Morgunblaðið - 17.04.2012, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012
17. apríl Nýsköpun og að virkja hugmyndina
2. maí Nýsköpun og verkefnið
16. maí Nýsköpun og framkvæmdin
Nýsköpun - námskeið
Virkjum nýsköpunarkraftinn
Arion banki vill vinna að því að byggja upp fjölbreytt og öflugt atvinnulíf.
Arion banki Nýsköpun er vettvangur sem er ætlað að leysa úr læðingi þann
mikla nýsköpunarkraft sem býr í Íslendingum.
arionbanki.is – 444 7000
Í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands þá býður Arion banki upp á þrjú
námskeið til að auðvelda fyrstu skrefin í að þróa og vinna áhugaverðar hug-
myndir. Á námskeiðunum fara þeir Einar Gunnar Guðmundsson, sérfræðingur
Arion banka í nýsköpun, og Dr. Hannes Ottósson, frá Nýsköpunarmiðstöðinni,
yfir hvernig hugmyndir geta orðið að veruleika.
Arion banki vill með margvíslegum hætti efla nýsköpun í landinu. Að virkja fólk
með góðar hugmyndir er aðeins einn liðurinn í viðleitni bankans til að byggja upp
sterkara atvinnulíf. Á næstu mánuðum mun bankinn kynna frekari skref í þessa átt.
Við hugsum um framtíðina.
Nánari upplýsingar og skráning á arionbanki.is
Stjóri Raymond Yakeleya.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Valinn hópur listamanna úr röðum
frumbyggja í Kanada er vænt-
anlegur með list sína til Íslands
haustið 2013 og hefur Listasafn Ís-
lands boðið sýningaraðstöðu í sept-
ember og jafnvel einnig í október.
Raymond Yakeleya, fram-
kvæmdastjóri fjölmiðlafyrirtæk-
isins Earth Magic Media Inc. í Ed-
monton í Kanada, stendur að
sýningunni sem hann kallar
„Skrælingjarnir koma“. Hún sé til
minningar um þá staðreynd að ís-
lenskir víkingar hafi verið fyrstir
Evrópubúa til að nema land í „Nýja
heiminum“ og tengjast frum-
byggjum Kanada. Hann segir að
stefnt sé að því að fá að minnsta
kosti tvo listamenn frá hverju fylki
Kanada og sjálfsstjórnarsvæðunum
innan Kanada með verk sín. Auk
þess standi til að fá dansara, söngv-
ara og hljómlistarfólk frá sömu
svæðum til þess að taka þátt í verk-
efninu.
Tímamótasýning
Um tímamótasýningu verður að
ræða. Raymond Yakeleya segir að
svona kynning á list frumbyggja
hafi ekki átt sér stað áður utan
Kanada. Sýningin verði vonandi til
þess að opna augu Íslendinga fyrir
list frumbyggja í Kanada og koma á
auknum samskiptum milli lista-
manna þjóðanna. Þetta sé fyrsta
skrefið í að kynna verk frumbyggja
í útlöndum og því mikilvægur
áfangi.
Raymond Yakeleya segir að þar
sem um viðamikið verkefni sé að
ræða komi margir að því. Und-
irbúningur sé á frumstigi en hratt
og örugglega verði unnið að málinu
næstu mánuði.
Sigríður Melrós Ólafsdóttir,
deildarstjóri sýningardeildar Lista-
safns Íslands, segir mjög þarft að
kynna menningu frumbyggja Kan-
ada hérlendis og verkefnið sé
áhugavert. Safnið bjóði fram að-
stöðu en hún áréttar að undirbún-
ingurinn sé á frumstigi.
Frumbyggjar koma með list sína
Sýningin „Skrælingjarnir koma“ sett upp í Listasafni Íslands 2013
Hæstiréttur
staðfesti í gær
gæsluvarðhalds-
úrskurð yfir
manni sem var
stöðvaður með
187 grömm af
kókaíni við kom-
una hingað til
lands hinn 6.
apríl sl. Er
manninum gert
að sæta gæslu-
varðhaldi til föstudags.
Tollgæslan í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar stöðvaði síðdegis hinn 6.
apríl manninn, sem var að koma
frá London, vegna gruns um að
hann hefði fíkniefni falin í fórum
sínum. Við skoðun í farangri hans
fannst sjampóbrúsi sem innihélt
kókaín. Þá var annar maður einn-
ig tekinn til skoðunar en í ljós kom
að hann hafði ekki fíkniefni í fór-
um sínum. Hins vegar fundust
gögn sem tengdu hann við hinn
manninn.
Lögreglan telur sig hafa rök-
studdan grun um að mennirnir
hafi staðið saman að innflutn-
ingnum á kókaíninu og leiddi
rannsókn í ljós sterkar vísbend-
ingar um að fleiri aðilar hefðu
verið viðriðnir innflutninginn.
Lögreglan telur sig hafa sterkar
vísbendingar um það hverja sé um
að ræða og vinnur nú að því að
hafa uppi á þeim.
Gæsluvarðhald
staðfest yfir
kókaínsmyglara
Löggæsla Maður
faldi kókaín í
sjampóbrúsa.
Fiskistofa hefur aukið eftirlit
undanfarið með grásleppubátum
á vestursvæði, þ.e. við Breiða-
fjörð og á Vestfjörðum, vegna
gruns um meðafla. Hrefna Gísla-
dóttir, forstöðumaður
Fiskveiðistjórnunarsviðs Fiski-
stofu, segir að í ákveðnum til-
vikum hafi meðafli nokkurra báta
aukist verulega eftir að eftir-
litsmenn Fiskistofu fóru að fara í
róðra með þeim.
Í byrjun mánaðarins fóru eft-
irlitsmenn Fiskistofu, í samstarfi
við Landhelgisgæsluna, um borð í
nokkra grásleppubáta úti fyrir
Norðurlandi eftir að skoðun á
gögnum og veiðarfærum á veiði-
slóð gaf vísbendingar um að neta-
fjöldi væri umfram leyfilegan
fjölda. Talning eftirlitsmanna
Fiskistofu leiddi í ljós að fjöldi
neta í sjó var langt umfram það
sem heimilt er. aij@mbl.is
Meðafli jókst
með eftirlitinu
Veiðar Eftirlit hefur verið aukið með bát-
um á grásleppuveiðum.