SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Blaðsíða 41

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Blaðsíða 41
29. júlí 2012 41 LÁRÉTT 1. Laug sig úr unglinganámi en fékk viðvörun. (8) 4. Kerling fær næstum því ugg út af baði. (7) 8. Stöðvar fyrir sódadrykk hér á landi? (10) 9. Þurrlendi gyltu verður að þjóðríki? (7) 10. Mýkja argt og þvæla margvíslegt. (9) 12. Svipað feitir ná að samsvara. (9) 13. Tungumál sem líkist K er sérstakt slangur. (8) 14. Löngum fer maður að afhlaða. (7) 16. Brjálaðir í lögun ættingja. (8) 19. Urðaði fat á stað. (9) 23. Hress en hallandi. (7) 24. Marsinn sem segir til um hvernig fólk ber sig. (10) 25. Tegrar til að nálgast að lifa af veiði (11) 27. Reyndir og pabbi sem er sérfræðingur birtist. (8) 29. Já, trufla og færa til blöð. (8) 30. Fótboltafélags úðinn lenti hjá skemmdri. (8) 33. Úr lárviðum kemur annað tré. (8) 34. Þvottur Gunnars er í bandi. (4) 35. Þóttasvip nokkurra þekki sem kompás. (12) LÓÐRÉTT 1. Drepi fisk á hrottafenginn hátt með bergi. (7) 2. Búa til ferðar á Laugarnestanga. (5) 3. Suð ófrægi og rýri. (9) 4. Auk falskrar birtast hrumir menn. (11) 5. Duflara má sjá á reiki í fjarlægri lægð. (7) 6. Jaðar gljúfurs á fífluðum. (8) 7. Dauft fyrir Evrópusambandið í suðri og guðspjalla- mann (7) 9. Tala og skemma. (7) 11. Konur með eiturlyf. (5) 15. Fá athygli frá sjaldgæfum. (7) 16. Egypskt líf var einfalt ef hlýðni var sýnd. (10) 17. Kona sem er gift í upphafi dags finnst í garði. (9) 18. Ragnar snýr sér við með lítra og vafrar. (7) 20. Löpp smitsóttar lendir í ferðalagi. (12) 21. Fæði hóp með bókstafnum. (5) 22. Teljum að við komumst að flóknum hillum með stykkjum. (10) 23. Baal-skepnuna saumið. (8) 26. Bæta við fæðu með úttekt. (7) 28. Hétum á Golfklúbb Reykjavíkur þegar einhver skældi. (6) 31. Frjáls þegar laugardagur mætir upphafi sunnu- dags. (4) 32. Skylt að fá hreyfingu. (4) Verðlaun eru veitt fyrir krossgátu vikunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Há- degismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn kross- gátu 29. júlí rennur út á hádegi 3. ágúst. Nafn vinningshafans birtist í Sunnudagsmogganum 5. ágúst. Vinningshafi krossgátunnar 22. júlí er Sigrún Dav- íðs, Ásvallagötu 17, Reykjavík. Hún hlýtur í verðlaun bókina Hetjur og hugarvíl eftir Óttar Guðmundsson. Forlagið gefur út. Krossgátuverðlaun Íslensku skákkmennirnir sem tefla fyrir Íslands hönd á Ól- ympíumótinu í Tyrklandi í undirbúa sig af kappi fyrir ólympíumótið. Hjörvar Steinn Grétarsson er nú að tefla á sínu þriðja móti í sumar, nú á vin- sælum áfangastað íslenskra skákmanna, í Pardubice í Tékk- landi. Eftir sigur á Bandaríkja- manninum og stórmeistaranum Robert Hess í 6. umferð bendir allt til þess að Hjörvar muni standa undir væntingum manna og landa lokaáfanganum að stórmeistaratitli. Fyrri áfanginn kom á Evrópumóti landsliða sl. haust og gildir tvö- falt samkvæmt sérstökum reglum. Þegar tvær umferðir eru eftir er Hjörvar með 5 ½ v. af sjö og er í 2.