SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Page 14
14 29. júlí 2012
Tómas Lemarquis hefur verið búsettur í Berlínsíðustu sex ár, þar sem hann býr í fallegri íbúð íausturhluta borgarinnar þar sem hátt er til loftsog vítt til veggja. „Ég kom hingað til að læra
þýsku fyrir kvikmyndina Luftbusiness. Ég þekkti marga
hér í borginni eins og Egil Sæbjörns, Elínu Hans og fleiri
Íslendinga. Mér líkaði svo vel að ég varð eftir,“ segir
hann.
Staðsetningin er góð hvað varðar vinnuna. „Ég hef
verið að vinna ekki aðeins í Þýskalandi heldur líka hér í
kring, bæði í Frakklandi og á Spáni. Ég hef notað Berlín
sem miðstöð,“ segir hann en starfið hefur tekið hann
víðar, eins og til Indlands og Marokkó.
„Ég hef verið að fá sífellt meira að gera í Þýskalandi,“
segir hann en hinn vinsæli sjónvarpsþáttur Tatort er
nýjasta rósin í hnappagatið þar.
Umboðsmenn í Berlín, París og Los Angeles
Tómas er með umboðsmenn bæði í Berlín og París, sem
útvega honum prufur við hæfi. „Það hefur aukist vinnan
upp á síðkastið í gegnum þennan þýska umboðsmann.
En svo er ég líka með umboðsmann í Los Angeles,“ segir
Tómas, sem var þar um daginn til að vinna með talþjálfa
til að laga bandaríska hreiminn því Hollywood-
verkefnunum er að fjölga.
„Ég hef verið að fara í prufur fyrir Hollywood-verkefni
sem eru tekin upp í Evrópu. Þá vantar oft leikara sem eru
á staðnum. Maður þarf að vera með græna kortið fyrir
það sem tekið er upp í Bandaríkjunum. Það er eitthvað
sem ég geri kannski síðar ef ég fæ tilboð en það er flókn-
ara ferli. Myndin sem ég var að leika núna í er með Holly-
wood-leikurum, leikstjórinn er kóreskur og framleiðslan
er kóresk-evrópsk, þannig að maður þarf ekki að vera í
stéttarfélaginu eins og í bandarískri framleiðslu,“ segir
hann.
Ekki einhliða
skopmynd
Tómas Lemarquis nýtur velgengni sem leikari í Evrópu og
eru þau hlutverk sem hann tekur að sér sífellt að stækka.
Hann var að klára að leika í kvikmynd með þekktum
Hollywood-leikurum, nýjustu myndirnar hans eru með
heimsendaívafi og hefur þessi ljúfi maður leikið þá nokkra
vondu kallana að undanförnu. Hann nýtur þess að ferðast
og fer til staða sem kalla á hann andlega og hjálpa honum
að þroskast í starfi.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is