Morgunblaðið - 17.04.2012, Side 20

Morgunblaðið - 17.04.2012, Side 20
20 UMRÆÐAN Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 Fyrir rúmri öld sáu Íslendingar að nágrannaþjóðirnar voru komnar langt fram úr þeim í fiskveiðum. Þeir kenndu árinni um og keyptu vélar í skipin sín. Ég deili ekki við Tómas um það, að þægilegt er fyrir okkar ráða- menn að fella gengið þegar við er- um búnir að spila rassinn úr bux- unum. Þessu fylgir svo að sjálf- sögðu verðbólga vegna hækkunar á innflutningi, síðan þegar rætist úr er genginu haldið stöðugu, en laun hækka með tilheyrandi hækkun á innlendum vörum, svona hefur þessi hringavitleysa verið eins lengi og ég man. Gamalt máltæki um að græddur sé geymdur eyrir hefur breyst í glataður er geymdur eyrir. Þetta hefur grafið undan fjármálasiðferði þjóðarinnar og á að mínum dómi stóran þátt í hruninu. Að nota ís- lensku krónuna í opnu hagkerfi er ekki ósvipað því að sækja á djúp- mið á árabáti, en ef menn eru sáttir við að „draga marhnút í drenginn sinn“, getum við aftur hafið árina til vegs og virðingar og notað krón- una áfram. HARALDUR SVEINBJÖRNSSON, verkfræðingur. Krónunni kennir illur ræðari: Athugasemd við samnefnda grein Tómasar Inga Olrich Frá Haraldi Sveinbjörnssyni Haraldur Sveinbjörnsson Ég hélt satt að segja að toppi næring- arvitleysunnar hefði verið náð hér á landi á árinu 1999 þegar út var gefin bók sem nefnist „Rétt mat- aræði fyrir þinn blóð- flokk“. „Fræði“ þessi náðu miklum vinsæld- um og bókin seldist í þúsundum eintaka og reynslusögur fólks sem hafði náð undraverðum árangri í baráttunni við aukakílóin eða lækningu gagnvart hinum ýmsu lík- amskvillum bárust víða. Blóðflokka- kenningin byggir á þeirri staðhæf- ingu að 0-blóðflokkurinn hafi komið fyrstur fram á sjónarsviðið (um 50.000 árum fyrir Krist) og að þá hafi mannskepnan að upplagi verið „veiðimenn“ og þar sem „veiði- mennirnir“ höfðu fyrst og fremst nærst á kjöti og fiski ættu menn í O-blóðflokki að halda sér aðallega við slíka fæðu. Hins vegar átti fólk í A-blóðflokki að sneiða hjá slíkum mat en neyta jurtafæðis, en sam- kvæmt kenningunni á A-blóðflokk- urinn að hafa komið fram 15.000 ár- um fyrir Krist. Hve margir ætli muni eftir þessari blóðfokkaþvælu í dag eða reyni að borða í anda síns blóðflokks? Þeir eru eflaust ekki margir. Ástæða þess að minnst er á þessa skrítnu kenningu er sú að um þessar mundir nýtur töluverðra vin- sælda kenning þar sem einnig er leitað fanga aftur í gráa forneskju. Kenning sú sem um ræðir kallast „Steinaldarmataræði“ (Paleo diet) og verður nú nánar fjallað um út á hvað sú mataræðiskenning gengur. Saga Steinaldarmataræðiskenningin er ekki ný af nálinni og líkast til er hægt að eigna hana meltingarfæra- fræðingnum Walter L. Voegtlin sem árið 1975 gaf út bók sína „The Stone Age Diet“. Síðan þá hafa ýmsar „steinaldarnæringarbækur“ verið gefnar út og sú sem hefur náð hvað mestri útbreiðslu er vafalaust „The Paleo Diet: Lose Weight and Get Healthy by Eating the Foods You Were Designed to Eat“ eftir Dr. Loren Cordain. En þess má geta að sá sami gaf út steinald- armataræðisbók ætlaða íþróttafólki sem nefnist „The Paleo Diet for Athletes: A Nutritional Formula for Peak Athletic Performance“ og á það er bent vegna þess að margir sem hafa mælt með stein- aldarmataræðinu hér á landi tengjast íþrótt- um. Má – Má ekki Þeir sem fylgja eftir „mataræði steinaldarmannsins“ og eru for- feðrum sínum trúir leggja sér til munns magurt kjöt, fisk, egg, græn- meti, ávexti, ber, hnetur og fræ. Hins vegar mega þeir ekki neyta af- urða eins og kornmetis (svo sem hrísgrjóna, hveitis, maís og hafra), bauna, mjólkur- og mjólkurafurða, né verksmiðjuunninn mat af neinu tagi. Og að sjálfsögðu ættu „hellis- búar“ nútímans þar með að láta vera að leggja sér til