Morgunblaðið - 17.04.2012, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012
Sími 568 1090 - www.bilson.is - bilson@bilson.is
Opnunartímar: Mánudagur til fimmtudags kl. 8-17, föstudagur kl. 8-16
GÆÐAVOTTAÐ
BÍLAVERKSTÆÐI
• Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði fyrir VW og Skoda.
• Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins
með úttekt frá BSI á Íslandi.
• Starfsleyfi til endurskoðunar frá Umferðarstofu.
• Forvarnarverðlaun VÍS 2010.
ÞJÓNUSTA SEM ÞÚ GETUR TREYST
„Maður tekur hvern dag og reynir að lifa góðu lífi. Ég hef ekki lagst
í neina eymd út af lífinu. Ég missti manninn minn 1963. Hann hét
Sigvaldi Stefánsson. Hann fórst í sjóslysi í ofsaveðri á Norðurlandi
9. apríl 1963,“ segir Dalvíkingurinn Bergljót Loftsdóttir er hún lítur
um öxl á níræðisafmælinu í dag. „Ég var því ein með börnin frá því
þau voru 5, 8 og 11 ára og þangað til þau urðu fullorðin. Þau fóru
svo í burtu. Þau búa ekki á Dalvík eins og ég. Börnin mín voru ekki
dekruð þegar þau voru föðurlaus. Fjölskyldan mín hjálpaði mér
mikið. Móðir mín náði 97 ára aldri. Bræður mínir og systkini hjálp-
uðu mér og sáu til þess að ég héldi lífi,“ segir hún um lífsbaráttuna.
Bergljót býr á Bjarkarbraut 7 á Dalvík ásamt systur sinni Hildi
Björk. Þriðja systirin, Sigríður, býr á Akureyri, en alls voru systk-
inin fjórtán. Bergljót flutti á Bjarkarbrautina ásamt Sigvalda heitn-
um á milli jóla og nýárs árið 1950 og hefur því búið þar í rúm sextíu
ár. Börn Bergljótar og Sigvalda heita Loftur Gunnar, Helga Björk
og Sveinn Haukur. Þá á Bergljót nokkur barnabarnabörn.
Hún segir aðspurð margt hafa breyst á Dalvík síðan þau Sigvaldi
komu sér fyrir á Bjarkarbraut en að of langt mál sé að tíunda það.
„Slíkt væri efni í hálfa bók,“ segir hún. Bergljót fór út á vinnumark-
aðinn þegar börnin voru orðin stálpuð og starfaði meðal annars á
elliheimilinu Dalbæ. Hún ætlar að taka daginn rólega.
Bergljót Loftsdóttir er níræð í dag
Ljósmynd/Magnea Rún Magnúsdóttir
Hefur lifað tímana tvenna Bergljót Loftsdóttir á heimili sínu í gær.
Lagði ekki árar í
bát þótt móti blési
H
elga Eysteinsdóttir,
starfandi for-
stöðumaður Hrings-
jár, fæddist í Borg-
arnesi en ólst upp í
foreldrahúsum í Eskiholti í Borg-
arhreppi í Borgarfirði við öll almenn
sveitastörf. Hún var í barnaskól-
anum á Varmalandi, stundaði nám
við Menntaskólann í Hamrahlíð og
lauk þaðan stúdentsprófi 1992,
stundaði nám í uppeldis- og mennt-
unarfræði við Háskóla Íslands og
lauk þaðan BA-prófi 1997, lauk dip-
lomaprófi í náms- og starfsráðgjöf
1999 og MA-prófi í náms- og starfs-
ráðgjöf 2006.
Þegar 118 var 03
Helga starfaði í sumarvinnu og
með skóla hjá Póstgíróstofunni í
Reykjavík 1989-92, var í sumarvinnu
hjá Pósti og síma í Borgarnesi 1992-
Helga Eysteinsdóttir 40 ára
Hjónasæla Helga ásamt eiginmanni sínum Inga Torfa, stýrimanni og húsasmíðameistara, í sól og sumaryl.
Menntun, mannrækt
og máttur hjá Hringsjá
Fjölskyldan Helga og Ingi Torfi, ásamt Reyni Viðari og Írisi Ósk sem held-
ur á dóttur sinni og Eysteini Inga og Heru Björgu.
Jóna Margrét
Arnarsdóttir og
Emilía Steindórs-
dóttir færðu
Rauða krossinum
ágóða af tombólu
sem þær héldu við
verslun Bónuss og
af söfnun sem
þær stóðu fyrir í
hverfinu sínu. Þær
söfnuðu alls
11.871.
Hlutavelta
Fáskrúðsfjörður Brynjar Þór fæddist
17. júní kl. 6.49. Hann vó 3.555 g og
var 51,5 cm langur. Foreldrar hans eru
Stefanía Óskarsdóttir og Hannes Þór
Þorláksson.
Nýir borgarar
Reykjarnesbær Sigurrós Tinna fædd-
ist 26. nóvember kl. 14.45. Hún vó
3.635 g og var 52 cm löng. Foreldrar
hennar eru Helga Þórunn Pálsdóttir
og Bolli Thor Bollason
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.