Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Gegn minknum duga engin vettlingatök
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Þjóðgarðurinn fékk í sinn hlut nán-
ast hreint land þar sem fyrir var
þéttasta búsvæði minka sem fannst á
Íslandi,“ sagði Reynir Berg-
sveinsson, uppfinningamaður minka-
sía og minkaveiðimaður. Hann
kveðst hafa náð miklum árangri við
veiðar á mink í minkasíur við Þing-
vallavatn sem sést best á því að veið-
in hefur minnkað ár frá ári. Þar sem
þéttleiki minkanna var mestur á 5-6
km kafla við vatnið þurfti Reynir að
hafa 40 minkasíur til að ná allri
minkasúpunni sem var við vatnið.
Árangurinn hefur ekki látið á sér
standa. Fuglalífið við vatnið er orðið
mun blómlegra og fjölskrúðugra en
þegar minkurinn réð lögum og lof-
um.
Reynir sagði að á liðnu ári hafi
verið nánast minklaust við austur-
strönd vatnsins, frá Steingrímsstöð
og upp fyrir Mjóanes. Þegar vitjað
var um síurnar frá Arnarfelli að
Skálabrekku í haust þá voru þær all-
ar hreinar, nema ein. Í henni voru
fimm minkar – ein fjölskylda.
Þjóðgarðslandið hreinsað
„Ég fór aftur fyrir fáum dögum og
þá voru hvorki spor né afli nokkurs
staðar á því svæði,“ sagði Reynir.
„Þjóðgarðslandið var gjörsamlega
hreint þar sem áður voru 60 minkar
frá Vatnsvík og yfir að Öxará.“
Hann vitjaði nýlega um síur í landi
Heiðarbæjar við vesturströnd Þing-
vallavatns og kom heim með sex
minka og greindi fjóra lifandi steggi
á svæðinu. Reynir sagði að land
Heiðarbæjar hefði orðið útundan í
veiðinni því nokkrar minkasíur hefðu
brotnað í öldugangi við ströndina og
því ekki nýst til veiða. Síðan í vor
hafa náðst tvær minkafjölskyldur í
gildrur sem var bætt við á Heiðar-
bæjarströnd og fyrir landi Skála-
brekku við vatnið vestanvert.
Reynir lagði fyrst út fimm minka-
síur við Þingvallavatn árið 2004.
Hann fjölgaði síunum ár frá ári og
árið 2008 voru þær orðnar 54 talsins
og þá náðu síurnar yfirhöndinni
gagnvart minkastofninum sem sást í
því að ársveiðin fór að minnka. Hún
hélt áfram að minnka þótt síunum
væri fjölgað en þær voru 70 talsins í
fyrra.
Reynir telur að minkastofninn við
Þingvallavatn hafi verið í hámarki
árin 2007 og 2008 og verið þá um
160-180 minkar. Hann segir að
meira en 70% af stofninum falli ár-
lega. Læðurnar gjóta í maí og koma
að jafnaði upp fjórum hvolpum. Dýr-
in eru ýmist veidd, þau drepast úr
hungri, kulda og hrakningum eða
eru drepin af refum og í umgengni
við eigin tegund. Reynir segir að
minkurinn verði fljótur að ná sér aft-
ur á strik verði veiðiálagið minnkað.
Ef hætt yrði að starfrækja minka-
síur við Þingvallavatn í eitt til tvö ár
myndi veiðiárangur síðustu fjögurra
ára tapast. Hann bendir á að frá
2009 hafi veiddum dýrum fækkað
um þriðjung á hverju ári og segir að
minkasíurnar hafi verið lykilatriði í
að ná þeim árangri.
Veiðarnar við Þingvallavatn hafa
verið hluti af tilrauna- og rannsókn-
arverkefninu Ölfus-Öxará-
Grímsnes. Reynir segir að verkefn-
inu sé nú lokið eftir átta ára vinnu.
Það var unnið með tilstyrk Þing-
vallaþjóðgarðs, Orkuveitu Reykja-
víkur, Landsvirkjunar og fleiri.
Reynir er nú að vinna úr gögnum og
undirbúa birtingu niðurstaðna rann-
sóknarinnar.
Framtíðin óviss
Reynir segir allt í óvissu um hvort
áfram verða stundaðar veiðar með
minkasíum á Suðurlandi, á svæði
sem er á annað þúsund ferkílómetra.
Tvö sveitarfélög, Grímsnes- og
Grafningshreppur og Rangárþing
ytra, hafa gefið í skyn að svo verði
ekki innan þeirra vébanda. Reynir
kvaðst eiga eftir að ræða betur við
þau.
Í fyrra voru virkar á Suðurlandi
167 minkasíur og heildarminkaveiðin
frá árinu 2004-2011 á svæðinu var
1.670 minkar. Veiðni hverrar síu á
ári minnkaði úr 3,11 dýrum á síu á
árinu 2004 niður í 1,66 minka á síu
2011 sem bendir til minnkunar
Þingvallavatn er nánast laust við mink
Minkasíur Reynis Bergsveinssonar hafa skilað miklum árangri við veiðar á mink á Þingvöllum
Gjörbreyting varð á fuglalífi í þjóðgarðinum, einkum vatnafugla, eftir að minkunum fækkaði
Ljósmynd/Úr einkasafni
Við Þingvallavatn Reynir Bergsveinsson gaukar góðgæti að villtum stokkandarkollum sem éta úr lófa hans. Fólk sem dvelur við vatnið sér mikinn mun á fuglalífinu nú og áður.
Minkasía Veiðarfærið er á kafi í vatni og dýrið fljótt að aflífast í minkasíu
Reynis Bergsteinssonar. Ekki má rugla minkasíunni við röragildrur fyrir
mink sem aðeins er stungið niður í vatn að hluta.
Brokkolítöflurnar - Cognicore® Daily
Fékk gömlu góðu
orkuna til baka !
Auk þess sléttari
húð og nýtt
glansandi heilbrigt
hár í kaupbæti.
Ég byrjaði að taka brokkolitöflurnar Cognicore efir að hafa séð vin minn sem hafði alltaf verið orkulaus og
þreyttur taka ótrúlegum breytingum eftir að hann fór að taka töflurnar. Sjálf er ég alsæl því ég fékk gömlu
góðu orkuna mína til baka. Ekki bara það, heldur hrökk meltingin hjá mér líka í lag eftir rúman mánuð og nú
fæ ég varla kvef og pestir.
Betra útlit !
Það er klárt mál að brokkolítöflurnar vinna gegn öldrunaráhrifum því fínu andlitshrukkurnar sem koma jú bara,
eru ekki nærri eins sýnilegar og áður. Húðin er sléttari, ásýndin afslappaðri og mér finnst ég líta betur út. Eins
er það með hárið sem alltaf var svo líflaust og þreytt - halló.... það er allt í einu orðið glansandi og vex meira
nú en fyrir 20 árum.
Það eru forréttindi að hafa kynnst brokkolí áhrifunum !
Hrafnhildur Hákonar
53 ára
Brokkolítöflurnar Cognicore fást í helstu
apótekum og heilsubúðum
www.brokkoli.is
Náttúrulegt fagnaðarefni fyrir frumurnar!