Morgunblaðið - 17.04.2012, Síða 14

Morgunblaðið - 17.04.2012, Síða 14
SVIÐSLJÓS Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Frumvarp sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að muni veita lögreglu styrkari heimild til að hefja rannsóknir þegar fyrir liggur grunur eða vitneskja um að verið sé að undirbúa afbrot hefur fengið óblíðar móttökur hjá þeim sem síst skyldi; nefnilega lögreglunni sjálfri og ákærendum. Í umsögn lögreglustjórans á höf- uðborgarsvæðinu segir að ákvæðið sem Ögmundur vill lögfesta „sé með öllu óþarft“ og Ákærendafélag Ís- lands leggst eindregið gegn því að frumvarpið verði óbreytt að lögum og bendir á að það geti beinlínis ver- ið til óþurftar. Lögreglustjórinn á höfuðborgar- svæðinu og ríkislögreglustjóri eru meðal þeirra sem hafa lengi sagt að lögregla hér á landi þurfi að fá heim- ildir til forvirkra rannsókna, sam- bærilegar þeim sem löggæsluyfir- völd í nágrannalöndum okkar, m.a. Danmörku, Noregi og Svíþjóð, búa yfir. Því hefur Ögmundur hafnað af- dráttarlaust. „Ég vil ekki ganga eins langt og aðrar Norðurlandaþjóðir hafa gert í þessum efnum,“ sagði hann m.a. á Alþingi um miðjan mars þegar fyrrnefnt frumvarp hans var til umræðu. Hefur heimildirnar nú þegar Í frumvarpi Ögmundar er lagt til að ný grein, 52. grein a, bætist við lög um meðferð sakamála. Í fyrstu málsgrein hennar, verði frumvarpið samþykkt, er lögreglu veitt heimild til að hefja rannsókn út af vitneskju eða grun um að verið sé að leggja á ráðin um brot sem séu hluti af skipu- lagðri glæpastarfsemi. Í umsögn lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu um frumvarpið, sem birt var í gær, kem- ur fram að það sé mat embættisins að þetta ákvæði „sé með öllu óþarft í ljósi þess að lögregla hefur þegar í dag samkvæmt lögum um meðferð sakamála heimild til þess að hefja lögreglurannsókn við þær aðstæður sem lýst er í frumvarpinu“. Lögreglustjórinn gerir athuga- semdir við fleiri ákvæði frumvarps- ins en segir jafnframt brýnt að veita lögreglu heimild til forvirkra rann- sókna. . Gæti þrengt að lögreglu Í umsögn Ákærendafélagsins koma efnislega fram sömu athuga- semdir og hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Gagnrýnin er þó ítarlegri og beinskeyttari. Félagið leggst eindregið gegn því að frumvarp innanríkisráðherra verði samþykkt óbreytt þar sem færa megi fyrir því rök, með gagn- ályktun frá 1. grein frumvarpsins (52. gr. a.) að lögreglu sé óheimilt að hefja rannsókn á meintu tilrauna- broti, ef ekki sé um að ræða meint brot eða tilraun gegn ákvæðum laga um bann við skipulagðri glæpastarf- semi. Með því væri t.d. unnt að færa rök fyrir því að lögreglu væri óheim- ilt að hefja rannsókn á meintri til- raun til stórfellds fíkniefnabrots eða manndráps, ef þessi brot væru ekki liður í skipulagðri glæpastarfsemi. Félagið ítrekar jafnframt þá skoð- un að hefja þurfi undirbúning á lög- gjöf um forvirkar rannsóknarheim- ildir lögreglu. Ákærendafélagið vill ganga mun lengra en ráðherrann en félagið hef- ur áður lagt til að lögregla hér fái sömu heimildir og lögregla í öðrum Norðurlöndum. Í umsögninni segir: „Á grundvelli forvirkra rannsóknar- heimilda, sem mælt verði fyrir um í lögum um meðferð sakamála eða sérlögum, verði unnt að framkvæma rannsókn áður en brot er framið og þá með það að meginmarkmiði að koma í veg fyrir brot. Forvirkar rannsóknarheimildir þurfa að ná til hvers kyns atferlis sem talið er ógna almenningi, öryggi ríkisins og sjálf- stæði þess. Slíkar heimildir þurfa að taka til einstaklings eða hóps manna sem talinn er eða taldir eru ógna ör- yggi ríkisins eða einstaklinga, svo sem öfgahópa eða einstaklinga sem telja má hættulega vegna sérstaks hugarástands.“ Í umsögninni segir að ljóst megi vera að skilgreining á skipulögðum glæpasamtökum, eins og hún birtist í almennum hegning- arlögum, sé ófullnægjandi útgangs- punktur í þessu tilfelli. Gætt verði að mannréttindum Í umsögninni er einnig lögð áhersla á að gæta verði vel að grund- vallarreglum um mannréttindi og að lögreglu verði ekki veitt óhóflegt svigrúm í þessum efnum. Jafnframt verði virkt eftirlit með beitingu slíkra heimilda og þær verði að jafnaði háðar samþykki dómstóla fyrirfram. Vel komi til greina að slíkar rannsóknarheimildir verði háðar sérstöku eftirliti ráð- herra og/eða Alþingis eða stofnana á vegum þess. Veita verði næga fjár- muni til þeirra stofn- ana er málið varði, þeirra á meðal eftir- litsstofnana. Lögregla segir að tillaga ráðherra sé með öllu óþörf  Heimildir þurfa að ná til öfgahópa og þeirra einstaklinga sem telja má hættulega Morgunblaðið/Golli Hells Angels Í umsögn Ákærendafélagsins um frumvarp innanríkisráðherra segir að skilgreining á skipulögðum glæpasamtökum, eins og hún birtist í almennum hegningarlögum, sé ófullnægjandi útgangspunktur í þessu tilfelli. