Morgunblaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. • Frábær 4 nátta helgarferð – allra síðustu sætin! Prag 27. apríl í 4 nætur frá kr. 49.900 Nú er upplagt að skreppa til Prag og njóta vorsins í þessari einstaklega fögru borg. Gríptu tækifærið og skelltu þér til Prag og njóttu góðs aðbúnaðar í ferðinni. Athugið fleiri gistimögu- leikar í boði. Verð kr. 69.900 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Ibis Mala Strana *** í 4 nætur með morgunmat. Verð kr. 49.900 Flugsæti á mann. 27. apríl – 1. maí. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við værum afar litlu nær ef við rykj- um núna upp og frestuðum þessum viðræðum og settum þær á ís áður en farið væri að reyna á grundvallar- hagsmuni okkar í þeim köflum við- ræðnanna sem mestu máli skipta,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, efna- hags- og viðskiptaráðherra, í andsvari við fyrirspurn Ólafar Nordal, varafor- manns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í gær. Geri hlé á viðræðunum Spurning Ólafar var þríþætt. Spurði hún ráðherrann hvort hann hefði komið á framfæri mótmælum við framkvæmdastjórn ESB vegna meðalgöngu hennar í Icesave-deil- unni; hvort ekki væri einsýnt að gera þyrfti hlé á aðildarviðræðum eftir að ESB beitti sér þannig í tvíhliða deilu- máli og hvort hann myndi beita sér fyrir því að umræða um þessi mál ætti sér tafarlaust stað á þingi um leið og vilji þingsins til framhalds viðræðn- anna yrði kannaður. Steingrímur ítrekaði þá að á næst- unni þyrfti að leggja höfuðáherslu á að opna þyrfti samningskaflana um sjávarútveg og landbúnað. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar, spurði Stein- grím út í aðildarviðræðurnar. Lýsti Steingrímur því þá yfir að hann teldi meðalgöngu framkvæmdastjórnar ESB í Icesave-deilunni ekki gefa til- efni til þess að staldra við og endur- skoða aðildarviðræðurnar, enda hefði ekki verið brotið gegn grundvallar- hagsmunum þeim sem tilgreindir voru í nefndaráliti meirihluta utanrík- ismálanefndar vorið 2009. „Ég sé ekki að í neinu tilviki hafi nokkrum tekist að færa fram sönnur um að í einu eða neinu hafi verið hvikað frá því að standa vörð um þá grundvallarhags- muni sem skilgreindir voru hér vorið 2009. Og á meðan svo er ekki hafa menn lítið efni í sín upphlaup hér um þessi mál,“ sagði Steingrímur og lýsti efasemdum um ágæti þess að gera hlé á aðildarviðræðunum við ESB. Engin lausn að staldra við „Hvernig verður framtíðar- tengslum okkar við Evrópusamband- ið háttað? Sú spurning yfirgefur okk- ur ekki ef við fáum ekki einhvern botn í þetta mál. Mér finnst það satt best að segja dálítið merkileg hugmynd að þetta leysist allt saman með því að setja málið á ís í nokkra mánuði. Verður þá Evrópusambandið aftur orðið gott bara eftir nokkra mánuði, ef það er sett á ís í nokkrar vikur, eða nokkra mánuði? Það er ekki mikil lausn,“ sagði hann. Steingrímur vill ekki setja umsóknina á ís  Formaður VG vill halda aðildarviðræðum við ESB áfram  Deilt um viðbrögð við afskiptum ESB af Icesave-málinu Morgunblaðið/Kristinn Höfðu vinnufrið Pétur H. Blöndal og Lúðvík Geirsson á þingi í gær. „Það eru mikil vonbrigði að þetta skuli ekki vera gert,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokks- formaður Framsóknarflokksins, um dagskrá fundar utanríkis- málanefndar Alþingis sem fram fer í dag en þar er hvorki gert ráð fyrir umræðu um meðalgöngu ESB í Icesave-málinu né um samskipti Íslands við sambandið. „Afsökunin er sú að utanríkisráðherra hafi ekki getað mætt til fundarins en ég held að það sé alveg fullt tilefni að ræða málið þess vegna við aðra ráðherra eins og t.d. formann VG,“ segir Gunnar Bragi og bætir við: „Maður er mjög ósáttur við að for- maður nefndarinnar skuli ekki standa við það sem rætt var um fyrir helgi, að halda þennan fund í vikunni.