SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Side 29

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Side 29
29. júlí 2012 29 norðanvindi eða svartaþoku svo vart mátti sjá út um augu en þess á milli oft hið besta sumarveður. „Fyrra sumarið voru með mér Ólöf Birna Magnúsdóttir frá Háskóla Íslands og Tancredi Caruso, ítalskur jarðvegs- dýrafræðingur. Seinna sumarið voru að- allega vinir og ættingjar dregnir með. Það var mun auðveldara en þá notuðum við þyrlu okkur til mikilla þæginda. Dvöl mín á Kvískerjum ásamt aðstoð frá Kvís- kerjabræðrum færði mér mikla vitneskju um svæðið s.s. staðsetningu sprungu- svæða, ákjósanlegar gönguleiðir og veð- urfar.“ María segir leiðangrana hafa gengið mjög vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Hún lagði áherslu á að fylgjast vel með veðurspám og farsímasamband var með ágætum á jöklinum og því hægt að vara leiðangursmenn við slæmu veðri. María og samstarfsmenn hennar fóru ýmist í dagsferðir á jökulinn eða lengri ferðir og þurftu því stundum að finna sér næt- urstað á framandi slóðum. „Í Esjufjöllum á Jöklarannsóknafélagið ágætan skála sem við nýttum vel,“ segir hún. „En þegar við unnum í Káraskeri þurftum við að tjalda og það voru ekki beint hefðbundnar útilegur, þá þurfti að tína í burtu steina og hnullunga til að koma tjaldinu fyrir.“ Tileinkuð Kvískerjabræðrum Eins og áður segir dvaldi María mikið á Kvískerjum í æsku og segir hún þá dvöl hafa mótað hennar áhuga á líffræði. Hún segir framlag Kvískerjabræðra til rann- sókna á sviði náttúrfræði, líffræði, jarð- fræði og sögu sé fræðimönnum gríðarlega mikilvægt. Jafnframt tileinkaði hún doktorsverkefni sitt Kvískerjabræðrum. „Bræðurnir vita allt mögulegt um nátt- úruna á Suðausturlandi. Þeir hafa rann- sakað og skrásett dýralíf, fuglalíf, far- fugla, plöntur, jarðfræði og auðvitað jökla og jökulsker svo eitthvað sé nefnt.“ María bætir við að þeir hafi veitt fræði- mönnum aðgang að mikilvægum upplýs- ingum um öræfin og Suðausturland. Kvískerjabræður eru margfrægir fyrir framlag sitt til rannsókna á hinum ýmsu sviðum náttúrufræðinnar en þeir eru allir sjálfmenntaðir. Systkinin á Kvískerjum eru fædd á árunum 1906-1927 og María kynntist fimm þeirra á Kvískerjum. Tveir yngstu bræðurnir Helgi og Hálfdán eru á lífi og búa enn á Kvískerjum. Á milli systkinanna skapaðist verkaskipting að sögn Maríu: „Flosi var elstur, hann lærði bæði þýsku og ensku, m.a. með því að hlusta á málakennslu í útvarpi, ásamt því að einbeita sér að jöklafræði. Sigurður einbeitti sér m.a. að sagnfræði. Rúna var mikil hannyrðakona. Hálfdán sérhæfði sig í líffræði. Helgi er síðan listasmiður og aðstoðaði mig mikið, útbjó verkfæri og önnur tól til að auðvelda mér rannsókn- ina.“ María segir að rannsóknin hefði aldrei orðið að veruleika ef ekki væri fyrir Kvís- ker og bræðurna. Hún segist hafa lært mikið af þeim, hvernig eigi að horfa á náttúruna og fylgjast með þróun hennar. „Það hefði ekki hvarflað að mér að fara upp á jökul í þessar rannsóknir ef ekki væri fyrir þá. Þeir hafa stutt við bakið á mér með sinni þekkingu, meðal annars á jöklum og jökulskerjum. Auk þess fylgd- ust þeir með veðrinu fyrir mig og hjálp- uðu mér á allan mögulegan hátt.“ Það er vegna þeirra að miklu leyti að jök- ulskerin og líffræði þeirra er rannsökuð í dag, að sögn Maríu. „Skráning þeirra á hvenær jökulsker koma undan jökli og lífríki þeirra hefur gríðarlega þýðingu fyrir rannsóknirnar. Hálfdán hefur t.a.m. skráð niður hvaða smádýr og plöntur hafa fundist í skerjunum þegar hann hef- ur farið þangað í gegnum tíðina.“ María segir dásamlegt að vinna með Kvískerjabræðrum, þeir séu ótrúlega duglegir að miðla þekkingu sinni og geri það á þægilegan hátt svo auðvelt sé að taka það til sín. Rannsóknir framundan María segist hafa frekari áhuga á rann- sóknum og segir það í raun draum sinn að fá að starfa áfram á þeim vettvangi. Hún tekur fram að þó doktorsverkefninu sé lokið þá sé hún ekki búin að vinna úr nema hluta af þeim gögnum sem hún safnaði. „Ég hef áhuga á því að halda áfram með sömu rannsókn og taka hana lengra m.a. til að nýta þau gögn sem ég viðaði að mér við doktorsrannsóknina“ Rannsóknin tók um það bil fimm ár en María skrifaði doktorsritgerðina við Há- skólann í Lundi í samvinnu við Nátt- úrufræðistofnun Íslands. María segist kunna vel við sig í Svíþjóð. „Lífið hér er mjög ljúft. En ég verð samt að við- urkenna að ég sakna náttúrunnar á Ís- landi og auðvitað fjölskyldu og vina.“ María hefur þó ekki hug á því að leggjast í rannsóknir á náttúru Svíþjóðar enda seg- ist hún hafa mun meiri áhuga á heim- skautaumhverfi og náttúru Íslands. Margir velta því eflaust fyrir sér hvað doktorar í líffræði taka sér fyrir hendur en það stendur ekki á svörunum hjá Maríu. „Það er mjög misjafnt, doktorar halda margir áfram að starfa við rann- sóknir en það eru ekki allir sem gera það. Doktorar ganga í ýmis störf því dokt- orsnám veitir mikla reynslu í verk- efnastjórnun og meðhöndlun stórra gagnasafna svo eitthvað sé nefnt. Minn draumur er að halda áfram frekari rann- sóknum en hvort sá draumur verði að veruleika verður að koma í ljóst.“ Maríuskeri sumarið 2008. Hæglega má sjá hversu jökulskerin stækka hratt. Ljósmynd/María Ingimarsdóttir Maríusker í ágúst 2002. Á myndinni má sjá Helga Björnsson frá Kvískerjum. Ljósmynd/Hálfdán Björnsson María að setja niður smádýragildrur í Esjufjöllum við stórbrotnar aðstæður. Ljósmynd/Ólöf Birna Magnúsdóttir

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.