Morgunblaðið - 01.10.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.10.2012, Blaðsíða 16
FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Göngur grálúðu kunna aðleiða til þess að stjórn-unarsvæði þessarar fisk-tegundar verði endur- skoðað. Lítið sem ekkert finnst af ungviði grálúðu á Íslandsmiðum, en hins vegar veiðist talsvert af henni í íslenskri lögsögu. Síðustu misseri hafa endurheimst á Íslandsmiðum grálúður sem voru merktar við Sval- barða. Grálúðan veldur fræðingum heilabrotum á fleiri sviðum og þannig eru skiptar skoðanir um aldur hennar og vaxtarhraða. Sýnist Norðmönnum og Rússum t.d. sitt hvað þegar kemur að aðferðum við aldursákvarðanir. Grálúða skiptir miklu máli í út- gerð og fiskvinnslu hér á landi eins og sést á því að á síðasta fiskveiðiári veiddust um 13.400 tonn af henni. Út- flutningsverðmæti í fyrra nam um átta milljörðum króna. Grálúða veiðist mest í botntroll og eru hefð- bundin mið á Hampiðjutorginu svo- nefnda, djúpt vestur af Bjargtöngum. Einnig veiðist mikið af grálúðu í Norðurkanti og landgrunnskantinum austur af landinu og vestan við Fær- eyjahrygg. Norski fiskifræðingurinn Ole Thomas Albert leiðir rannsóknir á grálúðu í Noregi, og nýlega var haft eftir honum í Fiskaren að nýjar upp- lýsingar um göngur grálúðu gætu leitt til „stjórnunarlegrar áskorunar“. Einar Hjörleifsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir að vissulega geti nýjar upplýsingar um göngumynstur haft áhrif á stjórnun veiðanna. Hingað til hafi verið litið á Barentshafið sem sérstaka stjórn- unareiningu og verið aðgreint frá annarri stjórnunareiningu sem nær til Íslands, Færeyja og Austur- Grænlands. Verður eldri en áður var talið Á heimasíðu norsku hafrann- sóknastofnunarinnar er haft eftir Al- bert að grálúða verði eldri en áður var talið, en unnið er að aldursrann- sóknum á grálúðu innan Alþjóða- hafrannsóknaráðsins, ICES. Aldurs- greiningar á grálúðu hafa lengi þótt erfiðar og því hafa Norðmenn m.a. gert tilraunir með að setja efna- blöndu í fiskinn og sleppa honum síð- an aftur. Á þann hátt myndast hring- ur á kvörnunum og hægt er að telja aldurshringi út frá honum þegar fisk- urinn endurheimtist. „Það er eins og grálúðan komi hingað nokkuð fyrir fermingu þegar hún er orðin 45-50 sentimetra löng,“ segir Einar. Hann segir að nákvæm- ari upplýsingar vanti hins vegar um hrygningu hennar og uppeldissvæði. Hugsanlega sé grálúðan við Ísland komin úr tveimur hrygningarein- ingum, annars vegar vestan við land og hins vegar úr Noregshafi. Varð- andi uppeldissvæði horfi menn til Grænlands og undanskilji ekki Vest- ur-Grænland, en nýlegar heimtur á merkjum beini augum manna einnig í austurátt. Ekki aldursgreint lengur Rannsóknir standi yfir á vaxt- arhraða grálúðu og hugsanlega muni merkingarannsóknir varpa einhverju ljósi á þessi atriði. Hjá Hafrannsóknastofnun var hætt að aldursgreina grálúðu um aldamót þar sem efasemdir voru um aðferðafræð- ina sem notuð var, en kvarnasýni hafa áfram verið tekin til hugs- anlegrar greiningar síðar. Ole Thomas Albert er væntan- legur hingað til lands í vikunni ásamt fleiri norskum sérfræðingum. Rannsóknir á grálúðu munu eflaust verða umræðuefni á fundi þeirra með fiskifræð- ingum á Hafrannsóknastofnun. Nýjar upplýsingar gætu breytt stjórnun Morgunblaðið/Kristján Drjúg Grálúðan skilar milljörðum í útflutningsverðmætum. Á myndinni er Gunnar Gunnarsson, þá útgerðarstjóri Tjalds, við stæðu af frosinni grálúðu. 