Morgunblaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2012
✝ Sveinn MikaelÁrnason fædd-
ist í Reykjavík 23.
janúar 1952. Hann
andaðist á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi
24. júní 2012.
Foreldrar: Árni
Rafn Kristbjörns-
son, f. 11. ágúst
1920, d. 27. júlí
1990, og Guðrún
Sveinsdóttir, f. 29. mars 1923.
Maki síðan 6. júlí 1974: María
Gréta Guðjónsdóttir, f. 3. febr-
úar 1955. Foreldrar hennar:
Guðjón Guðnason, f. 2. sept-
ember 1930, d. 10. maí 2005, og
Steinunn Gunnlaugsdóttir, f. 27.
júní 1933. Börn Sveins og Maríu
eru: 1) Guðrún Halla Sveins-
dóttir, f. 10. desember 1976.
Maki hennar er Sturla Hall-
dórsson, f. 25. júní 1978, og eiga
þau tvær dætur, Ásgerði og
Gunnhildi. 2) Guðjón Már
Sveinsson, f. 19. mars 1982. Eig-
inkona hans er Hulda Hrafn-
kelsdóttir, f. 15. desember 1983.
3) Arna Gréta Sveinsdóttir, f.
31. mars 1990.
Sveinn og María hófu búskap
árið 1974 í Hlíð-
unum en frá árinu
1980 hafa þau búið
í Kópavoginum,
fyrst í Engihjalla
17, en þar bjuggu
þau frá árinu 1980
til ársins 1992 þeg-
ar þau fluttu í Lin-
dasmára 46. Sveinn
varð stúdent frá
MH árið 1972 og
hóf þá um haustið
nám í íslenskum fræðum og
sagnfræði við Háskóla Íslands.
Hann lauk BA-námi 1977 og síð-
ar námi í uppeldis- og kennslu-
fræði. Samhliða námi kenndi
hann í framhaldsdeild Lind-
argötuskóla og í Menntskól-
anum við Tjörnina, síðar
Menntaskólanum við Sund, en
þar kenndi hann þar til hann
veiktist í byrjun febrúar 2010.
Sveinn var áhugamaður um
íþróttir og eftir að fjölskyldan
fluttist í Kópavoginn varð hann
stuðningsmaður Breiðabliks og
sinnti ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir félagið um árabil.
Útför Sveins fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 29. júní
2012, kl. 13.
Það er alltaf undarleg tilfinn-
ing þegar manneskja sem maður
hefur þekkt næstum svo lengi
sem maður man hverfur á braut.
Þegar undirritaður flutti í Hlíð-
arnar bara átta ára, var Sveinn
einn af stóru strákunum í hverf-
inu sem við pjakkarnir litum upp
til og vildum líkjast. Svo liðu árin
og við þekktumst alltaf en kynnt-
umst upp á nýtt þegar sauma-
klúbbur konunnar minnar reynd-
ist vera allt saman gamlar
skólasystur úr Hlíðaskóla og ein
af þeim María sem hafði þá yf-
irtekið kjallarameistarann í
Norðurkjallaranum í MH, hann
Svein.
Það var alltaf gott að hitta
Svein, hann var alltaf glaður og
hress og þannig var hann fram að
því síðasta. Ég hef aldrei hitt
neinn sem hefur tekið örlögum
sínum og því að fá erfiðan og and-
styggilegan sjúkdóm af meiri yf-
irvegun og æðruleysi. Það er svo
undarlegt að hér fyrr á árum
hafði Sveinn oft áhyggjur af heils-
unni, kvefi og allskonar pestum
og talaði gjarnan um þetta með
áhyggjusvip, en þegar þessi stóri
og ólæknandi sjúkdómur hafði
hafið göngu sína, sýndi hann ekk-
ert nema æðruleysi og yfirvegun.
Þetta lýsir Sveini vel, hann átti
það til að vera dyntóttur og taka í
sig hluti sem enginn skildi al-
mennilega, en alltaf þegar á
reyndi og þegar hlutir eða at-
burðir voru alvarlegir stóð hann
eins og klettur og gaf sig hvergi.
