Morgunblaðið - 17.04.2012, Side 30

Morgunblaðið - 17.04.2012, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012 Tökum að okkur trjáklippingar, trjáfellingar og stubbatætingu. Vandvirk og snögg þjónusta. Sími 571 2000 www.hreinirgardar.is Sjö punktar um listrannsóknir nefnist fyr- irlestur sem Per Zetterfalk flytur í Listaháskólanum í Laugarnesi í stofu 24 á morg- un milli kl. 12:10 og 13:00. Zetterfalk er leikstjóri og dósent í kvikmynda- gerð í Luleå-háskóla í Svíþjóð. Hann hlaut doktorsgráðu fyrir verk sitt um sænska leikskáldið Lars Norén frá Stockholm Academy of Drama- tic Arts. Í fyrirlestrinum fjallar Zet- terfalk um listrannsóknir út frá eig- in reynslu sem rannsakandi annars vegar og kvikmyndgerðarmaður hins vegar. Hann ræðir þannig hina ýmsu núningspunkta sem fyrir geta komið í skapandi rannsóknarferli. Fyrirlesturinn, sem er öllum opinn, er fluttur á ensku. Per Zetterfalk fjallar um listrann- sóknir hjá LHÍ Per Zetterfalk Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO hefur gert áttfætta goð- sagnahestinn Sleipni að sérstökum félaga sínum. Í nafni Sleipnis mun Bókmenntaborgin taka þátt í verk- efnum sem snúa að lestrarhvatn- ingu og skapandi starfi barna og ungmenna. Skáldfákurinn Sleipnir mun standa að ýmsum lestarhvetjandi viðburðum á vegum Bókmennta- borgarinnar fyrir yngri kynslóð- irnar. Sleipnir er goðsagnavera sem gædd er þeim töfrum að geta flogið á milli heima og er því tákn- mynd ferðalagsins og hugarflugs- ins sem bóklestur býður upp á. Hans fyrsta verkefni er að bjóða börn velkominn í Sleipnisstofu í Ævintýrahöllinni Iðnó á Barna- menningarhátíð daganna 17.-21. apríl. Skipulögð dagskrá er yfir daginn fyrir skóla og leikskóla en eftir skólatíma geta foreldar komið með börnin í Ævintýrahöllina og notið fjölbreyttrar dagskrár, en dagskrána má nálgast á vefnum www.barnamenningarhatid.is. Einnig er hægt að njóta vorsins í ratleik með Sleipni sem leiðir fjöl- skyldur í kringum Reykjavíkur- tjörn. Í leiknum leysa börn og for- eldar laufléttar þrautir tengdar textum úr barnabókum. Þess má að lokum geta að í nor- rænni goðafræði var Sleipnir af- kvæmi Loka að móðerni og jötna- hestsins Svaðilfara. Sleipnir þýðir sá sem rennur hratt áfram. Hann var hestur Óðins og sagður bestur allra hesta ásanna enda hafði hann rúnir ristar á tennur sér. Hraðskreiður Nafnið Sleipnir þýðir sá sem rennur hratt áfram. Sleipnir fer á flug  Býður börn vel- komin í Ævintýra- höllinni Iðnó Síðasta glæsta sagnahandritið: AM 152 fol. nefnist erindi sem Jóhanna Katrín Friðriksdóttir flytur í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu á morgun milli kl. 12.15 og 12.45. Erindi Jó- hönnu Katrínar er það tólfta og síðasta í erindaröðinni um handrit úr safni Árna Magn- ússonar í tilefni þess að hand- ritasafnið er nú á varðveislu- skrá UNESCO „Minni heimsins“. AM 152 fol. varðveitir hina sívinsælu Grettis sögu Ásmundarsonar auk níu fornaldar- og riddarasagna og einnar ungrar Íslend- ingasögu. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Bókmenntir Síðasta glæsta sagnahandritið Jóhanna Katrín Friðriksdóttir Margot Kiis kemur fram á tón- leikum jazztónleikaraðarinnar á KEX Hostel á Skúlagötu 28 í kvöld. Með henni leika þeir Agnar Már Magnússon á pí- anó, Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Erik Qvick á trommur. Margot Kiis er fædd í Eistlandi og er þekkt djass- söngkona þar í landi. Hún hef- ur búið á Íslandi síðan 1998 og kennir djass- og dægurlaga- söng við Tónlistarskólann á Akureyri. Árið 2007 gaf hún út djassplötuna My Romance. Tónleikar kvöldins hefjast kl. 20:30 og standa í u.