Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 40
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
E
kki er loku fyrir það
skotið að flugvöllurinn
í Vatnsmýri verði fest-
ur í sessi í borginni til
framtíðar með sér-
stakri lagasetningu á Alþingi í vetur,
en líkur eru taldar á að meirihluti
kunni að vera fyrir því meðal þing-
manna. Jón Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, og ellefu með-
flutningsmenn standa að frumvarpi
um að miðstöð innanlandsflugsins
verði í Reykjavík og er markmiðið að
treysta flugvöllinn í sessi í borginni
„vegna verulegrar þýðingar hans
fyrir samgönguöryggi og stöðu og
framgang innanlandsflugs“, segir í
greinargerð. Meðflutningsmenn
Jóns eru sjö þingmenn Sjálfstæð-
isflokks, þrír framsóknarþingmenn
og einn stjórnarþingmaður, Sig-
mundur Ernir Rúnarsson, Samfylk-
ingunni.
Telur drjúgan meirihluta styðja
Frumvarpið var raunar áður lagt
fram á 140. löggjafarþingi en hefur
nú verið tekið fyrir tvisvar í um-
hverfis- og samgöngunefnd og á
seinustu dögum hefur borist fjöldi
umsagna við frumvarpið m.a. frá
Samtökum atvinnulífsins, Ice-
landair, Landspítalanum og sveit-
arstjórnum. Í öllum umsögnum að
einni undanskilinni er lýst stuðningi
við frumvarpið og því fagnað að með
lögfestingu þess yrði óvissu um
framtíð innanlandsflugsins eytt.
Samtökin Betri byggð leggjast hins
vegar gegn frumvarpinu.
Jón Gunnarsson segist gera sér
vonir um að frumvarpið verði af-
greitt sem lög. „Það er mjög brýnt
að eyða þessari óvissu um flugvöllinn
þannig að hægt sé að horfa til lengri
tíma og hefja framkvæmdir við að
bæta aðstöðu farþega og starfs-
fólks,“ segir hann. „Ég held að í
þinginu sé drjúgur meirihluti fyrir
því að ganga þessa leið. Þetta er auð-
vitað ansi langt seilst gangvart
skipulagsvaldi Reykjavíkurborgar
að setja þetta fram í lagafrumvarpi
en ég tel að vegna mikilvægis máls-
ins sé það réttlætanlegt í þessu til-
felli,“ segir Jón, sem á von á að málið
komi til afgreiðslu eftir áramótin.
Í umsögn Vilhjálms Egilssonar,
framkvæmdastjóra SA, segir að
mikilvægt sé fyrir alla landsmenn að
tilvist Reykjavíkurflugvallar verði
tryggð. Hverfi hann megi búast við
auknum kröfum um að þjónusta
byggist upp nær Keflavíkurflugvelli
og jafnvel að til lengri tíma dragi úr
mikilvægi Reykjavíkur sem mið-
stöðvar stjórnsýslu og þjónustu.
Vilhjálmur segir vekja athygli að í
skýrslu Reykjavíkurborgar Atvinnu-
stefna Reykjavíkur – Skapandi borg,
sem kom út í júní „er ekki að finna
eitt einasta orð um flugvöllinn eins
mikilvægur og hann er og enga um-
fjöllun um áhrif þess að hann hverfi
og hugsanlegar mótvægisaðgerðir.
Á bls. 12 í skýrslunni er að finna al-
menna ósk um tengingu innviða við
ferjur, flug, hjólreiðar og gangandi
umferð. Jafnframt að könnuð verði
hagkvæmni léttlestartengingar við
alþjóðaflugið“, segir í umsögn SA.
Í umsögn Icelandair segir að það
sé fagnaðarefni að stór hópur þing-
manna vilji tryggja að miðstöð inn-
anlandsflugsins verði áfram starf-
rækt í Reykjavík. Ekki hefur borist
umsögn frá borgaryfirvöldum við
frumvarpið. Spurður um viðbrögð
borgarinnar segist Jón eingöngu
hafa heyrt í einstökum borg-
arfulltrúum vegna málsins og skoð-
anir séu skiptar meðal þeirra.
Flugvöllurinn lög-
festur í borginni?
Morgunblaðið/RAX
Umdeilt Sveitarfélög hvetja þingmenn í umsögnum til að fylkja sér að baki frumvarpinu en Samtök um betri byggð
segja höfunda þess vanmeta ávinninginn af samþættingu innanlands- og millilandaflugs á einum flugvelli.
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Gunnar BragiSveinsson,þingmaður
Framsóknarflokks-
ins, lýsti því í um-
ræðum á Alþingi í
gær hver viðbrögð
stækkunarstjórans Stefans
Füle við spurningum um und-
anþágur frá reglum sambands-
ins hefðu verið á fundi með ís-
lenskum þingmönnum í vikunni:
„Þegar að stækkunarstjóri Evr-
ópusambandsins var spurður
um undanþágur frá reglum sam-
bandsins þá kom skýrt fram að
það er ekki hægt að veita und-
anþágur frá lagaramma sam-
bandsins. Það er eitthvað sem
við hljótum öll að skilja. Það er
ekki hægt að veita undanþágu
frá lögum.“
Jón Bjarnason, þingmaður
VG, hafði áður lýst svörum Füle
á nákvæmlega sama hátt og
Gunnar Bragi.
