Morgunblaðið - 29.06.2012, Síða 10

Morgunblaðið - 29.06.2012, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2012 María Ólafsdóttir maria@mbl.is Þ að er nóg að gera hjá söngkonunni Agnesi Þor- steins þegar blaðamaður slær á þráðinn til hennar, en Agnes er í hópi nem- enda við tónlistarháskólann í Vín sem taka þátt í uppfærslu á Brúðkaupi Fígarós nú í sumar. Hún fer með hlut- verk Marcellinu í óperunni og verður stutt hlé á viðtalinu þegar Agnes er kölluð inn á svið til að syngja. Lítil eins og Reykjavík „Nú eru æfingar hjá okkur á hverjum degi og því nóg að gera. Í sýningunni taka eingöngu þátt nem- endur úr skólanum og erum við á aldr- inum 19-25 ára. Þar af eru þrír eða fjórir úr fyrsta árgangi, tveir úr öðr- um og restin síðan úr fjórða sem er að klára námið núna. Hópurinn fer vel saman og gott að fá ferskleikann frá okkur yngri og reynsluna frá þeim eldri. Ég hafði planað að fara heim í sumar en þegar mér bauðst þetta tækifæri var ekki um annað að ræða en að segja já,“ segir Agnes sem var ein níu nemenda af 180 sem teknir voru inn í skólann síðastliðið haust, en hún var valin í A-hóp sýningarinnar sem bæði syngur á frumsýningunni þann 12. júlí og á lokasýningu þann 22. júlí Hefur Agnes nú dvalið tvö ár í Vínarborg, þar af fyrsta árið sem gestanemenadi, og segist hún kunna vel við borgina. „Í fyrstu þegar maður lítur á borgina á korti sýnist manni hún vera stórborg á við New York. En þegar maður fer að ganga um borgina er þetta í raun lítið svæði og dálítið eins og Reykjavík. Hér er gott að vera og allt iðandi af söng og menningu enda er sagt að maður eigi að koma hingað stefni maður virkilega á söng,“ segir Agnes. Byrjaði í gestanámi Agnes er komin af tónelsku fólki, meðal annars Agnesi Löve, píanóleik- ara, sem er amma hennar og nafna. Agnes hóf söngnám í Garðabænum 13 ára gömul og hefur nú sungið í nærri áratug. „Ég man alltaf eftir því þegar ég var að hefja söngnámið og Jón Svavar Jósefsson var að útskrifast úr söngskólanum mínum. Þá sagði hann mér að hann væri að fara til Vínar og þá hugsaði ég strax að þangað vildi ég fara. Síðan gleymdist það en svo kynntist ég austurrískum tenór sem hefur unnið mikið á Íslandi í söng- skólum og hann vildi senda mig út Maria Callas er átrúnaðargoðið Í Vínarborg býr íslenski söngneminn Agnes Þorsteins sem tekur þátt í sérstakri nemendauppsetningu á Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart þar í borg í sumar. Agnes stundar nám við tónlistarháskólann í Vín og var tekin inn í skólann síðastliðið haust ásamt níu öðrum úr hópi 180 umsækjenda. Agnes kann vel við sig í borginni og þykir skemmtilegast að syngja barokkaríur. Marcellina Búningurinn hennar Agnesar er enn í mótun. Tónlist skipar stóran sess í lífi margra og sumir geta einfaldlega ekki komist í gegnum daginn án þess að hlusta á uppáhaldslagið sitt. Sum tónlist hentar betur en önnur við ým- is tækifæri og getur verið erfitt að finna fullkomna tónlist, til dæmis til að hafa með sér í ræktina. Tónlist getur verið hvetjandi þegar taka skal á því og eins getur hún hjálpað fólki að slaka á, til dæmis við jógaæfingar. Til að finna viðeigandi lög fyrir hin ýmsu tilefni er sniðugt að fara inn á síðuna Stereomood.com. Þar er hægt að slá inn eða smella á þá athöfn eða tilfinningu sem tónlistin á að passa við. Þá birtist lagalisti sem hægt er að hlusta á eins og í útvarpi með lög- um sem eiga fullkomlega við tilefnið. Til dæmis má finna lagið At Last