Morgunblaðið - 29.06.2012, Page 21

Morgunblaðið - 29.06.2012, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2012 C-vítamín Styrkir ónæmiskerfið og er andoxandi Astaxanthin Nærir og verndar húðina í sólinni og eykur liðleika Multidophilus Bætir meltingu Mega B-stress Taugar, húð hár og neglur Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum Vegna einstakra gæða nýtur Solaray virðingar og trausts um allan heim Höldum okkur í formi í sumar með Flott í ferðalagið Breska lögreglan krafðist þess í gær, að Julian Assange, stofn- andi uppljóstr- unarvefjarins WikiLeaks, gæfi sig fram á lög- reglustöð ella yrði gefin út handtökuskipun á hendur honum. Talsmaður Lundúnalögregl- unnar Scotland Yard sagði, að um væri að ræða hefðbundinn lið í framsalsmálum og væri fyrsta skrefið í slíku ferli. Assange hefur leitað hælis í sendiráði Ekvador í Lundúnum. Hefur hann óskað eftir pólitísku hæli í Ekvador. Breskir dómstólar hafa fallist á kröfu sænska ríkissaksóknaraemb- ættisins um að Assange verði fram- seldur til Svíþjóðar svo hægt verði að yfirheyra hann vegna ásakana á hendur honum um kynferðisbrot. BRETLAND Assange gefi sig fram við lögreglu Mótmæli til stuðn- ings Assange. BAKSVIÐ Karl Blöndal kbl@mbl.is Hæstiréttur Bandaríkjanna stað- festi í gær umbætur Baracks Obama forseta í heilbrigðismálum. Úr- skurðurinn þykir sigur fyrir forset- ann og gott veganesti fyrir hann í harðnandi kosningabaráttu. Obama flutti sjónvarpsávarp í Hvíta húsinu skömmu eftir að dóm- urinn féll og fagnaði niðurstöðunni. „Hvað sem líður allri pólitík, var úr- skurðurinn í dag sigur fyrir fólk um allt land þar sem líf þess er nú öruggara vegna þessara laga og ákvörðunar hæstaréttar um að stað- festa þau,“ sagði Obama. Mitt Romney, forsetaframbjóð- andi repúblikana, ítrekaði, þegar úr- skurðurinn lá fyrir, kosningaheit sitt um að hann myndi afnema lögin á fyrsta degi sínum í embætti næði hann kjöri. Ætlað að veita öllum tryggingu Heilbrigðislögunum, sem voru samþykkt í mars 2010, er ætlað að sjá til þess að allir Bandaríkjamenn séu með sjúkratryggingu. Repúblik- anar hófu þegar baráttu gegn þeim og hafa málaferli staðið yfir á hinum ýmsu dómstigum. Fimm dómarar staðfestu lögin. John G. Roberts, forseti réttarins, sem repúblikaninn George W. Bush skipaði í forsetatíð sinni, var í meiri- hlutanum ásamt Ruth Bader Gins- burg, Soniu Sotomayor, Elenu Kag- an og Stephen Breyer. Anthony Kennedy sagði í séráliti að minni- hlutans að fyrir honum væru lögin ótæk í heild sinni. Fjögur álitamál voru fyrir rétt- inum. Í fyrsta lagi hvort það væri á valdi þingsins samkvæmt stjórnar- skrá að skylda einstaklinga til að kaupa sjúkratryggingu, í öðru lagi hvort fella bæri aðra hluta laganna eða löggjöfina alla úr gildi væri skylduboðinu hafnað, í þriðja lagi hvort útvíkkun á sjúkratryggingum fyrir þá, sem minna mega sín, væri of íþyngjandi fyrir einstök ríki Bandaríkjanna og í fjórða lagi hvort yfirhöfuð mætti taka þessi mál fyrir áður en skylduboðið tæki gildi. Í lögunum er kveðið á um að beita megi þá, sem ekki kaupa sér sjúkra- tryggingu sektum. Andstæðingar laganna líta svo á að verið sé að skylda fólk til þess að kaupa sér vöru og í málflutningi þeirra var varað við að þar með yrði sett for- dæmi, sem gæti endað með því að fólk yrði skyldað til að kaupa sér spergilkál til matar. Ekki sekt heldur skattur Meirihluti réttarins komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að ekki þyrfti að lesa meira úr hinu ein- staklingsbundna skylduboði en að verið væri að leggja á skatt. Einu mætti gilda þótt í lögunum væri tal- að um „sekt“, en ekki skatt. „Þar sem stjórnarskráin leyfir slíkan skatt, er það ekki hlutverk okkar að banna hann, eða dæma um skynsemi hans eða réttlætingu,“ segir í áliti meirihlutans, sem Roberts skrifaði. Hvorki þeir, sem kærðu, né