Morgunblaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 Víkingur Ferðamönnum fjölgar og margir setja sig í spor heimamanna með einum eða öðrum hætti. Styrmir Kári Efnahagsráðherra hafði hárrétt fyrir sér þegar hann í kvöld- fréttum RÚV hinn 17. júlí sl. benti á að ís- lensku hagkerfi stafaði rík hætta af hnignandi efnahagshorfum helstu viðskiptaþjóða okkar. Fá þróuð ríki flytja jafnmikið út af eigin framleiðslu og Ísland. Við öflum gjaldeyris með því að selja hugverk, fiskafurðir, ferða- þjónustu og orku, sem að mestu er flutt út í formi áls. Aðeins hluti þessara afurða getur talist nauð- synjavörur. Sumar nálgast jafnvel að falla undir munaðarvöru. Við er- um því afar næm fyrir samdrætti hjá viðskiptavinum okkar. Efnahagsráðherra notaði tæki- færið og lýsti þeirri skoðun sinni að réttmætur beygur okkar af versn- andi horfum í heiminum staðfesti hvernig allt stæði í blóma hér á landi, sökum framúrskarandi hag- stjórnar undanfarin ár. Útflutningur mikilvægastur Fagna ber hve margar greinar ís- lensks atvinnulífs hafa staðið vel af sér hremmingar undanfarin misseri. Íslensk ferðaþjónusta er í geysiör- um vexti ár eftir ár. Þar hafa stjórn- völd lagt ýmislegt fram en sú væn- lega þróun á helst rætur að rekja til óvenjulágs raungengis síðastliðin ár og öflugs markaðsstarfs grein- arinnar erlendis. Þá varð gosið í Eyjafjallajökli óvænt að verðmætari auglýsingaherferð en við hefðum nokkurn tíma getað kostað sjálf. Ýmis hugverkafyrirtæki eru í ör- um vexti og margar tæknigreinar eiga frekari sigra í vænd- um. Hins vegar er ekki sjálfgefið að geta nýtt slík viðkvæm tækifæri. Nýsköpun er vandrat- að ferli þar sem lítið má út af bregða. Um þessar mundir felst stærsti vandinn í skorti á starfsfólki á sérhæfð- um sviðum. Um langt skeið hefur áhersla í menntamálum ekki beinst nægilega að menntagreinum sem mest þörf er fyrir í atvinnulíf- inu, svo sem náttúruvísindum, tækni- og iðngreinum. Samtök iðn- aðarins eiga hins vegar mjög gott og náið samstarf við menntamálaráðu- neytið, samtök sveitarfélaga og fleiri til að reyna að brúa mennta- gjána í landinu til langframa. Í stórum útflutningsgreinum hef- ur okkur gengið vel. Álútflutningur hefur reynst öflug undirstaða og dempað áhrif kreppunnar, en frek- ari þróun þess iðnaðar hérlendis hefur mætt fjölmörgum mann- gerðum hindrunum. Rammaáætlun hefur ekki ratað í lög þrátt fyrir sí- felld fyrirheit þar um. Stjórnvöld tóku áætlunargerðina úr fimmtán ára löngu faglegu ferli sem sátt ríkti um en freistuðu þess í stað að ná einhliða fram pólitískum mark- miðum um að nýta ekki nærtækustu orkukosti. Gagnaverin eru ung og orkufrek iðngrein hér á landi en hún komst, illu heilli, ekki á legg fyrr en löngu síðar en þurft hefði. Þá töf má fyrst og fremst rekja til andstöðu í fjármálaráðuneytinu á árunum 2009 og 2010 við að samstilla nokkur skattatæknileg atriði við fyr- irkomulag helstu samkeppnisþjóða okkar. Google og Facebook ákváðu að reisa gagnaver í Finnlandi og Svíþjóð árið 2010. Stjórnendur þess- ara risavöxnu tæknifyrirtækja tóku sérstaklega fram að Ísland kæmi ekki til greina vegna leggjabrjóta í íslenskri skattalöggjöf. Býsna óvæntar og gleðilegar gæftir hafa verið í makríl- og loðnu- veiðum. Þá hafa fiskafurðir okkar almennt selst á háu verði und- anfarin misseri. Núverandi stjórn- völd geta þó ekki eignað sér al- mennt sterka eftirspurn í viðskiptalöndum okkar undanfarin ár, ekki frekar