SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Blaðsíða 27

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Blaðsíða 27
Helgi og Hálfdán virða fyrir sér jökulinn. Hálfdán safnaði plöntum í poka og skordýrum í sérstaka dós. Þannig greindu þeir nýjar tegundir, einkum fiðrildi. Bræðurnir Hálfdán, Helgi og Sigurður koma í fyrsta skipti að togaranum Banffshire sem strandaði á Breiðamerkursandi 16. janúar árið 1905. Myndin er tekin í september 2004, tæpum 80 árum eftir að síðast sást til flaksins og nærri 100 árum eftir að það strandaði. Þegar skipið strandaði í illviðri voru 11 skipverjar um borð og var lífi þeirra bjargað af föður bræðranna, Birni Pálssyni, bónda á Kvískerjum. Að sögulegri björgun lokinni tók við ekki síðri hildarleikur í ferð Björns og fleiri Öræfinga með skipbrots- mennina til Reykjavíkur, þar sem skip beið þeirra á leið til heimahafnar í Aberdeen. Tók ferðin einn mánuð og á heimleiðinni í Öræfasveit drukknaði ungur maður í Kúðafljóti og nokkrir hestar drápust. Litlu munaði að Björn léti einnig lífið í þessari ferð.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.