Morgunblaðið - 17.04.2012, Side 18

Morgunblaðið - 17.04.2012, Side 18
SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Danski auðjöfurinn MærskMc-Kinney Møller lést ígærmorgun, 98 ára aðaldri. Íslandsvinur er orð sem mætti nota yfir Møller, hann var einn af þeim sem stuðluðu að uppbyggingu Norðurbryggju auk þess sem hann styrkti íslenska námsmenn í Kaupmannahöfn ár hvert. Hann kom eitt sinn hingað til lands, í september 2001, til að heim- sækja vinkonu sína frú Vigdísi Finn- bogadóttur. „Møller var afskaplega elskulegur og ljúfur maður, þægilegur og vin- samlegur í alla staði. Kona hans, frú Emma, var líka mjög elskuleg,“ seg- ir Vigdís um Møller og kveðst eiga eftir að sakna hans. Kynni þeirra hófust rétt fyrir aldamótin 2000 þegar Vigdís vann að uppbyggingu Norðurbryggju, sam- eiginlegs menningarseturs Íslend- inga, Færeyinga og Grænlendinga í Kaupmannahöfn. „Ég hitti hann fyrst þegar ég kom til Kaup- mannahafnar eftir að ég hætti sem forseti. Þá var mér boðið að koma á úthlutun úr sjóði Møller til styrktar íslenskum stúdentum. Ég fór þang- að og hann bauð mér inn á skrifstof- una sína. Þar fór svo vel á með okkur að við urðum ágætir mátar upp frá því. Þegar við vorum að endurreisa pakkhúsið í Kaupmannahöfn, Norð- urbryggju, veitti hann út á vináttu okkar mjög mikilvæga upphæð í endurreisn hússins,“ segir Vigdís. Styrktarsjóður Møller veitti 240 milljónir króna til Norðurbryggju og er Møller minnst fyrir það í húsinu. Skiptust alltaf á afmæliskveðju Møller kom til Íslands ásamt konu sinni 2001 og segir Vigdís hann hafa verið mjög hrifinn af landinu. „Við áttum þá skemmtilega og ógleym- anlega stund saman í sumarhúsinu mínu á Þingvöllum.“ Vigdís heyrði síðast frá honum í júlí á síðasta ári. „Við skiptumst allt- af á afmæliskortum, hann á afmæli í júlí og ég sendi honum afmæl- iskveðju eins og venjulega og hann sendi mér þakkarbréf til baka. Sennilega hef ég fengið jólakveðju frá honum líka. Við skiptumst alltaf á hátíðarkveðjum. Þetta var mjög elskuleg vinátta sem við áttum og hann var alltaf reiðubúinn að styðja við það sem ég var að vinna að.“ Lét reisa heilt óperuhús Árið 1970 fékk Møller ridd- arakross hinnar íslensku fálkaorðu. Með því sýndu íslensk stjórnvöld fjölskyldunni þakklæti sitt en árið 1936 stofnaði A.P. Møller, faðir Mærsk, sérstakan sjóð til styrktar Íslendingum í háskólanámi í Kaup- mannahöfn. 15-20 Íslendingar hafa fengið styrk úr sjóðnum árlega. Møller var þekktastur fyrir rekst- ur skipafélags síns sem hann rak í tæpa hálfa öld. Hann varð meðeig- andi í fjölskyldufyrirtækinu A.P. Møller árið 1940 og forstjóri þess og annarra fyrirtækja í samsteypunni A.P. Møller – Mærsk Gruppen frá 1965 til ársins 2003. Fram í andlátið var hann stjórnarformaður ýmissa fyrirtækja og stofnana. Møller var ötull við að veita fjár- magn í ýmiskonar menningar- starfsemi úr Mc-Kinney Møller sjóðnum. Stærsti minnisvarðinn um dugnað hans í þeim málum er óp- eruhús Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn sem var vígt í jan- úar 2005. Møller og kona hans gáfu dönsku þjóðinni nýja óperuhúsið til eignar í minningu föður Møllers, Arnold Peter Møller. Það var hann sem stofnaði skipafélagið Svendborg árið 1904 með föður sínum, afa Mærsk, undirstöðuna að auðsöfnun Møller-fjölskyldunnar. Íslandsvinurinn Møller fallinn frá AFP Gjafmildur Mynd tekin í apríl í fyrra af Mærsk Mc-Kinney Møller á fundi í fyrirtæki sínu, AP Moeller. Hann byggði m.a. óperuhúsið í Kaupmannahöfn. 