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 Smiðshöfði 1, 110 Reykjavík, sími 587 9700, propack.is, propack@propack.is Sérhæfum okkur í pökkun og frágangi á búslóðum til flutnings milli landa, landshluta eða innanbæjar Við pökkum búslóðinni, önnumst farmbréf, tollafgreiðslu og sjáum um flutning á áfangastað. Flytjum fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Sjáum einnig um að pakka upp búslóðinni á nýju heimili og koma öllu fyrir eins og óskað er. Ef heimilið er ekki tilbúið bjóðum við geymslu búslóða, í nýlegu og glæsilegu húsnæði, með fullkomnu öryggis- og brunavarnakerfi. Stofnað árið 1981 Fjallað verður um sjávarútvegs- frumvörpin og sjávarútvegsmálin á almennum fundi á Hótel Ísafirði þriðjudaginn 17. apríl kl. 20:00. Frummælendur og umræðu- efni: Einar K. Guðfinnsson al- þingismaður: Vegið í sama kné- runn. – Halldór Halldórsson, for- maður Sambands íslenskra sveitarfélaga: Hagsmunir hverra? Áhrif sjávarútvegsfrumvarpanna á sjávarbyggðir. – Shiran Þóris- son, framkvæmdastjóri At- vinnuþróunarfélags Vestfjarða: Hagræn áhrif áætlaðs sérstaks veiðigjalds á vestfirskan sjávar- útveg. Áhrif frumvarpa rædd á Ísafirði Rafmagnsverkfræðingadeild Verk- fræðingafélags Íslands stendur fyrir málþingi um háspennulínur og jarðstrengi miðvikudaginn 18. apríl klukkan 13:00 á Grand Hótel Reykjavík. Margt hefur ver- ið ritað og rætt um lagningu strengja í stað háspennulína og er þetta málþing sett á laggirnar til að nálgast viðfangsefnið frá ýmsum hliðum segir í tilkynningu frá fundarboð- endum. Lagt er upp með að um- ræðan sé óhlutdræg og eins opin og best verður á kosið. Nú nýlega samþykkti Alþingi þingsályktun- artillögu þar sem iðnaðarráðu- neyti, í samstarfi við umhverf- isráðuneyti, er falið að skipa nefnd sem móta skal stefnu um lagningu raflína í jörð og þau sjónarmið sem taka beri mið af hverju sinni við ákvarðanir þar um. Pétur Örn Magnússon formaður RVFÍ setur málþingið og mál- þingsstjóri er Eymundur Sigurðs- son, rafmagnsverkfræðingur hjá VJI. Erindi flytja: Unnur Stella Guð- mundsdóttir, strengjafræðingur, Jón Bergmundsson, Nils Gúst- avsson og Guðmundur Ingi Guð- brandson. Málþing um strengi og háspennulínur Félag viðskiptafræðinga og hag- fræðinga stendur fyrir hádegis- verðarfundi um fiskveiðistjórn- unarfrumvörpinn 18. apríl kl. 12-13.30 á Grand Hótel Reykjavík. Ræðumenn fundarins verða Ást- hildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, Guðrún Lárus- dóttir, framkvæmdastjóri Stál- skipa ehf., Illugi Gunnarsson alþingismaður og Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar. Björgvin Guð- mundsson, ritstjóri Viðskiptablaðs- ins, stýrir fundi og fyrirspurnum úr sal. Fundurinn er öllum opinn. Skráning fer fram á vef félagsins, www.fvh.is. Ræða frumvörp STUTT Í skriflegu svari frá Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra segist hann m.a. vera ósammála lagatúlkun lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu og Ákærenda- félags Íslands, enda telji hann að frumvarpið sem er til umræðu skjóti styrkari stoðum undir rannsóknarheimildir lögreglu þegar kemur að skipulagðri glæpastarfsemi. Síðar í svarinu segir Ögmund- ur: „Ég sé hins vegar á umsögn- unum sem hér er vísað til, eink- um frá Ákærendafélaginu, að þar stendur vilji til allt annars konar og mun umfangsmeiri rannsókn- arheimilda sem nái til miklu fleiri þátta en skipulagðrar glæpa- starfsemi. Þannig segir í umsögn Ákærendafélagsins að lög eigi að veita heimild til að safna upp- lýsingum um einstaklinga eða lögaðila þótt ekki liggi fyri rök- studdur grunur um brot eða til- raun til brots. Nánari útlistun er að heimildirnar þurfi að taka til „einstaklings eða hóps manna sem talinn er eða taldir eru ógna öryggi ríkisins eða einstaklinga, svo sem öfgahópa eða ein- staklinga sem telja má hættu- lega vegna sérstaks hugar- ástands“. Ég gerði mér alltaf grein fyrir því að margir vildu ganga miklu lengra en ég þegar kæmi að rannsóknarheimildum lögreglu, en ég hafði ekki hugmyndaflug í að sjá fyrir að Ákærendafélag Ís- lands myndi fara fram með til- lögur um heimildir sem fara langt fram úr öllum mann- réttindaviðmiðum. Ég hef varað við því að nota ógnina sem skipu- lögð glæpastarfsemi er til þess að réttlæta víðtækar, forvirkar rannsókn- arheimildir. Við þá afstöðu held ég mig,“ segir í svari Ögmundar. Ógn verði ekki réttlæting EYKUR HEIMILDIR Ögmundur Jónasson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.