Morgunblaðið - 17.04.2012, Side 1
355 milljóna króna skuldbinding
» Almannahagsmunir réðu því að þjón-
ustusamningur var gerður milli ríkisins
og Farice ehf. til að tryggja fjarskipta-
tengingar við útlönd.
» Ríkið mun á grundvelli samningsins
greiða félaginu 355 milljónir árið 2012.
» Farice ehf. var komið í slík lausafjár-
vandræði að það átti ekki fyrir 226,5
milljóna króna afborgun 15. apríl sl.
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Innanríkisráðuneytið hefur gert þjónustu-
samning við Farice ehf. á grundvelli almanna-
hagsmuna, en félagið var komið í alvarleg
lausafjárvandræði, samkvæmt upplýsingum úr
minnisblaði fjármálaráðherra til fjárlaga-
nefndar Alþingis um málið.
Farice ehf. rekur tvo sæstrengi milli Íslands
og Evrópu og þurfti hinn 15. apríl síðastliðinn
að standa skil á 226,5 milljóna króna afborgun,
en það fjármagn var ekki handbært.
Farice lagði nýjan sæstreng árið 2008 til að
opna fyrir tækifæri í gagnaversiðnaði, en illa
Fjarskipti við útlönd voru í hættu
Farice ehf. átti ekki fyrir 226,5 milljóna afborgun í apríl Ríkissjóður gerir fimm ára þjónustusamning
til að tryggja að fjarskipti haldist Ráðherra segir samninginn gerðan á grundvelli almannahagsmuna
Í minnisblaði fjármálaráðherra segir: „Mikl-
ir almannahagsmunir eru í húfi við að viðhalda
fjarskiptatengingum við umheiminn og vegna
ríkisábyrgða á skuldum félagsins verður að
teljast hagkvæmast fyrir ríkissjóð að tryggja
áframhaldandi rekstur félagsins.“
Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra
staðfesti í gær að greiðslan hefði verið innt af
hendi í fyrradag. „Við urðum að gera þetta svo
það myndu ekki detta niður öll samskipti,“
sagði Oddný. Aðspurð hvernig þessum útgjöld-
um yrði mætt sagði hún: „Við verðum að finna
út úr því hvernig við látum þetta rúmast innan
fjárlaga.“ Ríkisstjórnin samþykkti hinn 11.
apríl sl. að heimila undirskrift samningsins.
hefur gengið að koma þeirri starfsemi á legg.
„Til að halda fyrirtækinu gjaldhæfu og í
rekstri reynist nú nauðsynlegt að koma með
fjármagn þangað inn og það var ákveðið að
gerður yrði þjónustusamningur milli ráðuneyt-
is samgöngumála og Farice til fimm ára,“ sagði
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra í gær.
Hann segir samninginn kosta ríkissjóð 355
milljónir króna á þessu ári.
„Það er ekki ljóst hver þörfin verður áfram,
en líklegt að hún verði miklu minni. Það er ver-
ið að koma á öflugan hátt inn í reksturinn með
þessum þjónustusamningi. Það eru litlir val-
kostir í þessari stöðu. Við þurfum að hafa þessa
lífæð í lagi,“ sagði Ögmundur.
Þ R I Ð J U D A G U R 1 7. A P R Í L 2 0 1 2
Stofnað 1913 89. tölublað 100. árgangur
www.ms.is
Með D-vítamíni sem hjálpar
þér að vinna kalkið úr mjólkinni.
Meira fjör með Fjörmjólk!
Fáðu D-v
ítamín
úr Fjörmjó
lk!
SIGRAST Á
SJÁLFRI SÉR Í
NÁTTÚRUNNI
AUÐJÖFUR OG
ÍSLANDSVINUR
SALA Á MYNDLIST
AUKIST MIKIÐ
SÍÐUSTU ÁRIN
REISTI HEILT ÓPERUHÚS 18 NÝR GALLERÍSSTJÓRI HJÁ I8 32KLEIF EVEREST 10
Mærsk Mc-Kinney Møller
látinn 98 ára að aldri
Fyrstu erlendu sjóstangaveiðimenn sumarsins koma
næstu daga til veiða á Vestfjörðum. Margir þeirra
vonast eftir að setja í stórlúðu, en reglugerð um bann
við beinum lúðuveiðum og þá skyldu að sleppa lífvæn-
legum lúðum hefur aukið óvissu í þessum ferðaútvegi.
