Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Aðskilnaður fjárfestingarbanka og
viðskiptabanka á þessum tímapunkti
gæti tafið vinnu við annars vegar
endurútreikning gengislána og hins
vegar fjárhagslega endurskipulagn-
ingu á hluta lánasafna banka.
Þetta kemur fram í umsögn Fjár-
málaeftirlitsins (FME) til efnahags-
og viðskiptanefndar um þingsálykt-
unartillögu um að Alþingi skipi
nefnd er skoði hvernig lágmarka
megi áhættu af falli fjármálafyrir-
tækja fyrir þjóðarbúið með því að
ráðast í aðskilnað á bankastarfsemi.
FME telur mikilvægt að slík nefnd
hafi til hliðsjónar núverandi stöðu
bankakerfisins þar sem „enn séu til
staðar óvissuþættir sem hafa áhrif á
mat á eiginfjárstöðu þeirra“.
FME bendir einnig á að í þings-
ályktunartillögunni sé að finna nokk-
ur frávik frá löggjöf ESB og almennt
mælir FME ekki með „séríslenskum
reglum er varða fjármálastarfsemi á
Íslandi“. Það sé ekki til þess fallið
„að styrkja ímynd og traust ís-
lenskra fjármálafyrirtækja, ef þau
starfa samkvæmt lögum sem fela í
sér veruleg frávik“ frá löggjöf EES.
Í því samhengi vekur FME at-
hygli á því að hætt sé við því að slík
áform grafi undan samkeppnisstöðu
íslenskra fjármálafyrirtækja gagn-
vart fjármálafyrirtækjum með höf-
uðstöðvar utan Íslands, en bjóða
þjónustu sína hér á landi í samræmi
við starfsleyfi heimalands síns.
Íslandsbanki og Landsbanki taka í
svipaðan streng í umsögnum sínum
og telur Íslandsbanki aðskilnað við-
skiptabanka og fjárfestingarbanka
ekki „þjóna því markmiði sem að er
stefnt heldur þvert á móti geti slíkt
aukið áhættuna og óhagræði í
bankakerfinu“. Landsbankinn segir:
„Reynslan sýnir að áhætta fjármála-
kerfisins undanfarin ár og áratugi
hafi öðru fremur verið bundin við út-
lánastarfsemi, en slík starfsemi hef-
ur jafnan verið skilgreind sem við-
skiptabankastarfsemi.“
Fram kemur í umsögn Íslands-
banka að það sé ekki endilega svo að
aðskilnaður dragi úr áhættu. Á
Norðurlöndum séu reknir aðhliða
bankar sem hafa staðið af sér
hremmingar fjármálakreppunnar. Á
sama tíma eru þeir bankar, sem
standa veikast á evrusvæðinu um
þessar mundir, smærri viðskipta-
bankar sem ekki veita fjárfestingar-
bankaþjónustu. Þess ber einnig að
geta að Lehman Brothers og Bear
Stearns voru hreinræktaðir fjárfest-
ingarbankar þegar þeir féllu 2008.
Að mati Íslandsbanka væri hag-
kvæmari leið til að tryggja innlán og
vernda almannahagsmuni, í stað að-
skilnaðar á bankastarfsemi, að setja
lög um forgangskröfur innlána í bú
bankanna ef þeir fara í greiðsluþrot.
Samtök atvinnulífsins taka undir
með viðskiptabönkunum og leggjast
gegn slíkum aðskilnaði. Ef slíkur að-
skilnaður yrði lögfestur þá „myndi
fjárfestingarbankastarfsemi færast
yfir til annarra fjármálafyrirtækja
eða markaða, skuggabankastarf-
semi, sem ekki lúta eins ströngum
reglum og bankar og því yrði fjár-
málakerfið ógegnsærra.“
Aðskilnaður gæti fram-
lengt óvissu í bankakerfinu
FME segir tillögur ekki til þess fallnar að auka „traust“ á íslenskum bönkum
Morgunblaðið/Ómar
Áhætta FME telur að aðskilnaður fjárfestingarbanka og viðskiptabanka
gæti grafið undan samkeppnisstöðu íslenskra fjármálafyrirtækja.
Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga sigr-
aði í flokki íslenskra fyrirtækja í
þremur flokkum í frumkvöðlasam-
keppni Norðurlanda, Nordic Start-
up Awards. Meniga var útnefnt
sprotafyrirtæki ársins, hlaut verð-
laun fyrir bestan árangur á alþjóð-
legum markaði auk þess sem Georg
Lúðvíksson, stofnandi og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, hlaut
nafnbótina stofnandi ársins.
Sambærileg verðlaun voru einnig
veitt í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og
Finnlandi. Sigurvegarar hvers lands
fyrir sig koma til álita við val á fyr-
irtæki ársins á Norðurlöndum.
Mörg þekkt fyrirtæki tóku þátt í
samkeppninni. Má þar nefna Data-
Market á Íslandi, Podio í Danmörku,
Spotify í Svíþjóð og iZettle, einnig í
Svíþjóð.
Meniga var stofnað árið 2009. Fyr-
irtækið framleiðir hugbúnað sem að-
stoðar fólk við að koma skipulagi á
fjármál sín í gegnum netbanka. Nú
starfa 30 manns hjá Meniga á Íslandi
og í Svíþjóð þar sem sölu- og mark-
aðsstarf fyrirtækisins fer fram. Hug-
búnaður Meniga er notaður í Ís-
landsbanka, Landsbanka, Arion
banka, Skandiabanken og hjá
finnska sparisjóðasambandinu. Auk
þess vinnur Meniga að innleiðingar-
verkefnum með fjármálastofnunum í
Þýskalandi, Póllandi og Rússlandi.
„Það er hvetjandi að fá viðurkenn-
ingu fyrir þann árangur sem náðst
hefur hjá Meniga á undanförnum ár-
um. Fyrirtækið hefur vaxið hratt og
náð góðri fótfestu á alþjóðlegum
markaði þar sem við njótum góðs
orðspors og erum álitin meðal þeirra
fremstu á okkar sviði. Félagið er óð-
um að vaxa upp úr því að geta talist
vera sprotafyrirtæki, enda vinnum
við fyrir rótgróna og kröfuharða við-
skiptavini víða um heim, og leggjum
mikla áherslu á að bjóða fyrsta
flokks faglega þjónustu sem stenst
samkeppnisaðilum okkar snúning,“
er haft eftir Georg Lúðvíkssyni,
stofnanda og framkvæmdastjóra
Meniga, í fréttatilkynningu.
Meniga sigraði í þremur flokkum
Meniga útnefnt sprotafyrirtæki árs-
ins og fyrir bestan árangur á mörkuðum
Stofnandinn Georg Lúðvíksson,
stofnandi og framkvæmdastjóri.
Landsbankinn mun á næstunni leið-
rétta endurreikning allra gengis-
tryggðra lána einstaklinga og lög-
aðila þar sem uppfyllt eru þau
skilyrði sem finna má í dómum
Hæstaréttar frá því í febrúar og
október á þessu ári.
„Við endurreikninginn verður
m.a. horft til þess hversu lengi við-
skiptavinir hafa staðið í skilum. Þeir
sem hafa verið í skilum, þegið
greiðsluúrræði og fengið fullnaðar-
kvittanir falla þar undir. Byrjað
verður á fasteignalánum einstak-
linga með lánstíma 20 ár og lengur.
Stefnt er að því að leiðréttingum
þeirra lána verði lokið fyrir jól.
Fyrstu lánin hafa þegar verið leið-
rétt og verða tilkynningar um þær
leiðréttingar sendar viðskiptavinum
á næstu dögum,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Landsbankanum.
Jafnframt að með dómi Hæsta-
réttar frá því í október hafi skýrst
hvernig leiðrétta þarf endurreikning
gengistryggðra lána og því verði fall-
ið frá tveimur af fjórum prófmálum
sem áætluð voru.
