Morgunblaðið - 29.06.2012, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 29.06.2012, Qupperneq 17
SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Nýtt hótel, Fosshótel Vestfirðir, verður tekið í notkun á Patreksfirði næsta sumar. Það verður til húsa í gömlu sláturhúsi í bænum, sem upp- haflega var reist sem frystihús á fimmta áratug tuttugustu aldar. Eig- andi hússins er Oddi hf., helsta sjáv- arútvegsfyrirtækið á Patreksfirði. Á kynningarfundi í gær voru undirrit- aðir samningar um fjármögnun verk- efnisins í gær af fulltrúum Odda hf., Fosshótels og Landsbankans, en heildarfjárfesting vegna kaupa á fast- eigninni og við breytingar á henni er áætluð á bilinu 350-400 milljónir króna. Þá var einnig undirritaður leigusamningur um rekstur hótelsins til 25 ára á milli Odda hf. og Fosshót- els. Hótelið verður þriggja stjörnu hótel, og verða öll 41 herbergi þess með eigin baðherbergi, auk þess sem veitingarekstur verður á staðnum. Gríðarlega mikil lyftistöng Einar Kristinn Jónsson, stjórnar- formaður Odda hf. segir að fyrirtækið hafi átt húsið í dálítinn tíma en lítil sem engin starfsemi hafi verið í því um hríð. Þá hafi sú hugmynd komið upp að hafa hótelrekstur í húsinu: „Við vorum svo lánsamir að hitta for- svarsmenn Fosshótela sem leist vel á þessa hugmynd, og þannig þróaðist þetta samstarf áfram.“ Einar Kristinn er feginn að húsið verði nú gert upp og verði ekki í nið- urníðslu sem annars hefði beðið þess. Áformin hafa þegar haft góð áhrif á bæjarlífið á Patreksfirði samkvæmt Einari: „Þetta verður gríðarlega mik- il lyftistöng og maður finnur hvað andinn í bænum hefur þegar breyst mikið við þetta.“ Einar Kristinn segir að nú verði t.d. hægt að skipuleggja hringferðir um Vestfirði, sem ekki var hægt áður vegna skorts á hóteli á svæðinu. Davíð Torfi Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Fosshótels, segir að verkefnið hafi verið um tvö ár í und- irbúningi og fagnar því að fram- kvæmdir við hótelið séu nú hafnar. Fosshótel hafi strax náð góðu sam- starfi við Odda hf. og allt hafi smollið saman. Davíð Torfi segir að um sum- artímann verði frá 15 og upp í 20 manns sem starfi á hótelinu, en að skert starfsemi verði á veturna í sam- vinnu við heimamenn. Nýtt andlit á Patreksfjörð  Framkvæmdir hafnar við nýtt hótel á Patreksfirði  Húsið áður frystihús og síðan sláturhús  Gert ráð fyrir fimmtán störfum yfir sumartímann  Hótelið verður tekið í notkun á næsta ári Tölvumynd/Gunnlaugur Björn Jónsson Nýtt hótel Svona mun hótelið koma til með að líta út samkvæmt uppdráttum, en áætlað er að það verði tekið til notkunar á næsta ári. Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson Gamalt sláturhús Svona lítur húsið út í dag, en það hefur sinnt ýmsum hlutverkum á Patreksfirði í gegnum tíðina. FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2012 Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur LEGUR Í BÍLA OG TÆKI www.falkinn.is Það borgar sig að nota það besta! th or ri@ 12 og 3. is /3 1. 31 3 TRAUSTAR VÖRUR ...sem þola álagiðKúlu- ogrúllulegur Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir að hótelframkvæmdin sé bara einn þáttur í þeirri uppbyggingu sem hefur verið í sveitarfélaginu: „Það er mikið að gerast þessa dagana í Vesturbyggð og á sunnanverðum Vestfjörðum og við fögnum því að það sé að koma hótel hingað. Þetta er mikilvægt fyrir ferðaþjónustuna hérna, og þýðir í raun að hún er að slíta barnsskónum og er að komast á unglings- árin.“ Íbúar í Vesturbyggð eru nú um 930 manns, en Ást- hildur vonast til þess að íbúarnir verði yfir þúsund manns á næstu árum. Hótelið muni hjálpa þar til þar sem það muni skapa meiri fjölbreytni í atvinnulífinu á svæðinu. Ásthildur segir að það sé gott að húsið verði gert upp, en það er á mjög áberandi stað í Patreksfirði og hefur sinnt ýmsum hlutverkum síðan það var reist. „Þetta hús hefur verið fjölbreytt félagsmiðstöð fyrir Patreksfirðinga í gegnum tíðina eftir að það hætti að vera sláturhús. Núna fær húsið enn eitt hlutverkið sem hótel, og það verður alveg nýtt andlit á bænum.“ ÁSTHILDUR STURLUDÓTTIR Ásthildur Sturludóttir Mikilvægt fyrir ferðaþjónustu Ný skýrsla VSO Ráðgjafar um gisti- staði í Reykjavík var kynnt í borg- arráði í gær. Í henni eru margvísleg- ar upplýsingar um gististaði í virkum rekstri á höfuðborgarsvæð- inu, fjölda rúma, herbergja, stjörnu- gjöf og stærð húsnæðis. Í skýrslunni fer fram greining á ferðaþjónustunni og rekstrarum- hverfi hennar. Lagt er mat á stöðu mála í dag og sett fram greining á þörf fyrir gistirými á höfuðborgar- svæðinu fram til ársins 2030. Skýrslan var unnin fyrir skipulags- og byggingarsvið Fram kemur í skýrslunni að 182 gististaðir séu í rekstri á höfuðborg- arsvæðinu og þar af eru 167 í Reykjavík og 114 í miðborginni. Af þessum gististöðum eru 145 svoköll- uð gistiheimili eða íbúðahótel, en hótel eru 37 talsins. Dæmigerður nýr gististaður und- anfarin ár er lítið gistiheimili eða íbúð í miðborginni, sem er mikil breyting frá því sem var fyrir nokkr- um áratugum síðan. Þá var algeng- ast að reist væru stór hótel í jaðri miðborgarinnar. Þekkt áform um nýja gististaði eru fremur stórir gististaðir í og við miðborgina. Verði árleg fjölgun ferðamanna á bilinu 5-7% á ári, þá þurfa um 180- 380 herbergi að bætast við árlega af gististöðum í Reykjavík. Alls gæti því þurft 3.600-7.500 ný hótelher- bergi fram til ársins 2030. Gistinætur eru að megninu til á sumrin en hlutfallslega hefur lítil breyting orðið á fjölda ferðamanna á veturna undanfarna áratugi. Nýting gististaða er um 65% á sumrin en nær 35% á veturna. Athyglisvert er að flestar gisti- nætur eru á landsbyggðinni yfir árið og hlutdeild Reykjavíkur í gistinátt- afjölda sumarsins er aðeins um 20%. Hlutdeild Reykjavíkur í gistinátt- afjölda er hins vegar mun meiri á veturna, eða um 80%. pfe@mbl.is Mikil þörf er á gisti- rýmum í Reykjavík  Ný skýrsla um gististaði kynnt í gær Morgunblaðið/RAX Dæmigert Nýr gististaður er lítið gistiheimili eða íbúð í miðborginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.