðtogahlutverkinu. Hvað ein- kennir góðan leiðtoga? „Góður leiðtogi fær aðra í lið sér. Í bók okkar Leiðtogafærni, sjálfskilningur, þroski og þróun segjum við Helgi Þór að leiðtoginn þurfi að vera djúpsær, vera læs á eigin tilfinningar og upplifanir, og vera fær um að beita innsæi sínu í samskiptum við annað fólk. Það er æskilegt að hann sé blátt áfram, geti verið skeleggur og sé næmur á þarfir sjálfs sín og annarra, og þess vegna læsari á þann raunveruleika sem hann er að vinna innan. Aðeins þannig verður hann færari um að vinna meðvitað að eigin þroska og að þróun þess sem honum er trúað fyrir, ef ekki þá heldur hann kannski áhrifa- valdi en getur verið mjög mistækur.“ Eru það einhver ákveðin mistök sem leiðtogar gera? „Ég fer inn í fyrirtæki og félög, hitti fólk úr stjórnkerfinu hingað og þangað og sé leiðtoga að störfum. Þar eru alls konar hlutir í gangi og það eru margháttuð mistök sem fólk í leiðandi hlutverkum gerir: Það getur verið of upptekið af eigin þörfum og þess vegna illa næmt á þarfir annarra; það getur haft takmarkaða þjálfun eða getu til að beita gagn- rýnni hugsun og fellir þess vegna hæpna dóma um menn og málefni; það getur gert mistök í því að velja ekki með sér réttu samstarfsmennina; og svo getur valdið spillt því. Leiðtoginn getur líka gleymt að mæta eigin þörfum og brennur þess vegna út. Hann er kannski í hópi með fólki sem hefur lítið sálfræðilegt innsæi og þar sem verða til sefjunar- menn í nafni hennar iðulega að stytta sér leið, halda kenningum fram og viðhalda áhrifum sínum á mjög ófull- nægjandi forsendum. Eftir að hafa lokið guðfræðinámi velti ég því mér hvort ég ætti að fara í prestskap en endaði í doktorsnámi með því sérstæða nafni „geðlæknisfræði og trúarbragðafræði“ við Union Theological Seminary í New York, sem tengist Columbia-háskóla, og lærði sálgrein- ingu hjá The Harlem Family Institute. Ég vann líka sem sjúkrahúsprestur á Lennox Hill sjúkrahúsinu og hef starfað sem slíkur á Landspítalanum – háskólasjúkrahúsi með því einvalaliði sem þar starfar. Þegar ég kom heim opnaði ég stofu og sinnti sálgreining- armeðferð. Skjólstæðingar mínir glímdu við ýmiskonar vandamál sem voru allt frá því að vera hversdagsleg upp í að vera þunglyndi, geðhvörf og alvarlegar persónuleika- raskanir. Þetta var gefandi vinna og það var nóg að gera. Jafnframt því að sinna sálgreiningu fór ég að kenna og sinnti ráðgjafarverkefnum. Í sálgreiningarmeðferð verður maður stöðugt að vera til staðar og meðferðin er mjög vandasöm, og hún krefst tíma, einbeitni, kunnáttu og al- úðar. Maður er frjálsari með tíma sinn í háskólakennslu og ráðgjöf. En prestleg sálgæsla og sálgreiningin er mér enn mjög hugleikin. Ég kom oft út úr viðtölum hugsandi: „Þetta er með því mikilvægasta sem hægt er að fást við, þar sem einn styður annan, með ráðum og dáð.“ Ég var svo ungur þegar ég byrjaði að sinna syrgjandi og veiku fólki og með tímanum fór mig að langa að vinna með heilbrigt fólk — hvað sem það nú annars er að vera heilbrigður. Við Helgi Þór fórum af stað með námskeið í endurmenntun í Háskóla Íslands, verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun, og höfum nú skrifað nokkrar bækur saman um þessi efni. Hann kemur með verkvitið, tækni- þekkinguna og verkfræðina og ég kem inn með húm- anismann, menninguna og sálfræðina. Nú er aðalstarf mitt að kenna í meistaranámi í verkefnastjórnun, MPM- námi, við Háskólann í Reykjavík, ásamt Helga Þór og fjöldamörgum öðrum framúrskarandi kennurum. Þetta er gefandi starf og við erum mjög þakklátir fyrir aðstöð- una og þann áhuga sem við höfum fundið fyrir í Háskól- anum í Reykjavík. Í MPM-náminu, sem við þróuðum framan af innan Háskóla Íslands, er verið að