stjórn Obama hélt því fram fyrir réttinum að einstaklingsbundna skylduboðið væri skattur. Rétturinn fékk því lög- mann til að setja fram þau rök að ákærurnar gegn heilbrigðislögunum væru ótímabærar á forsendum laga frá nítjándu öld um að ekki mætti höfða mál vegna skatts fyrr en skattheimta væri hafin. Ekki verður byrjað að innheimta sektir vegna sjúkratrygginga fyrr en eftir skil á skattframtölum árið 2015. Lögin kveða einnig á um að auka umfang sjúkratrygginga til tekju- lágra fjölskyldna (Medicaid). Fjár- lagaskrifstofa þingsins hafði reiknað út að 16 milljónir manna, sem áður voru ótryggðar, yrðu sjúkratryggð- ar fyrir vikið. Andstæðingar þessara ákvæða héldu því fram að þau stönguðust á við stjórnarskrá vegna þess að ríki Bandaríkjanna væru þvinguð til að veita þessar trygg- ingar vegna þess að annars væri þeim hótað því að þau fengju engin alríkisframlög til slíkra trygg- inga. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að svipta ein- stök ríki alríkisframlag- inu, sem þau áttu rétt á fyrir lagasetninguna, þótt þau neituðu að fylgja heil- brigðislög- unum að þessu leyti. Hæstiréttur staðfestir heilbrigðislög Obama  Fimm dómarar af níu í meirihluta  Mitt Romney ætlar að hnekkja lögunum AFP Umdeild lög staðfest Stuðningsmenn heilbrigðislaga Obama fagna fyrir utan hæstarétt í Washington. Andstæð- ingar laganna fjölmenntu einnig í gær þegar rétturinn kvað upp úrskurð sinn og staðfesti lögin. Tyrknesk stjórnvöld hafa sent her- lið og herbúnað að landamærum Tyrklands og Sýrlands. Mikil spenna ríkir milli Tyrk- lands og Sýrlands eftir að Sýrlend- ingar skutu niður tyrkneska orr- ustuflugvél sl. föstudag. Tveggja flugmanna er enn saknað en vélin sjálf hafnaði í Miðjarðarhafi. Recep Tayyip Erdogan, forsætis- ráðherra Tyrklands, greindi frá því í vikunni að tyrknesk stjórnvöld myndu gera hernaðarlegar breyt- ingar í kjölfar árásarinnar á flug- vélina. Hann sagði við þingmenn að Tyrklandi stæði bein og aðsteðjandi ógn af Sýrlandi og að það yrði litið á það sem ögrun ef sýrlenskir her- menn nálguðust landamærin. Tyrk- neski herinn hefði fengið þau skila- boð að líta á þá sem skotmörk. Blóðug átök héldu áfram í Sýr- landi í gær með tilheyrandi mann- falli en talið er að minnst 69 manns hafi látið lífið í bardögum, þar af 38 almennir borgarar. TYRKLAND Tyrkir með viðbúnað á landamærunum Viðbrögð Tyrkneskur herflutningabíll. Danskur gæsluvarðhaldsfangi nýtur nú frelsis eftir að hafa tekist að grafa sig út úr fangaklefa í fangelsi í Nakskov á Lálandi. Fram kemur á vef Ekstra Bladet, að fanginn, sem er 46 ára, hafi notað brýni, hníf og hugsanlega önnur am- boð sem hann sankaði að sér í líkamsræktarsal fangelsisins. Blaðið segir, að fanginn hafi grafið sig gegnum 50 cm þykkan vegg. Eft- ir að hafa skriðið gegnum gatið á veggnum komst fanginn út á lokað bílastæði. Honum tókst síðan að klifra yfir fangelsisgarðinn á vit frelsisins. „Því miður gerist svona lagað öðru hverju en það eru 16 ár frá því fanga tókst síðast að grafa sig gegn- um vegginn,“ hefur Ekstra Bladet eftir talsmanni fangelsisins. Fanginn var ófundinn í gær. Hins vegar var búið að múra upp í gatið á fangaklefanum. Gróf sig út úr fanga- klefanum Málflutningur fyrir hæstarétti Bandaríkjanna vegna heilbrigð- islaga Obama stóð í sex klukkustundir og fór fram á þremur dögum í mars. Rétt- urinn hefur ekki varið jafn mikl- um tíma í eitt mál í 45 ár. Úr- skurðarins í gær var beðið með eftirvæntingu og hefur mik- ilvægi hans verið borið saman við úrskurðinn vegna forseta- kosninganna 2000. Atkvæði forseta réttarins, John Roberts, réði úrslitum. Hann þykir íhaldssamur og höfðu spurn- ingar hans við málflutning- inn gefið til kynna að afstaða hans yrði á hinn veginn. Óvænt afstaða MIKILVÆGT MÁL John Roberts

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.