Skúli Helgason, þingmaður
Samfylkingarinnar, hafði allt
aðra sögu að segja af svörum
Füle og lét í veðri vaka að hægt
væri að semja um hvað sem er,
sem er sú lína sem samfylking-
armenn og aðrir þeir sem segj-
ast vilja „kíkja í pakkann“ hafa
haft á hraðbergi.
Með þessu er blekkingunni
haldið að Íslendingum í þeirri
von að hægt sé að toga þá smám
saman inn í Evrópusambandið,
svo rólega að þeir verði þess
ekki varir fyrr en skyndilega
verði búið að skella í lás að baki
þeim.
En blekkingin snýr ekki að-
eins að Íslendingum, því að sam-
kvæmt lýsingu Ragnheiðar El-
ínar Árnadóttur, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins, beita sam-
fylkingarmenn og samherjar
þeirra í Evrópumálum blekk-
ingunni einnig á hinn veginn.
Ragnheiður sagði að á fundinum
með Füle hefði hún áttað sig á
að þingmenn Evrópuþingsins og
Stefan Füle skildu ekki alveg
hvernig andrúmsloftið væri hér
á landi, en að á fundinum með ís-
lensku þingmönn-
unum hefðu þeir
fengið skilaboðin
þar um beint. Þess
vegna hefði fund-
urinn verið mik-
ilvægur; Evr-
ópuþingið og Evrópusambandið
þyrftu að vita hver staðan hér er
raunverulegulega í stað þess að
fá bara að heyra „einhliða
mærðarræður“ utanrík-
isráðherra.
En blekkingarnar í aðlög-
unarferlinu eiga sér ekki aðeins
þessar tvær hliðar, þær eru mun
margslungnari. Birgir Ár-
mannsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, minnti til að
mynda á að í ágúst hefði mátt
skilja nokkra þingmenn VG, þar
með talda tvo ráðherra, þannig
að þeir teldu ástæðu til að taka
stöðu aðildarumsóknarinnar til
endurskoðunar nú í haust.
Margir á þinginu hefðu bundið
vonir við að einhver meining
hefði verið á bak við þessi orð
enda hefðu yfirlýsingarnar ver-
ið skýrar. Síðan hafi ekki frést
af málinu.
Það er rétt sem Birgir bendir
á að allt útlit er fyrir að orð
nokkurra þingmanna VG –
raunar meirihluta þingflokksins
– hafi aðeins verið ætluð til að
slá á óánægju almennra flokks-
manna en ekki til að orðunum
yrði fylgt eftir með aðgerðum.
Engum kemur á óvart að
Samfylkingin haldi sig við að
beita blekkingum til að sann-
færa fólk um að í ESB-pakk-
anum sé eitthvað annað en ESB.
Það kemur hins vegar nokkuð á
óvart ef VG telur sig geta farið í
gegnum aðrar kosningar með
margsvikin loforð um afstöðuna
til aðildar að ESB á bakinu. Ef
til vill telur formaður Vinstri
grænna að hann geti skipt um
kúrs rétt fyrir kosningar og
bætt þannig fyrir svikin. En þá
treystir hann á að kjósendur VG
séu gleymnari en stjórn-
málamenn hafa hingað til þorað
að reiða sig á.
Svör Stefans Füle
voru skýr en spuna-
menn halda samt
áfram með sinn þráð}
Skýr svör og blekkingar
Eins og heyramá á tals-
mönnum launa-
manna og atvinnu-
rekenda eru
kjarasamningar í
uppnámi. Sú hætta vofir yfir að
þeim verði sagt upp innan
fárra vikna og fari svo er
ástæðan einföld. Forseti ASÍ
lýsir henni með þessum orðum:
„Maður sér ekki neinn vilja til
þess hjá stjórnvöldum að
stuðla að efnahagslegum um-
skiptum á næsta ári.“
Þrátt fyrir að margar að-
stæður sé hagfelldar glímir at-
vinnulífið við mikinn heima-
tilbúinn vanda sem
ríkisstjórnin ber
fulla og alla ábyrgð
á. Ísland þarf öfl-
ugt atvinnulíf og
hagvöxt til að hægt
sé að bæta kjör almennings en
á þessu skortir allan skilning
hjá núverandi stjórnvöldum,
sem halda atvinnulífi og þar
með hagvexti niðri.
Sem betur fer styttist í að
þessi stjórnvöld kveðji, en
þeim gæti tekist að vinna
margvísleg óþurftarverk þang-
að til. Jafnvel uppsögn kjara-
samninga og upplausn á vinnu-
markaði.