Hann sýndi vinum sínum um-
hyggju þegar eitthvað var að og
reyndist mér og mínum eins góð-
ur vinur og hægt er að hugsa sér.
Það er því með söknuði að við
kveðjum hann núna, allt of
snemma, en minningin um góðan
vin og félaga hverfur aldrei.
Með innilegustu samúðar-
kveðjum til Maríu og allrar fjöl-
skyldunnar.
Júlíus K. Björnsson.
„Samvisku ei særðu/sannleikann
virtu/og kom til góðs sem máttu
mest.“ (G.G.)
Ofangreind orð finnst mér hafa
einkennt vin minn Svein Árnason
menntaskólakennara, sem nú er
látinn langt um aldur fram. Vin-
skapur okkar hófst veturinn 1979
er við vorum að vinna fyrir okkar
fyrstu íbúðum í Engihjalla 17.
Það var gaman að tala við hann,
hann var víðlesinn íslenskufræð-
ingur; jákvæðnin og hláturinn
voru aldrei langt undan.
Á haustmánuðum 1988 fór ég í
heimsókn til hans á þriðju hæðina
í þeim erindagjörðum að fá hann
til starfa sem annar umsjónar-
maður og fulltrúi foreldra í ung-
linganefnd knattspyrnudeildar
Breiðabliks, en strákarnir okkar
voru þá að stíga þar sín fyrstu
spor. Auðvitað gleymdist að segja
honum hvað fólst í starfinu, m.a.
eilífar fundarsetur, mætingar á
nánast allar æfingar, innheimta
félagsgjalda, skipulagning móta,
þvottur á keppnisfatnaði, útburð-
ur blaðaefnis, og aðrar fjáraflanir
til þess að standa undir ferða-
kostnaði og mótsgjöldum. Sam-
starfið í unglinganefndinni gekk
frábærlega, Sveinn ávann sér
fljótlega virðingu annarra nefnd-
armanna.
Sveinn var fenginn til starfa í
fleiri nefndum á vegum félagsins
og svo var hann einn af forseta-
klíkunni svonefndri sem stofnaði
Stuðblikana, stuðningsklúbb
knattspyrnudeildar. Árið 2001
veitti aðalstjórn Breiðabliks hon-
um viðurkenningu fyrir dugnað
og ósérhlífni við félagsstörf.
Það var mikið lán að fá Svein til
starfa fyrir knattspyrnudeildina,
það fundu félagsmenn, foreldrar
og iðkendur. Í honum sló hlýtt og
mjúkt hjarta með ríka réttlætis-
kennd. Hann var traustur, heið-
arlegur og reiðubúinn til að
hjálpa.
Síðustu mánuði átti Sveinn við
mjög erfið veikindi að stríða. Í
heimsóknum til hans ræddi hann
yfirvegað um sjúkdóminn og lífs-
möguleika sína. Hann sýndi mik-
ið æðruleysi og sagði frá hve
þakklátur hann væri fyrir ástúð
og ummönnun sem María eigin-
kona hans og fjölskyldan öll veitti
honum á þessum erfiðustu tímum
hans.
Það eru margir árgangarnir af
iðkendum innan knattspyrnu-
deildar og félagsmenn sem nú
hugsa hlýtt til hans og fjölskyld-
unnar, Sveinn skilur eftir sig góð-
ar minningar í hjörtum þeirra
sem voru honum samferða.
Ég kveð þig vinur
klökkur í lund með
þökk fyrir góða samferð.
Ég vona og bið þess
á bænarstund,
þín bíði guðdómleg heimferð.
(P.G.H.)
Maríu og fjölskyldu Sveins eru
sendar innilegustu samúðar-
kveðjur. Megi algóður guð
styrkja ykkur á þessum erfiðu
tímum.
Hvíl í friði, kæri vinur.
Sveinbjörn F. Strandberg.
Kynni mín af Sveini hófust um
mitt sumar 1976. Þá vorum við
saman með konum okkar í
saumaklúbbsútilegu í Skorradal.
Ég var nýr í þessum stóra og
glaðværa hópi og sjálfsagt dálítið
eins og utan við til að byrja með.
