Morgunblaðið - 17.04.2012, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 17.04.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Skvass » Spinning » Karfa » Golfhermir » Tækjasalur » Gufubað Opnir tímar: Cross bells þriðjudaga og fimmtudaga, kl 12.00 og 17.15 laugardaga, kl. 10.00 Styrkir alla vöðva líkamans. Spinning mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, kl 12.00 og 17.15 Mikill hraði og brennsla. Komdu með í gott form! „Þetta er allt að gerast í dag [mánudag], þessi far- átt sem þeir eru búnir að vera að bíða eftir. Það eiga eftir að hellast inn fuglar í tonnavís. Það verður mikið fjör í dag,“ segir Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar og fugla- ljósmyndari, um komu far- fugla til landsins. Hvöss austanátt var á sunnanverðu landinu í gær sem hentar vel farfugl- unum, sem langflestir koma annaðhvort beint frá Bretlandseyjum eða hafa viðkomu þar á leið sinni til Íslands. „Þetta fer alfarið eftir veðri. Það kom gusa í kringum 25. mars þegar það kom mjög stíf austanátt. Það hefur komið mikið af stærri fuglum eins og gæs og tjaldi en minni fuglar hafa lítið sem ekkert komið ennþá,“ segir hann. Þannig hafi mikið af gæs komið til landsins nú um helgina en ennþá hafi varla sést til þúfutittlings og lítið sé komið af hrossagauk. Stærri fuglar sem geti sest á sjó hafi lagt í hann þrátt fyrir veður en minni tegundirnar sem þurfi að fljúga hingað í einum rykk hafi ekki lagt í það ennþá. Í gær hafi þeir smávaxnari hins vegar verið væntanlegir með hagstæðri vindáttinni. Jóhann Óli segist hafa heyrt af því að þegar hafi sést til lunda í Vest- mannaeyjum og víðar. Fyrsti fuglinn hafi sést 22. mars og það sé met. „Það er vonandi að þetta boði gott fyrir þessa blessuðu fugla sem hafa ekki komið upp ungum í fleiri ár eins og lundann á Suðurlandi og kríuna. Maður heldur alltaf í vonina að sjórinn lifni við,“ segir hann. kjartan@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Farfugl Fyrsta heiðlóan þetta vorið sást hinn 19. mars í Hvalfjarðarsveit og er það nokkru fyrr en vanalega. Þessi mynd er þó úr safni. Morgunblaðið/Eggert Eyjar Lundinn hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin ár vegna fæðuskorts. Morgunblaðið/Ómar Met Heiða- og blesgæsir slógu met í vor en þær sáust degi fyrr en fyrra met. Farfuglarnir að hellast yfir landið  Lundinn fyrr á ferðinni þetta vorið Ókomin Enn hefur ekki sést til kríu en hún kemur yfirleitt í kringum 22. apríl. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Samtals hafa 19.621 fyrirtæki og 325.003 einstaklingar verið skráð hjá lögreglu í málaskrá lögreglu. Engin ákvæði eru í lögum um eyðingu upp- lýsinga í gagnagrunnum lögreglu. Þetta kemur fram í svari innanrík- isráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur um málaskrá lögreglu. Ríkislögreglustjóri annast kerfis- bundna skráningu upplýsinga um lögreglumálefni. Fyrstu tölvuskráðu gögnin eru frá árinu 1988 en öll lög- regluembættin höfðu fyrst tengst miðlægum gagnagrunnum lögreglu í upphafi ársins 1998. Rúmlega 19 þúsund fyrirtæki Árlega eru skráð um 200.000 mál í lögreglukerfið vegna kærðra brota og annarra verkefna lögreglunnar og í málunum eru skráðar upplýs- ingar um þá einstaklinga og fyrir- tæki sem tengjast brotum og verk- efnum lögreglunnar. Samtals hafa 19.621 fyrirtæki og 325.003 einstak- lingar verið skráð hjá lögreglu. Af þeim eru 38.275 erlendir ríkisborg- arar og 19.754 látnir. Ástæða skrán- ingar getur verið af margvíslegum toga, sem vitni, tilkynnendur, far- þegar í umferðaróhappi, tjónþolar, kærendur, kærðir o.s.frv. Engin ákvæði eru um eyðingu upplýsinga í gagnagrunnum lög- reglu, en mjög öflugar aðgangsstýr- ingar eru að gögnum í lögreglukerf- inu og almennur aðgangur lögreglumanna og annarra starfs- manna lögreglu miðast aðeins við að sjá skráð gögn síðustu fimm ára. 325 þúsund nöfn í málaskrá lögreglunnar  Fyrstu tölvu- skráðu gögnin frá árinu 1988 Morgunblaðið/Kristinn Um tugur íslenskra skipa var við kolmunnaveiðar suður af Fær- eyjum í gær. Aflabrögð hafa verið ágæt á þessum slóðum, að sögn Gylfa Guðmundssonar, skipstjóra á Hugin VE. Á þessum slóðum voru einnig mörg rússnesk skip og nokkur færeysk. Kolmunninn er frystur um borð í Hugin, um 100 tonn á sólarhring. Eftir gott veður á þessum slóðum undanfarið var spáð brælu í gær- kvöldi. Hugin landar afurðum úr þessum öðrum túr vertíðarinnar í Fuglafirði á miðvikudag, en um 120 sjómílur eru af miðunum og þang- að. Til Vestmannaeyja eru hins vegar um 430 sjómílur. Aukinn kvóti Samkvæmt samkomulagi strand- ríkja um kolmunnaveiðar má heild- arafli ársins vera 391 þúsund tonn. Er það talsvert meira en í fyrra þegar heildaraflinn var ákveðinn 40.100 tonn. Íslenskum skipum er heimilt að veiða 63.477 tonn á þessu ári. Góður kol- munnaafli suður af Færeyjum Kolmunnaflotinn Skipin eru við veiðar á þessum slóðum Færeyjar Skotland Orkneyjar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.