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ekki er hægtað líta á um-sögn Ragn- ars Árnasonar, pró- fessors í fiskihag- fræði við Háskóla Íslands, um frum- varp sjávarútvegsráðherra um veiðigjald á annan hátt en sem falleinkunn. Í umsögninni segir Ragnar að það væri „óðs manns æði“ að ætla að skattleggja ís- lenska atvinnuvegi umfram það sem gengur og gerist erlendis og þetta eigi við um sjávarútveg ekki síður en aðra atvinnuvegi. „Fullyrðingar um að skatt- lagning á sjávarútveg hafi engin áhrif á starfsemi hans eða rekst- ur eru byggðar á sandi og eiga sér ekki stuðning í hagfræði,“ segir Ragnar eftir að hafa farið yfir þann misskilning sem skatt- lagningin í frumvarpinu byggist á. Því sé haldið fram í grein- argerð með frumvarpinu að ver- ið sé að skattleggja auðlinda- rentu í sjávarútvegi en því fari víðs fjarri. „Bæði er að höfundar frumvarpsins (og fylgiskjals) virðast hafa afskaplega tak- markaðan skilning á því hvað auðlindarenta er og raunar renta yfirleitt og mistúlka þau fræði í grundvallaratriðum og hitt að skattur sá sem gerð er tillaga um er alls ekki til þess fallinn að leggjast á auðlinda- rentu sérstaklega. Skatturinn er í rauninni einfaldlega fram- leiðslugjald (eða veltuskattur),“ seg- ir í umsögn prófess- orsins. Deilt hefur verið um hve hátt veiðigjaldið geti orðið en Ragnar segir auðvelt að ganga úr skugga um að það geti „hæglega verið hærra en hagnaður við- komandi fyrirtækis“. Og hann bendir á að skatthlutfallið sé „mjög hátt“. Auðlindagjaldið í frumvarpinu er tvískipt, al- mennt og sértækt, og það sér- tæka er samkvæmt útreikn- ingum Ragnars 76% af hagnaði. „Erfitt er að finna nokkra skatt- lagningu á fyrirtæki á Vest- urlöndum, hvort sem þau eru í auðlindavinnslu eða ekki, sem búa við skattheimtu sem er í ná- munda við þetta hlutfall af hagnaði,“ segir hann. Hér verður efni umsagnar Ragnars Árnasonar ekki rakið að fullu en óhætt að mæla með að menn kynni sér hana, ekki síst þingmenn. Í umsögninni er sýnt fram á hvílíkt stórslys það yrði, ekki aðeins fyrir sjávar- útveginn heldur þjóðarbúið í heild, ef frumvarpið yrði að lög- um. Margir hafa orðið til þess að fara fram á að frumvarpið verði afturkallað og endurskoðað frá grunni. Eftir lestur umsagn- arinnar þarf enginn að efast um réttmæti þeirrar kröfu. Prófessor í fiski- hagfræði fer hörð- um orðum um frum- varp um veiðigjald} Falleinkunn Í frétt Mbl.is fráþinginu í gær sagði: „Steingrímur J. Sigfússon, for- maður VG, kveðst þurfa að hryggja Ólöfu Nordal, vara- formann Sjálfstæðisflokksins, með því að láta ógert að krefj- ast þess að aðildarviðræðum við ESB verði slitið og að boðað skuli til kosninga á morgun.“ Og í fréttinni sagði einnig: „Lýsti Steingrímur þá því yf- ir að hann teldi enn að ljúka bæri aðildarviðræðunum við ESB en að flýta bæri sjávar- útvegs- og landbúnaðarkafl- anum.“ Og svo kom það hjá Steingrími J. Sigfússyni sem ef til vill var það athyglisverðasta: „Ég tel að það skipti mestu máli að við höfum þá það út úr þessum leiðangri … að við verðum þá einhverju nær … Verður þá Evrópusambandið aftur orðið gott bara eftir nokkra mánuði, ef það er sett á ís í nokkrar vikur, eða nokkra mánuði? … Ég tel að mestu máli skipti að fara ekki út af sporinu,“ sagði Steingrímur. Það er ekki endilega víst að það ætti að hryggja Ólöfu Nor- dal, varaformann Sjálfstæð- isflokksins, að Steingrímur lýsi því yfir að hann ætli einarður að halda áfram á sinni óláns- braut í ESB- málum. Sú „veg- ferð“ er að tína fylgið af VG jafnt og örugglega. Það getur út af fyrir sig ekki verið harms- efni fyrir forystumann í Sjálf- stæðisflokki. Augljóst er af öðrum orðum Steingríms að hann áttar sig á að makrílmálið og atlaga fram- kvæmdastjórnar ESB að Ís- landi fyrir dómstólum dregur enn úr áhuga á aðild og aðlögun að ESB og var þó hvort tveggja í lágmarki fyrir. En orð Stein- gríms í gær voru: „Verður þá Evrópusambandið aftur orðið gott bara eftir nokkra mánuði, ef það er sett á ís í nokkrar vik- ur, eða nokkra mánuði? … Ég tel að mestu máli skipti að fara ekki út af sporinu.