Morgunblaðið - 17.04.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing & Útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012
OPNUNARTÍMI EFNALAUG
MÁN - FÖS: 8-18 • LAU: 11-13
OPNUNARTÍMI FATALEIGA
MÁN - FÖS: 13-17 • LAU: LOKAÐ
EFNALAUG OG FATALEIGA GARÐABÆJAR | GARÐATORGI 3 | GARÐABÆ | SÍMI 565 6680 | FATALEIGA.IS
Hröð og vönduð þjónusta.
Fjölskyldufyrirtæki til 27 ára.
Persónuleg þjónusta og hagstætt verð.
ALHLIÐA HREINSUN,
DÚKAÞVOTTUR OG
HEIMILISÞVOTTUR
Minnum á
fermingarfötin
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Æ
vintýrakonan og
útivistarfröm-
uðurinn Annelie
Pompe var stödd
hér á landi á dög-
unum og naut þess að stunda útivist
í íslenskri náttúru. Annelie klífur
fjöll, hjólar og kafar en hélt sig í
þessari stuttu heimsókn við fjall-
göngur. Annelie, sem er rétt rúm-
lega þrítug, varð fyrst sænskra
kvenna til að klífa norðurhlíðar Eve-
rest í maí á síðasta ári og segir það
sitt helsta afrek til þessa. En einnig
hefur hún hlotið verðlaun í fitness
og keppt bæði í hlaupum og hjól-
reiðum utan vega.
Kafað með hvölum
Annelie er á leið heim eftir við-
burðaríkan dag þegar blaðamaður
nær tali af henni. Hún hafði þá með-
al annars verið í Þórsmörk og var
ánægð að sjá þar snjó þar sem lítill
vetur hafi verið í Svíþjóð.
„Náttúran hér er allt öðruvísi
en annað sem ég hef séð á ferðum
mínum. Ég hef ferðast mikið og það
er skrýtið að ég hafi ekki komið
hingað áður. Ég næ að vera hér í
tvo daga að þessu sinni svo þetta er
stutt ferð en mig hefur alltaf langað
til að kafa með hvölum og ætla að gá
hvort það væri mögulegt í sumar.
Hér eru miklir möguleikar í útvist-
inni,“ segir Annelie. Hún segist allt-
af hafa verið hrifin af náttúrunni og
hreyfingu utandyra. Þetta hafi hald-
ist í hendur og útivistaráhuginn
þróast í samræmi við það.
Það sem af er þessu ári hefur
Annelie verið á faraldsfæti og meðal
Að sigrast á sjálfum
sér í náttúrunni
Annelie Pompe var fyrst sænskra kvenna til að klífa norðurhlíðar Everest. Hún
var stödd hérlendis fyrir skömmu til að kanna aðstæður í íslenskri náttúru og
naut þess að ganga í snjó í Þórsmörk. Auk þess að ganga á fjöll kafar hún einnig,
hjólar og hleypur. Hún segir Everest hafa reynt mest á líkamann en köfunin reyni
meira á hugann. Framundan hjá Annelie er að klífa hæsta tind N-Ameríku.
Ljósmyndir/Hilmar Már Aðalsteinsson
Við Seljalandsfoss Annelie var vel búin í fatnaði frá 66°Norður.
Það er vor í lofti. Fyrir fjölda fólks
þýðir það að fótboltavertíðin sé að
hefjast. Ungir sem aldnir fá fiðring í
magann og kláðann í tærnar. Því
huga margir að fótboltaiðkun. Fyrir
þá sem vilja taka þessa iðkun af al-
vöru eru fjölmargar netsíður sem
bjóða upp á hinar ýmsu tegundir æf-
inga til þess að bæta knattrak, send-
ingagetu, skottækni og allt annað
sem viðkemur knattspynu. Á vefsíð-
unni www.professionalsoccercoach-
ing.com má finna æfingar fyrir knatt-
spyrnuáhugamenn. Tilvalið er fyrir
þjálfara og þá einstaklinga sem vilja
bæta sig í íþróttinni að sækja sér
upplýsingar á vefsíðuna. Þar má
finna aragrúa æfinga sem henta bæði
liðum og einstaklingum. Finna má
fjölmargar fleiri síður um þetta efni,
bæði fyrir ólíka aldurshópa og mis-
jöfn getustig. Æfingin skapar meist-
arann.
Vefsíðan www.professionalsoccercoaching.com
Morgunblaðið/Ómar
Æfingin skapar meistarann Finna má fjölmargar knattspyrnuæfingar á net-
síðunni professionalsoccercoaching.com.
Æfingin skapar meistarann
Á sumardaginn fyrsta, 19. apríl,
verður Víðavangshlaup ÍR þreytt í
97. sinn. Það var fyrst haldið árið
1916 að enskri fyrirmynd og mun
vera sá íþróttaviðburður hér á
landi sem á lengsta samfellda
sögu. Að þessu sinni verður um
fjórfalda keppni að ræða og verða
veitt verðlaun fyrir hvert þeirra
sérstaklega.
Hefst keppni klukkan 12 við Ráð-
hús Reykjavíkur. Hlaupið verður á
götum, stígum og gangstéttum
umhverfis Tjörnina en nánari upp-
lýsingar um keppnina má nálgast á
vefsíðunni www.hlaup.is.
Endilega …
… fagnið sumri
með hlaupi
Morgunblaðið/Ómar
Sprettur Frá hlaupinu árið 2009.
Heiðmerkurtvíþraut Ægis þríþrautar
fór fram í blíðskaparveðri um helgina
og hafa þátttakendur aldrei verið
fleiri en alls mættu 38 til leiks. Kepp-
endur hlupu alls 8 km leið á skóg-
arstígum og hjóluðu 15 km á mal-
arvegi. Sigurvegari í karlaflokki var
Hákon Hrafn Sigurðsson 3SH á tím-
anum 58:06 sem er nýtt brautarmet.
Í kvennaflokki sigraði Birna Björns-
dóttir 3SH en hún lauk keppninni á
tímanum 1:04:35. Ægir þríþraut hef-
ur um árabil staðið fyrir Heiðmerk-
urtvíþraut bæði á vorin og haustin.
Áhugi á íþróttinni hefur aukist mikið
síðustu ár og sérstaklega fer hlutur
kvenna sífellt vaxandi sem ef til vill
má tengja frábærum árangri Karenar
Axelsdóttur þríþrautarkonu á alþjóð-
legum vettvangi. Úrslit: Konur 1. Birna
Björnsdóttir, 1:04:35, félag 3SH, 2.
Alma María Rögnvaldsdóttir 1:09:22,
félag Ægir þríþraut, 3. Margrét Páls-
dóttir 1:18:51, félag Ægir þríþraut.
Karlar 1. Hákon Hrafn Sigurðsson á
58:06, félag 3SH 2. David Robertson á
1:00:45, félag Tindur 3. Benedikt
Jónsson á 1:01:43, félag HFR.
Heiðmerkurtvíþraut Ægis þríþrautar
Metþátttaka keppenda sem
syntu og hjóluðu í góðu veðri
Ljósmynd/Guðmundur Guðnason
Af stað Þátttakendur hefja hlaup í tvíþraut Ægis þríþrautar.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.