Þá man ég að Sveinn vék sér að
mér í miðjum klíðum, sagðist
kunna á mér nokkur deili og á
honum að skilja að hann vildi vita
meir. Forvitnin var gagnkvæm
og hófst með því vinátta sem ekki
bar skugga á síðan.
Við vorum um margt samstiga,
báðir kennarar og áttum þar fyrir
utan lík áhugamál sem með tíð og
tíma fóru þó æ meir að hverfast
um börnin og svo barnabörnin.
Veiðiferðir á æskuslóðir móður
hans norður í Tjörn á Skaga
hverfa mér aldrei úr minni. Þegar
ég kom þangað alveg ókunnugur
kynnti hann mig fyrir sínu fólki
og umhverfinu þannig að mér leið
eins og ég væri meira en velkom-
inn. Pabbi hans átti þar stóran
hlut að máli og svo móðurfólkið.
Hjá þessu fólki öllu var blíða og
vinahót, lítillæti og hvergi remb-
ingur. Ætli eftirminnilegasta
ferðin hafi ekki verið sú sem við
höfðum sinn frumburðinn hvor
með í farteskinu. Þá var líka fjör.
Tíðir búferlaflutningar ein-
kenndu fjölskyldulíf ungs fólks á
þessum tíma sem endranær. Þá
var gott að eiga vini með hjálpfús-
ar hendur. Burðarmenn, smiðir,
saumakonur, múrarar, rafvirkj-
ar, málarar; við vorum þetta öll
saman að vissu marki. Á engan er
hallað þó einstakt framlag Sveins
sé tíundað. Það var ekki bara það
að hann væri alltaf mættur fyrst-
ur á vettvang og færi síðastur
heldur kom hann gjarnan dagana
á eftir til að aðgæta hvort ekki
þyrfti meira við. Hjálpfýsi hans
og greiðvikni var viðbrugðið.
Árin liðu og við komumst á
miðjan aldur og rúmlega það. Því
fylgdi jafnframt að náðugum dög-
um fjölgaði. Þá var það einn góð-
an veðurdag að eiginkonum okk-
ar þótti nóg um hóglífið og drifu
saumaklúbbskarla sína í menn-
ingar- og fræðsluferðir til útlanda
hverja á fætur annarri. Í þessum
ferðum var Sveinn hrókur alls
fagnaðar. Og virtist engu skipta
þó hann gengi ekki heill til skógar
í þeirri síðustu. Þá sem endranær
sparaði hann sig hvergi, heldur
útdeildi af rausnarskap kátínu og
gleði í vinahópnum.
Sveinn var íslenskufræðingur
að mennt, hafði kennslu að ævi-
starfi og starfaði sleitulaust í rúm
37 ár. Segja má að þrjár kynslóðir
framhaldsskólanema hafi notið
leiðsagnar hans um gróðursprota
íslenskrar tungu og menningar.
Góðu heilli. Sem vinur og starfs-
bróðir naut ég þekkingar hans og
reynslu og ófá þáði ég hjá honum
hollráðin þegar kom að kennslu-
málum. Þó kenndi hann mér hvað
mest og best þegar nær dró lok-
um og minna rætt um fræðin. Má
vera að mesti sársaukinn hafi
verið afstaðinn, eða þá að hann
var beislaður mjúklega í hlýju og
glaðværð heimilis hans, þegar
hann hispurslaust og án mála-
lenginga greindi mér frá veikind-
um sínum. Ég mátti þá skilja að
hann mundi ganga sinn veg glað-
ur í bragði hér eftir sem hingað
til. Það gekk eftir. Megi minning-
in um góðan dreng lifa.
Innilegar kveðjur og þakkir
frá okkur á Akranesi.
Leó Jóhannesson.
Það er með sorg í hjarta sem
við kveðjum í dag kæran vin,
Svein M. Árnason, sem fallinn er
frá, langt um aldur fram, eftir
harða baráttu við óvæginn sjúk-
dóm. Baráttu sem aðeins gat
lyktað á einn veg. Hann varðist af
karlmennsku og hreysti en allt
kom fyrir ekki. Örlögum sínum
mætti Sveinn með æðruleysi og
hugprýði eins og hans var von og
vísa.