Ríkisstjórnin ber
fulla ábyrgð á því
hvernig komið er}
Kjarasamningar í uppnámi Þ
egar alþingismaður setur fram til-
lögur um að fjölmiðlum verði
bannað að taka og birta myndir
úr dómhúsum er sjálfsagt að
B fylgi A. Í lagafrumvarpi leggur
Siv Friðleifsdóttir til að öðrum en dómstól-
unum sjálfum verði óheimilar myndatökur við
réttarhöld. Slíkt hafi þó færst í vöxt, sér-
staklega í opinberum málum.
„Leiðir það til þess að hinn ákærði og vitni
þurfa jafnan að hafa vara á sér að þessu leyti á
meðan á þinghaldinu stendur, í stað þess að ein-
beita sér að málsvörn sinni eða vitnaleiðslu. Þyk-
ir þessi aðstaða vera til þess fallin að trufla máls-
aðila. Það hefur slæm áhrif,“ segir í greinargerð.
Ætla má að myndbirtingar af þeim sem
mæta í dómhús séu viðkomandi ekkert gleði-
efni. Hitt ber á að líta að fréttir verða sjaldan
sagðar nema myndir fylgi. Þær eru hluti frásagnar. Og
munum líka að dómshald er jafnan að nokkru leyti leik-
þáttur, atskák þar sem sækjendur og verjendur takast á
með brellum. Þær ná líka oft út fyrir réttarsal með það
fyrir augum að spila á almenningsálitið. Þegar sakborn-
ingar í Baugsmálinu mættu á sínum tíma til þinghalds
örkuðu þeir eftir Austurstræti í þaulskipulögðu atriði. Og
var tilviljun þegar Jón Ásgeir Jóhannesson mætti í hér-
aðsdóm með málsskjöl í Bónuspoka? Réttarhöld í Lands-
dómsmálinu gagnvart Geir H. Haarde voru sömuleiðis og
sýnilega að nokkru eftir skrifuðu handriti.
Ástæðulaust er að fjölmiðlar birti ítarlegar frásagnir
eða myndir af sögupersónum í minniháttar
málum. Ef krakkagrey fara vill vegar í dóp-
rugli og stela smádóti eru það harmleikir sem
skal ljúka í kyrrþey. Hins vegar sjálfsagt að segja
ítarlega frá því þegar bankabarónarnir mæta til
þinghalds eða eru færðir undir manna hendur.
Þegar fallnir þjóðargæðingar sem fóru fram af
kappi fremur en forsjá, með hræðilegum af-
leiðingum, eiga að standa fyrir máli sínu er
eðlilegt að greina frá því í máli sem myndum. Í
þessu er frásögnin liður A og myndir B. Er því
líklegt að fljótlega komi fram á Alþingi tillaga
að regluverki um hvernig frásögnum af dóms-
málum skuli hagað; það er stíll, orðfæri, fyr-
irsagnir, umbrot á síðu eða hvenær í atriðaröð
fréttatíma ljósvakans málið fari í loftið.
Stundum þegar góðmennskuköst grípa
stjórnmálamenn ræða þeir fjálglega um frelsi
fjölmiðla og lýðræðislegt mikilvægi. Það er marklaust
mas. Engir eru jafn afskiptasamir um vinnubrögð fjöl-
miðla og pólitíkusar. Tillaga Sivjar er afbrigði af því.
Og í lokin. Það er eins og mig minni að einhverntíma
hafi verið talað þrískiptinguna; það er löggjafar-, fram-
kvæmda- og dómsvald og að hver þessara stofnana væri
tiltölulega óháð hinni. Því vekur satt að segja furðu þegar
alþingismaður vill breyta lögum á þann veg að löggjafinn
komi með inngrip í starfshefðir dómsvalds og fjölmiðla.
Því verður að segja að tillaga Sivjar Friðleifsdóttur stenst
enga skoðun – og fer best á því að hér ljúki þessu grein-
arkorni með punkti. sbs@mbl.is
Sigurður Bogi
Sævarsson
Pistill
Réttarhöld eru leiksýning
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
Í umsögn Landspítalans við frum-
varpið um framtíð flugvallarins er
minnt á mikilvægi hans fyrir
sjúkraflug og að akstur á spítala
taki eins stuttan tíma og kostur er.
Fram kemur að gert er ráð fyrir
þyrlupalli á þaki nýbyggingar
Landspítalans en skv. forsendum
Flugmálasjórnar verði þyrlupall-
urinn skilgreindur sem ,,Non-
instrument“, þ.e. ekki sé gert ráð
fyrir að þar sé lent í blindflugi. ,,Þá
er þyrlupallur við Landspítala í
Fossvogi ekki gerður fyrir blind-
flug. Því er mikilvægt að í næsta
nágrenni sjúkrahússins sé
lendingarstaður þyrlu með blind-
flugsbúnaði ef aðstæður útiloka
lendingu á þyrlupalli sjúkrahúss-
ins.“
Ekki blindflug á þyrlupall
MIKILVÆGI SJÚKRAFLUGS