“ Þetta eru óneitanlega athygl- isverð ummæli. Duttu þessi orð út úr formanni VG óviljandi? Var ESB virkilega gott að mati Steingríms J. fyrir makrílhót- anir og dómsstólaaðför þess að Íslandi? Það gengur þvert á allt sem þessi maður hefur sagt í meira en tvo áratugi. Er svo komið að Steingrímur J. hafi ekki aðeins svikið flokkinn sinn og kjósendur sína í þeirra stærsta máli? Sveik hann líka sjálfan sig? Orð Steingríms J. um ESB hefðu hljómað eðlilega úr samfylkingarmunni} Verður ESB gott aftur? Á ferðalagi um framandi slóð fyrir nokkrum árum var eftirtektarvert hvernig við ferðalangarnir vorum af fararstjóra leidd úr einum stað í annan; fyrst og fremst á áfanga- staði sem telja má viðurkennda viðkomustaði. Skoðaðar voru háreistar hallir, stjórnarbygg- ingar, náttúruundur, markaðir og kvölds og morgna tókum við skattinn á nafntoguðum veitingahúsum. Svona gekk þetta dag eftir dag – jú, og stundum var líka litið við á slóðum betl- ara og skransala sem gengu kappsamlega fram í lífsbaráttu sinni. Hágrátandi réttu þeir fram hönd sína og báðu um klink sem flestir gátu tínt upp úr buxnavösum sínum, vitandi að eymd þessa fólks er að hluta til vel æfð leiksýning. Auðvitað var þetta ljómandi fínt og áhuga- vert en þó var sá hængur á ferðalaginu öllu að okkur gáfust svo sáralítil tækifæri á að kynnast lífi og að- stæðum fólksins sjálfs. Baráttu þess fyrir brauðinu, heim- ilisvenjum, lífi og leikjum barna. Mér hefði þótt gaman að skoða rekstur og starfsemi almennra fyrirtækja, kynnast skólahaldi, koma inn á sjúkrahús og svo mætti áfram telja. Allt var þetta hins vegar utan alfaraleiða. Og það fannst mér miður. Ég hef alltaf haft áhuga á alþýðufólki, enda endurspeglast vel í lífi þess hver eru raunveruleg kjör og aðstæður þjóða. Háreistar hallir og sögufrægir staðir sýna okkur fátt og smátt. Svara spurningum um fólkið sjálft ekki nema að takmörkuðu leyti, sem gengisfellir skipu- lagðar hópferðir. Á Íslandi virðist mér þetta vera býsna svip- að og gerist í útlöndum. Þegar túristar koma til landsins þykir Bláa lónið sjálfsagður sem fyrsti viðkomustaður. Á Reykjavíkurrölti eru svo Hallgrímskirkja, sundlaugarnar og lopa- peysubúðir sjálfsagðir viðkomustaðir. Í morg- unsárið bruna rúturnar héðan úr bænum aust- ur fyrir fjall. Þá er gjarnan staldrað við á Þingvöllum, Laugarvatni, Gullfossi, Geysi, Skálholti og í Hveragerði. Lengi var apinn hjá Michelsen helsta aðdráttaráttarafl blómabæj- arins en er löngu dauður, en salíbuna í jarð- skjálftahermi hefur komið í staðinn. Og ann- arsstaðar á landinu er einnig viðkoma höfð á sögustöðum eða við fræg náttúruvætti sem þó segja ferðamönnum sáralítið um landið og menningu þess. Og hver er ástæða þessa? Get- ur verið að ferðaþjónustan sé öll í samofnu hagsmunabandalagi þar sem menn lifa af þjórfé hver af öðrum? Hvers vegna hugsa ferðaþjónar ekki út fyrir kass- ann og hið viðtekna? Í skrifuðum orðum situr pistlahöfundur við borð sitt í Hádegismóum og horfir út yfir Árbæjarhverfi. Væri ekki áhugavert fyrir erlenda ferðamenn að hafa þar viðkomu. kynnast heimili íslenskrar vísitölufjölskyldu í Hraun- bænum, sem verslar í Bónus og borðar soðna ýsu á mánu- dögum. Einnig mætti koma við í einhverjum hinna fjöl- mörgu atvinnufyrirtækja sem eru hér á Hálsunum. Í fjarlægu landi þætti mér gaman að kynnast einhverju slíku; hinu daglega spilverki þjóðfélagsins. sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson Pistill Fjölskyldan í Hraunbæ borðar ýsu STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Mærsk Møller giftist Emmu Neergaard Rasmussen árið 1940 en þau kynntust í skóla. Bæði voru þau fædd árið 1913 en hún var nokkrum dögum eldri en hann. Þau voru gift í 65 ár eða þar til Emma lést árið 2005. Mærsk og Emma eign- uðust þrjár dætur: Leise Mærsk Mc-Kinney Møller (1941), Kirs- ten Mærsk Mc-Kinney Olufsen (1944) og Ane Mærsk Mc- Kinney Uggla (1948). Barna- börnin urðu tíu og gengu tveir dóttursynir Møller, Robert Ma- ersk Uggla og Johan Pederson Uggla, til liðs við fyrirtækið 2004. Eignaðist þrjár dætur FJÖLSKYLDAN Við Esplanaden Møller-samsteypan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.