Leiðir okkar lágu saman á
menntaskólaárunum í Hamra-
hlíðinni. Á þeim tíma voru þau
Sveinn og María að kynnast og
tókst fljótt með okkur góð vinátta
þótt ólík værum. Eftir stúdents-
próf fluttum við til Danmerkur.
Það voru miklar gleðistundir þeg-
ar við komum heim í fríum og
hittum þau aftur, fyrst í Skafta-
hlíðinni og síðan á Víðimelnum,
og þegar þau heimsóttu okkur.
Þá var löngum setið við fram und-
ir morgun, hlustað á góða tónlist
og lífsgátan leyst. Eftir að við
fluttum aftur heim og fjölskyld-
urnar stækkuðu voru samveru-
stundirnar margar, bæði heima
og heiman. Börnin okkar urðu
góðir vinir og í mörg ár nutu fjöl-
skyldurnar áramótanna saman.
Það voru einstaklega ánægjuleg-
ar stundir. Það skiptust á skin og
skúrir og upplifðum við mikla
sorg þegar Árni faðir Sveins varð
bráðkvaddur við laxveiðar með
okkur í Soginu.
Eins og oft gerist í lífinu þá
minnkuðu samskiptin með árun-
um og það fennti í sporin um
stund. Okkur er það mikils virði
að hafa átt með Sveini og Maríu
ljúfar samverustundir meðan á
hörðum veikindum hans stóð og
upplifa aftur gamla og einlæga
vináttu. Vináttu sem hafði staðið
áratugum saman og ekki borið
skugga á. Vináttu sem er okkur
öllum mjög dýrmæt og kær. Það
fundum við glöggt þegar við
kvöddum hann á líknardeildinni.
Sveinn kenndi íslensku við
Menntaskólann við Sund. Hann
var mjög farsæll í starfi og ein-
staklega vel liðinn af bæði sam-
kennurum og nemendum. Sveinn
var vinur vina sinna og sérlega
greiðvikinn. Traustur og áreiðan-
legur eins og hann átti kyn til.
Róttækur var hann í þjóðmálum
en mildaðist með árunum eins og
flestir gera, sama á hvorum kant-
inum þeir eru. Sveinn hafði til að
bera sterka réttlætiskennd og
bar farsæld annarra fyrir brjósti.
Hann var einnig mjög lánsamur í
einkalífi sínu. Góður eiginmaður,
faðir og mikill fjölskyldumaður.
Á kveðjustundu skortir alla
orð og margs er að minnast. Um
hugann flæðir hafsjór dýrmætra
minninga um kæran vin sem nú
er allur. Megi hann hvíla í guðs
friði. Að leiðarlokum er okkur
efst í huga þakklæti fyrir einlæga
vináttu og allar góðu stundirnar
sem við áttum saman.
Við og börnin okkar, Sessý og
Magnús, vottum Maríu og börn-
um þeirra Sveins, Guðrúnu Höllu,
Guðjóni og Örnu Grétu, mökum
þeirra og börnum, Guðrúnu móð-
ur Sveins og Steinunni tengda-
móður innilega samúð okkar.
Minningin um góðan dreng og
kæran vin lifir með okkur.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson)
Sigurður og Dröfn.
Sveinn Árnason var góður fé-
lagi, hreinn og beinn. Sálarflækj-
ur þvældust ekki fyrir honum né
hirðsiðir á mannamótum. Hann
var bara alltaf hann sjálfur, eins
og hann átti að sér að vera, og
vildi ekkert vesen með sig. Hann
hefði t.d. ekki gefið mikið fyrir
þessa minningargrein. Þannig
var eðli hans og upplag og þannig
var hann líka upp alinn hjá því al-
þýðufólki sem að honum stóð.
Það var bjart yfir Sveini, ekki
bara svipurinn, hárafarið og aug-
un, heldur var allt fas hans glað-
legt og jafnan farin stysta leið í
boðskiptum; engar málalenging-
ar. Og svo hló gjarnan við.
