Morgunblaðið - 17.04.2012, Page 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012
Bæjarlind 16 Kópavogur S: 553 7100 www.linan.is Opið mán - fös 12 - 18 lau 11 - 16
TIMEOUT
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sjálfsöryggi þitt er nokkuð sveiflu-
kennt en ástvinum þínum finnst það mjög
sætt. Taktu við því sem að þér er rétt, jafnvel
þótt það sé lítilsvert, því annað getur valdið
sárindum og reiði.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur einhverju áríðandi að miðla til
fólksins þíns. Nálgastu sambönd þín af ást,
jafnvel þegar um kunningsskap er að ræða.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Samstarfsmenn þínir eru hvorki
hjálplegir né koma með uppbyggilegar hug-
myndir. Mundu samt að það eru takmörk fyr-
ir öllu, líka því sem hægt er að semja um.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Í dag færðu ótal tækifæri, en fæst
þess virði að þú lítir við þeim. Mundu bara að
gæta hófs í mat og drykk, því annars hefði
betur verið heima setið en af stað farið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst annað fólk treysta um of á
þig til þess að hjólin snúist. Komdu skipulagi
á líf þitt og nýttu tímann vel. Lausnin er að
bæta við þekkingu þína.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnst allt ganga þér í haginn og
það er vel. Um leið víkkarðu sjóndeildarhring-
inn. Vondu fréttirnar eru þær að vinur þinn er
tættur og með of margt á sinni könnu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú munt væntanlega vera í stöðu til þess
að ráðleggja eða aðstoða samstarfsfólk í dag.
Láttu reyna á samstarfsvilja annarra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú getur aðeins sjálfum þér um
kennt ef verkefnin eru að vaxa þér yfir höfuð.
Gefðu þér tíma til þess að vinna þeim fylgi.
Þér verður ekkert úr verki ef þú ætlar að gera
allt í einu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn hentar vel til skemmt-
ana og er upplagður til að hafa ofan af fyrir
öðrum og gleðjast með fólki á öllum aldri.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er hætt við að aðrir séu gagn-
rýnir á það sem þú ert að gera í dag. Vinir
þínir og kunningjar sækjast eftir félagsskap
þínum auk þess sem ókunnugt fólk sýnir þér
óvenju mikinn áhuga.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Stundum á fólk ákaflega erfitt
með að koma sér að hlutunum. Þig langar að
kaupa eitthvað verulega fallegt í dag, jafnvel
einhvern dýran munað.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur látið reka á reiðanum með
heilsu þína, en verður nú að taka þau mál
föstum tökum. Leitaðu nýrra leiða og að-
stoðar ef með þarf.
Við Kristrún brugðum okkur íbetri fötin og gengum í dóm-
kirkju á sunnudaginn. Séra Hjálm-
ar messaði og fór hann með vísna-
mál en með nokkuð óvæntum
hætti þó. Rúmlega þriggja mánaða
gamall drengur var skírður Jó-
hannes Jökull, en stúlknakór
Langholtskirkju söng undir stjórn
móður hans Rósu Jóhannesdóttur.
Og síðan gerðist hið óvænta að
faðirinn, Helgi Ziemsen, gaukaði
limru að séra Hjálmari, sem prest-
ur fór með úr stólnum:
Hjálmar var klæddur í hökul
honum við fylgdumst með vökul
er blandaði af natni
blessun í vatni
og skírði svo Jóhannes Jökul.
Og síðan fór séra Hjálmar með
fallegar vísur, sem Helgi hafði
gefið drengnum sínum í skírn-
argjöf:
Æska vor er vori lík,
vex þá allt og dafnar.
Upp má spretta auðnurík
urt sem birtu safnar.
Lífs á akri ýmsir sá
á því höfum gætur.
Frjóan jarðveg finna má
fyrir ungar rætur.
Visku, kærleik, von og trú
vaxtarsprota nærðu.
Best mun gagnast gjöfin sú,
góðan ávöxt færðu.
Mér þótti vænt um að sjá Lárus
Jónsson, minn gamla vin og sam-
þingsmann, í kirkjunni með konu
sinni Guðrúnu Jónsdóttur. Og gott
þótti mér líka að heyra séra
Hjálmar vitna í ljóð hans í predik-
un sinni, þótt ég viðurkenni að
mér þykir vænna um annað af
ljóðum Lárusar, Á Grímseyj-
arsundi, sem er úr bréfi til föður
hans:
Á Grímseyjarsund slær gulli
frá glampandi miðnætursól.
Í lygnunni leikur sér himinn
og læst vera á dimmbláum kjól.
Ég horfi á dýrðina, drottinn,
og dettur í hug einna helst
að þú, Guð, sért að gefa mér innsýn
hvað í gátunni miklu felst
að baki þeim brennandi skýjum
sem býrð þú mér eilíft skjól.