Leiðréttir lánin
Býður upp á tímabundna lækkun
● Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum,
RIKB 31 0124 fór fram hjá Lánamálum
ríkisins í gær. Útboðinu var þannig hátt-
að að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð
(hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði sölu-
verðið. Alls bárust 18 gild tilboð í RIKB
31 0124 að fjárhæð 6.200 m.kr. að
nafnverði. 5 tilboðum var tekið fyrir
3.600 m.kr. að nafnverði á söluverðinu
96,400 (6,85% ávöxtunarkröfu).
Ennfremur býðst aðalmiðlurum að
kaupa 10% af nafnverði þess sem selt
var í útboðinu á söluverði samþykktra
tilboða allt til kl. 14.00 þriðjudaginn 27.
nóvember.
Fimm tilboðum fyrir 3,6
milljarða króna tekið
● Kýpur sam-
þykkti í gær þá
skilmála sem Evr-
ópski seðlabank-
inn og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn
settu landinu fyrir
því að hljóta
neyðaraðstoð til
þess að end-
urreisa bankakerfi
sitt.
Lánardrottnar hafa tapað gíf-
urlegum fjárhæðum vegna þess
hversu samofinn efnahagur Kýpur er
Grikklandi. Útistandandi kröfur á og
skuldir kýpverska bankakerfisins nema
um 152 milljörðum evra, sem jafn-
gildir um 24.700 milljörðum króna,
eða sem svarar áttfaldri landsfram-
leiðslu, samkvæmt AGS.
Samþykkir skilmálana
Vassos Shiarly
fjármálaráðherra
● Matsfyrirtækið
Standard and Po-
or’s staðfesti láns-
hæfiseinkunn
Frakklands, AA+,
en S&P lækkaði
franska ríkið í ein-
kunn í janúar.
Fyrr í vikunni
lækkaði Moody’s
lánshæfiseinkunn Frakklands, en landið
var með hæstu einkunn.
Frakkland lækkað
Pierre Moscovici
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
,11.2
+,2.++
,+.0-,
,,.+3+
+/./45
+53.2
+.-,/2
+4,.3
+2,.,-
+,2.+0
,1+.14
+,2.3/
,+./+2
,,.,12
+/.43/
+53.4/
+.-55+
+4,.0
+2,.0
,,3.,0+3
+,2.30
,1+.-/
+,2./-
,+.//
,,.,0+
+4.115
+5-.52
+.-502
+45.-3
+25.+-
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Enginn vafi leikur á því „að óheppi-
leg tengsl milli innlánastarfsemi
og fjárfestingastarfsemi hafi átt
ríkan þátt í rótum hrunsins árið
2008“, segir í umsögn Straums
fjárfestingabanka. Með því að gera
skýrari greinarmun á þessum
tveimur þáttum megi efla fjár-
málastöðugleika.
Straumur telur að aðstæður á
Íslandi séu með þeim hætti í dag,
þar sem fjárfestingar nema aðeins
um 5% af starfsemi bankanna, að
hægt sé að aðskilja viðskipta-
banka og fjárfestingabanka með
litlum tilkostnaði og röskun fyrir
fjármálakerfið. Ísland þurfi ekki að
„bíða átekta og líta til annarra
þjóða“ heldur eigi að taka forystu í
þessum efnum.
Átti „ríkan þátt“ í hruninu
STRAUMUR VILL AÐ ÍSLAND TAKI FORYSTU Í AÐSKILNAÐI
Námskeið fyrir byrjendur í rekstri fyrirtækja og rekstri á eigin kennitölu
Bókhaldsgögn, hver eru þau og hvernig skal fara með þau
Skráning tekna, tilgangur og markmið
Skráning kostnaðar, mikilvægi og nákvæmni
Virðisaukaskattur, rauði þráðurinn
Launaútreikningar, skilagreinar og tengd gjöld
Skráning fyrirtækis og reksturs þess
Námskeiðið verður haldið á 3ju hæð að Vegmúla 2, Reykjavík, þriðjudaginn 27.nóvember, kl. 17 til 19.
Sími 517 3170. Skráning á: beggjahagur@beggjahagur.is
Námskeiðsgjald kr. 5.000 og leggst inná 1125-26-3177, kt. 431003-3170