þ.b. 2 klst. með hléi. Aðgangur ókeypis. Tónlist Margot Kiis syngur djass Margot Kiis Kvikmyndasafnið sýnir Le jo- urnal d’une femme de chambre eftir Luis Buñuel í Bæjarbíói í kvöld kl. 20 og á laugardaginn kemur kl. 16. Myndin sem er frá árinu 1964 fjallar um kynja-, heim- ilis- og samfélagspólitík. „Buñuel fyrirleit borgara- menninguna og þar með það siðferði sem fylgdi trúnni, föð- urlandsástinni og fjölskyld- unni. Þessar undirstöður þjóðfélagsins kallaði hann óréttlátustu stofnanir samfélagsins,“ segir m.a. í tilkynningu frá Kvikmyndasafninu. Myndin er sýnd með enskum texta. Kvikmyndir Sýna Dagbók herbergisþernu Plakat myndar- innar. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Imaginary numbers nefnist nýr kvin- tett eftir Borgar Magnason sem frumfluttur verður á Tíbrá í Salnum í kvöld kl. 20. „Það sem er áhugavert við þennan kvintett er samsetningin á hljóðfærunum,“ segir Borgar sem sjálfur mun leika á kontrabassa á tónleikum kvöldsins. Með honum leika Una Sveinbjarnardóttir fiðlu- leikari, Þórunn Ósk Marínósdóttir víóluleikari, Matthías Nardeau óbó- leikari og Rúnar Óskarsson klarín- ettuleikari. „Þetta er óvenjuleg og sjaldheyrð hljóðfæraskipan, en að sami skapi mjög spennandi og áferðarfalleg,“ segir Borgar og dregur ekki dul á að hljóðfæraskipanin sé innblásin af kvintett opus 39 eftir Prokofiev sem einnig verður fluttur á tónleikum kvöldsins. Spurður hvort verkin kall- ist að öðru leyti á segist Borgar hafa leikið sér með það að vitna í verk Prokofievs á einum stað, enda annað varla hægt þegar aðeins sé til eitt annað verk í heiminum sem deili sömu hljóðfæraskipan. Aðspurður segir Borgar helst hægt að lýsa verki sínu sem ein- staklingshyggjuverki. „Í þeim skiln- ingi að verkið er samsett af mörgum einstökum röddum eða línum sem mynda samhljóm þegar þær mæt- ast,“ segir Borgar og tekur fram að öll hljóðfærin fái að njóta sín. „Ég hef hingað til gert mikið af því að vinna tónlist fyrir aðra, t.d. samið tónlist við vídeóverk, leiksýningar, dansverk og kvikmyndir. Þetta er hins vegar í fyrsta skiptið sem ég sem verk þar sem tónlistin stendur ein og sér og er ekki að þjóna neinu hlut- verki,“ segir Borgar, en hann hefur í gegnum tíðina unnið með tónlist- arfólki á borð við Ben Frost, Howie B., Björk og Áskel Másson, myndlist- arkonuna Gabríelu Friðriksdóttur og dansarann Ernu Ómarsdóttur. Borgar stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík, Kon- unglega Tónlistarháskólann í Brussel og framhaldsnám hjá Etienne Sie- bens við Lemmensinstitute í Leuven og Mannes College of Music í New York. Að námi loknu hefur hann starfað sem aðstoðarkennari við Ju- illiard School of Music í New York og við Mannes College of Music. Hann býr nú í Barcelona þar sem hann vinnur við að semja tónlist og útsetja auk þess að koma fram sem kontra- bassaleikari víða um heim. „Sjaldheyrð en spennandi og falleg hljóðfæraskipan“  Nýtt verk eftir Borgar Magnason frumflutt í Salnum Morgunblaðið/Golli Miðpunktur Tónskáldið og kontrabassaleikarinn Borgar Magnason. Með honum á tónleikunum í kvöld í Salnum leika Una Sveinbjarnardóttir, Þórunn Ósk Marínósdóttir, Rúnar Óskarsson og Matthías Nardeau.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.