Á Grímseyjarsund slær gulli
frá glampandi miðnætursól.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hjálmar var
klæddur í hökul
S
m
á
fó
lk
G
re
tt
ir
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
F
er
d
in
a
n
d
EINHVER STAL
PERSÓNUUPPLÝSINGUNUM
MÍNUM!
ÞEIR
SKILUÐU ÞEIM
EKKI ER ÉG
HISSA
ÞÚ
VERÐUR LÍKA
Í JÓLA-
LEIKRITINU
ÉG VERÐ FJÁRHIRÐIR
OG ÞÚ ÁTT AÐ LEIKA
HJÖRÐINA MÍNA
GETUR ÞÚ LEIKIÐ HJÖRÐ
AF KINDUM?
EKKERT MÁL, HVER
HUNDUR ER VIRÐI HEILLAR
HJARÐAR AF KINDUM
MAÐUR
HEFÐI HALDIÐ AÐ
ÞAÐ VÆRI LÁMARKS
KURTEISI AÐ ÞEIR
SEGÐU...
„TAKK
FYRIR OKKUR
OG EIGIÐ
GÓÐAN DAG”
ÚFF... ÞAÐ ERU
BARA TVÆR VIKUR Í
ÞAKKARGJÖRÐARHÁTÍÐINA,
ÉG VERÐ AÐ DRÍFA MIG
AÐ KAUPA ALLAR
GJAFIRNAR OG SETJA
ÞÆR UNDIR TRÉÐ
RUNÓLFUR, ÞÚ ÞARFT
EKKI AÐ KAUPA NEINAR
GJAFIR FYRIR
ÞAKKARGJÖRÐARHÁTÍÐINA,
ÞESSARI HÁTÍÐ HEFUR EKKI
VERIÐ SPILLT AF
VERSLUNARMÖNNUM
KANNSKI ER ÞAÐ
ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ
VIÐ ERUM ÞAKKLÁT
Víkverji hefur gaman af því aðrýna í auglýsingar og sjá hvaða
skilaboð þær hafa í för með sér, að
undanskildum þeim einlæga ásetn-
ingi viðkomandi fyrirtækis að ætla
að selja manni vöru eða þjónustu.
Víkverji lætur ekki plata sig svo
glatt og rýkur ekki út í búð til að
kaupa eitthvað bara af því að tilboðið
sé svo gott. Það þarf að vera virkileg
þörf fyrir kaupunum. Vanda ber val-
ið hverju sinni svo að kötturinn verði
ekki keyptur í sekknum.
x x x
Þó að það geti verið fyndið ogskemmtilegt að ýkja raunveru-
leikann þá er Víkverji þeirrar gerðar
að hann vill að auglýsingar gefi
raunsanna mynd af umhverfinu.
Þannig var fróðlegt að rýna í stóra
auglýsingu frá tryggingafélaginu
Verði á dögunum, sem birti mynd af
innbúi fimm manna fjölskyldu með
þeirri spurningu hvort við vissum
um verðmæti innbús okkar. Ágætis
áminning hjá Verði en innbú þess-
arar ungu fjölskyldu var athygl-
isvert. Víkverji gat hvergi séð ísskáp
eða frystikistu eða rúm fyrir alla.
Ekki vantaði smálega innanstokks-
muni, golfsett, fagurbókmenntir,
málverk og ýmislegt sem bar góð-
ærinu vitni. Undarlegast var þó að
sjá hvorki flatskjá eða tölvur.
Hjónin á heimilinu hafa greinilega
gaman af því að elda því minnst átta
pönnur voru á myndinni. Ekki vant-
aði verkfærin en Víkverji stoppaði
þar við eitt atriði. Telja þeir hjá
Verði það heyra til nauðsynja að
eiga þrjár stórar járnaklippur? Ekki
nema bóndinn sé handrukkari í hjá-
verkum – vonandi ekki.
x x x
Auglýsingar geta einnig pirraðVíkverja ef þær boða eitthvað
misjafnt eða villandi eða segja ekki
alla söguna fyrr en kannski í smáa
letrinu. Auglýsingar frá flugfélög-
unum eru ágætt dæmi um þetta, sér
í lagi frá Iceland Express. Þar virð-
ist vera lenska á þeim bæ að auglýsa
verð sem ekki stenst á endanum ef
farið er í gegnum allt bókunarferlið.
Þá bætast við skattar og „aðrar
greiðslur“. Heiðarlegra er að aug-
lýsa alltaf fullt verð í upphafi og eng-
ar refjar.vikverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Því að ekkert er hulið,
sem eigi verður opinbert, né leynt, að
eigi verði það kunnugt og komi í ljós.
(Lk. 8, 17.)