Það fór Sveini vel að kenna
ungu fólki. Hann naut sín innan
um ungmennin, var forvitinn um
fólk og aflaði sér strax vinsælda í
starfi, bæði meðal nemenda og
kennara, og naut þeirra meðan
hann gat sinnt kennslunni.
Fundum okkar bar fyrst sam-
an haustið 1973. Við urðum sam-
ferða í námi og jafnframt ná-
grannar í Hlíðunum það haustið
svo að bið eftir strætó og seta í
fyrirlestrum leiddi okkur saman.
Vinátta og samvera okkar var
mikil á námsárunum í háskóla, en
svo fór að strjálast um samfundi
eins og verða vill. Við töluðum þó
saman í síma öðru hvoru alveg
fram undir það síðasta og aldrei
brá hann vana sínum; jafnan
hressilegur og vafningalaus þótt
grimm örlögin blöstu við í veik-
indum hans síðustu mánuði.
Sveinn bognaði aldrei. Það var
honum líkt.
Fyrir tilverknað Sveins Árna-
sonar komst ég fyrst í kynni við
Alþingi og skrifstofu þess. Hon-
um var boðið starf við lestur á
þingræðum og skjölum undir árs-
lok 1973, en vildi ekki þiggja og
benti á mig. Þótt næg verkefni
væru í skólanum gat starfið
bjargað fjárhag mínum naumum
og forðað mér frá námslánum,
svo ég sló til. Þannig hófust þau
kynni sem drógu langan slóða síð-
ar meir. Þetta vinarbragð fannst
mér eins og endurgoldið þegar
kona Sveins, María Gréta, kom til
starfa við útgáfu á ræðum og
skjölum Alþingis 1985. Hún kom
fyrst til að bjarga málum en var
síðan fastráðin við lestur og síðar
ritstjórn sem hún sinnir nú af ein-
stæðum dugnaði og verkfærni.
Þau áttu farsælt hjónaband,
Sveinn og María, byrjuðu ung að
vera saman, og voru samrýnd.
Ekki spillti að Sveinn var „hús-
legur“. Margar góðar minningar
eigum við saman frá námsárun-
um, gegnum BA-próf, í málvís-
indum og á kandídats-stigi í ís-
lensku. Sveinn hvarf þó úr skóla á
lokaspretti í framhaldsnámi því
að þá hafði hann tryggt sér fast
starf til frambúðar við kennslu í
menntaskóla og hann mat meira
að forsorga sitt heimili en próf-
gráður.
Það er hart að sjá á eftir svo
góðum dreng á besta aldri, en
hrammur krabbans getur verið
þungur ef hann hittir viðkvæma
staði mannsins, eins og höfuðið.
En seint munu fyrnast okkar
kynni og sú bjarta minning sem
Sveinn Árnason skilur eftir sig.
Björt og skær eins og hann var
sjálfur.
Helgi Bernódusson.
Sérðu það sem ég sé? Það sem
við sáum fyrir rúmlega fjörutíu
árum og okkur þóttu tíðindi, var
að við komum auga á vinkonu
okkar Maríu og Svein kjallara-
meistara Norðurkjallarans hönd
í hönd fyrir utan MH. Um svipað
leyti töldum við vinkonurnar rétt
að rækta áhuga okkar á hannyrð-
um og góðu bakkelsi og stofnuð-
um saumaklúbb. Frá þeim tíma
var Sveinn órjúfanlegur hluti af
okkar tilveru. Sveinn og María
voru þau fyrstu af vinahópnum
sem hófu búskap og eignuðust
fyrsta saumaklúbbsbarnið.
Heimili þeirra varð miðstöð fyrir
okkur sem ekki vorum komin á
sama stað í lífinu. Einhvern veg-
inn virtust þau vita betur en við
hin strax frá upphafi hvert þau
vildu stefna.
Sveinn hafði næmt auga fyrir
litlu spaugilegu hlutunum í fari
fólks og var eftirherma af guðs
náð, án þess þó að vera niðrandi.