munns fæðu- bótarefni í hvaða mynd sem er, eins og próteinblöndur sem flestar sam- anstanda af forboðnum mjólkur- próteinum svo ekki sé nú minnst á verksmiðjuunnin vítamín og stein- efni. Hér er minnst á fæðubótarefni vegna þess að þeir sem aðhyllast kenninguna um steinaldarmatar- æðið mæla oft með neyslu ýmiss- konar fæðubótarefna sem er vægast sagt fáránlegt enda stóð steinald- armönnum fortíðar aldrei slíkt „góðgæti“ til boða! Heilbrigði – Offita Tvær fullyrðingar heyrast oft þegar verið er að mæla með „stein- aldarmataræðinu“. Fyrri fullyrð- ingin snýst um aukið heilbrigði og sú seinni um það að rót offituvand- ans megi fyrst og síðast rekja til kolvetnaneyslu en ekki neyslu á fitu og próteinum. Þessar fullyrðingar eru vægast sagt hjákátlegar enda er ekkert sem hönd er á festandi sem segir að steinaldarmaðurinn hafi verið ímynd heilsu og heilbrigði eða óvenju langlífur eða að ein- staklingar sem neyta hlutfallslega meira af kolvetnum verði frekar feitir. Einn mælikvarði á velgengni dýrategundar felst í þeim „hæfi- leika“ að fjölga sér og þar hefur manninum heldur betur tekist vel til og þá sérstaklega síðustu 100 árin eða svo. Og í þessu tilliti er vert að hafa í huga að þeim samfélögum/ þjóðum, þar sem kolvetnaneysla hefur í sögulegu tilliti verið ríkuleg, hefur tekist einstaklega vel upp hvað þetta varðar, samanber tveim- urfjölmennustu þjóðum heims, Kína og Indlandi. Og þar fyrir utan að þrátt fyrir hlutfallslega háa kol- vetnaneyslu íbúa þessarra tveggja fjölmennustu ríkja heims er offita þar mjög fátíð ef miðað er við víða annars staðar þar sem hlutfall kol- vetna í fæði er lægra, svo sem í USA, Bretlandi og á Íslandi. Enda hljóta allir að gera sér grein fyrir því að fólk fitnar fyrst og fremst vegna ofneyslu hitaeininga og skipt- ir þá litlu hvort þær hitaeiningar sem umfram eru séu í formi kol- vetna, fitu, próteina eða alkóhóls! Að lokum Þó að „steinaldarmataræðiskenn- ingin“ haldi ekki vatni að þá er sá matur sem fylgjendur leggja sér til munns að sjálfsögðu hollur og góð- ur. Hins vegar þykir mér sem nær- ingarfræðingi bagalegt að margs konar hollmeti sé úthýst. Vitna hér að síðustu í http://health.us- news.com/best-diet/best-overall- diets þar sem 20 sérfræðingar mátu 25 tegundir mataræðiskúra svo sem Miðjarðarhafsmataræði, DASH- mataræði, hráfæðismataræði og Atkins-mataræði út frá þáttum eins og hve heilsusamlegt það væri, áhrif þess á þyngdartap og hve auðvelt væri að fylgja því eftir. Niður- staðan: Steinaldarmataræðið fékk verstu einkunn þeirra allra! Steinaldarmataræði Eftir Ólaf Gunnar Sæmundsson Ólafur Gunnar Sæmundsson » Ástæða þess að minnst er á þessa skrítnu kenningu er sú að um þessar mundir nýtur töluverðra vin- sælda kenning þar sem einnig er leitað fanga aftur í gráa forneskju. Höfundur er næringarfræðingur. Hvað erum við Íslendingar að kvarta, framtíðin hlýtur að vera með bjartara móti. Bjartasti dagur í langan tíma var fimmtudagurinn 12. apríl 2012. Mikil aukning á þorski og þyngri og um leið hagkvæmari. Það ætti að auka bjartsýni okkar mjög til lands og sjávar. Rætt um raflínur til annarra landa. Olíuleitarmál í brennidepli og jákvæðari en jafnvel bjartsýn- ustu þorðu að vona. Svo kom föstudagurinn 13. apr- íl, olíuverð lækkar á erlendum mörkuðum. Það hlýtur að gleðja alla, ekki síst olíufélögin sem verða nú örugglega jafnfljót að lækka verð á bensíni eins og þau eru oftast fljót að hækka verðið. Yfir hverju getum við Íslend- ingar kvartað, við finnum okkur ávallt eitthvert kvörtunarefni. En hvað með ef við hugsum til fólks í þriðja heiminum sem hefur ekki einu sinni vatn til að sinna sínum frumþörfum. Einnig vantar víða mat handa fólki til að metta svanga maga. Við sjáum börn sem eru að deyja úr hungri, á sama tíma höf- um við yfirdrifinn