Morgunblaðið - 01.10.2012, Síða 15

Morgunblaðið - 01.10.2012, Síða 15
AFP Vinir Blá- og grænstakkarnir reykja saman og virðist fara vel á með þeim. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Afganskur öryggisvörður skaut bandarískan hermann og starfsmann verktakafyrirtækis til bana í eftirlitsstöð í Wardak-héraði á laugar- dag. Einn liðsmaður í öryggissveitum Afgan- istans snerist gegn hermönnunum og skaut mennina og nokkra afganska hermenn. Ekki hefur verið staðfest hversu margir þeir voru. Eftir bardagann er tala fallinna bandarískra hermanna komin yfir 2.000. Hersveitir á veg- um Atlantshafsbandalagsins hafa starfað í Afganistan síðan 2001. Herinn og heimamenn, sem gegna störfum hjá lögreglu eða hernum, starfa saman gegn talíbönum. Bandaríkjastjórn hefur gefið út að hermenn þeirra verði kallaðir heim fyrir árslok 2014. Hermenn á vegum Nato eiga að dvelja lengur til að þjálfa Afgana í öryggissveitirnar. Ólík- legt er talið að af því verði sökum tíðra árása sem grafa undan samstarfinu. Bardagarnir í Afganistan hafa verið nefndir bardagar blá- og grænstakka sem vísar í klæðnað þeirra, bláan búning Afgana og græn- leit herklæði Bandaríkjamanna. Veftímaritið The Long War Journal hefur tekið saman tölur frá 1. janúar 2008 til 29. september 2012. Alls hafa 60 bardagar átt sér stað á þessu tímabili, þar af rúmur helmingur þeirra, 33 árásir, það sem af er 2012. Tala látinna á þessu ári er kom- in í 53 og særðra í 50. Tveir menn féllu í slíkum bardögum árið 2008. Skilningsleysi á báða bóga Skýringin á átökunum er ekki einhlít. BBC hefur leitað að rótum átakanna meðal afg- anskra öryggisvarða og bandarískra her- manna. Tveir ólíkir menningarheimar mætast í samskiptum þeirra, skilning skortir á báða bóga og Bandaríkjamenn eru sakaðir um hroka. Álag hefur verið nefnt til sögunnar og er það rakið til viðvarandi fátæktar og ofbeldis í landinu. 2.000 bandarískir hermenn fallnir  Tveir Bandaríkjamenn féllu í bardaga við afganskan öryggissveitamann í Afganistan í gær  Átök milli heimamanna og fulltrúa Nato færast í vöxt  53 hafa látist árið 2012, aðeins tveir féllu 2008 11 ára herseta Nato í Afganistan » 2.000 bandarískir hermenn hafa fallið. » 1.066 vestrænir hermenn til viðbótar hafa fallið. » Um það bil 20.000 afganskir borgarar liggja í valnum. » Afganskir öryggisverðir eru 10.000. » 53 vestrænir hermenn hafa fallið í 36 innbyrðis átökum á árinu 2012. FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2012 Opinn kynningarfundur SA á Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 3. október kl. 8.30-10, sal H&I á 2. hæð. Frummælendur: Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins Ari Edwald, forstjóri 365 Heimir Örn Herbertsson, hrl. Helga Melkorka Óttarsdóttir, hrl. Fundarstjóri: Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já Þátttakendur fá afhent nýtt rit SA um samkeppnismál sem kemur út sama dag. Boðið verður upp á létta morgunhressingu frá kl. 8.00. VIÐHORF ATVINNULÍFSINS SAMKEPPNISLÖGIN OG FRAMKVÆMD ÞEIRRA SKRÁNING Á WWW.SA.IS Afgönsk börn bregða á leik með bleikt tau í flótta- mannabúðum á Faizabad svæðinu í Afganistan. Um 100 fjölskyldur af túrkmenskum uppruna hafa sest þar að. Sameinuðu þjóðirnar telja að 5,7 milljónir fólks hafi snúið aftur til Afganistan eftir fall talibana-ríkisstjórn- arinnar árið 2001. AFP Börn að leik í flóttamannabúðum Bleikur er flottur Eitt barn lést í sprengingu í sunnudagaskóla í borginni Naí- róbí í Kenía í gær. Sextán börn slösuðust, þar af þrjú alvarlega, við spreng- inguna og þegar þau reyndu að komastu út úr byggingunni. Óljóst er hvort sprengjunni hafi verið komið fyrir inni í kirkjunni eða henni varpað á hana. Málið er í rannsókn samkvæmt AFP- fréttaveitunni en enginn hefur lýst hermdarverkunum á hendur sér. Eftir árásina kenndi talsmaður lög- reglunnar hryðjuverkasamtök- unum Al-Shabab um ódæðið, en liðsmenn þeirra eru íslamistar frá Sómalíu. Í kjölfarið réðst hópur fólks á Sómala í Naíróbí. Keníamenn óttast að samtökin ætli sér að skapa svip- að ástand í Keníu og skapast hefur í Nígeríu þar sem ítrekað hefur ver- ið ráðist á kirkjur undanfarnar vik- ur. Talið er að Al-shabab-samtökin, sem tilheyra Al-Qaeda, séu að hefna fyrir átökin í Sómalíu. Þar berjast Keníamenn ásamt Afríku- sambandinu gegn Al-shabab- samtökunum sem nýverið yfirgáfu höfuðvígi sitt í Sómalíu. KENÍA Barn lést í sunnudagaskóla Særður Níu ára drengur, einn af mörgum börnum sem slösuðust. Kínverski auðjöf- urinn Zhang Yue, 52 ára, ætl- ar að byggja hæsta skýjakljúf í heimi á sjö mán- uðum. Hann vill að borgin Changsha verði þekkt sem Skýja- borgin. Bygg- ingin á að verða hærri en hæsta bygging heims, Burj Khalifa í Dubai. Að sögn The Telegraph verður byggingin á 220 hæðum og 2.750 fet eða 838,2 metr- ar á hæð auk 1.900 metra hás turns. KÍNA Hyggst reisa hæsta skýjakljúf heims Stærstur Verður hann jafn flottur? Minnst 32 létust í átökum í Bagdad, á svæðunum Taji, Madain og Tar- miyah í gær. 104 særðust og er ótt- ast að tala látinna fari hækkandi. Átökin hófust í gærmorgun. Lög- reglumenn, óbreyttir borgarar og hermenn urðu meðal annars fyrir bílasprengingum. Samkvæmt BBC lítur út fyrir að markmið hermdar- verkamannanna hafi verið að ná að fella þá sem gegna öryggisvörslu í borgunum. ÍRAK Fjöldi lést í árása- hrinu í Bagdad

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.