Morgunblaðið - 17.04.2012, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012
Það er kunnara en frá þurfiað segja að KrummiBjörgvinsson er söngvarieigi einhamur. Ekki ein-
asta leiddi hann rokksveitina Mínus
gegnum hvert breitingaskeiðið á
fætur öðru þar sem hann snaraði
söngskyldum sínum með annari
hendi heldur afgreiðir hann kántrí-
músík með miklum bravúr þegar
hann kemur fram
undir merkjum
Esju. En fáir sáu
eflaust fyrir sér
að hann skyldi
næst bregða sér í
töffaralegt tölvu-
popp. Sem helm-
ingur dúettsins Legend - hinn helm-
ingurinn er Halldór Björnsson -
gerir hann akkúrat það og þar sem
meira er, hann skilar sínu af sama
bravúr og hingað til.
Á plötunni kennir ýmissa raftó-
nagrasa og má glöggt heyra berg-
mál margra risa á öxlum hverra
Legend standa. Depeche Mode um
miðjan níunda áratuginn (ca. some
Great Reward/Black Celebration/
Music For The Masses) og Bauhaus
eru augljósir áhrifavaldar, og ekki
leiðum að líkjast. Þá má í laginu Ru-
naway Train greina glögga hlið-
stæðu við Jean-Michel Jarre klass-
íkina Oxygène IV. Lagið Sister gæti
vel verið úr smiðju Trent Reznor,
æðstapresti NIN og oft minnir sánd-
ið Fever Ray. Að því sögðu er hljóm-
urinn á plötunni frábær og hið
drungalega yfirbragð sem hæfir
þungri rafmúsík sem samin er í moll
gengur bara dúndurvel upp.
Lögin eru frá því að vera miðlungs
upp í frábær, þó langflest séu þau
vel yfir meðallagi. Bestu lögin, svo
sem Violence, City, og þau sem
framar eru nefnd, eru hörkugóð. Allt
í allt er Fearless stórskemmtileg og
kúl plata, ómissandi fyrir þá sem
kunna að meta framangreinda
áhrifavalda.
Fearless Allt í allt stórskemmtileg
og kúl plata, segir gagnrýnandi.
Dimmt og
drungalegt
Legend - Fearless
bbbbn
JÓN AGNAR ÓLASON
TÓNLIST
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Starfsemi i8 gallerís við Tryggva-
götu hefur vaxið umtalsvert á und-
anförnum árum og starfsmönnum
fjölgað í takt við það. Nú hefur nýr
gallerísstjóri verið ráðinn, Auður
Jörundsdóttir, til viðbótar við þann
sem fyrir var, Börk Arnarson. Gall-
eríið er umboðsgallerí og hefur 18
myndlistarmenn á sínum snærum,
flesta íslenska. Auður hefur áður
starfað fyrir galleríið, á árunum
2005-8, og hefur auk þess sinnt verk-
efnum fyrir það erlendis. Hún er
með BA-gráður í myndlist og arki-
tektúr. Á árunum 2005-8 voru aðeins
tveir starfsmenn í galleríinu, að sögn
Auðar, en eru nú orðnir sex.
„Það tíðkast í galleríheiminum að
hafa marga „directora“, það er bara
eðlilegt. Stærri gallerí eru oft með
allt upp í fimm,“ segir hún. „Þetta er
orðið það stórt að það þarf fleiri en
einn sem geta gert ákveðna hluti,
eins og á messum erlendis þá verður
alltaf að hafa einhvern sem er direc-
tor á staðnum, það er ákveðið
„protocol“ í kringum það. Þetta er
að hluta til út af því,“ segir Auður
um starfsemi i8 sem virðist vera í
mikilli sókn.
„Ég hef umsjón með sölu á mynd-
listinni, það er mitt hlutverk,“ svarar
Auður, spurð að því hvaða verk-
efnum hún sinni öðrum fremur. „Við
erum með 18 listamenn og svo erum
við alltaf að sýna einhverja fleiri
líka, næst erum við t.d. að fara að
sýna Margréti H. Blöndal og sviss-
nesku listakonuna Silviu Bacli. Þær
eru hvorugar á listanum okkar en
við erum að vinna samt með fleiri
listamönnum. Svo eru Börkur og
annar starfsmaður héðan úti í Brüs-
sel að taka þátt í Art Brüssel sem er
um næstu helgi og við erum að fara á
Basel í júní, á listamessuna þar,
þannig að það er nóg að gera.“
– Hefur sala á myndlist aukist
mikið hjá galleríinu?
„Já, síðustu tvö ár hefur hún auk-
ist mjög mikið, eins og hún hefur
gert í raun og veru alls staðar í
heiminum. Þessi markaður er að
stækka jafnt og þétt og við erum
komin í takt við það. Við erum það
mikið að vinna á alþjóðlegum mark-
aði, okkar velgengni hefur verið í
takt við stækkun alþjóðlega mark-
aðarins.“
Í takt við stækkun
markaðarins
Auður Jörundsdóttir ráðin í stöðu gallerísstjóra hjá i8
Morgunblaðið/
i8 Auður í i8 galleríi en í því stendur nú yfir sýning á verkum Ívars Val-
garðssonar og ber hún yfirskriftina „Háspennulínur“.
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
BATTLESHIP Sýnd kl. 7 - 10 (Power)
AMERICAN PIE: REUNION Sýnd kl. 8 - 10:20
HUNGER GAMES Sýnd kl. 7 - 10
LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
STERK BYRJUN, MANN
ÞYRSTIR Í MEIRA!
T.V. - Vikan/Séð og Heyrt
HHHH
HEIMURINN FYLGIST AGNDOFA MEÐ
„ÁKAFLEGA VEL HEPPNUÐ
ÆVINTÝRAMYND“
A.L.Þ - MBL
HHHH
Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN
HHHH
DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR
FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR!
TOPPMYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG
EIN FLOTTASTA MYND ÁRSINS
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR TRANSFORMERS
MEÐ TAYLOR KITSCH, LIAM NEESON OG
HINNI SJÓÐHEITU RIHANNA
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
SÉÐ OG HEYRT/KVIKMYNDIR.IS FRÉTTABLAÐIÐ T.V. - VIKAN/SÉÐ OG HEYRT Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN
“FRUMLEG OG MEINFYNDIN SÝRA”
- TÓMAS VALGEIRSSON, KVIKMYNDIR.IS
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
- D.M.S. MBL
DVPRESSAN.IS
KVIKMYNDIR.IS
59.000 MANNS
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
DREPFYNDIN MYND!
BEIN ÚTSENDING FRÁ ROYAL OPERA HOUSE
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
BATTLESHIP KL. 8 - 10.20 12
AMERICAN PIE: REUNION KL. 8 - 10.10 12
HUNGER GAMES KL. 5.30 12 / SVARTUR Á LEIK KL. 5.50 16
ÓPERAN RIGOLETTO KL. 6.15 L
IRON SKY KL. 5.45 - 8 - 10.15 12
BATTLESHIP KL. 9 12
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 5.15 10
HUNGER GAMES KL. 9 12
SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 10.30 16
BATTLESHIP KL. 5 - 8 - 10.45 12
BATTLESHIP LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.45 12
AMERICAN REUNION KL. 8 - 10.30 12
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 - 6 L
HUNGER GAMES KL. 5 - 8 12
SVARTUR Á LEIK KL. 8 - 10.30 16