Morgunblaðið - 17.04.2012, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012
✝ Ingibjörg Kol-beinsdóttir
fæddist á Sellands-
stíg 30 í Reykjavík
1. október 1929.
Hún lést á Dvalar-
og hjúkrunarheim-
ilinu Grund 3. apr-
íl 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Ingibjörg
Gísladóttir, hús-
móðir, f. 14. ágúst
1892, d. 2. maí 1940 og Ingvar
Kolbeinn Ívarsson, bak-
arameistari, f. 25. febrúar
1891, d. 7. ágúst 1979, búsett í
Reykjavík. Systkini Ingibjargar
voru: 1) Drengur sem fæddist
1913 og dó skömmu eftir fæð-
ingu. 2) Þóra, f. 4. ágúst 1914,
d. 10. júní 2003. 3) Ingvar Gísli,
f. 7. desember 1916, d. 14.
febrúar 1976. 4) Gyða, f. 2. maí
1919, d. 30. nóvember 1946.
Dóttir hennar er Ingibjörg
Helga Júlíusdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 31. marz
1944. 5) Jóhanna Svava, f. 28.
júlí 1922, d. 19. júní 1994, gift-
ist Inga Ólafssyni, f. 1. maí
1920, d. 21. janúar 1996, þau
áttu Ingvar Kolbein , f. 4. nóv-
ember 1941, d. 20. maí 1976,
hann eignaðist tvö börn. 6) Ív-
ar f. 19. nóvember 1934.
Ingvi Þórisson, f. 5. júlí 1977,
er sonur Þóris og Þórdísar
Gunnarsdóttur, f. 5. maí 1957,
kvæntur Lindu Björk Bjarna-
dóttur, börn þeirra: Iðunn
María, f. 2004, Markús Ægir, f.
2007 og Líney Margrét, f. 2009.
3) Gunnar Hersveinn, rithöf-
undur, f. 28. mars 1960. Í sam-
búð með Friðbjörgu Ingimars-
dóttur, f. 8. ágúst 1959, börn
hennar eru Eyjólfur Ingi, f.
1989 og Ragnheiður Eyjólfs-
dóttir, f. 1984, gift Sigurvini
Friðbjarnarsyni, og börn Gunn-
ars og Margretar Guttorms-
dóttur, f. 24. janúar 1957, a.
Sigursteinn Jóhannes, f. 3. júní
1989, kvæntur Auði Ákadóttur.
b. Heiðdís Guðbjörg, f. 24.
september 1990, kærasti
Styrmir Kári. c. Særós Rann-
veig Björnsdóttir, dóttir
Margretar og uppeldisdóttir
Gunnars, f. 18. maí 1982, kær-
asta Þórunn Skúladóttir, dóttir
Særósar er Embla Margret, f.
2001.
Ingibjörg gekk í Miðbæj-
arskólann í Reykjavík og lauk
þaðan barnaskólaprófi. Hún
starfaði sem bókbindari þar til
hún varð húsmóðir í Reykjavík
1952. Hún gekk sem ung stúlka
í KFUM og K þar sem hún
kynntist manni sínum. Ingi-
björg og Sigursteinn bjuggu í
Sólheimum 46 í 46 ár en síð-
ustu árin bjuggu þau í Sóltúni
12.
Útför Ingibjargar fer fram
frá Áskirkju í dag, 17. apríl
2012, og hefst athöfnin kl. 13.
Ingibjörg giftist
Sigursteini Haraldi
Hersveinssyni raf-
eindavirkjameist-
ara og kennara 20.
september 1952 og
bjuggu þau í Sól-
heimum 46 í
Reykjavík. Börn
Ingibjargar og Sig-
ursteins eru: 1)
Margrét Árný Sig-
ursteinsdóttir
skólastjóri, f. 4. júní 1953, gift
Sigurði Leifssyni, f. 22. apríl
1950. Börn þeirra a. Inga Rún
Sigurðardóttir, f. 25. júlí 1975,
í sambúð með Sverri Bollasyni,
synir þeirra eru Oddur f. 2007
og Örvar f. 2009. b. Friðrik
Már Sigurðsson, f. 19. nóv-
ember 1980, sambýliskona
Sonja Líndal Þórisdóttir, sonur
þeirra er Jakob Friðriksson
Líndal f. 2011. 2) Þórir Sig-
ursteinsson húsasmíðameistari,
f. 8. maí 1955, kvæntur Birnu
Einarsdóttur, f. 17. september
1951. Börn þeirra eru a. Sig-
rún Þórisdóttir, f. 16. mars
1983, dóttir hennar er Arna
Rún, f. 2007. b. Þorbjörg Inga,
f. 25. september 1987, sonur
hennar er Stefán Darri, f.