-10. sæti af 259 keppendum. Árangur hans mælist uppá 2657 stig. Hannes Hlífar Stefánsson er með 4 ½ v. Þessir tveir eru ekki einu ís- lensku þátttakendurnir á mótinu. Hinn ágæti skákþjálfari úr Kópavogi, Smári Rafn Teits- son, fór með sveit Álfhólsskóla á skákhátíðina og nemendur hans þeir Dawid Kolka, Felix Stein- þórsson og Róbert Léo Jónsson hafa allir staðið sig vel í neðri flokkunum og ýmsum hlið- arviðburðum. Með þessum hætti æfa piltarnir sig fyrir Norð- urlandamót grunnskóla sem fram fer í haust. Skáklegt rothögg Á árlegu skákhátíðinni í Biel í Sviss tókst mótshöldurum á síð- ustu stundu að fá stigahæsta skákmann heims, Norðmanninn Magnús Carlsen, til að taka þátt í mótinu. Þarna er teflt í fjöl- mörgum flokkum en athyglin beinist að efsta flokknum þar sem sex skákmenn tefla tvö- falda umferð. Það dró til tíðinda þegar í þriðju umferð þegar Al- exander Morozevich hætti keppni vegna veikinda. Menn tóku því samt með fyrirvara; Moro hafði tapað tveim fyrstu skákum sínum og átti að mætta Magnúsi Carlsen í þeirri þriðju. Victor Bolgan tók sæti hans en hann fær ekki að tefla skákirnar í fyrstu umferðunum upp á nýtt. Morozevich fékk á sig það sem kalla má „skáklegt rot- högg“ þegar hann mætti Bacrot í 2. umferð. Það var engu er líkara en að þessi fremsti skák- maður Frakka hafi sent „Moro“ út úr hringum með óvenjulega kröftugum leik: Etienne Bacrot – Alexander Morozevich Slavensk vörn 1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 c6 4. e4 dxe4 5. Rxe4 Bb4+ 6. Bd2 Dxd4 7. Bxb4 Dxe4+ 8. Be2 Ra6 9. Bd6 Dxg2 Þessi leið er þekkt í fræð- unum og þykir afar varasöm. En Morozevich hikar ekki við að synda á móti straumnum. 10. Dd2 e5 11. Bxe5 Bf5 12. Bf3 Dg6 13. O-O-O Rc5 14. De3 Bb1 15. Hd2 Bxa2 16. Bd6+ Re6 17. Be4 Dh6 18. f4 Rf6 19. Rf3 Bxc4 20. He1 O-O-O 21. Bxc6! Snjall leikur sem tryggir jafn- tefli. Svartur átti ekki um ann- að að velja en að leika 21. .. bxc6 og eftir 22. Dxa7 Hxd6 23. Da8+ Kc7 24. Da7+ er ekki meira en jafntefli að hafa. 21. … Ba6? Jaðrar við fífldirfsku en sennilega hefur „Moro“ misst af næsta leik Bacrot. 22. Rg5! Rxg5 23. Bd7+!! Það er mikill slagkraftur í þessum leik. Svartur á þrjá kosti, 23. … Hxd7 leiðir til máts eftir 24. Dc5+ Kd8 25. Be7+ Ke8 26. Dc8+ eða 23. .. Rxd7 24. Dc3+ og mátar. Þriðji valkost- urinn dugar heldur ekki. 23. … Kxd7 24. De7+ Kc6 25. Dc7+ – og Morozevich gafst upp því að mát blasir við: 25. … Kb5 26. Dc5+ Ka4 27. Db4 mát. Hjörvar Steinn að klára lokaáfangann í Pardubice Helgi Ólafsson helol@simnet.is Skák Nafn Heimilisfang Póstfang Krossgáta

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.