Morgunblaðið - 17.04.2012, Síða 17

Morgunblaðið - 17.04.2012, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 OPIN DAGSKRÁ KL. 14-16 • Ávarp: Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins • Ávarp: Christoffer Taxell, forystumaður í finnsku atvinnulífi og fyrrverandi menntamálaráðherra Finnlands UPPFÆRUM STRAX • Sjöfn Sigurgísladóttir, einn stofnenda Íslenskrar Matorku • Edda Lilja Sveinsdóttir, sviðsstjóri verkfræðisviðs Actavis • Marín Magnúsdóttir, eigandi Practical • Kjartan Ragnarsson, forstöðumaður Landnámsseturs Íslands Netagerð og spjall • Vetur kvaddur og sumri fagnað. Létt uppfærð nútímatónlist. SKRÁNING Á WWW.SA.IS WWW.UPPFAERUMISLAND.IS Sjöfn Sigurgísladóttir Edda Lilja Sveinsdóttir Kjartan Ragnarsson Vilmundur Jósefsson Christoffer TaxellAri Edwald Marín Magnúsdóttir UPPFÆRUM ÍSLAND AÐALFUNDUR SAMTAKA ATVINNULÍFSINS 2012 MIÐVIKUDAGINN 18. APRÍL Á HILTON REYKJAVÍK NORDICA. Fundarstjóri er Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik bar við nauðvörn þegar réttarhöld hófust í máli hans í Ósló í gær og sagði að þess vegna ætti ekki að refsa honum. „Ég viðurkenni gerðirnar, en ekki sekt og tel þær lögmæta nauðvörn,“ sagði Breivik þegar hann var spurð- ur hvort hann væri sekur um morð á 77 manns í Ósló og Útey 22. júlí. Lítil svipbrigði sáust á andliti fjöldamorðingjans þegar saksóknari las ákæruna á hendur honum í rúma klukkustund og las meðal annars upp nöfn þeirra sem biðu bana í mannskæðustu árásum í nútímasögu Noregs. Alls lágu átta manns í valn- um eftir sprengjutilræði í miðborg Óslóar og 69 til viðbótar biðu bana í skotárásum í sumarbúðum ungliða- hreyfingar Verkamannaflokksins í Útey. 56 þeirra sem létu lífið voru undir tvítugu og yngsta fórnar- lambið var nýorðið 14 ára. Grétu í réttarsalnum Um 2.000 manns fylgdust með málflutningnum í gær, þeirra á með- al um 800 fjölmiðlamenn, þar af nær 500 frá öðrum löndum. Á meðal við- staddra voru einnig Norðmenn sem lifðu af árásirnar eða misstu ætt- ingja í fjöldamorðunum. Margir þeirra viknuðu af geðshræringu og nokkrir grétu þegar nöfn fórnar- lambanna voru lesin upp. Margir tóku andköf þegar sak- sóknarar sýndu myndskeið úr eftir- litsmyndavél þar sem fólk sást ganga að bíl hlöðnum sprengiefni í miðborg Óslóar áður en sprengingin varð. Nokkrir gengu síðan út úr salnum þegar leikin var upptaka af símtali ungrar konu sem hringdi í ör- væntingu í neyðarlínuna frá Útey. Skothvellir heyrðust og konan varð vitni að því þegar ódæðismaðurinn myrti nokkra vini hennar. Saksóknararnir léku einnig upp- töku af samtali fjöldamorðingjans við lögreglu. „Ég hef lokið ætlunar- verki mínu og vil gefa mig fram,“ sagði hann. Áður en lögreglan gat handtekið hann myrti Breivik átta ungmenni til viðbótar. Fjöldamorðinginn hafði áður lýst því yfir að árásirnar hefðu verið „grimmileg en nauðsynleg“ aðgerð í nauðvörn gegn „landráðamönnum“ sem bæru ábyrgð á fjölmenningar- stefnu og „innrás múslíma“ í Evrópu. Breivik neitaði því að hann hefði verið atvinnulaus áður en hann framdi ódæðisverkin og