16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sjómenn og út-gerðarmenn deila nú um kjara- mál og er það bein afleiðing af hækkun ríkisstjórninnar á sköttum útgerð- arinnar. Þetta var fyrirsjáan- legt og eitt af því sem rík- isstjórnin kaus að horfa framhjá þegar hún gaf fordómum sínum í garð sjávarútvegsins lausan tauminn og hækkaði skatta upp úr öllu valdi. Um leið er tekist á um hver skuli bera skaðann af því að rík- isstjórnin ákvað að fella niður sjómannaafsláttinn frá og með næstu mánaðamótum. Deilur um þá skiptingu á milli sjó- manna og útgerðarmanna voru einnig fyrirsjáanlegar þegar ákvörðunin um afnámið var tek- in, en ríkisstjórnin ákvað engu að síður að gera það samhliða öðrum viðbótarálögum á sjávar- útveginn. Vandséð er hvað veldur óvild ríkisstjórnarinnar í garð þessa undirstöðuatvinnuvegar en aug- ljóst er að óvildin er til staðar. Hún verður sjálf- sagt rannsóknar- efni fræðimanna þegar fram í sækir, en það mun að litlu gagni koma nú þeg- ar sjávarútvegur- inn og sjávarbyggðirnar í kring- um landið þurfa að fást við afleiðingar óvildarinnar. Útlit er fyrir að ein afleið- ingin verði samþjöppun í sjáv- arútvegi, eins og fram kom í máli Arnars Sigurmundssonar, formanns Samtaka fisk- vinnslustöðva, á aðalfundi sam- takanna fyrir helgi. Þar sagði bankastjóri Landsbankans einnig frá því mati bankans að sjávarútvegurinn hér á landi sé að skiptast í tvennt, annars veg- ar stór og vel stæð fyrirtæki en hins vegar lítil fyrirtæki í vanda. Sjávarbyggðir víða um land gætu lent í hættu vegna skatt- píningarstefnu stjórnvalda í garð sjávarútvegsins. Stjórn- völd láta sér þó ekki segjast og hyggjast keyra í gegn enn frek- ari aðför að greininni. Stjórnvöld hafa sett allt á annan endann í sjávarbyggðum og sjávarútvegi} Afleiðingar óvildarinnar E rindið var fróðlegt sem David Miliband hélt í aðalbyggingu Háskóla Íslands í síðustu viku, enda einn helsti hugsuður vinstri- hreyfingarinnar á Bretlandi, eins og faðir hans, kennimaðurinn og marxistinn Ralph Miliband, var á sínum tíma. Það fór þó ekkert á milli mála í fyrirlestr- inum að David er enginn sósíalisti, enda er því fleygt að hann hafi tapað formannsslagnum við bróður sinn, Ed Miliband, í Verka- mannaflokknum af því að hann hafi ekki þótt nógu vinstrisinnaður fyrir verkalýðshreyf- inguna. Miliband fór vítt og breitt yfir stjórnmála- ástandið, einkum þróun mála í Evrópusam- bandinu. Hann vísaði til þess að stofnað hefði verið til Evrópusambandsins til að stuðla að friði og stöðugleika í Evrópu, en nú væri það hugs- anlega að snúast upp í andhverfu sína og margir ótt- uðust að evrusvæðið gæti orðið subbulegt bílslys. Það hefur svo sem ekki farið framhjá Íslendingum að vandinn er alvarlegur sem blasir við jaðarríkjum Evr- ópu, sem búa við miklar hagsveiflur og þola illa spenni- treyju evrunnar. En Miliband sagðist þeirrar skoðunar að aðgerðirnar sem gripið hefði verið til gerðu illt verra, einungis væri horft til fjárhagslegs stöðugleika og þjóðarskulda, en einnig þyrfti að byggja undir vöxt og ekki væri hugað nógsamlega að því. Miliband rifjaði upp að Bretar hefðu tvisvar hafnað því að taka upp evru, árið 1999 og 2003. Hann sagði það umhugsunarvert fyrir Ís- lendinga að í síðara skiptið hefðu rökin eink- um verið þau, að ekki væri nóg samleitni með efnahagslífinu í Bretlandi og ríkjum á evru- svæðinu. Því hefði reyndar verið haldið fram af Evrópusambandssinnum, að ef Bretar köstuðu pundinu og tækju upp evru, þá kæmi af sjálfu sér að samleitnin yrði meiri. En reynslan sýndi að það hefði frekar dregið í sundur með ríkjum á evrusvæðinu. Þá var hann spurður hvort hægt væri að semja um undanþágur frá reglum Evrópu- sambandsins. Svar hans var skýrt í þeim efnum. Grunnreglurnar væru ekki umsemj- anlegar og aðlögunarferlið gerði kröfur til ríkja, það væri nokkuð sem allir þyrftu að ganga í gegnum, en eftir að ríki væru komin inn í Evrópusambandið gætu þau valið hvaða sameig- inlegu verkefnum þau tækju þátt í. Allt er þetta innlegg í umræðuna á Íslandi. Það