Morgunblaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012
FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM
GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.
SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR
AFEITRAÐU HÁRIÐ MEÐ NÁTTÚRULEGUM EFNUM
NÝJA NATURE
RESCUE-HÁRLÍNAN
100% án paraben-, súlfat-
og sílikonefna. Inniheldur
þörunga sem vernda hárið,
sojaprótein sem styrkir,
Aloe Vera sem nærir og
sjávarsteinefni sem fríska
upp á það
SÖLUSTAÐIR
REDKEN
BEAUTY BAR
FAGFÓLK
HJÁ DÚDDA
HÖFUÐLAUSNIR
MEDULLA
MENSÝ
N-HÁRSTOFA
PAPILLA
SALON REYKJAVÍK
SALON VEH
SCALA
SENTER
Dreifing:
Hár ehf
s. 568 8305
har@har.is
REDKEN Iceland á
Jón Magnússon hæstaréttar-lögmaður víkur í pistli að svör-
um sem Oddný Harðardóttir, sitj-
andi fjármálaráðherra, hefur veitt
vegna fjárlagahalla langt umfram
áætlanir. Jón hefur
eftir Oddnýju að
stór hluti af skýr-
ingunni á meiri
halla en gert hafi
verið ráð fyrir sé að
ríkið hafi þurft að
leggja fram fé
vegna SpKef og að
það væri vonandi
síðasti stóri reikn-
ingurinn vegna
bankahrunsins.
Jón segir: „Þessiummæli fjár-
málaráðherra eru
ósannindi. Reikningurinn vegna
Sparisjóðs Keflavíkur kemur
bankahruninu í október 2008 ekk-
ert við. Sparisjóður Keflavíkur var
með jákvæða eiginfjárstöðu upp á
nokkra milljarða samkvæmt árs-
reikningum sem birtir voru í apríl
2009 og þar var sagt að tekið hefði
verið fullt tillit til bankahrunsins.
26 milljarðarnir sem þarf aðgreiða vegna Sp/Kef er vegna
handvammar og slæmrar ráðs-
mennsku Steingríms J. Sigfússon-
ar. Eftir að Steingrímur J hlutaðist
til um að Sparisjóður Keflavíkur
starfaði áfram á undanþágum frá
FME þá myndaðist tapið sem þjóðin
þarf að borga.“
Jón bendir á að annaðhvort vitiráðherra ekki betur og þá sé illt
í efni, eða hún sé vísvitandi að segja
þjóðinni ósatt.
Þetta er athyglisverð ábendingog hún kallar á eina spurn-
ingu: Hvers vegna er Oddný að taka
á sig klúður frá Steingrími, sem
forðaði sér úr fjármálaráðuneytinu
áður en klúðrið kom að fullu í ljós?
Jón Magnússon
Oddný tekur skell-
inn fyrir Steingrím
STAKSTEINAR
Oddný
Harðardóttir
Veður víða um heim 20.7., kl. 18.00
Reykjavík 13 skúrir
Bolungarvík 12 skýjað
Akureyri 12 skýjað
Kirkjubæjarkl. 17 skýjað
Vestmannaeyjar 13 heiðskírt
Nuuk 16 skýjað
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 20 léttskýjað
Helsinki 20 skýjað
Lúxemborg 18 skýjað
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 15 skýjað
Glasgow 16 léttskýjað
London 13 skúrir
París 18 skýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 15 skýjað
Berlín 17 skýjað
Vín 18 skúrir
Moskva 20 skýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 36 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 27 heiðskírt
Róm 32 heiðskírt
Aþena 30 heiðskírt
Winnipeg 25 léttskýjað
Montreal 21 léttskýjað
New York 18 alskýjað
Chicago 25 léttskýjað
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:02 23:07
ÍSAFJÖRÐUR 3:36 23:43
SIGLUFJÖRÐUR 3:18 23:28
DJÚPIVOGUR 3:24 22:44
Framtíð endurvinnslustöðvarinnar
Hringrásar í Sundahöfn er enn óljós.
Mikill eldur kom upp á svæði endur-
vinnslustöðvarinnar þann 12. júlí í
fyrra og voru öryggismál staðarins
tekin til endurskoðunar í kjölfarið.
Er þetta í annað skiptið sem stöðin
gengst undir öryggisendurskoðun því
einnig var farið yfir þau mál árið 2004
eftir mikinn bruna sem átti sér stað í
lok þess árs. Slökkviliðið vinnur nú að
greiningu á brunahættu af starfsemi
Hringrásar en greiningin ætti að
liggja fyrir á haustmánuðum.
„Miklu æskilegra væri að starfsem-
in væri í meiri fjarlægð frá íbúða-
byggð og þá sérstaklega dekkja-
stæðan sem skapar mesta eldhættu,
eins og komið hefur í ljós,“ segir
Hjálmar Sveinsson, sem á sæti í
skipulagsráði Reykjavíkur. „Lóða-
leigusamningur Faxaflóahafna við
Hringrás er runninn út. Fyrirtækið
hefur þó fengið áframhaldandi starfs-
leyfi,“ segir Hjálmar en Heilbrigðis-
eftirlit Reykjavíkur gefur út starfs-
leyfi Hringrásar.
Dekkjavinnslan hættuleg
Hjálmar gerir ekki athugasemd við
starfsemina sem slíka. „Þetta er end-
urvinnslufyrirtæki, sem starfar aðal-
lega á sviði járnúrgangs og sinnir
starfi í takt við kröfur tímans. Af
dekkjavinnslunni, sem þar fer fram,
getur þó stafað hætta,“ segir Hjálm-
ar. „Tvisvar hefur kviknað í á svæðinu
og það væri mjög ábyrgðarlaust að
fullyrða að það komi ekki fyrir aftur.“
Að sögn Hjálmars er vandkvæðum
bundið að flytja Hringrás „Það er
hægara sagt en gert að finna starf-
seminni nýjan stað. Allir vilja að
starfsemi af þessum toga eigi sér stað
en fæstir vilja fá hana til sín,“ segir
hann. „Ákveða þarf framhaldið út frá
greiningu slökkviliðsins og skýrslum
heilbrigðiseftirlitsins.“
Morgunblaðið/Júlíus
Brunahætta Eldur hefur kviknað tvisvar í endurvinnslustöðinni Hringrás í
Sundahöfn á síðustu árum, annars vegar árið 2004 og hins vegar í fyrra.
Hringrás verði flutt annað
Beðið eftir mati
á brunahættu