kvaðst vera rithöfundur. „Ég viðurkenni ekki norska dómstólinn vegna þess að hann fékk vald sitt frá stjórnmála- flokkunum sem styðja fjölmenn- ingarstefnuna,“ sagði hann. Breivik dró einnig í efa hæfi eins dómaranna til að dæma í málinu vegna vináttu hans við systur Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs. Þótt lítil svipbrigði sæust á andliti fjöldamorðingjans þegar nöfn fórnarlamba hans voru lesin upp brosti hann þegar saksóknarinn sýndi myndir af heimasaumuðum búningum hans, að sögn fréttavefjar norska ríkisútvarpsins. Fjöldamorðinginn virtist síðan verða allur að eyrum þegar saksóknarinn nefndi svonefnda „musterisriddara“ sem Breivik seg- ist hafa gengið til liðs við fyrir nokkr- um árum. Musterisriddarar börðust með krossförum gegn herjum músl- íma á miðöldum en norskir saksókn- arar neita því að til sé hreyfing sem kenni sig við riddararegluna. Breivik bar við nauðvörn  Norski fjöldamorðinginn kvaðst ekki viðurkenna dómstólinn í Ósló  Lítil svipbrigði sáust á andliti hans þegar nöfn 77 fórnarlamba hans voru lesin upp  Tilfinningaþrungin réttarhöld hófust í gær Reuters Þegar handjárnin voru tekin af fjöldamorðingjanum rétti hann fram hægri höndina, með krepptan hnefa, og heilsaði að sið hægriöfgamanna, eftir að hann kom inn í réttarsalinn í gær. Hann var svipbrigðalaus þegar saksóknari las nöfn 77 manna sem ódæðismaðurinn varð að bana. Hann brast hins vegar í grát þegar sýnt var tólf mínútna áróðursmyndskeið sem hann hafði sett á netið. Þetta var í fyrsta skipti sem hann sýndi sterkar tilfinningar í réttarsalnum. Að sögn fréttamanna norska ríkisútvarpsins virtist ástæða grátsins vera sú að fjöldamorðinginn hefði verið svo djúpt snortinn af eigin myndskeiði. Fréttavef- ur Aftenposten hafði eftir norskum réttarsálfræðingi að þetta benti til þess að fjöldamorðinginn væri sérlega upptekinn af sjálfum sér. „Þegar nöfnin á þeim sem hann myrti voru lesin upp sáust engin svipbrigði á andliti hans. En hann brestur í grát um leið og myndskeið, sem hann bjó sjálfur til, er sýnt.“ AFP Sagður sérlega upptekinn af sjálfum sér Verjandi fjöldamorðingjans sagði í gær að hann kynni að óska eftir því að réttarhöldunum yrði frestað vegna þess að verjendurnir hefðu fengið nær 2.000 blaðsíður af nýjum málsskjölum á föstudaginn var. Verjandin, Geir Lippestad, sagði að eðlilegt væri að verjendurnir fengju nægan tíma til að lesa öll skjölin áður en réttarhöldin hæfust að nýju. Fréttavefur norska ríkisútvarpsins hafði eftir saksóknurum að þeir teldu ekki ástæðu til að fresta réttarhöldunum. Gert er ráð fyrir því að réttarhöldin standi í tíu vikur og dómur verði kveðinn upp um miðjan júlí. Anders Behring Breivik kemur fyrir réttinn í dag og á þá að bera vitni. Verjendur hans óskuðu eftir því að hann fengi að lesa upp skjal þar sem hann útskýrir hvers vegna hann framdi fjölda- morðin. Þeir sögðu að lesturinn myndi taka um það bil hálfa klukkustund. Réttarhöldunum frestað? BREIVIK VILL FÁ AÐ LESA UPP MÁLSVARNARSKJAL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.