Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Breytingar í Mývatni
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sveiflur í lífríkinu í og við Mývatn
með toppum og botnum á sjö ára
fresti eru ekki nýjar af nálinni. Hins
vegar hafa lægðirnar á síðustu árum
orðið harðdrægari en áður fyrir til
dæmis silung í vatninu og hinar fjöl-
mörgu andategundir sem þar er að
finna. Önnur hlið lífsins í Mývatni er
síðan hnignun kúluskítsins, en þar
er talið að um langtímaþróun af öðr-
um toga sé að ræða. Nú er svo kom-
ið að kúluskíturinn er nánast að
hverfa úr Mývatni.
Árni Einarsson, líffræðingur og
forstöðumaður Náttúrurannsókna-
stöðvarinnar við Mývatn, hefur frá
árinu 1975 rannsakað lífríkið í Mý-
vatni. Hann segir að kúluskítnum
hafi farið að hnigna fyrir um 20 ár-
um og nú megi segja að hann sé
nánast horfinn úr vatninu. Þar sem
kúlurnar voru áður taldar í mörgum
milljónum í stórum breiðum megi nú
áætla að séu nokkur þúsund.
Árni segir að vissulega sé miður
að svona sé komið fyrir kúluskítn-
um. Hins vegar sé önnur breyting á
vistkerfinu í Mývatni mun stærri í
sjálfu sér, en teppi grænþörunga,
sem var á stórum svæðum á botni
vatnsins, er einnig að hverfa. Sam-
bærileg breyting hafi orðið mjög
víða og sé í raun á heimsvísu.
Stöðugt er unnið að rannsóknum í
Mývatni og í sumar stóð meðal ann-
ars til að nota dvergkafbát til að
kanna kúluskítinn á botni vatsnsins.
Til þess kom þó ekki að sögn Árna
þar sem vatnið var tært á rann-
sóknatímanum og hægt að sjá hvað
var að gerast á botninum.
Vaxa hratt við góð skilyrði
„Niðurstaða rannsókna sumarsins
er sú að kúluskíturinn, sem er eitt
vaxtarform grænþörungs, er við það
að hverfa úr vatninu,“ segir Árni.
„Þetta er þróun sem fyrst varð vart
fyrir um 20 árum. Í austanverðu
vatninu var risastór flekkur, sem við
höfðum ekki sérstakar áhyggjur af.
Hann er nánast horfinn og hvarf í
rauninni mjög hratt. Sömu sögu er
að segja af flekk annars staðar í
vatninu. Við fylgdumst mjög vel
með þróuninni þar og fannst vera
allt í lagi, en allt í einu gerðist eitt-
hvað og hann er við það að hverfa.
Ég fann þó einn flekk í sumar, sem
virtist vera í lagi, en hann var raun
mjög lítill.“
Árni segir að hugsanlega myndist
kúlurnar á um fimm árum og þær
geti vaxið mjög hratt við góð skil-
yrði. Greinilegt sé að þeim hnigni
Miklar sveiflur og breytt lífríki
Teppi grænþörunga á botni Mývatns að hverfa Kúluskítnum hnignar hratt og kúlurnar sem áður voru
taldar í mörgum milljónum eru nú nokkur þúsund Lægðir síðustu ára erfiðar fyrir bleikjuna
Ljósmynd/ Isamu Wakana
Af sem áður var Breiða kúluskíts á botni í Syðri flóa Mývatns en kúluskítur er meðal sérstæðra fyrirbæra í náttúrunni og var friðaður á Íslandi árið 2006.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vísindi Árni Einarsson líffræðingur hefur rannasakað lífríkið við Mývatn
í hátt í fjörutíu ár og fylgst náið með breytingum á vistkerfinu. Í Syðriflóa og víðar í Mývatni eru
grænþörungar áberandi. Um tvær
tegundir er að ræða, og er önnur
þeirra svonefndur vatnaskúfur.
Sums staðar vex hann líkt og
mosi á steinum. Einnig getur
hann legið laus í smáhnoðrum á
vatnsbotninum og myndað eins
konar teppi yfir botninn.
Loks getur hann myndað þéttar
kúlur, sem geta orðið allt að 15
sentimetrar í þvermál. Það
vaxtarform grænþörungsins er
kallað kúluskítur og hefur hingað
til fundist einkum á tveimur
svæðum í Mývatni. Hann finnst
m.a. einnig í Kringluvatni í Suður-
Þingeyjarsýslu, en verður ekki
eins stór.
Kúluskítur er grænleitur og loð-
inn og er í raun vefur hárfínna
þráða sem vaxa út frá miðju og
mynda þannig kúlulaga flóka.
Hver kúla er sjálfstæð planta sem
liggur laus frá botni vatnsins.
Nafnið mun tengjast lífsbarátt-
unni við vatnið og silungsveiðum
Mývetninga, en sagt er að þeir
nefni allt skít sem kemur í net
þeirra og er ekki fiskur.
Talið er að kúluskítur lifi ein-
ungis á örfáum stöðum í heim-
inum og aðallega í þremur stöðu-
vötnum, þ.e. í Mývatni, í
Akanvatni í Japan og einu vatni í
Úkraínu. Kúluskítur var alfriðaður
í Mývatni árið 2006 og komst þar
með í flokk með nokkrum öðrum
sjaldgæfum og sérstökum
plöntum.
Skrúðganga og dans
Kúluskíturinn lifir góðu lífi í Ak-
anvatni á Hokkaídó í Japan. Árni
var þar í haust og segir að Jap-
anir hafi gert ráðstafanir til að
veita frárennsli húsa út af vatna-
sviðinu með þeim árangri að vatn-
ið hefur orðið tærara. Kúluskít-
urinn hafi vaxið í kjölfarið, svo að
nú eru þeir á stærð við fótbolta.
Talið er að árlega heimsæki yfir
hálf milljón ferðamanna gesta-
stofu við Akanvatn til að sjá þör-
ungana og fræðast um lifn-
aðarhætti þeirra. Kúluskítnum er
haldin sérstök hátíð í október
með skrúðgöngu og dansi. Mý-
vetningar tóku sér Japani að
vissu leyti til fyrirmyndar og
efndu til kúluskítshátíðar þrjú
haust í röð.
Grænleitur og loðinn bolti
ÞRJÚ VAXTARFORM VATNASKÚFS
Pílagrímsferð Sérfræðingarnir Árni Einarsson, Christian Boedeker og Isamu Wakana á
Akanvatni. Þar dafnar kúluskíturinn vel og stærstu kúlurnar eru orðnar eins og fótbolti.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Gallerí Fold 1992–2012
ÞorvaldurSkúlason
ÞorvaldurSkúlason
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistaman-
na svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
mánudaginn 26. nóvember, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Verkin verða sýnd laugardag 11–17,
sunnudag 12–17, mánudag 10–17
Listmunauppboð
í Gallerí Fold