Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 43
UMRÆÐAN 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660
Gjafir sem gleðja
Verð kr.
15.900
Verð kr.
7.200
Verð kr.
7.950
Verð kr.
5.300
Verð kr.
19.000
Verð kr.
20.500
Verð kr.
18.700
Verð kr.
12.000
Verð kr.
17.000
Verð kr.
7.950
Verð kr.
7.300
Verð kr.
4.900
Verð kr.
6.600
Verð kr.
10.500
Verð kr.
6.400
Verð kr.
6.600
Útvegsmenn hafa í
hótunum. Það er
engu líkara en þeir
hafi hrakist út í horn
hnefaleikahrings
blindir á báðum og
kýli allt sem hreyfist.
Allir skulu fá glóð-
arauga líkt og þeir í
glímu sinni við Jó-
hönnu og Steingrím.
Nú kýla þeir félaga í
Sjómannafélagi Íslands sem þó
hafa reynt að andæfa dellumakaríi
stjórnvalda. Útvegsmenn hóta að
hýrudraga sjómenn, hóta verk-
banni og hafa fengið Samtök at-
vinnulífsins til liðs við sig í vit-
leysunni.
Þetta er alveg með ólíkindum
og lýsir mikilli skammsýni. Ef út-
vegsmenn binda flotann þá má
allt eins búast við að Steingrímur
og Jóhanna efni til allsherj-
arstríðs og einfaldlega taki kvót-
ann af útvegsmönnum. Hvað gera
þeir þá? Og af hverju ættu sjó-
menn þá ekki að fá hlut í kvóta,
sölu og leigu? Af hverju ættu sjó-
menn ekki að fá hlut í ránsfeng
útvegsmanna; öllum milljörðunum
sem þeir fara með og hafa farið
með út úr greininni? Já, af hverju
ekki?
Að efna til stríðs við sjómenn
dýpkar bara kreppu sjávarútvegs.
Útvegsmenn hóta að binda flotann
við hafnarbakka og heimta breyt-
ingar á skiptaverði afla. Þeir
segja að kolefnisgjald, olía og
veiðigjöld hafi hækkað. Þeir græði
ekki nógu mikið og þess vegna
verði að ráðast á sjó-
menn.
Hvar hefur LÍÚ
verið?
Það kemur ekki
fram í máli útvegs-
manna að sjómenn
hafa sjálfir verið
hýrudregnir í skat-
taæði stjórnvalda, líkt
og aðrir landsmenn.
Raunar hafa sjómenn
verið sérstakur skot-
spónn Jóhönnu og Steingríms því
þau eru langleiðina búin að af-
nema sjómannaafslátt. Bara með
þeim gjörningi missa sjómenn sem
nemur hálfri milljón í tekjur á ári.
Í þeirra aðför hefur ekki heyrst
múkk frá útvegsmönnum, enginn
stuðningur við sjómenn. Hvar
voru útvegsmenn þegar sjómenn
voru hýrudregnir af stjórnvöldum?
Sjómenn í Sjómannafélagi Ís-
lands hafa gagnrýnt veiðileyfa-
gjaldið og skattaæði stjórnvalda,
ólíkt Alþýðusambandi Íslands og
meðreiðarsveinum þess sem hafa
fagnað dellunni. Nú er rýtingnum
beint að sjómönnum. Sjómenn
munu ekki taka hótunum með
þegjandi þögninni.
Dellumakarí LÍÚ
Eftir Jónas
Garðarsson
Jónas Garðarsson
» Að efna til stríðs
við sjómenn dýpk-
ar bara kreppu sjávar-
útvegs.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Sjómannafélags Íslands.