“ Að sögn Gunnars mun hann mót- mæla dagskrá fundarins þegar nefndin kemur saman á morgun, hann segist einnig ætla að leita skýringa á því af hverju ekki hafi verið reynt að halda fundinn nk. fimmtudag eða föstudag. Þarf að ræða málið „Ég vona að nefndarmenn séu sammála um að það sé mikilvægt að ræða það,“ segir Gunnar Bragi aðspurður hvort hann telji að aðrir nefndarmenn muni taka undir mótmæli hans og bætir við: „Nefndin þarf að ræða málið og viðbrögð af hálfu nefndarinnar við því, það þarf ekki ráðherra til að koma og segja okkur fyrir verk- um, við eigum auðvitað að geta tekið sjálfstæða umræðu um þetta mál.“ Ekki náðist í Árna Þór Sig- urðsson, formann utanríkis- málanefndar, við vinnslu fréttar- innar. Utanríkismálanefnd ræðir ekki um ESB  Ætlar að mótmæla fundardagskrá Skannaðu kóðann til að lesa andsvör Steingríms í gær. Biskupar sænsku kirkjunnar eru hér á landi og verða á kyrrðardögum í Skálholti fram á föstudag. Anders Wejryd erkibiskup og biskupar allra 13 biskupsdæmanna í Svíþjóð komu til landsins í gær. Þeirra á meðal eru þrír kvenbiskupar. Sænsku biskuparnir munu njóta handleiðslu Karls Sig- urbjörnssonar, biskups Íslands, á kyrrðardögunum. Biskupunum var boðið í biskupsgarð í gærkvöldi og fara þeir austur í Skálholt í dag. Karl sagði að sænsku biskuparnir hefðu ákveðið í fyrrahaust að heimsækja Skálholt. „Þeir hafa slíka kyrrðardaga á hverju ári, yfirleitt í Sví- þjóð,“ sagði Karl. „Algjör kyrrð og þögn ræður frá þriðju- dagskvöldi til föstudagsmorguns. Það eru bænastundir kvölds og morgna og um miðjan dag. Vígslubiskup, Kristján Valur Ingólfsson, annast það. Svo eru íhuganir á þriðjudagskvöld og alla morgna sem ég mun annast.“ Auk þess verður farið í bænagöngu um Skálholtsstað á mið- vikudag þar sem verða hugleiðingar tengdar sögu staðarins og trúarlífinu. En er það ekki þraut fyrir „orðsins menn“ að þurfa að þegja? „Það er mjög heilsusamlegt viðfangsefni að hvíla talfærin og leita inn í þögnina og hugleiða Guðs orð,“ sagði Karl. Hann sagði sína reynslu af kyrrðardögum vera þá að í þeim væri fólgin hvíld og andleg endurnæring. „Þú lokar á masið og ys- inn og leitast við að beina athyglinni að því innra og æðra.“ gudni@mbl.is Beina athygli að því innra og æðra Sænskir biskupar komu til Íslands og ætla að biðja, hugleiða Guðs orð og fara í bænagöngu á kyrrðardögum í Skálholti Morgunblaðið/Ómar „Mín skoðun er óbreytt. Alþingi á að taka stöð- una og framhaldið til endur- skoðunar … Meirihluti Alþingis getur tekið ákvörðun um að gera hlé eða að endurskoða aðildarferlið. Það vald er í höndum Alþingis en ekki einstakra þingmanna,“ sagði Jón Bjarnason, þingmað- ur VG, spurður út í ummæli Steingríms sem rakin eru hér til hliðar. Vildi Jón að öðru leyti ekki bregðast við ummæl- um formanns VG á Alþingi í gær. JÓN BJARNASON HELDUR FAST Í SKOÐUN SÍNA Jón Bjarnason Alþingi endurmeti allt ferlið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.