Morgunblaðið - 21.07.2012, Side 1

Morgunblaðið - 21.07.2012, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 1. J Ú L Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  169. tölublað  100. árgangur  VEKJA ATHYGLI Í BERLÍN EITT ÁR FRÁ HRYÐJUVERK- UNUM Í NOREGI FJÓRIR VINNUMENN SINNA DEKRUÐUM HÆNUM Í MÚLA SUNNUDAGSMOGGINN BENNI HÆNSNABÓNDI 10ÍSLENSKIR HÖNNUÐIR 38 Morgunblaðið/Golli Gengisþróun Gengi íslensku krónunnar gagnvart evru hefur styrkst umtalsvert.  Gengi íslensku krónunnar gagn- vart evrunni hefur styrkst umtals- vert á síðustu þremur mánuðum, þar af um 4,5% á rúmum mánuði. Má m.a. rekja þetta til ferða- mannastraumsins hingað til lands yfir sumarmánuðina. „Við sjáum það líka þegar krón- an fer að styrkjast um allt að fimm prósent yfir svona stutt tímabil að þá verður ódýrara að flytja inn vörur og þjónustu og ódýrara fyrir Íslendinga að ferðast erlendis,“ segir Davíð Stef- ánsson, hagfræðingur hjá grein- ingardeild Arion banka. Hann býst við því að krónan muni veikjast aftur í haust. »14 Krónan styrkist vegna erlendra ferðamanna Lægra þorskverð » Þorskkvóti í Barentshafi gæti aukist um 189 þúsund tonn á næsta veiðiári. » Gæti þýtt um 20% verð- lækkun á þorski. » Hætta á að vonir um verð- mætaaukningu vegna aukins þorskkvóta gangi ekki eftir. Hörður Ægisson hordur@mbl.is Þorskkvóti í Barentshafi mun að öll- um líkindum aukast um hátt í 190 þúsund tonn á næsta veiðiári, en slík magnaukning gæti þýtt allt að 25% verðlækkun á þorski á mörkuðum. Af þeim sökum er hætt við því að væntingar um að ríflega 18 þúsund tonna aukning í þorskafla Íslendinga eigi eftir að skila sér í 8,4 milljarða verðmætaaukningu fyrir þjóðarbúið verði ekki að veruleika. Jón Þrándur Stefánsson hjá Markó Partners, sem er ráðgjafar- fyrirtæki á sviði sjávarútvegs, segir í samtali við Morgunblaðið að um sé að ræða allt að 22% aukningu í þorskmagni sem gæti farið inn á markaði. „Sú verðmætaaukning, sem vonast hefur verið eftir með meiri þorskkvóta, kemur því líklega ekki til með að skila sér að fullu. Magnaukning á þorski umfram 2% hefur leitt til verðlækkunar á síðustu tólf árum.“ Það eru hins vegar ekki aðeins væntingar um stóraukinn þorsk- kvóta á Norðaustur-Atlantshafi sem gæti sett strik í reikninginn fyrir út- flutningsverðmæti þorskafurða. Nú þegar eru uppi vísbendingar um að efnahagserfiðleikar Spánverja og Portúgala séu farnir að leiða til minnkandi eftirspurnar eftir söltuð- um þorskafurðum, en um helmingur saltfiskútflutnings Íslendinga og Norðmanna fer á markaði í þeim löndum. Að öðru óbreyttu mun sú þróun því setja enn meiri þrýsting á verðið til lækkunar. »20 Þorskverð gæti lækkað mikið  Meiri þorskafli skilar ekki þeirri verðmætaaukningu sem vonast er eftir  Kvótinn í Barentshafi gæti aukist um 22%  Merki um minnkandi eftirspurn Morgunblaðið/Ómar Pétur Blöndal pebl@mbl.is Þóra Arnórsdóttir segist ekki ætla í pólitík og er harðorð út í Ólaf Ragn- ar Grímsson er hún gerir upp for- setakosningarnar í viðtali í Sunnu- dagsmogganum. Hún segir að byrinn sem framboð hennar fékk í upphafi hafi valdið því að Ólafur Ragnar Grímsson, „sem er að nálg- ast sjötugt og búinn að vera forseti í 16 ár og vildi halda áfram, varð auð- vitað óttasleginn. Hann dró fram allt sem hann mögulega gat og var alveg sama hvaða ráðum var beitt. Að því leytinu er ekki gott að fá svona góða byrjun, því þá er ógnin orðin svo mikil.“ Þóra segir að það hafi verið magn- að að fylgjast með því hvernig hann brást við. „Hann tímasetti fyrsta við- talið þannig að ég var komin fimm daga fram yfir og beið eftir því að dóttir mín kæmi í heiminn á mæðra- daginn. Svo var hann búinn að kort- leggja mína styrkleika, að ég hefði verið í fjölmiðlum, væri fjölskyldu- manneskja og hefði engar pólitískar tengingar, og hann tók það kerfis- bundið fyrir. Hann hjólaði svo ræki- lega í fjölmiðlana að við höfum varla heyrt frá þeim síðan. Svo réðst hann á Svavar á ótrúlegan hátt.“ Hún er ósátt við viðbrögð RÚV við ásökunum Ólafs Ragnars. „Og viðbrögðin hjá RÚV þegar forseti lýðveldisins sakaði stofnunina um misnotkun og starfsmenn um óheil- indi – öh, ekki svaravert. Mér fannst það lélegt og undarlegt að stofnunin skyldi ekki bregðast við.“ Hún gagn- rýnir einnig Morgunblaðið fyrir að gefa því lögmæti að hún væri fulltrúi annars stjórnarflokksins. Ólafur Ragnar varð „óttasleginn“  Þóra Arnórsdóttir er harðorð í garð forsetans  Segist ekki ætla í pólitík Hestaferðir njóta sívaxandi vinsælda, ekki síst hjá erlendum ferðamönnum, sem hafa áhuga á að komast í nánari kynni við íslenska hestinn og íslenska náttúru. Hjá Íshestum, sem er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar hér á landi, hafa um 4.500 manns farið í dagsferðir á hest- baki það sem af er sumri og alls munu um 1.500 manns fara í lengri hestaferðir með fyrirtækinu í sumar. Hestaunnendurnir koma flestir frá Þýskalandi og Bretlandi en þá njóta ferðirnar einnig mikilla vinsælda meðal Skandinava og Frakka. Þessi mynd af mönnum og hestum var tekin á Djúpavatnsleið á Reykjanesi í gær en sú leið er einnig í miklu uppáhaldi hjá hjólafólki. Á íslenskum hesti í íslenskri náttúru Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjá nánar á síðu 5 Græddu á gulli á Grand Hótel um helgina lau. sun. mán. og þriðjudag frá kl. 11:00 til 19:00 Staðgreiðum allt gull, silfur, demanta og vönduð úr  Færri ferðamenn voru í Land- mannalaugum í gærkvöldi en verið hafa síðustu daga. Jóhann Kári Ívarsson skálavörð- ur sagði fólkið færra en vænta mætti á föstudagskvöldi í júlí. Hann taldi ekki ólíklegt að slæm veður- spá ætti sinn þátt í því. Til dæmis koma venjulega þrjár rútur frá einu rútufyrirtæki með farþega úr Reykjavík en í gær kom aðeins ein rúta. Spáð er versnandi veðri eftir því sem líður á daginn. »2 Færri ferðamenn vegna veðurspár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.