Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
www.baendaferdir.is s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Sp
ör
eh
f.
22. febrúar - 10. mars 2013
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir
Víetnam & Kambódía
Það eru ekki nema nokkur ár síðan Indókína opnaðist ferðamönnum eftir margra áratuga ófrið og
einangrun. Okkur er nú kleift að fá innsýn í hina ríku og framandi menningararfleifð þessara landa og þetta
ævintýralega og allt að því óraunverulega hitabeltis- og frumskógarlandslag sem þar er að finna.Víetnam og
Kambódía eru lönd sem eru í mikilli uppbyggingu en um leið ríkja þar mjög rótgrónar og gamlar hefðir. Sums
staðar gætir nýlenduáhrifa Frakka enn þann dag í dag, en búddíska menningin er þó mjög ríkjandi. Komið
verður í stórar borgir, iðandi af lífi, eins og Saigon og Hanoi sem eru miðstöðvar nútíma uppbyggingar þó alls
staðar blasi hið hefðbundna við. Líflegir markaðir verða skoðaðir og lítil vinaleg þorp sótt heim. Hér hefur lítið
sem ekkert breyst í tímans rás, þar sem hrísgrjónaakrarnir umlykja þorpin við rætur frumskógarins. Meðal
annars verður farið í bátsferð um árósa stórfljótsins Mekong, en einn af hápunktum ferðarinnar eru hin miklu
hof í Angkor í Kambódíu. Þau eru allt frá 9. öld og mynda heila borg og eru talin hin mestu í heimi.
Verð: 624.800 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Allt flug samkvæmt ferðalýsingu, skattar, hótelgisting, gisting í 1 nótt á „djúnku“, 13
morgunverðir, 12 hádegisverðir, 13 kvöldverðir, allar skoðunarferðir, siglingar, allur aðgangseyrir,
staðarleiðsögn, íslensk fararstjórn og undirbúningsfundur með fararstjóra fyrir ferð.
Kynningarfundur verður haldinn 28. nóvember kl. 20:00 í húsakynnum Bændaferða Síðumúla 2.
Á þingfundi í gær ákvað Mörð-ur Árnason af hógværð sinni
að taka Kristján Möller í kennslu-
stund í hugmyndinni að baki
rammaáætlun.
Mörður út-skýrði fyrir
þingmanninum,
sem að áliti Marð-
ar sat blautur á
bak við eyrun úti í
sal, að rammaáætl-
un fælist í að skoða
alla kosti í sam-
hengi, ekki hvern
og einn kost fyrir
sig.
Þetta átti aðvera svar við
því hvers vegna Mörður og fé-
lagar hefðu ekki tekið rökum í
meðförum sínum á rammaáætl-
uninni þegar þau hnigu að því að
færa virkjunarkost í nýting-
arflokk.
Merði láðist hins vegar að út-skýra hvernig stæði á því,
þegar allt hangir saman og
ákvörðun um einn kost getur haft
áhrif á annan, að allar ákvarð-
anir Marðar og ríkisstjórnarinnar
hafa verið um tilfærslu í eina átt.
Allar þær breytingar semmeirihlutinn – margklofinn
með fyrirvörum að vísu – gerði á
tillögum um rammaáætlun fólust
í því að færa virkjanakosti úr
nýtingarflokki í biðflokk.
Hvernig samræmist sú ein-stefna þeirri heildarhugsun
sem Mörður lét svo lítið að út-
skýra fyrir nýliðanum Kristjáni?
Kristján hlýtur að fá útskýr-ingu á því í næstu kennslu-
stund og bíður án efa spenntur.
Mörður Árnason
Heildræn ein-
stefnumörkun
STAKSTEINAR
Kristján L. Möller
Veður víða um heim 23.11., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík 2 alskýjað
Akureyri 0 skýjað
Kirkjubæjarkl. 2 rigning
Vestmannaeyjar 4 skúrir
Nuuk -7 léttskýjað
Þórshöfn 6 léttskýjað
Ósló 5 skýjað
Kaupmannahöfn 7 heiðskírt
Stokkhólmur 5 skýjað
Helsinki 7 skýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 7 skýjað
Dublin 6 léttskýjað
Glasgow 6 skúrir
London 10 léttskýjað
París 10 skýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 7 skúrir
Berlín 6 skýjað
Vín 6 alskýjað
Moskva 0 heiðskírt
Algarve 18 léttskýjað
Madríd 15 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 13 skýjað
Winnipeg -11 snjókoma
Montreal 10 skýjað
New York 10 heiðskírt
Chicago 0 alskýjað
Orlando 17 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
24. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:27 16:03
ÍSAFJÖRÐUR 10:57 15:43
SIGLUFJÖRÐUR 10:41 15:25
DJÚPIVOGUR 10:03 15:26
Hlaupið úr Grímsvötnum virðist
vera lítið. Leiðnimælingar við brúna
á Gígjukvísl í fyrradag staðfestu að
hlaupvatn var í ánni. Síðdegis í gær
var vatnshæð við brúna komin í um
125 sentimetra og var enn að vaxa. Í
gærmorgun rann vatn undir fjórð-
ungi brúarhafsins. Til samanburðar
fór vatnshæðin í 460-470 sentimetra í
hlaupinu í nóvember 2010. Þá var
rennslið metið vera um 2.600 m3 á
sekúndu. Gunnar Sigurðsson, vatna-
mælingamaður hjá Veðurstofu Ís-
lands, sagði í gær að rennslið væri þá
innan við 1.000 m3/s. Hann sagði að
ákveðið hefði verið í fyrradag að
senda ekki vatnamælingamenn aust-
ur að svo stöddu.
Sjálfvirkur vatnsmælir er við
brúna yfir Gígjukvísl og sýnir hann
vatnshæð, vatnshita og rafleiðni í
vatninu. Gunnar sagði um hádegi í
gær að enn væri að vaxa í ánni og
eins sæist greinilegur órói á á jarð-
skjálftamæli í Grímsvötnum og því
ljóst að lítið hlaup væri í gangi. Ekk-
ert benti til þess að von væri á eld-
gosi, að sögn Gunnars.
Hann benti á að hlaup hefði komið
úr Grímsvötnum seint í janúar á
þessu ári. Vatn hefði ekki farið að
safnast þar saman fyrr en seinni
hluta sumars. Það væri því ekki von
á stóru hlaupi. gudni@mbl.is
Hlaupið
virðist
lítið
Lítið vatn í
Grímsvötnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gígjukvísl Grímsvatnahlaupið 2010
var mun stærra en hlaupið núna.