Morgunblaðið - 17.04.2012, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 108. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Vændiskaup með falinni mynda…
2. Í fimm daga með látinni móður …
3. Spilaði tölvuleik í heilt ár
4. Hlýtt á milli þeirra á rauða …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tríó Björns Thoroddsen og Andrea
Gylfadóttir verða á Rósenberg á
morgun og hinn. Efnisskráin sam-
anstendur af þeim þrem plötum sem
tríóið og Andrea hafa gefið út; Vor-
vindar, Vorvísur og Heiðanna ró.
Björn og Andrea á
Rósenberg á morgun
Í tilefni af
bókasafnsdeg-
inum, 17. apríl,
verður haldið Bib-
Quiz (eins og í
PubQuiz) í Nor-
ræna húsinu kl.
12 til 13. Hjalti
Rögnvaldsson
leikari stýrir
keppninni.
Spurningakeppnin fer fram á ís-
lensku og einu öðru Norðurlanda-
máli. Þátttaka er öllum opin og
skráning fer fram á staðnum.
BibQuiz haldið
í Norræna húsinu
„Í hljóðveri með John Grant og
Pétri Hallgríms,“ segir hljóð- og upp-
tökumaðurinn Aron Þór Arnarsson á
fésbókarsíðu sinni. Ar-
on upptökustýrði
glæstri endur-
komuplötu Ham og
einnig plötu Of
Monsters and Men
sem er nú að slá í gegn
á heimsvísu. Grant
kann greinilega að
velja sér sam-
starfsmenn.
Aron Arnarsson vinn-
ur með John Grant
Á miðvikudag Austan og norðaustan 5-10 og dálítil rigning eða
slydda með suðurströndinni, él N- og A-lands en annars úrkomulít-
ið. Hiti víða 0 til 5 stig yfir daginn, en vægt frost í innsveitum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 m/s. Skýjað en úrkomulít-
ið, stöku él austast en léttskýjað N-til. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast V-til,
en víða vægt frost í nótt.
VEÐUR
Júdókappinn Þormóður Árni
Jónsson virðist vera búinn
að jafna sig af hnémeiðslum
sem hann varð fyrir í Frakk-
landi í byrjun febrúar. Þor-
móður tjáði Morgunblaðinu
að hann hefði æft af fullum
krafti í tvær vikur og ætlaði
að taka þátt í EM í lok mán-
aðarins sem fram fer í
Rússlandi. Þormóður á
góða möguleika á að
komast á Ólympíu-
leikana í sumar. »1
Þormóður ætlar
að vera með á EM
Dóra María Lárusdóttir, landsliðs-
kona í knattspyrnu, hefur leikið
„sambabolta“ í Brasilíu undanfarna
tvo mánuði. „Þetta er allt annar leik-
ur en ég hef kynnst á Íslandi og í Sví-
þjóð. Það er meira lagt
uppúr skemmt-
anagildinu, og þessar
stelpur hafa greini-
lega allar leikið sér
berfættar með
bolta á strönd-
inni,“ segir Dóra
María. »4
Dóra María í bras-
ilískum sambabolta
Garðbæingar komu í gærkvöldi í veg
fyrir að Grindvíkingar sendu þá í
sumarfrí í undanúrslitum Íslands-
móts karla í körfuknattleik. Stjarnan
sigraði í þriðja leik liðanna í Grinda-
vík, 82:65, og minnkaði muninn í 2:1 í
rimmunni. Sömu lið mættust í 8-liða
úrslitum í fyrra og þá hafði Stjarnan
betur, 2:1. Næsti leikur er á fimmtu-
dagskvöld. »1-2
Garðbæingar ekki til-
búnir í sumarfríið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þegar íþróttir eru annars vegar
jafnast fátt á við góðan íshokkíleik.
Það þekkja „íshokkímömmurnar“ í
Svíþjóð, Kristín Hallbergsdóttir
Hedström og Unnur Valdís Ingv-
arsdóttir Alengård, sem hafa fylgt
strákunum sínum eftir í íshokkíi í
nær tvo áratugi og eru nú á Íslandi
vegna keppni í 2. deild heimsmeist-
aramótsins.
Fjölskyldurnar búa í Svíþjóð,
önnur í Växjö og hin í Linköping.