búa fólk undir að takast á við að byggja upp íslenskt samfélag, ís- lenskt athafnalíf og ljá því verkfæri sem eru eftirsótt víða um veröld. Við fylgjumst vel með og störfum eftir alþjóð- legum viðmiðum. Kannski má segja að verið sé að skapa nýja endurreisn þar sem blandað er saman verkvitinu og mannvitinu – verkvísindum og hugvísindum. Ég er nýbúinn að lesa ævisögu Steve Jobs. Höfundur bók- arinnar segir að þegar húmanisminn og verkvísindin komi saman þá verði mikil sköpun. Hann segir að það hafi Dr. Haukur Ingi Jónasson er kennari og for-stöðumaður í meistaranámi í verkefnastjórn-un (MPM-námi) við Háskólann í Reykjavík enhann hefur byggt upp og þróað það nám ásamt félaga sínum Helga Þór Ingasyni og saman hafa þeir skrifað bækurnar Leiðtogafærni, Stefnumótunarfærni, Samskiptafærni og Skipulagsfærni. Auk þess að kenna sinnir Haukur ráðgjafarstörfum og fer meðal annars inn í fyrirtæki og fylgist með leiðtogum að störfum. Hann rek- ur ásamt Helga Þór og í samstarfi við Eyrúnu Magnús- dóttur ráðgjafarfyrirtækið Nordica ráðgjöf ehf. Haukur Ingi, sem er sonur Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara, er fyrst spurður um það hvort tónlistin hafi ekki sett sterkan svip á bernskuna. „Ég er alinn upp undir flyglinum,“ segir hann. „Pabbi er ekki eini píanóleikar- inn, mamma, Ágústa Hauksdóttir, er píanókennari. Ég man eftir röðum af tónlistarfólki sem kom í heimsókn. Einna eftirminnilegust var Sigríður Ella Magnúsdóttir sem passaði mig þegar ég var strákur. Þegar ég sá hana svo á sviði sem Carmen þá fannst mér magnað að upplifa barn- fóstruna mína í þessu dramatísku hlutverki.“ Faðir þinn er afar virtur og vinsæll listamaður. Hvarflaði aldrei að þér að gerast tónlistarmaður? „Pabbi var alltaf mjög örlátur á vinnu sína, fór víða og mikið út á land og spilaði, kenndi á orgelnámskeiðum og stofnaði kóra. Það lýsir því vel hvað hann er örlátur á framlag sitt að þegar hann var kominn í hvíld á Heilsu- hælinu í Hveragerði þá var hann strax í fyrstu vikunni búinn að skipuleggja tónleika á staðnum. Ég held ég hafi fengið áhugann á þessu í föðurarf og áhugann á öllu öðru í móðurarf. Sem krakki lærði ég lítillega á blokkflautu en það gekk ekki. Svo lærði ég á píanó en það endaði líka. Svo kom sellóið en það varð ekki framhald á því námi. Ég var ekki nægilega einbeittur í tónlistarástundun og foreldrarnir voru ekkert að þvinga mig inn á sína línu. Seinna fór ég að syngja í kór og kynntist þar mínum nánasta samstarfs- manni til margra ára, Helga Þór.“ Að skapa nýja endurreisn Þú ert lærður guðfræðingur og sálgreinir, hvernig sérðu þau hlutverk fyrir þér? „Ég var í hagfræðideild Menntaskólans við Sund og fór þaðan í hagfræðinám í Indiana University School of Bus- iness og lagði stund á hagfræði en hætti. Ég lenti í and- legum háska og fannst að ég væri að byggja hús mitt á sandi. Ég ákvað að reyna að finna bjarg til að byggja hús mitt á og fór í guðfræði. Ég komst að því að þar er ekki bjarg heldur enn meiri sandur. Guðfræðin er ákaflega huglæg og miklu flóknari en látið er í veðri vaka. Enda eru Viðtal Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Sterkt innsæi er eitt besta vinnutækið Dr. Haukur Ingi Jónasson er höfundur nokkurra bóka, þar á meðal bókar um leiðtogafærni. Í viðtali ræðir hann meðal annars um hlutverk leiðtogans og mikilvægi innsæis. ’ Það er hins vegar slæmt að í þjóðfélagsumræðunni og á þinginu búa menn sér til víg- línur sem þeir benda stöðugt yfir. „Við-þið“-sálfræði ræður ferðinni og sá sem vinnur við sálfræðilega með- ferð veit að það er frumstæð sálræn viðleitni til að komast hjá því að horf- ast í augu við sjálfan sig.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.