Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 35
FRÉTTIR 35Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Luo Baogen, 67 ára Kínverji, bendir á hálfrifið
íbúðarhús sitt á nýlögðum þjóðvegi í Zhejiang-
héraði í austanverðu Kína. Luo og eiginkona
hans hafa staðið í málaferlum síðustu fjögur árin
og krafist þess að fá hærri bætur fyrir húsið en
yfirvöldin hafa boðið. Yfirvöldin vilja greiða
hjónunum jafnvirði 5,2 milljóna króna fyrir hús-
ið til að hægt verði að rífa það niður.
Húsið er enn með rafmagn, rennandi vatn og
sjónvarpskapal þótt það standi á þjóðveginum
sem hefur ekki verið opnaður vegna deilunnar.
Það er á meðal nokkurra húsa sem eiga að
víkja fyrir nýjum vegum eða byggingum en
standa enn þótt framkvæmdir séu hafnar í
kringum þau. Húsin stinga því í stúf við um-
hverfið og eru kölluð „naglahús“ vegna þess að
þau minna á fasta nagla sem erfitt er að draga
út.
AFP
„Naglahús“ á miðjum þjóðveginum
Leiðtogafundi
Evrópusam-
bandsins lauk í
Brussel í gær án
þess að sam-
komulag næðist
um fjárlög sam-
bandsins fyrir ár-
in 2014-2020.
Auðugu löndin í
Evrópusamband-
inu vildu skera
niður útgjöld, en á það gátu fátækari
lönd sambandsins ekki fallist.
Verði leyst á næsta ári
Herman Van Rompuy, forseti
leiðtogaráðs ESB, sagði að sam-
komulag ætti að náðst um fjárlögin
snemma á næsta ári. Van Rompuy
lagði í vikunni fram málamiðl-
unartillögu sem fól í sér að útgjöld
ESB yrðu 973 milljarðar evra, líkt
og í fyrri tillögu en að breytingar
yrðu gerðar innan fjárlagarammans
sem m.a. fól í sér niðurskurð til land-
búnaðarmála. Ekki náðist sam-
komulag um tillöguna. Francois
Hollande, forseti Frakklands, neit-
aði að samþykkja niðurskurð til
landbúnaðarmála. David Cameron,
forsætisráðherra Bretlands, sagði
tillöguna hafa í för með sér óhófleg
útgjöld og kvað Þjóðverja, Svía, Hol-
lendinga, Finna og Dana vera sam-
mála þeirri afstöðu Breta.
Spánverjar og Pólverjar eru and-
vígir niðurskurði á útgjöldum Evr-
ópusambandsins, en báðar þjóðirnar
hafa fengið mikla fjármuni til upp-
byggingar í löndunum.
Ekki var samstaða milli Frakka
og Þjóðverja á fundinum, en það er
talið hafa ráðið miklu um að ekkert
samkomulag náðist.
Fjárlaga-
deilan óleyst
Herman Van
Rompuy
Átt þú rétt
á lækkun skulda?
Sértæk skuldaaðlögun er ætluð þeim sem skulda meira en 100%
af markaðsvirði veðsettra fasteigna og bifreiða. Skuldaaðlögunin
nær til allra skulda einstaklinga hjá Íbúðalánasjóði, bönkum,
sparisjóðum og lífeyrissjóðum.
Sértæk skuldaaðlögun kemur aðeins til greina ef sýnt þykir
að vægari úrræði nægja ekki til að rétta af fjárhagsstöðuna
og fyrirséð er að viðkomandi geti ekki staðið í skilum af lánum
sínum til langframa.
Sótt er um sértæka skuldaðlögun í viðskiptabanka umsækjanda.
Frestur til að sækja um sértæka skuldaaðlögun
rennur út um næstu áramót
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969