2009, sambýlismaður Hjörtur
Birgir Jóhönnuson. c. Gunnar
Fyrstu andartökin er barn er í
essinu sínu í móðurfaðmi. Að
vera heima merkir þá að vera hjá
móður. Móðir er heimkynni
barns sem það skilur ekki fyrr en
það undrast yfir hinu sjálfsagða.
Ef til vill er vandasamast að
segja frá því eðlilega í lífinu, því
ekki er til betri staður fyrir
leyndardóma þess margbrotna
en hversdagslífið. Ég gæti lýst
daglegu lífi móður minnar – en
myndi það varpa ljósi á hana
sjálfa eða á samband okkar?
Ég gæti gert tilraun til að
segja frá þolgæði móður minnar,
athyglisgáfu, hjálpsemi og gest-
risni eða trú, von og kærleika. Og
ég gæti sagt frá áhugamálum
hennar á mynd- og sönglist, mat-
argerðarlist, blóma- og fuglalífi
en sennilega er það hlutverk ann-
arra.
Ef ég geri tilraun til að sjá líf
hennar úr fjarlægð eins og heim-
spekingur gerir gjarnan, þá birt-
ist kona sem lagði alúð í verk sín.
Hún naut þess að sjá vel unnið
verk og hvatti börn sín til leggja
metnað í verkefnið sem þurfti að
sinna hverju sinni. Hún gerði
kröfur og kunni að aga börnin
sem jafnframt vissu að í hjarta
hennar bjó mildin.
Hún og Sigursteinn faðir minn
kenndu börnum sínum það sem
þau töldu farsælt en það var gert
með frjálsa hugsun að leiðarljósi.
Hvert okkar systkina valdi sér
eigin veg. Ég gekk veg frelsis til
að velja það sem ég tel heillavæn-
legasta úr hverjum sið – óháð
uppruna og sleppa öðru. Það sem
skipti foreldra mína máli var að
leyfa börnunum að máta sig við
veruleikann, búa þau undir flugið
úr hreiðrinu.
Foreldrar eru jarðvegur og
börnin spretta úr grasi og teygja
sig yfir í aðra garða. Foreldrar
semja ratleik um garðana, setja
boð um hvað má og hvað ekki,
tína arfa, vökva, hlúa að. Foreldr-
ar mínir settu vinnureglur í garð-
inum sem ég virti og gegndi – eða
ekki. Hvert barn þarf fyrr eða
síðar að ganga eitt yfir götuna.
Ef lífsbaráttan leyfir, eru börn
gjöf foreldra sem þau elska og
ala. Áratugum síðar verða for-
eldrarnir einnig gjöf í augum
barnanna sem fyllast þakklæti,
hafi þau verið lánsöm. Ég var lán-
samur og er þakklátur móður
minni. Það er sama hvað ég geri
margar tilraunir til að lýsa henni,
það hefði enga þýðingu, nema að í
þeim orðum felist þakklæti.
Ég kveð hana ekki í hinsta
sinn, því hún lifir áfram í minn-
ingum mínum. Hún kvaddi okkur
en lifir áfram í hugum okkar og
hjarta. Ég óska þess að draumar
hennar og óskir rætist áfram og
að það sem hún trúir að verði,
verði. Ég þakka henni af öllu
hjarta. Blessuð sé minning henn-
ar, föður míns og þeirra saman.
Gunnar Hersveinn.
Þriðjudaginn 3. apríl síðastlið-
inn, lést tengdamóðir mín, Ingi-
björg Kolbeinsdóttir, á Dvalar-
og Hjúkrunarheimilinu Grund.
Hún hafði þá verið ekkja eftir
tengdaföður minn, Sigurstein
Hersveinsson, í tæp tvö ár. Ég
kynntist þeim hjónum eftir að ég
og sonur þeirra, Þórir, hófum
sambúð 1981.