Hann hafði sterka nærveru og
lag á að skapa stemningu og
brydda upp á áhugaverðum sam-
ræðum. Skoðanir sínar á mönn-
um og málefnum sem ekki fóru
endilega alltaf saman við okkar,
fór hann ekki leynt með og hvik-
aði ekki frá. Þennan eiginleika
kunnum við alltaf betur og betur
að meta eftir því sem við urðum
eldri og öðluðumst skilning á því
hversu ómetanlegt það er að eiga
litríka vini. Sveinn var hjálpsam-
ur með eindæmum. Hann málaði
með okkur íbúðir og hjálpaði
okkur að flytja og kortlagði á
meðan venjur, útlit og einkenni
þeirra sem bjuggu í nágrenninu.
Eftir því sem saumaklúbbur-
inn eltist og þroskaðist urðu eig-
inmennirnir virkari meðlimir
hópsins. Ákveðið var að leggjast í
ferðalög og í fyrstu ferðinni
stofnuðu þeir deild innan sauma-
klúbbsins, Svejkdrengina. Ferð-
irnar voru hver annarri skemmti-
legri og var það ekki síst Sveini
að þakka sem skipulagði
skemmtiatriði og uppákomur. Í
þessum ferðum voru vináttu-
böndin treyst og í framhaldi af
því fjölgaði samverustundunum
hér heima líka.
Í fyrstu ferðinni líkti hann
okkur við útrásarvíkinga, 7GG
(sjö geðgóðar gellur)-group, fékk
okkur öllum hlutverk og samdi
lýsingar í Íslendingasagnastíl
sem hæfðu hverjum og einum.
Sjálfum sér lýsti hann sem hirð-
fífli og textaskýranda, með
nokkra kunnáttu í knattleikjum,
hokrandi að konu sinni í Kópa-
vogi, nafla alheimsins. Ennfrem-
ur sagði hann: „Talinn matvand-
ur með afbrigðum. Er í árlegu
kjöri af lausamönnum sínum
gjarnan talinn fremstur meðal
jafningja.“ Sveinn lét sig hafa
það að koma með okkur út að
borða, tilkynnti samt alltaf að
hann borðaði ekki eftirrétti og
eftirminnileg eru orð hans sem
hljómuðu hátt og skýrt þegar við
borðuðum á einum af betri stöð-
um borgarinnar: „Mér finnst nú
lambalærið hjá mömmu miklu
betra en þetta.“
Hann ræktaði vini sína, ör-
stutt símtal, oftar en ekki um fót-
boltaleiki dagsins, litið við til að
drekka einn kaffibolla, stutt sam-
verustund, skemmtilegt spjall og
svo var hann rokinn. Ekki staldr-
að við of lengi.
Hópurinn okkar verður aldrei
samur eftir fráfall Sveins, við
hefðum svo viljað njóta fé-
lagsskapar hans lengur. Skarð
hans verður ekki fyllt, en við er-
um þakklát fyrir að hafa átt hann
að vini.
Blessuð sé minning vinar okk-
ar Sveins M. Árnasonar.
Elín, Guðlaug, Inga,
Margrét, Soffía og Sólveig.
Til eru staðir sem ég minnist
allt mitt líf, þótt sumt sé breytt
um alla framtíð til hins verra
einn er horfinn en annar geymst
(Lennon & McCartney þýð. HTS)
Við kynntumst Sveini, föður
bestu vinkonu okkar, á heimili
þeirra í Lindasmára fyrir um
tveimur áratugum. Sveinn var
eldklár karl og oft glettinn við
okkur yngri mennina. Hann
Sveinn Mikael
Árnason
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HULDA ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Jaðri, Ólafsvík,
miðvikudaginn 27. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kristjana Huldudóttir, Pétur Bogason,
Sigurður Kristján Höskuldsson, Guðmunda Wium,
Magnús Höskuldsson, Sæunn Jeremíasdóttir,
Valur Höskuldsson, Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir,
Grétar Höskuldsson, Olga Sædís Aðalsteinsdóttir,
Bára Höskuldsdóttir, Pétur Sigurðsson,
Erla Höskuldsdóttir, Sveinbjörn Benediktsson,
barnabörn og barnabarnabörn.