Þau skilaboð hafa borist til skipuleggjenda ferð-
anna að reglugerðinni verði ekki breytt. Hins vegar
hefur Hafrannsóknastofnunin áhuga á að fá veiði-
mennina til að taka þátt í verndun og uppbyggingu
stofnsins með því m.a. að merkja lúðu áður en henni
er sleppt. »6
Risalúða Þessi var
220 cm og vó 150 kg.
Óvissa með drauminn um að setja í stórlúðu
Þegar því var m.a. haldið fram að
þar sem búið væri að afskrifa það
mikið í sjávarútveginum væri hærri
skattlagning réttlætanleg mótmæltu
einstakir fundarmenn harðlega. „Það
er ekki búið að afskrifa neitt af lánum
til handa Bolvíkingum í sjávarútveg-
inum,“ sagði Jakob Valgeir Flosason
útgerðarmaður.
Gerir greinarmun á auðlindum
Lilja Rafney sagði að eðlilegt væri
að Vestfirðingar borguðu til sam-
félagsins ef þeir vildu fá göng og
vegi. Ögmundur Jónasson var spurð-
ur út í Dýrafjarðargöng og svaraði
þeirri spurningu þannig að fyrst yrði
Skúli Hansen
Guðmundur Björn Þorbjörnsson
Mikill hiti var í fundarmönnum á
opnum stjórnmálafundi Vinstri-
grænna á Ísafirði í gærkvöldi. Þar
voru einkum kvótafrumvörp ríkis-
stjórnarinnar og samgöngumál til
umræðu. Á fundinum sátu þau Lilja
Rafney Magnúsdóttir, þingmaður
VG, Steingrímur J. Sigfússon, ráð-
herra og formaður VG, og Ögmundur
Jónasson, innanríkisráðherra, fyrir
svörum. Margt var um manninn á
þessum átakafundi og segja má að
allir helstu útgerðarmenn Vestfjarða
hafi verið þar mættir.
ráðist í Norðfjarðargöng árið 2015,
svo Dýrafjarðargöng árið 2018. Sú
spurning sem hvað helst brann á
vörum fundarmanna var af hverju
ætti að skattleggja sjávarútveginn
jafnmikið og raun ber vitni. Hvað
með allar hinar þjóðarauðlindirnar?
Ögmundur sagðist gera greinarmun
á sjávarútveginum og öðrum auðlind-
um, líkt og t.d. heita vatninu, vegna
þess að annars vegar væri um að
ræða auðlind sem samfélagið ætti og
starfrækti, þ.e. heita vatnið, og hins
vegar auðlind sem samfélagið ætti og
aðrir starfræktu, þ.e. fiskstofnana.
Fundinum var ekki lokið þegar
Morgunblaðið fór í prentun.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Hiti Mikill hiti var í fundarmönnum á opnum fundi VG sem haldinn var á Ísafirði í gærkvöldi. Fjöldi manns var
mættur til að taka þátt í umræðum fundarins sem snerust aðallega um nýju kvótafrumvörpin og samgöngumál.
Allt á suðupunkti á
fundi VG á Ísafirði
Hart sótt að Vinstri-grænum vegna kvótafrumvarpa
Umsóknir um sumarstörf hjá stórum
fyrirtækjum og stofnunum nema
hundruðum í ár, líkt og í fyrra. Fjöldi
starfa í boði ýmist stendur í stað eða
dregst eilítið saman.
Til Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæma bárust yfir 700 um-
sóknir um 150 störf. Svipaða sögu er
að segja frá Landsvirkjun, en 740
umsóknir bárust fyrirtækinu um
samtals 220 stöðugildi, þar af 50 stöð-
ur fyrir háskólanema. Hjá Orkuveitu
Reykjavíkur voru umsóknir 800 tals-
ins um 70 stöðugildi. Hjá Reykjavík-
urborg hafa 3.500 einstaklingar sótt
um sumarstarf, en óvíst er hversu
margir verða ráðnir. »8
Gríðarleg ásókn í sumar-
störf á meðal námsmanna
Morgunblaðið/Ernir
Umhirða Margir námsmenn leita nú
að sumarstarfi. Mikil ásókn er víða.