Mér var fljótlega ljóst að
tengdamóðir mín var húsmóðir af
gamla skólanum. Aldrei sást ryk-
korn nokkurs staðar á heimilinu
og alveg var sama hvenær gesti
bar að garði alltaf var boðið til
stofu og veitingar galdraðar
fram. Heimili þeirra var því gest-
kvæmt og þau hjónin höfðingjar
heim að sækja. Í seinni tíð færð-
ust veisluhöldin í auknum mæli
yfir á börn og tengdabörn. Fyrir
það var hún afar þakklát. Veisl-
urnar varð að halda þótt kraftar
hennar dygðu ekki lengur til.
Fjölskyldan og barnabörnin
stóðu hjarta hennar nærri og
fylgdist hún vel með þeim. Hún
hafði góða kímnigáfu og kunni vel
að meta spaug, hún hafði einnig
mikið yndi af tónlist. Við áttum
saman margar góðar stundir,
ekki síst þegar þau heimsóttu
okkur hjónin í sumarbústaðinn
okkar. Þau hjónin voru mjög
samrýnd og heimakær, því var
það tengdamóður minni mikið
áfall þegar Sigursteinn féll frá. Í
fyrstu bjó hún ein í íbúð þeirra
hjóna en fluttist seint á árinu
2010 á Grund. Þetta var henni af-
ar erfitt, sérstaklega undir það
síðasta þegar hún var orðin alveg
ósjálfbjarga, enda vön að ráða sér
sjálf.
Ég kveð hana með sorg í
hjarta, en veit að hennar tími var
kominn og hún beið þess eins að
hitta Sigga sinn aftur.
Birna Einarsdóttir.
Nú þegar amma Inga er búin
að kveðja hugsa ég með hlýhug til
þeirra stunda sem við áttum sam-
an. Ég loka augunum og sé fyrir
mér ömmu og afa sitja fyrir utan
stofugluggann í Sólheimunum.
Það er sól og þau sitja við bónda-
rósina sem er í blóma og ég er lít-
ill hnokki að leika mér á stéttinni
fyrir framan þau með eitthvert
dót og garðverkfæri, sem sjálf-
sagt hafa verið í brúkun fyrr um
daginn. Svona streyma fram
endalausar myndir og minningar.
En eitt eiga þær flestar sameig-
inlegt, að innihalda bæði ömmu
Ingu og afa Sigurstein. Enda
voru þau einstaklega samrýmd
hjón og náin hvort öðru.
Í Sólheimum og svo seinustu
árin í Sóltúni var tekið á móti
hverjum sem þangað kom með
hlýju og myndarskap, svo eftir
var tekið. Amma lagði bæði alúð
og natni í það þegar fjölskylda
eða aðrir gestir voru boðnir heim.
Hvort sem um var að ræða hátíð-
armat eða einfalt kaffi var alltaf
mikið í lagt og fátt sem ekki var
heimagert.
Umhyggja fyrir fjölskyldunni
og hag hennar var lýsandi fyrir
ömmu. Hún vildi alltaf vita mikið
um fólkið sitt, hvar það væri,
hvað það væri að gera og mik-
ilvægt var að allir hefðu það gott
og væru öruggir.
Á síðustu jólum vorum við
saman á aðfangadagskvöld, eins
og svo oft áður. Þetta voru fyrstu
jól Jakobs sonar míns og mér
þykir mjög vænt um hve mikið
hann sótti til langmömmu sinnar
og hvað þau náðu vel saman. Þau
brostu hvort til annars og leið vel
saman. Þar sem við litla fjöl-
skyldan búum í Danmörku hafa
samverustundirnar á síðastliðn-
um mánuðum orðið færri en ella.
En þrátt fyrir það hefur hugur-
inn oft leitað yfir hafið.
Það vermir hjarta mitt að
hugsa til þess að þið afi Sigur-
steinn eruð saman núna og það
hjálpar mér við það að kveðja í
bili.
Friðrik.
Amma Inga var mikilvæg
manneskja í mínu lífi og ég eyddi
miklum tíma með henni. Við átt-
um alla tíð sérstakt samband,
enda heiti ég eftir henni og er
jafnframt elsta barnabarnið.
Ef leiðin að hjarta mannsins er
í gegnum magann þá átti amma
greiðan aðgang að öllum heimin-
um. Þeir sem hafa verið svo
heppnir að fara í veislur til henn-
ar vita hvað ég meina. Þar svign-
uðu borðin undan kræsingunum
og var hún jafn góð í að laga mat
og að baka eitthvað sætt undir
tönn.