í flutningi Etta James á lagalista sem hentar vel fyrir þá sem vilja hlusta á tónlist meðan setið er á klósettinu. Vefsíðan www.stereomood.com AFP Plötusnúður Stereomood er einskonar einkaplötusnúður fyrir öll tilefni. Í hvernig tónlistarskapi ert þú? Maður verður aldrei of gamall til að leika sér. Eða ætti að minnsta kosti ekki að verða það. Varðveittu barnið í þér og rifjaðu upp skemmtilega úti- leiki sem þú fórst í með vinunum í æsku. Píluleikur er t.d. skemmtilegur fyrir alla aldurshópa. Hann felur í sér að þræða sig áfram eftir leiðbein- ingum sem krítaðar hafa verið á gangstéttina og ýmsar þrautir þarf einnig að leysa. Svo er líka hægt að hafa þetta einfalt og skjótast bara aðeins út í brennó eða snúsnú. Nú eða sýna listir sínar í körfu- eða fót- boltaleik. Verum glöð og njótum skemmtilegrar útiveru. Endilega … … farið í útileiki í góða veðrinu Morgunblaðið/Ernir Krít Gaman er að vera úti og leika sér. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Ég er heppin að því leytinutil að vera tiltölulegaheilsuhraust. Engir sjúk-dómar hrjá mig, ég er með öllu laus við ofnæmi og ég hef hvorki fengið kóleru né ebólaveiru. En mig hrjáir engu að síður hvim- leitt vandamál sem hefur valdið mér svo miklum kvölum og vandræðum í gegnum tíðina að auðveldlega mætti líkja við sjúkdóm. Ég þjáist af ár- áttukenndu kæruleysi. Hliðarverk- anir þessa vandamáls eru gleymska, sveimhygli og athyglisbrestur. Allir sem nokkurn tímann hafa haft kynni af mér þekkja þetta sem mitt stærsta sérkenni. Ég týni öllu sem ekki er hlekkjað við mig, hendi reglulega farsímanum í ruslið og set húslyklana í frystinn. Þetta geri ég án þess að svo mikið sem leiða hug- ann að því í sekúndubrot, því það virðist vera svo ótalmargt annað sem tefur hugann hverju sinni. Þetta vandamál hefur komið mér í klandur oftar en ég hef tölu á. Til dæmis láðist mér að taka með mér vegabréfið í ferð til Bandaríkjanna á dögunum, ég týndi veskinu mínu á fyrsta degi 5 daga hringferðar um landið og tók tvær sterkar svefnpillur í stað c-vítamíns um dag- inn. Tjónið sem ég hef orðið fyrir út af gleymsk- unni í gegnum árin hlýt- ur að hlaupa á millj- ónum. Farsímar, lyklar, skartgripir, fatnaður, ipodar og veski hafa öll horfið í eitthvert dul- arfullt svarthol. Með reynslunni hef ég þó lært að taka þessu óþolandi persónueinkenni með auðmýkt og lít svo á að ég sé með þessu að greiða mína tíund til samfélagsins, og sé fyrir mér að einhver heimilisleysingi hafi getað lífgað upp á hversdaginn með tónum úr ipodinum eða þá að einhver gullsmiður hafi getað brætt alla 300 lyklana og 60 hálsmenin í einhvern guðdómlegan gullskúlptúr. Leiðinlegri hlið vandamálsins er hversu hrikalega gleymskan hefur reynt á þolrif vina minna og fjölskyldu, en þar er sam- ankomið þolinmóðasta fólk Norðurlandanna og þótt víð- ar væri leitað. Mér finnst ég einstaklega heppin að hafa verið úthlutað svo um- burðarlyndri fjölskyldu og þolinmóðum vinum, þótt ég sverji að ein- hvern daginn, þegar ég verð fullorðin í fjarlægri framtíð, takist mér að ráða bug á þessum meiri- háttar vanda. »Farsímar, lyklar,skartgripir, ipodar og veski hafa öll horfið í eitt- hvert dularfullt svarthol Heimur Guðrúnar Sóleyjar Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is falleg minning á fingur www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind PI PA R\ TB W A • SÍ A • 12 16 6 6 Giftingarhringar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.