Landsliðsmennirnir fæddust og ól-
ust upp í Svíþjóð, umhverfið kallaði
snemma á íshokkí og það kunna
mömmurnar vel að meta. Þær eru
giftar sænskum mönnum og eru
ánægðar með að synirnir skuli
spila fyrir Íslands hönd. Þeir eru
reyndar lykilmenn í íshokkílands-
liðinu. Robin Hedström var með
þrennu í fyrsta leiknum á móti
Nýja-Sjálandi á HM og var valinn
besti maður Íslands, Emil Alen-
gård skoraði eitt og lagði upp ann-
að í fyrsta sigri Íslands á Serbíu og
var útnefndur maður leiksins og
Dennis Hedström fékk helstu við-
urkenninguna að loknum leiknum
við Eistland í fyrrakvöld.
Ekki viðræðuhæf um annað
„Ég er algjör hokkímamma,“
segir Kristín, sem flutti með for-
eldrum sínum frá Vestmannaeyjum
til Svíþjóðar þegar hún var 16 ára
og hefur búið þar síðan. Synir
hennar, Dennis markmaður og
Robin sóknarmaður, byrjuðu að
æfa þegar þeir voru sex ára. „Ég
kynntist íshokkíi fyrst þegar Denn-
is byrjaði í skóla og síðan fylgdi ég
strákunum á æfingar og í leiki um
árabil – og geri enn,“ segir hún.
„Vinkonur mínar, sem ekki eiga
stráka í íshokkíi, skilja þetta ekki
en þegar það er leikur er ég ekki
viðræðuhæf um annað.“ Kristín
segir að strákarnir hafi verið góðir
í ýmsum íþróttum eins og fótbolta
og tennis, en frá unglingsárunum
hafi þeir einbeitt sér að íshokkíinu.
Auðvelt hafi verið að fylgjast með
þeim í Växjö, en þegar leiðir hafi
skilið hafi hún reynt að skipta tíma
sínum sem jafnast á milli þeirra.
„Netið kemur í góðar þarfir þegar
maður kemst ekki á leiki,“ segir
hún.
Það þykir mikill heiður að kom-
ast í landslið og Kristín er stolt af
strákunum. Hún hefur fylgst með
landsliðinu í æfingabúðum í Svíþjóð
og Danmörku en sér nú landsliðið
fyrst leika í keppni. „Þetta er ynd-
islegt og við gátum líka notað Ís-
landsferðina til þess að fara í ferm-
ingu hjá bróðurdóttur minni. Ég er
mjög stolt mamma, bæði af strák-
unum og dótturinni sem er tvítug
og í dansi auk þess að vera í fjar-
námi í hjúkrun.“
Úr handbolta í íshokkí
Unnur hefur búið í Svíþjóð í um
30 ár, en átti áður heima í Reykja-
vík og spilaði handbolta með Val.
Hún á fjóra syni og eru þrír þeirra
á fullu í íþróttum, þar á meðal
landsliðsmaðurinn og sóknarmað-
urinn Emil Alengård. Hún segir að
eiginmaðurinn hafi smitað sig af ís-
hokkí-bakteríunni og hún hafi alla
tíð horft mikið á íshokkí í sjónvarpi
en áhuginn hafi aukist til muna
þegar Emil hafi bundið á sig skaut-
ana. „Hann var fjölhæfur, eiginlega
í öllum íþróttum, en síðan féll hann
algjörlega fyrir hokkíinu og ég hef
fylgt honum í leiknum síðan.“
Emil vakti fyrst athygli með
unglingaliði Linköping og varð Sví-
þjóðarmeistari. Unnur segir að for-
eldrarnir hafi staðið þétt við bakið
á strákunum. „Þetta var mjög gam-
an. Við héldum vel hópinn, hjálp-
uðumst að og það var ekkert mál
að vakna klukkan fimm á morgn-
ana til að skutlast landsenda á milli
í leiki.“
Mömmurnar lifa sig inn í leikinn
hverju sinni, hrópa og kalla. „Hinir
synirnir vilja helst ekki sitja við
hliðina á mér á leikjum,“ segir
Unnur og áréttar mikilvægi íþrótt-
arinnar. „Það þarf bara að auka út-
breiðsluna enn frekar hérna.“
Elta synina um víðan völl
Íshokkímömm-
ur frá Svíþjóð
á HM á Íslandi
Morgunblaðið/Golli
Kynni Kristín Hallbergsdóttir Hedström og Unnur Valdís Ingvarsdóttir Alengård í Skautahöllinni í Laugardal.