Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
„Val stjórnarmanna í opinberum
fyrirtækjum, fagþekking eða póli-
tísk forysta,“ er yfirskrift opins
málþings sem haldið verður
mánudaginn 26. nóvember kl. 12-
13.15 á Háskólatorgi, stofu 102, á
vegum Stofnunar stjórnsýslu-
fræða og stjórnmála við HÍ. Mál-
þingið er haldið í tengslum við
skýrslu nefndar Orkuveitu
Reykjavíkur en í kjölfar hennar
hefur átt sér stað nokkur um-
ræða um hvaða fyrirkomulag sé
heppilegast við skipan stjórn-
armanna í opinberum fyr-
irtækjum. Frummælendur eru dr.
Ómar H. Kristmundsson, prófess-
or við stjórnmálafræðideild Há-
skóla Íslands, Bryndís Hlöðvers-
dóttir, rektor Háskólans á
Bifröst, og Sóley Tómasdóttir,
borgarfulltrúi í Reykjavík. Fund-
arstjóri er Ásta Möller, for-
stöðumaður Stofnunar stjórn-
sýslufræða og stjórnmála.
Málþingið er öllum opið.
Rætt um val stjórn-
armanna í opinber-
um fyrirtækjum
Sunnudaginn 25. verður slegið upp
balli fyrir alla fjölskylduna í Húna-
búð, Skeifunni 11a, frá 14:30-
16:30. „Hér
er tækifæri
fyrir pabba
og mömmu,
afa og ömmu
og börnin að
koma saman,
taka lagið
og/eða dansa
gömlu dans-
ana,“ segir í
tilkynningu.
Harmonikuhljómsveitin Neista-
bandið ásamt söngkonunni Ingi-
björgu Jónsdóttur mun halda uppi
fjörinu. Sigvaldi danskennari stýr-
ir dansinum og verður dans-
kennsla í boði fyrir þá sem það
þurfa.
Áhersla verður lögð á gömul og
góð íslensk lög sem allir þekkja,
s.s. Suður um höfin, Viltu með mér
vaka, Litla flugan og úr Í verum.
Textablöð verða á staðnum.
Slegið upp balli fyrir
alla fjölskylduna
Í dag, laugardagdaginn 24. nóv-
ember, standa aðstandendur dans-
skólans SalsaIceland fyrir flóa-
markaði í dansstúdíóinu að
Grensásvegi 12a. Flóamarkaðurinn
verður opinn frá kl. 11-17.
„Hugmyndin að viðburðinum
kviknaði einfaldlega út frá hinu ár-
lega hreinsunarátaki sem við förum
flest í á þessum árstíma og hvað
ætti að gera við allt dótið sem kæm-
ist ekki fyrir í geymslunni. Ákveðið
var því að koma upp einföldum
flóamarkaði og selja lagerinn ódýrt
og láta allan ágóða renna til góð-
gerðarstarfsemi,“ segir í tilkynn-
ingu. Allur ágóði af sölunni rennur
til Barnaspítala Hringsins og ef
eitthvað verður eftir mun Fjöl-
skylduhjálp Íslands njóta þess.
Markaður til styrkt-
ar Barnaspítalanum
Bílakjallari Hörpu hlaut heiðursviðurkenningu
á Norrænu ljóstækniráðstefnunni í Osló í vik-
unni. Höfundar eru Verkfræðistofan Verkís og
Batteríið arkitektar sem hljóta viðurkenn-
inguna.
Í umsögn dómnefndar segir að í bílakjallara
Hörpu hafi lýsing tekist vel með samspili hvítr-
ar og litaðrar lýsingar. Einnig segir þar að
upplifun á tónleikum byrji ekki endilega þegar
tónlistarflutningurinn hefjist. Hún geti byrjað
strax þegar bifreiðinni er lagt í bílakjallara.
Leikskóli í Kumla í Svíþjóð hlaut Norrænu
ljóstækniverðlaunin í ár. Auk bílakjallara
Hörpu fékk höfnin í Álaborg í Danmörku heið-
ursviðurkenningu. aij@mbl.is
Viðurkenning fyrir
lýsingu bílakjallara
Ljósmynd/Verkís
hannabirna.isSími 499 1261
1. sæti » Reykjavík
Hanna Birna
Sameinumst um sterkan Sjálfstæðisflokk
Ég hvet allt sjálfstæðisfólk í Reykjavík til að taka þátt í
prófkjörinu í dag og stilla upp öflugum framboðslista fyrir
komandi þingkosningar. Þannig aukum við líkurnar á góðum
árangri Sjálfstæðisflokksins í vor – og gefum íslenskri þjóð
von um breytingar, fleiri tækifæri og nýja tíma!
Ég óska eftir þínum stuðningi í fyrsta sæti.