en að versnandi horf- ur þar séu þeim að kenna. Þau geta heldur ekki gumað af vænlegri sam- keppnisstöðu okkar eigin afurða. Hún byggist á þróunarstarfi fyr- irtækjanna sjálfra og langvinnri markaðssókn þeirra með gæðavörur erlendis. Slík langtímahugsun og áralöng fjárfesting var gerleg vegna fyrirsjáanlegs stjórnkerfis fiskveiða sem núverandi stjórnvöld reyna ítrekað að hnekkja. Í reynd hefur margsinnis verið valinn ófriður í auðlindamálum þegar sátt hefur verið í boði. Sú hugmyndafræðilega barátta hefur ratað út fyrir sjálfar auðlindagreinarnar og haft alvar- legar aukaverkanir í ýmsum tækni- fyrirtækjum í auðlindanýtingu sem leitast við að nýta heimamarkað til að skapa lausnir til útflutnings. Innviðir rýrna Fjárfesting í hagkerfinu hefur verið sögulega lítil árum saman og nú er svo komið að greinendur á markaði telja að hún sé í raun orðin neikvæð þegar raunverulegar fyrn- ingar eru teknar með í reikninginn. Í stað þess að byggja upp höfuðstól til að skapa verðmæti til framtíðar sé gengið á núverandi höfuðstól þar sem eðlilegri endurfjárfestingu er ekki sinnt. Til að mynda er enginn sparnaður fólginn í að fresta svo viðhaldi og uppfærslu vegakerfisins að síðar þurfi að kosta miklu meira til við viðgerðir. Þá má nefna þann öryggisskort sem slík stefna skapar en ekki síður þá verkþekkingu og þann búnað til mannvirkjagerðar sem flyst úr landi á meðan brýnum verkefnum í þessu efni er ekki sinnt. Stjórnvöld hafa í orði kveðnu sagst vilja afnema gjaldeyrishöft hið fyrsta. Hefur hugur fylgt máli? Ef vel gengur erlendis en illa hér á landi er jafnan sagt að okkur sé búið mikið skjól í höftunum. Þegar rofar til hér en horfur versna ytra verður aftur mikið skjól að finna í höft- unum. Í stuttu máli sagt er aldrei rétti tíminn til að hefja afnám hafta. Þess í stað hefur embættismönnum Seðlabankans verið eftirlátið að halda hinu meinta afnámsverkefni gangandi. Þótt þeir væru allir af vilja gerðir er vita vonlaust að reyna að afnema gjaldeyrishöft án póli- tískrar forystu og samhæfingar við helstu hagrænu gerendur í landinu. Kjarni máls er einmitt sá að rík- issjóður nýtur nú til skamms tíma afar góðs af höftunum, t.d. með því að geta gengið óáreittur í vaxandi fé lífeyrissjóðanna. Þeir mikilvægu sjóðir allra landsmanna mega ekki fjárfesta nýtt fé erlendis vegna haft- anna og vænlegum fjárfesting- arverkefnum hefur ekki verið fyrir að fara innanlands. Eignasafn líf- eyrissjóðanna verður því sífellt ein- hæfara og áhættusamara. Bólur myndast í ýmsum eignaflokkum og ávöxtun sjóðanna rýrnar. Lands- menn greiða þennan reikning á ævi- kvöldi sínu. „Það varð hrun“ Núverandi ríkisstjórn tók við afar erfiðu búi fyrir þremur og hálfu ári. Stjórnvöld eru líka sérlega dugleg að benda á þessa staðreynd. Það veitir þó ekki endalausa afsökun fyrir að hægja á sköpun verðmæta hér á landi. Rifja má upp að í byrjun árs 2009 hafði þegar orðið til efna- hagsáætlun í samstarfi við AGS. Hvað sem um samvinnuna við AGS má segja að öðru leyti, er sannleik- urinn sá að hefði þeirri upphaflegu áætlun verið fylgt og hún gengið eftir, væri íslenskt hagkerfi að minnsta kosti orðið 100 milljörðum stærra á næsta ári en núverandi þjóðhagsspá gerir ráð fyrir. Gróft talið vantar þar 10.000 störf. Efna- hagsráðherra telur að hagræn fag- urfræði stjórnvalda sé misskilin list. Það sem skorti séu upplýstir áhorf- endur. Sá málflutningur minnir óþægilega á boðskap íslensku