er til dæmis Íslendinga að meta hvort stjórnvöld hér á landi hafi gefið því nægan gaum að byggja undir vöxt og fjárfestingu í atvinnulífinu. Og hvort samleitnin er nóg með efnahagslífinu hérlendis og mörkuðum í öðrum ríkjum á evrusvæðinu. Svo blasir auðvitað við það sem ég hef skrifað áður á þessum vettvangi, að ef Íslend- ingar kjósa að ganga í Evrópusambandið, þá fá þeir einmitt aðild að Evrópusambandinu með þeim kostum og göllum sem því fylgja. pebl@mbl.is Pétur Blöndal Pistill Miliband, Bretar og Íslendingar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Norðmenn merktu um 25 þús- und ungar grálúður norðan við Svalbarða árin 2006-2008. Mörg merki hafa skilað sér í grálúðuafla Íslendinga og Fær- eyinga og þá fyrst og fremst úr afla íslenskra skipa, sem hefur komið vísindamönnum nokkuð á óvart. Þannig endurheimtust sex merki á Íslandsmiðum árið 2009, 15 árið 2010, 27 árið 2011 og um 12 á fyrri hluta þessa árs. Nýlega var undirritaður samningur milli Íslands og Grænlands um stjórn grálúðu- veiða á hafinu milli landanna. Kvóti næstu tveggja ára er fast- settur og eiga Íslendingar tilkall til 60% hans en Grænlendingar 40%. Árið 2013 er kvótinn 26 þús. tonn en minnkar um 15% árið 2014 og verður 22,1 þús. tonn. Skila sér af Ís- landsmiðum MERKT VIÐ SVALBARÐA Hægri flokk-arnir íNoregi og Danmörku hafa smám saman þróast í að verða smáflokkar með litla skírskotun til almennings. Þeir hafa til að mynda lengi litið út sem gagnrýnislaust stuðn- ingslið atvinnurekendasamtaka og oftast dinglað dómgreind- arlausir aftan í áhugamönnum um aðild að Evrópusamband- inu. Danski hægri flokkurinn er kominn niður í fárra prósenta stuðning hjá almenningi. Á seinasta fundi sínum leitaðist flokkurinn við að marka sér að nokkru nýja stefnu og leggja áherslu á sjálfstæðari stefnu- mörkun gagnvart Evrópusam- bandinu og leitast við að sýna að hann kynni að eiga einhverja samleið með almenningi. Því var margtuggnum ályktunum um fulla og undantekning- arlausa aðild að ESB kastað fyrir róða, og er þar vísað til undanþáganna fjögurra sem voru dúsa til að fá Dani til að samþykja samninginn sem kenndur er við Maastricht. Danski hægri flokkurinn lýs- ir því nú yfir að hann vilji fram- vegis gjalda varhug við „udvi- dende fortolkning af de fælles regler, som EU-domstolen ofte anlægger“. Hér er um stórmál að ræða og sviptir að nokkru hulunni af einni af mörgum blekkingum sem fylgja aðild að ESB fyrir þjóðir. Þegar slík aðild liggur í lofti og um hana hefjast deilur eru gildandi reglur kynntar og spurt hvort viðkomandi þjóð geti fellt sig við þær og þá fullveld- isskerðingu sem óhjákvæmilega felst í þeim. En þegar þjóð hefur verið véluð til að segja já við aðild kemur til kasta Evrópudóm- stólsins, sem er raunar fráleitt að kalla „dómstól“ enda lýtur hann ekki þeim lögmálum sem um slíkar stofnanir verða að gilda. Og eins og danski Hægri flokkurinn viðurkennir nú op- inberlega víkkar „dómstóllinn“ sífellt út túlkun sína á reglum ESB og tilskipunum í samræmi við kröfur framkvæmdastjórn- arinnar. Þetta er það sem ESB sinnar kalla svo hugfallnir „dýnamísku“ Evrópusambands- ins. Um þessa útvíkkun á Evr- ópusambandsaðild sem á sér stað viku eftir viku allan ársins hring er aldrei kosið. Aðferðin er kölluð „agúrkuaðferðin.“ Sneitt er örþunnt af fullveldi þjóðanna jafnt og þétt uns stór hluti þess er farinn. Og ekki frekar en í tilfelli agúrkunnar verður nokkru sinni aftur snúið. Ekki er líklegt að hinn síð- búni afturbati danska Íhalds- flokksins dugi honum að neinu gagni. Til þess hefur hann of mikið á samviskunni. Aldrei er kosið um útvíkkun ESB- aðildar í gegnum Evrópudómstólinn} Loks kom að því seint þó sé

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.