Morgunblaðið - 17.04.2012, Síða 11

Morgunblaðið - 17.04.2012, Síða 11
Afrek Annelie var fyrst sænskra kvenna til að klífa norðurhlíðar Everest. Það gerði hún í maí á síðasta ári. annars farið tvisvar sinnum sem leiðsögumaður með hóp fólks á hæsta tind Afríku, Kilimanjaro í Tansaníu. „Kilimanjaro er gott fjall og skemmtilegt að klífa. Landslagið er mjög fjölbreytt en maður hefur gönguna í regnskógi og endar viku síðar í norðurskautsloftslagi, svo það er mjög athyglisvert. En í slíka ferð förum við í mesta lagi með 15 manns í einu. Nú er fólk líka farið að inna mig eftir því að gera eitt- hvað hér á Íslandi svo ég ákvað að koma við og skoða aðstæður,“ segir Annelie en auk þess að sinna leið- sögustarfi heldur hún einnig fyr- irlestra víða um heim. Annelie segir að það erfiðasta sem hún hafi gert hingað til hafi verið að klífa Everest. Það sé mjög erfitt fyrir líkamann og taki langan tíma og því sé mikill undirbúningur nauðsynlegur. Andlega þyki henni hins vegar köfun erfiðari. „Mér finnst gaman að fara bæði upp og niður,“ segir Annelie. Tími til að hugsa í náttúrunni „Þetta snýst ekki eingöngu um að ganga heldur líka að sigrast á sjálfum sér. Í mínu tilfelli verður slíkt ætíð tengt við útivist og náttúr- una en þetta getur átt við ýmislegt sem maður gerir í lífinu. Það lætur manni líða vel þegar maður nær takmörkum sínum sama hvað mað- ur er að gera. Þannig lærir maður að þekkja sjálfan sig. Ég vil líka hvetja fólk til að vera úti í nátt- úrunni því jafnvel þó hún virðist náttúrulegur hluti af lífi okkar þá er hún það í raun ekki svo mikið leng- ur í vestrænum löndum. Margir halda sig bara innan dyra en maður verður svo rólegur úti í náttúrunni og nær að hugsa. Sjálf ólst ég upp í borg en var heppin að vera í grennd við skóg þangað sem ég sótti mikið,“ segir Annelie. Framundan hjá Annelie er að klífa hæsta tind N- Ameríku í maí og þar verður helsta áskorunin að takast á við kuld- ann.En tindurinn, sem er 6194 metrar, er nærri því á sömu breidd- argráðu og Ísland og getur kuldinn farið niður í -45°. „Þetta verður athyglisvert og ég ætla að kaupa mér íslenska lopapeysu fyrir þessa ferð,“ segir Annelie. Ánægð Annelie á Heljarkambi með Ola Gräsberg og Jóni Gauta Jónssyni. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 Maraþon eru haldin víða um heim og margir hér á Íslandi hafa haldið utan og látið reyna á nýjar hlaupaslóðir. Nú um helgina voru haldin maraþon víða um Evrópu líkt og sjá má á myndunum hér til hliðar. Í slíkt þarf kraft og þol, æfingar og þor. Maraþonið í Rot- terdam er það stærsta sem hald- ið er í Hollandi og Parísarmara- þonið er líka fjölsótt og er hlaupið víða um borgina. Varla eru hlaupagarpar þó mikið að kíkja á Eiffelturninn og aðra merka staði enda að mörgu öðru að hyggja. Maraþon víða um heim AFP Á loft Svo virðist sem þessir hlauparar í Rotterdam-maraþoninu svífi. Mannhaf Maraþonið haldið í Vín. Sprett úr spori Undirgöng Hlauparar í París. Grillhúsið Sprengisandi og Tryggvagötu - Sími 527 5000 - grillhusid.is Alvöru helgar-brunch Nú er kominn tími á alvöru helgar-brunch: Steikt beikon, spælt egg, steiktar pylsur, pönnu- kökur með sírópi, grillaður tómatur, kartöfluten- ingar, ristað brauð, ostur, marmelaði, sneiðar af ferskum ávöxtum, ávaxtasafi og te eða kaffi. Ótrúlega gómsæt byrjun á góðum degi. Verð kr. 1.590 pr. mann. 50% afsláttur fyrir börn undir 12 ára. Alla laugardaga og sunnudaga frá kl. 11:00 til 14:30. Grillandi gott! HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9-18, LAUGARDAGA: 11-14 , MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM SJÓNMÆLINGAR– LINSUMÁTANIR TRAU ST OG G ÓÐ ÞJÓN USTA Í YFIR 15 ÁR T I L B O Ð GLERAUGU FRÁ 19.900,-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.