Ég þótti fremur matgrannt
barn en engu að síður er margt af
því sem hún bar á borð mér al-
gjörlega ógleymanlegt. Eins og
til dæmis lambalæri sem hún bar
fram í sunnudagshádegi eitt sinn
sem var búið að marinerast í ein-
hverri töfrablöndu og var ólýsan-
lega meyrt.
Matargerð og bakstur var
áhugamál ömmu. Hún var mjög
góður kokkur og fylgdist líka vel
með nýjungum, skoðaði upp-
skriftir í erlendum og íslenskum
blöðum, safnaði þeim og var
óhrædd við að prófa sig áfram.
Hún var hugmyndaríkur og nýj-
ungagjarn kokkur. Í mínum huga
er ömmumatur alls ekki gamal-
dags matur heldur bragðgóður
og spennandi matur.
Þær eru margar minningarnar
úr eldhúsinu með ömmu. Ég á
ekki síst sterkar minningar af
smákökubakstri fyrir jólin í eld-
húsinu í Sólheimum. Þar lærði
maður mörg leyndarmál í sam-
bandi við smákökubakstur, og
líka það hvaða deig bragðaðist
best! Eldhúsið er hjarta heimilis-
ins og þar var amma við stjórn-
völinn.
Ekki aðeins er ég heppin að
hafa átt svona góða ömmu heldur
er ég líka svo lánsöm að vera af
þeirri kynslóð þar sem ömmurn-
ar voru oftar en ekki heimavinn-
andi. Amma passaði mig oft þeg-
ar ég var lítil, bæði á leikskóla- og
skólaaldri enda var þetta fyrir
tíma heilsdagsskóla. Þetta voru
gæðastundir og fór hún líka með
mig bæjarhluta á milli í strætó.
Máttur bænarinnar er mikill,
það hefur amma kennt mér. Trú
hennar var sterk og hún bað alla
tíð fyrir sínu fólki og ennþá oftar
ef eitthvað amaði að eða eitthvað
sérstakt stóð til. Það var gott að
vita af því.
Heimili afa og ömmu í Sól-
heimunum var algjört fyrirmynd-
arheimili. Það er margt hægt að
læra af því, ekki aðeins heimilis-
haldinu heldur líka þeirri ást sem
ríkti þar á milli þeirra, sem þau
gáfu síðan svo ríkulega af sér til
okkar barnabarnanna og seinna
barnabarnanna. Það er við hæfi
að eftir áratugi í Sólheimum hafi
þau síðan flutt í götu sem ber
nafnið Sóltún. Það var bara svo
mikil sól í kringum þau, sól í
merkingunni hlýja og kærleikur.
Hjá þeim var svo gott að vera.
Það urðu tímamót bæði hjá
mér og afa og ömmu 1. desember
2007 því þann dag fluttu þau í Sól-
tún og ég eignaðist mitt fyrsta
barn. Ég er mjög glöð að hafa
eytt gæðatíma með þeim í fæð-
ingarorlofinu, fyrst með Odd með
mér og svo með yngri soninn Örv-
ar.
Fjölskyldan öll syrgði mjög
þegar afi lést fyrir tæpum tveim-
ur árum en sorg ömmu var mest.
Hún saknaði hans alla daga og ég
veit að hún er glöð að vera komin
til hans á himnum núna og endur-
fundirnir hafa verið góðir. Nú
kveð ég ömmu mína og nöfnu
með söknuði en vissu um að hún
sé komin þangað sem hún vill
vera.
Inga Rún Sigurðardóttir.
Það var alltaf gaman að koma
heim til ömmu og afa. Amma
Inga var sérstaklega góður kokk-
ur og kökur og tertur voru henn-
ar sérgrein. Að setjast niður í eld-
húsinu hennar í Sólheimum og
síðar í Sóltúni var alltaf jafn not-
arlegt. Þá bauð hún amma iðu-
lega upp á nokkrar tegundir af
kökum sem ég skolaði niður með
ísköldu mjólkurglasi. Þegar ég
fór í pössun til ömmu og afa sem
barn leyfði hún mér oft að fá suð-
ursúkkulaði í litla skál sem ég fór
með á efri hæðina og borðaði á
meðan ég horfði á myndbands-
spóluna um hann Gosa. Hún
amma sagði mér oft söguna af því
þegar hún spurði mig sem barn
hvað ég vildi fá að borða og ég
svaraði að ég vildi bara fá „eitt-
hvað óhollt“. Amma var alltaf til í
að spila við mig þegar ég bað
hana og við spiluðum oft saman í
eldhúsinu. Þær stundir þykir mér
afar vænt um.