bank- anna árin fyrir hrun. Það eina sem hrjáði bankana á þeim tíma var kynningar- og ímyndarvandi, en staðreyndir máls voru þeim allar í vil. Eftir Orra Hauksson » Í stuttu máli sagt er aldrei rétti tíminn til að hefja afnám hafta. Þess í stað hefur emb- ættismönnum Seðla- bankans verið eftirlátið að halda hinu meinta af- námsverkefni gangandi. Orri Hauksson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hagrænt sjálfshól Þann 24. maí sl. sam- þykkti meirihluti Alþingis þingsályktun um „ráðgef- andi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs um frumvarp til stjórnar- skipunarlaga“, eins og það var orðað. Samkvæmt endanlegu orðalagi álykt- unarinnar átti atkvæða- greiðslan að fara fram „eigi síðar en 20. október 2012“. Lög um framkvæmd þjóðaratkvæða- greiðslna kveða á um að atkvæða- greiðslur af þessu tagi megi ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi þremur mán- uðum eftir ákvörðun Alþingis þar um. Fólst því í þessu orðalagi að atkvæða- greiðslan gæti orðið einhvern tímann á tímabilinu 24. ágúst til 20. október. Hinn eiginlegi kjördagur var með öðr- um orðum ekki ákveðinn með samþykkt tillögunnar, heldur fólst í orðalagi henn- ar ákveðið svigrúm til að efna til at- kvæðagreiðslunnar einhvern tímann á tæplega tveggja mánaða tímabili. Augljóst virðist að meirihluti þingsins hafi meðvitað ákveðið að skilja eftir eitthvað svigrúm að þessu leyti, því annars hefði kjördagurinn verið skýrt tiltekinn, til dæmis með því að orða textann einfaldlega á þann hátt, svo dæmi séu nefnd, að atkvæðagreiðsla skyldi fara fram 25. ágúst, 1. sept- ember, 20. október eða einhvern annan hentugan dag að mati meirihlutans. Það var ekki gert og fól ákvörðun Alþingis 24. maí því ekki í sér val á einhverjum tilteknum kjördegi. Lög um framkvæmd þjóðaratkvæða- greiðslna kveða skýrt á um það að það sé hlutverk Alþingis að ákveða kjördag fyrir ráðgefandi þjóðaratkvæða- greiðslur. Það vald er ekki samkvæmt lögunum falið neinum öðrum innan stjórnkerfisins, hvorki innanríkisráðu- neyti, landskjörstjórn né nokkrum öðrum aðila, sem að öðru leyti kemur að framkvæmd kosninga af þessu tagi. Þegar lög kveða á um að Alþingi þurfi að ákveða eitthvað, þá er svo að sjálfsögðu átt við að Alþingi allt eða meirihluti þess taki slíka ákvörðun í atkvæða- greiðslu, en ekki t.d. for- seti þingsins, forsætis- nefnd eða skrifstofa þingsins. Ef ætlunin væri sú að fela ein- hverjum öðrum en Alþingi í heild ákvörðunarvald í þessum efnum þyrfti það að koma fram með skýrum hætti í lögum. Því er nú þráfaldlega haldið fram af talsmönnum ríkisstjórnarmeirihlutans að búið sé að ákveða að þjóðaratkvæða- greiðslan eigi að fara fram laugardag- inn 20. október nk. – nákvæmlega þá og alls ekki einhvern annan dag. Þá vakna nokkrar mikilvægar spurningar: Hve- nær breyttist svigrúmið sem augljós- lega fólst í orðalagi þingsályktunar- tillögunnar í þessa ákveðnu dagsetningu? Hvenær var sú ákvörðun tekin? Hver tók ákvörðunina? Hvernig var ákvörðunin tekin? Það er væntan- lega ekki til of mikils mælst að helstu ábyrgðarmenn þessa máls, talsmenn meirihlutans á þingi, svari þessum spurningum skýrt og undanbragðalaust hið fyrsta. Hver ákvað kjör- daginn 20. október? Eftir Birgi Ármannsson Birgir Ármannsson »Hvenær breyttist svig- rúmið sem augljóslega fólst í orðalagi þingsálykt- unartillögunnar í þessa ákveðnu dagsetningu? Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.