nógan mat, hús- næði og vatn. Yfir hverju erum við að kvarta? Það eru svo lítil atriði í raun, sem við kvörtum enda- laust yfir. Fjár- mál, jú vissulega eru það stór mál og sjálfsagt að refsa þeim er hafa gengið um fjárkistur lands- ins á liðnum ár- um á svik- samlegan hátt og af fullkomnu ábyrgðarleysi. Ekki var það hinn venjulegi launþegi sem sveik út úr bönkum stórfé til eigin nota. Nei, það voru hinir svokölluðu „hvítflibbar“, fólk sem virðist hafa keypt banka með því að fá lánað til þess í öðrum banka gegn engu veði, eða gerviveði. Ekki hefur al- menningur getað fengið svona lán? Við skulum hugsa á jákvæðum nótum til dagsins í dag, ekki þetta endalausa væl um að allt sé ómögulegt hér á landi. Framtíðin er mjög björt, ef við nýtum þá möguleika sem virðast vera hér á landi, við þurfum að vera menn til að nýta möguleika okkar sem best. Það virðast drjúpa dropar af hverju strái, ef menn aðeins líta jákvætt í kringum sig. JÓN KR. ÓSKARSSON, Hafnarfirði. Bjartur dagur á vorköldum degi Frá Jóni Kr. Óskarssyni Jón Kr. Óskarsson Metþátttaka í Gullsmára Metþátttaka var í Gullsmára fimmtudaginn 12. apríl.Spilað var á 18 borðum.Úrslit í N/S: Guðbjörg Gíslad. - Sigurður Sigurðss.322 Kristín Óskarsd. - Gróa Þorgeirsd. 320 Sigtryggur Ellertss. - Tómas Sigurðss. 311 Ragnh. Gunnarsd. - Magnús Marteinss. 309 Guðrún Gestsd. - Lilja Kristjánsd. 287 A/V Samúel Guðmss. - Jón Hannesson 330 Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 309 Elís Kristjánsson - Páll Ólason 308 Aðalh. Torfad. - Ragnar Ásmundss. 306 Ágúst Vilhelmss. - Kári Jónsson 292 16. apríl var tekið á móti Reykvík- ingum og var spilað á 20 borðum. Ekki verður svo spilað sumardaginn fyrsta. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl 4, fimmtudaginn 12. apríl. Spilað var á 14 borðum. Með- alskor: 312 stig. Árangur N - S: Jón Lárusson - Ragnar Björnsson 350 Magn- ús Oddsson - Oliver Kristóferss. 346 Auðunn Guðmss. - Björn Árnason 335 Sigtryggur Jónss. - Jón Hákon Jónss. 332 Árangur A - V Sigurjón Helgas. - Helgi Samúelss. 404 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 384 Anna Garðarsd. - Hulda Mogensen 354 Þorsteinn Sveinss. - Matthías Helgas. 346 Barómeter í Kópavogi Þriggja kvölda Monrad-barómeter hófst s.l. fimmtudag og náðu Baldur Bjartmarsson og Halldór Þorvalds- son góðri forystu en nægur tími er fyrir önnur pör að skáka þeim síðari kvöldin tvö. Staða efstu para er þessi (prósentskor): Baldur Bjartmars. - Halldór Þorvaldss. 59,4 Ingvaldur Gústafss. - Úlfar Friðrikss. 55,1 Þórður Jörundss. - Jörundur Þórðars. 55,0 Jón Páll Sigurjónss. - Guðm. Pálsson 54,5 Birna Stefnisd. - Aðalsteinn Steinþórss. 52,8 Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Sunnudaginn 15/4 var spilaður tví- menningur á 12 borðum. Hæsta skor í N/S: Sólveig Jakobsd. - Ingibj.Guðmundsd.259 Birna Lárusd. - Sturlaugur Eyjólfss. 258 Oddur Hanness. - Árni Hannesson 251 Þorleifur Þórarinss. - Haraldur Sverriss. 241 Austur–Vestur Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 272 Sigurjóna Björgvinsd. - Gunnar Guðmss. 265 Þórður Ingólfss. - Unnar A. Guðmundss. 263 Ari Gunnarss. - Snorri Markússon 247 Næsta sunnudag 22/4 hefst þriggja kvölda tvímenningskeppni. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxa- feni 14, á sunnudögum klukkan 19. HÁDEGISMATUR Í FYRIRTÆKI OG STOFNANIR VINSÆLT - HEILSUBAKKAR Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Fjölbreyttur matseðill og valréttir alla daga Við sendum hádegismat í bökkum og kantínum til fyrirtækja og stofnana alla daga ársins. Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum: Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka. Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags. Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.