Amma og afi áttu einstaklega
fallegan garð í Sólheimum þar
sem gott var að sitja í sólinni með
ömmu. Þar voru ótal tegundir af
fallegum blómum sem amma
hafði unun af. Í Sóltúni voru fal-
legu blómin á svölunum og þar
sátum við oft og spjölluðum sam-
an. Amma saknaði afa mikið þeg-
ar hann lést og beið þess að fá að
hitta hann aftur. Nú er hún amma
komin aftur til afa og ég veit að
þeim líður vel saman.
Sigrún Þórisdóttir.
Amma okkar var frábær kona.
Hún sá um fallegt heimili og ól
upp þrjú börn og gerði þau að
góðu fólki. Hún hugsaði alltaf vel
um barnabörn sín og var eins og
allar ömmur ættu að vera.
Amma og afi voru gift í 58 ár og
áttu feikilega vel saman. Þau
voru tveir hlutar af heild og því
erfitt að tala einungis um ömmu
eða afa því það var alltaf talað um
þau sem Ömmu og Afa í Sóló. Afi
kvaddi fyrir tveim árum og tók
það mikið á og nú eru þau sam-
einuð á ný.
Við getum ekki hugsað um
ömmu án þess að hugurinn
sveimi fljótlega að matargerð.
Við erum örugglega ekki þau
einu sem gera það enda höfum
heyrt að krakkar í Sólheimum í
Heimahverfinu, þar sem þau
bjuggu, hafi gert það líka og
sönnuðu það með því að standa
stundum undir eldhúsglugganum
hennar þegar hún bakaði með
von um að fá að smakka.
Okkur fannst sem hún væri
ætíð í eldhúsinu að elda eða baka.
Maturinn og kökurnar bráðnuðu
í munni því allt var þetta svo gott.
Hún vaknaði eldsnemma á
morgnana til þess að baka brauð,
eldaði hádegisverð handa sér og
afa og gestir urðu alltaf saddir.
Heimsóknir voru alltaf ánægju-
legar og jólaboðin voru frábær.
Alltaf hlökkuðum við til að koma
til ömmu og afa í Sóló, því það var
tekið svo vel á móti manni.
Amma lét sér ekki nægja að
færa okkur góðgæti þegar við
vorum í heimsókn heldur gekk
hún skrefinu lengra, þegar við
systkinin bjuggum á Egilsstöð-
um bakaði amma fyrir okkur og
sendi okkur með flugi kassa full-
an af alls kyns góðgæti; smákök-
ur, sandkökur, dót … og ef það
voru veislur og einhver lá veikur
heima, þá fékk sá hinn sami send-
an mat og kökur í boxi heim, því
enginn mátti verða útundan.
Amma var stoltur gestgjafi.
Síðustu árin sá maður að henni
þótti leitt að geta ekki lengur
bakað fyrir okkur vegna gigtar í
höndum. Við fengum þá dýrind-
iskökur úr bestu bakaríum í stað-
inn. Hún hrósaði bakarískökun-
um í hástemmt, hvað það væri nú
gott og þægilegt að geta keypt
góður kökur, en maður vissi að
hún var að reyna að sannfæra sig
frekar en okkur. Við fundum að
hún vildi gera allt fyrir okkur eins
og hún hafði alltaf gert og hvað
það skipti hana miklu máli að
vera góður gestgjafi. Þegar hún
var svo komin á Grund þá átti hún
alltaf konfekt handa okkur og
hélt þannig áfram að vera heims-
ins besti gestgjafi. Þannig var
amma okkar.
Heiðdís og Sigursteinn
Gunnarsbörn.
Ingibjörg
Kolbeinsdóttir
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Skammtímaleiga 101
Íbúðir fullbúnar húsgögnum og hús-
búnaði. Sjá nánar á mimis4rent.com.
Sími 897-2568.
Gisting Akureyri
Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm
einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að-
staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að
hafa hund í Skógarhlíð. Orlofshús við
Akureyri með heitum potti.
orlofshus.is Leó 897 5300
Til sölu
Góður AEG ísskápur, hæð 150 cm,
til sölu. Uppl. í síma 863-2069.
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Þægileg og háþróuð kennslubifreið.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur, laga
ryðbletti, hreinsa garða og
tek að mér ýmis smærri
verkefni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com