Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 29
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Sverrir Þór
Gunnarsson hef-
ur verið dæmdur
í 22 ára fangelsi
fyrir umfangs-
mikið fíkniefna-
smygl í Brasilíu.
Urður Gunn-
arsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi utan-
ríkisráðuneyt-
isins, staðfesti í samtali við mbl.is í
gær að ráðuneytið hefði fengið upp-
lýsingar um dóminn yfir Sverri en
að hann hefði þó enn ekki formlega
verið birtur.
Sverrir Þór var dæmdur fyrir
innflutning á 46.000 e-töflum til
Brasilíu. Töflurnar fundust í far-
angri 26 ára gamallar brasilískrar
konu, sem kom til landsins frá
Lissabon í Portúgal. Hún var stöðv-
uð á Tom Jobim-flugvellinum í Rio
de Janeiro sl. sumar. Þetta er
mesta magn e-taflna sem yfirvöld
hafa lagt hald á á umræddum flug-
velli.
Við yfirheyrslu á konunni kom
fram að hún hafi ætlað að hitta kær-
asta sinn, sem er Brasilíumaður, og
Sverri Þór á kaffihúsi í Ipanema.
Lögregla fór á staðinn og handtók
Sverri Þór og Brasilíumanninn.
Við húsleit í íbúð Brasilíumanns-
ins fannst reiðufé, maríjúana og
LSD. Þá var framkvæmd leit á hót-
elherbergi, sem Sverrir Þór dvaldi
á, og þar fannst hass. Lögreglan
segir að Sverrir Þór hafi komið til
Brasilíu með sama flugi og konan.
Honum tókst hins vegar að komast í
gegnum eftirlitið með hassið.
Dæmdur
í 22 ára
fangelsi
Sverrir Þór
Gunnarsson
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Samkvæ
mt ran
nsóknu
m hefu
r innta
ka
á Omeg
a 3 fitu
sýrum
m.a. ve
rið talin
góð
fyrir hj
arta og
æðaker
fi, bæti
einbeiti
ngu
og eigin
leika til
að læra
og mun
a. Hafi
góð áhr
if á blóð
sykursj
afnvæg
i og þá
sem ha
fa of há
tt kóles
tról, efli
og styrk
i
lifrarst
arfsem
ina. Gó
ð áhrif
á húðin
a og
teygjan
leika he
nnar og
vinni ge
gn öldr
un,
er jafnv
ægisstil
lir fyrir
lundina
og styrk
ir
heila og
taugak
erfi.
Heilsusamlegjólagjöffyrir þá semallt eiga
Seðlabanki Íslands
Gjaldeyrisútboð
Seðlabanki Íslands mun halda þrjú gjaldeyrisútboð 18. desember 2012. Útboðin þrjú eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum,
samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011 (http://sedlabanki.is/afnam) og skilmála Seðlabanka
Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011 með síðari breytingum
(http://sedlabanki.is/fjarfesting).
Útboð í fjárfestingarleið
Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi.
Fjármálafyrirtæki sem gert hafa samstarfssamning við Seðlabanka Íslands um milligöngu munu annast framlagningu umsókna um
fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt fjárfestingarleiðinni. Það útboð er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta
umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út í dagslok 28. nóvember n.k.
Útboð í ríkisverðbréfaleið
Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Tilteknir aðalmiðlarar á
skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í útboðinu gegn greiðslu í ríkisverðbréfum.
Útboð um kaup á krónum gegn greiðslu í erlendum gjaldeyri
Seðlabanki Íslands kallar eftir tilboðum frá aðilum sem vilja selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Við-
skiptabönkum er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin um kaup á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri.
Seðlabankinn áskilur sér rétt til að takmarka heildar viðskiptamagn með hliðsjón af áhrifum útboðanna á lausafjárstöðu fjármálafyrir-
tækja. Endanleg útboðsfjárhæð ræðst af þátttöku. Útboðsfyrirkomulag er með þeim hætti að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á
sama verði (e. single price). Uppgjör viðskipta í útboðunum þremur verður 3 dögum eftir að útboði lýkur. Tilboðum skal skilað eigi
síðar en 18. desember 2012. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðanna þriggja er að finna í útboðsskilmálum.
Útboðsskilmála og yfirlit um milligönguaðila, aðalmiðlara og viðskiptabanka má finna á heimasíðu Seðlabankans
http://sedlabanki.is/utbod.
Stefnt er að næstu útboðum 5. febrúar, 19. mars og 30. apríl 2013.
Nánari upplýsingar veita milligönguaðilar, aðalmiðlarar og viðskiptabankar.
Ekki liggur fyrir hvert er fordæm-
isgildi ákvörðunar úrskurð-
arnefndar um umhverfis- og auð-
lindamál sem felldi niður álagningu
sorphirðugjalds á eiganda húss í
Borgarnesi. Byggðaráð og sveit-
arstjórn Borgarbyggðar hafa leitað
eftir ráðgjöf hjá Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga og lögmanni
um það hvernig beri að vinna úr úr-
skurði nefndarinnar.
Niðurstaða úrskurðarnefnd-
arinnar grundvallast á því að sam-
kvæmt lögum um hollustuhætti og
mengunarvarnar megi gjöld aldrei
vera hærri en sem nemur rök-
studdum kostnaði við veitta þjón-
ustu eða framkvæmd eftirlits. Í lög-
um um meðhöndlum úrgangs segir
sömuleiðis að innheimt gjald skuli
aldrei vera hærra en sem nemur
þeim kostnaði sem falli til í sveitar-
félaginu við meðhöndlun úrgangs
og tengda starfsemi. Einnig var
gerð athugasemd við auglýsingu um
hina umdeildu álagningu.
Kærandinn á að fá sorphirðu-
gjaldið sem lagt var á í ár, 31 þús-
und krónur, fellt niður. Fram kom
það álit hans í frétt á mbl.is í fyrra-
kvöld að úrskurðurinn snerti alla
gjaldendur sorphirðugjalds í Borg-
arbyggð. Páll Brynjarsson sveit-
arstjóri bendir á að úrskurðurinn
taki aðeins til gjaldanda en verið sé
að athuga hvernig rétt sé að vinna
úr honum.
Álögð sorphirðugjöld eru tæpar
60 milljónir kr. í ár og hafa þau að
mestu verið innheimt. Þau hækk-
uðu um 5% frá fyrra ári. Páll segir
að álögð sorphirðugjöld hafi verið
hærri en útlagður kostnaður á síð-
asta ári vegna hagræðingar í kjölfar
nýs útboðs og breytinga á fyr-
irkomulagi sorphirðu en áður hafi
verið greitt með starfseminni.
Páll segir að álagningin verði
endurskoðuð. Veltir hann því fyrir
sér hvort lækka þurfi gjaldið um
þau 5% sem þau hækkuðu á þessu
ári.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Sorphirða Sveitarfélög mega ekki innheimta meira en nemur kostnaði.
Leita ráðgjafar
um sorphirðugjald
Fordæmisgildi úrskurðar vegna
gjaldanda í Borgarnesi talið óljóst